Ársrit BÍL 2006-2007
Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir leikárið 20062007 er komið út. Að venju kennir þar ýmissa grasa en þar eru birtar upplýsingar um starfsemi aðildarfélaganna og Bandalagsins á liðnu leikári. Prentuð útgáfa hefur verið send til formanna leikfélaganna en einnig er hægt að nálgast ritið á PDF-formi hér .
Skilaboðaskjóðan frumsýnd 7. nóvember
Ævintýrasöngleikurinn Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson verður frumsýndur á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu miðvikudagskvöldið 7. nóvember kl. 20. Hér er á ferðinni litríkt og fjörugt ævintýri fyrir alla fjölskylduna þar sem kunnuglegar persónur skjóta upp kollinum. Leikritið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1993 og sló eftirminnilega í gegn, enda hefur verk þetta […]
Leikhús í smíðum í Kópavogi
Laugardaginn 3. nóvember var undirritaður rekstrar- og samstarfssamningur milli Kópavogsbæjar og Leikfélags Kópavogs í nýju húsnæði leikfélagsins að Funalind 2 í Kópavogi. LK, sem varð 50 ára á árinu, tók um leið formlega við húsnæðinu. Hér er um tímamót að ræða því húsið að Funalind verður fyrsta eiginlega leikhúsið í Kópavogi, þ.e. hús sem er […]
Freyvangsleikhúsið Í beinni
Á hverju ári heldur Freyvangsleikhúsið grín- og söngskemmtun að síðhausti. Sýningin Í beinni verður sýnd 2. og 3. nóvember næstkomandi í Freyvangi. Leikmynd leikhússins er nú sviðsmynd nýs sjónvarpsþáttar en allt gengur á afturfótunum svo ekki er annað hægt en að bresta í söng af og til.
Blái hnötturinn í Vestmannaeyjum
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir nú um helgina leikritið Blái Hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson.
Söngleikurinn Oliver frumsýndur
Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi frumsýnir söngleikinn Oliver eftir Lionel Bart, föstudaginn 2. nóvember kl 20:00. Leikstjóri verksins er Guðjón Sigvaldason og þýðinguna gerði Flosi Ólafsson en verkið byggir á hinni frægu sögu Charles Dickens, Oliver Twist.
Íslandsklukkan á Húsavík
Leikfélag Húsavíkur æfir nú Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness og byggir á leikgerð Bríetar Héðinsdóttur sem hún gerði fyrir Leikslistarskólann árið 1980. Mikil tónlist verður í þessari uppsetningu og er hún öll samin af Guðna Bragasyni tónlistarkennara og tónlistarstjóra uppsetningarinnar. Leikstjóri er Arnór Benónýsson. Æfingar hófust seint í ágúst og frumsýning er ákveðin 17. nóvember […]
Ökutímar frumsýnt Hjá LA
Föstudaginn 2. nóvember verður verðlaunaverkið Ökutímar eftir Paulu Vogel frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikritið hefur farið sigurför um heiminn og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Meðal annars hlaut það hin virtu Pulitzer-verðlaun þegar það var frumsýnt í Bandaríkjunum fyrir sjö árum. Glæsilegur hópur listamanna tekur þátt í uppsetningu LA á verkinu en meðal þeirra eru […]
Engin leiksýning hjá Hallvarði súganda sumarið 2008
Aðalfundur var haldinn hjá Leikfélaginu Hallvarði súganda laugardaginn 27. október sl. Aðeins stjórn félagsins mætti á fundinn en tekið skal fram að fundur telst löglegur ef löglega sé til hans boðað. Farið var yfir stöðu mála félagsins og framtíðin rædd. Ákveðið var af stjórn félagsins að taka sér leyfi frá störfum til næsta aðalfundar og […]
Endastöð Ameríka sýnt í Borgarleikhúsinu
Borgarleikhúsið býður uppá gestaleik frá Volksbühne í Berlín. Verkið og leikstjórinn eru ekki af síðri endanum en Frank Castorf er einn af virtustu leikstjórum í Evrópu í dag. Verkið sem sýnt verður er Endastöð Ameríka og er túlkun Castorfs á leikriti Tennesee Williams Sporvagninn Girnd . Sýningin er samstarfsverkefni Volksbuhne í Berlín og Salzburg Festspiel […]
Stúdentaleikhúsið frumsýnir Lífið liggur við
Laugardaginn 27. frumsýnir Stúdentaleikhúsið splunkunýjan íslenskan gamanleik, Lífið liggur við – grafalvarlegan skrifstofufarsa eftir Hlín Agnarsdóttur, leikstjóra verksins, í samvinnu við leikhópinn. Sýnt er í kjallara Norræna hússins.
