Afmælissýning Leikfélags Sólheima í Þjóðleikhúsinu
Hátíðarsýning verður á Árum, álfum og tröllum, leiksýningu Leikfélags Sólheima í Þjóðleikhúsinu 24. maí næstkomandi. Leikfélag Sólheima var stofnað árið 1931 og á því 90 ára afmæli í ár. Leikritið Árar, álfar og tröll var frumsýnt í Sólheimaleikhúsinu á sumardaginn fyrsta, þann 22. apríl sl. Sýningin sló rækilega í gegn og uppselt varð á allar sýningarnar fimm. Verkið er skrifað af Hannesi Blandon og Guðmundi Lúðvík Þorvaldssyni en Lárus Sigurðsson gerði tónlistina. Verkið er skrifað sérstaklega í tilefni 90 ára afmælis Sólheima og er byggt á sögu Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur, stofnanda Sólheima. Sagan er sett í ævintýralegan búning. Guðmundur...
Sjá meira