Ræðismannsskrifstofan frumsýnd í Borgarleikhúsinu
Fimmtudaginn 25.október verður leikritið Ræðismannsskrifstofan frumsýnt á Nýja svið Borgarleikhússins. Leikstjóri og höfundur Jo Strömgren og sýningin er unnin í samstarfi við Jo Strömgren Kompani. Sunnudaginn 28. október kl. 20 verður svo haldin dagskrá í tengslum við sýninguna þar sem hlutverk tungumálsins verður skoðað í víðu samhengi.
Mikil aðsókn hjá sjálfstæðum leikhúsum
Aðsókn á sýningar sjálfstæðu leikhúsanna hefur stóraukist undanfarin ár. Síðastliðið leikár er engin undantekning þar sem heildaráhorfendafjöldi á sýningar sjálfstæðra leikhúsa var 255.000. Áttatíu og tvö sviðsverk voru sýnd á liðnu leikári og að meðaltali voru sýndar fjórar sýningar á dag alla tólf mánuði leikársins hjá sjálfstæðum leikhúsum.
Allt í plati hjá Leikfélagi Mosfellssveitar
Sunnudaginn 21. október klukkan 16:00 verður barnaleikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikstjórar eru þau Herdís Þorgeirsdóttir og Ólafur Haraldsson en alls standa yfir 30 manns að sýningunni.
Leikhússport í Kópavogi
Nú á haustdögum fer af stað námskeið í leikhússporti hjá Leikfélagi Kópavogs. Félagar LK eru búinr að rýma til í nýju húsnæði sínu í Funalind í Kópavogi og útbúa æfingaaðstöðu þannig að nú er þeim ekki til setunnar boðið og mun námskeiðið hefjast fimmtudaginn 25. október næstkomandi. Námskeiðið er öllum opið sem áhuga hafa á […]
Alína frumsýnd á Sauðárkróki
Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir næstkomandi laugardag, 20. október kl. 17:00, barna- og fjölskylduleikritið Alína. Höfundur og leikstjóri verksins er Skagfirðingurinn Stefán Sturla Sigurjónsson og tónlistin er eftir Valgeir Skagfjörð. Sýnt er í Bifröst.
Umfjöllun um sýningar á Mörgu smáu
Þann 6. október sl. var Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga haldin í Borgarleikhúsinu með pompi og prakt. Að þessu sinni tóku sex leikfélaög þátt, Freyvangsleikhúsið, Halaleikhópurinn, Hugleikur, Leikfélög Kópavogs og Mosfellssveitar og Leikfélagið Sýnir. Að venju var fengin fagmaður til taka út hvert til tókst og þetta árið var það leikkonan og leikstjórinn Harpa […]
Kafka krufinn á alla kanta
Í tilefni þess að í vikunni verða tvær sýningar á fjölum Þjóðleikhússins sem tengjast rithöfundinum Franz Kafka gengst leikhúsið fyrir Kafka-kvöldi í Þjóðleikhúskjallaranum næstkomandi miðvikudagskvöld. Verkið Hamskiptin, sem byggt er á einni af frægustu sögum tékkneska rithöfundarins Franz Kafka, er nú sýnt á Stóra sviðinu í rómaðri uppfærslu leikhópsins Vesturports en næstkomandi fimmtudag verður gestaleikur frá […]
Gosi frumsýndur í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 13. október kl. 14.00 verður leikritið Gosi eftir Karl Ágúst Úlfsson frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins. Verkið byggir á hinni heimsfrægu sögu ítalans Carlo Collodi um spýtustrákinn sem öðlast líf og ratar í einfeldni sinni í ótal ævintýri. Leikstjóri er Selma Björnsdóttir og tónlist er eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson.
Halaleikhópurinn með kaffileikhúskvöld
Í tilefni af 15 ára afmæli Halaleikhópsins verður kaffihúsakvöld í Halanum, Hátúni 12. föstudaginn 12. og sunnudaginn 14. október og hefjast þau kl. 20.30. Félagar í Halaleikhópnum munu flytja afrakstur af námskeiði sem haldið var nú á haustdögum undir stjórn Ágústu Skúladóttur og bar nafnið Sólóstund leikarans. Einnig verður ljóðalestur og sýnt stuttverkið Hvað drap […]
Draumasmiðjan frumsýnir Ég á mig sjálf
Miðvikudaginn 10. október frumsýnir Draumasmiðjan Ég á mig sjálf, forvarnarleikrit gegn átröskunarsjúkdómnum anorexíu,. Verkið er samið af leikhópnum og Gunnari Gunnsteinssyni. Leikarar eru Ásta Sighvats Ólafsdóttir og Bryndís Petra Bragadóttir en leikstjóri er Margrét Pétursdóttir. Frumsýningin verður í Hagaskólanum í Reykjavík klukkan tíu árdegis.
Hversu lengi logar?
Leikritið Hjónabandsglæpir eftir franska leikskáldið Eric-Emmanuel Schmitt verður tekið til sýninga á ný í Þjóðleikhúsinu. Sýningar hefjast þann 11. október í Kassanum á Lindargötu 7. Verkinu var afar vel tekið í vor og var þéttsetið á allar sýningarnar sem og aukasýningar. Sýningin hlaut ennfremur afar góða dóma hjá gagnrýnendum.
Ljósa- og hljóðvinnslunámskeið á Egilsstöðum
Í október verður boðið upp á tækninámskeið sem nýst geta vel leikfélögum á Austurlandi og nágrenni. Helgina 12. – 14. október verður haldið ljósanámskeið fyrir fólk sem vinnur í leikhúsi og öðrum sviðslistum. Kennari er Þorsteinn Sigurbergsson, námskeiðsgjald kr. 10.000.- og skráning hjá vegahusid@gmail.com Helgina 26. – 28. október verður haldið hljóðvinnslunámskeið þar […]
Jólasveinar óskast
Nú fer að líða að jólum og undirbúningur jólaballa að hefjast. Við hjá Kraðaki ehf. leitum nú leikara til að manna jólaböll vetrarins. Við leitum að sjálfstæðu og hressu fólki til að leika jólasveina, Grýlu, Leppalúða og ýmislegt annað tilfallandi. Góð laun í boði. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við okkur á kradak@kradak.is eða í símum 698-1293 Anna Begga / 699-3993 […]
Margt smátt í Borgarleikhúsinu 6. október
Þann 6. október nk. verður Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, haldin í Borgarleikhúsinu. Í þetta skiptið sýna sex leikfélög alls 15 þætti og eru það allt ný íslensk verk, samin af fólki í leikfélögunum sjálfum. Það eru Freyvangsleikhúsið, Halaleikhópurinn, Hugleikur, Leikfélag Kópavogs, Leikfélag Mosfellssveitar og Leikfélagið Sýnir sem taka þátt í Mörgu smáu þetta […]
Leikfélag Dalvíkur æfir Sölku Völku
Hjá Leikfélagi Dalvíkur standa nú yfir æfingar á Sölku Völku eftir sögu Halldórs Laxness í leikgerð Ingu Bjarnasonar og fleiri. Inga Bjarnason hefur verið ráðin leikstjóri að verkinu. Þetta er viðamikil uppfærsla, en um 40 manns taka þátt í henni, konur, karlar og unglingar og börn. Í uppfærslunni er bæði tónlist og söngur. Það er […]
Hálsfesti Helenu aftur á svið
Fimm sýningar á verkinu Hálsfesti Helenu verða sýndar núna í haust en verkið var frumsýnt á Smíðaverkstæðinu í vor. Sú fyrsta verður í kvöld, föstudaginn 28. september. Leikritið er eftir eitt þekktasta nútímaleikskáld Kanada, Carole Fréchette, en hún skrifaði verkið eftir að hafa dvalið um tíma í Líbanon árið 2000. Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir […]
Halaleikhópurinn 15 ára
Halaleikhópurinn er 15 ára í dag. Leiklistarvefurinn óskar afmælisbarninu innilega til hamingju með daginn. Halaleikhópurinn er áhugaleikhópur fatlaðra og ófatlaðra og hefur það að markmiði að iðka leiklist fyrir alla. Ýmislegt er á döfinni hjá leikhópnum. Nú í september hefur Ágústa Skúladóttir verið með uppistandsnámskeið. Afrakstur þess verður að hluta til sýndur á afmælishátíð Halaleikhópsins […]
Aðalfundur hjá Leikfélagi Hörgdæla
Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla verður haldinn á Melum, Hörgárdal, mánudagskvöldið 1. okt. nk. og hefst kl: 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf ásamt lagabreytingum. Rætt verður um starfið á komandi vetri. Allir áhugasamir er hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á stefnu og starf félagsins. Stjórnin.
Aðalfundur hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Föstudaginn 28. september kl. 20 verður aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar haldinn í húsakynnum félagsins, Gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Þar verður, auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, rædd starfsemi vetrarins og er allt áhugafólk um leiklist boðið velkomið, ekki síst þeir sem hafa áhuga á að ganga til liðs við félagið. Stjórn Leikfélags Hafnarfjarðar
Hamskiptin frumsýnd
Þjóðleikhúsið frumsýnir Hamskiptin eftir Franz Kafka á Stóra sviðinu, fimmtudaginn 27. september nk. Hér er á ferðinni ný íslensk uppfærsla á rómaðri sýningu leikhópsins Vesturports sem frumsýnd var í Lyric Hammersmith leikhúsinu London í fyrra og hlaut frábærar viðtökur. Hamskiptin eftir Franz Kafka er ein af þekktustu skáldsögum 20. aldarinnar en sagan þykir í senn […]
Æfingar hafnar á Alina
Leikfélag Sauðárkróks er komið vel á veg með æfingar á splunku-, flunku-, glænýju barnaleikriti sem heitir Alína. Leikritið er eftir Skagfirðinginn Stefán Sturlu Sigurjónsson og Valgeir Skagfjörð semur tónlistina. Stefán leikstýrir hópnum sjálfur og færist mikið í fang því leikendur verða yfir 30 talsins, þar af þrennir tvíburar hvorki meira né minna. Leikritið fjallar um […]
Stoppleikhópurinn frumsýnir Óráðni maðurinn
Laugardaginn 22. september kl. 20:00 frumsýnir Stoppleikhópurinn Óráðna manninn, nýtt verk eftir Þorvald Þorsteinsson, í Tjarnarbíói. Viðfangsefnið verksins er í senn sígilt og óvenjulegt; nefnilega leit mannsins að réttu útgáfunni af sjálfum sér inni í öllum þeim aragrúa hlutverka sem hann verður að leika á lífsleiðinni. Uppselt er á frumsýningu en önnur sýning verður sunnudaginn […]
Hnerrað aftur á Selfossi
Vegna væntanlegar leikferðar Leikfélags Selfoss til Litháen í október, sýnir félagið tvær aukasýningar af gamanleiknum Hnerrinn eftir Anton Tsjekoff síðustu helgina í september. Hnerrinn er safn einþáttunga og smásagna og það er Hörður Sigurðarson sem leikstýrir verkinu. Hann þýddi einnig enska leikgerð Michaels Frayn og er þetta frumflutningur á þessari leikgerð hér á landi. Sýnt […]
Heimsendir frumsýndur í Sjallanum
Það að heimurinn sé að enda, það er að segja líða undir lok, er hugtak sem fæstir tengja við gamansemi eða glens. Þrátt fyrir þetta háalvarlega og marghótaða hugtak hefur þremur listamönnum tekist að setja upp sýningu sem fjallar um hversu afbrigðilegt og súrealískt hugtakið heimsendir er í raun og veru. Það að heimurinn sé […]
Gott kvöld í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt barnaleikrit næstkomandi sunnudag, þann 23. september kl 13:30. Verkið Gott kvöld, eftir hina vinsælu bókverkakonu Áslaugu Jónsdóttur, verður fyrsta sýning leikársins í Kúlunni. Áslaug byggir leikritið á samnefndri bók sinni sem kom út fyrir tveimur árum, en hún hefur unnið verkið að nýju fyrir leikhús og meðal annars samið nýja söngtexta […]
Þjóðleikhúsið frumsýnir Óhapp!
Óhapp!, nýtt verk eftir Bjarna Jónsson, verður frumsýnt í Kassanum við Lindargötu 7 nk. föstudag. Meðal leikara í sýningunni eru Atli Rafn Sigurðarson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Stefán Hallur Stefánsson en leikstjóri er Stefán Jónsson.
Veturinn í Óperunni er að hefjast
Nú liggur dagskrá starfsársins 2007-2008 hjá Íslensku óperunni fyrir. Í vetur koma við sögu kvenhetjur frá ýmsum tímabilum, íslenskir sem erlendir stórsöngvarar, nýjungar í bland við dagskrárliði sem þegar hafa fest sig í sessi og ýmislegt fleira spennandi. Fyrsta frumsýning vetrarins verður 4. október, en þá verður frumsýnd hér á landi óperan Ariadne (Ariadne auf […]
Fyrsta vinnusmiðja vetrarins
Nú er vetrarstarf FLÍSS- (Félags um leiklist í skólastarfi) og Fræðsludeildar Þjóðleikhússins að fara í gang. Dagskrá vetrarins er í smíðum og mun yfirlit yfir hana verða sent innan tíðar. Stefnt er að frábærri dagskrá í vetur og mun þar bjóðast frábært tækifæri til að dýpka notkun sína á leiklist í skólastarfi. Fyrsta vinnusmiðja […]
Margt smátt 2007 í Borgarleikhúsinu
Stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin í Borgarleikhúsinu í fjórða skipti þann 6. október nk. Hún verður með aðeins breyttu sniði frá síðustu hátíð, þ.e. hún verður haldin um miðjan daginn en um kvöldið verður haldið teiti þar sem öllum þátttakendum og öðru bandalagsfólki gefst kostur á skemmta sér saman. Meiri áhersla verður lögð á að […]
