UPPI HVAÐ?

hjolastolasveitin_frett

Fimmtudagskvöldið 2. des. nk. kl. 20.30 mun uppistandsgengið HJÓLASTÓLASVEITIN tröllríða Gaflaraleikhúsinu og flytja frumsamið grínefni. Fjórir fjörugir uppistandarar – þrír í stólum og einn á skrikkjandi fótum! Tilveran verður skoðuð á spaugilegan hátt þar sem sumir standa í stað, aðrir rúlla áfram um grænar grundir í Finnskum Dal með Perkúlahjónin á bakinu.

6000 manns í Tjarnarbíói á tveimur mánuðum

Alls hafa um 6000 manns sótt viðburði í Tjarnarbíó síðan það opnaði 1. október á þessu ári eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar. Það eru Sjálfstæðu leikhúsin – SL, sem reka húsnæðið fyrir hönd borgarinnar. Boðið hefur verið upp á fjölbreytta listviðburði s.s. tónleika, dans,- og leiksýningar, fyrirlestra og  kvikmyndasýningar. Einnig hafa alþjóðlegar hátiðir verið haldnar í […]

Leikminjasafnið minnist Einars Kristjánssonar óperusöngvara

Miðvikudaginn 24. nóvember minnist Leikminjasafn Íslands aldarafmælis Einars Kristjánssonar óperusöngvara í samvinnu við Söngskólann í Reykjavík. Athöfnin fer fram í sal Söngskólans, Snorrabúð, Snorrabraut 54, kl 17. Ferill Einars verður rifjaður upp og spjald til minningar um hann í flokknum Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu afhjúpað. Sönglist verður í boði nemenda skólans.

Aukasýningar á Ódauðlegu verki um draum og veruleika

Tvær aukasýningar verða á Sjónleik Áhugaleikhúss atvinnumanna, Ódauðlegt verk um draum og veruleika, sem er fjórða í röð fimm Ódauðlegra verka um mannlegt eðli og tilvist. Af því tilefni verður endursýnt Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna á ensku en verkið er annað í röð Ódauðlegu verkanna og var sýnt á dögunum á sviðslistahátíðinni Keðju hér […]

Af Útistöðum í Ölfusi

Leikfélag ÖlfussStútungasagaLeikstjóri Ármann Guðmundsson Getur verið að í liði brennumanna við hefðbundna bæjarbrennu á Sturlungaöld hafi verið einn rómantískur blómálfur sem hugsaði um það eitt að finna fágætar jurtir sem uxu við bæinn Kaldakol meðan félagar hans brytjuðu niður menn, konur og börn? Stútungasaga sem fagnar á árinu 17 ára afmæli er vel gert ærsla […]

125. sýningin á Leitinni að jólunum og 100. sýningin á Fíusól

Fíasól var frumsýnd í mars síðastliðnum og hefur síðan þá verið sýnd fyrir fullu húsi. Sýning númer 100 er n.k. sunnudag kl. 15.  Eins og alkunna er þá er Fíasól hin mesta gæðastúlka og auk heldur uppátækjasöm með afbrigðum. Því ákvað hún að gefa Neista, styrktarfélagi hjartveikra barna sýninguna. Sjöttu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið […]

Leikfangalíf, jólaleikrit Borgarbarna, sýnt í Iðnó

Þann 27. nóvember nk. frumsýnir Barna- og unglingaleikhópurinn Borgarbörn nýtt leikrit sem heitir Leikfangalíf. Höfundur þess og leikstjóri sýningarinnar er Erla Ruth Harðardóttir. Sýningar fara fram á skólatíma, um eftirmiðdaginn og um helgar. Sem fyrr munu Borgarbörn bjóða upp á djús og piparkökur að sýningu lokinni.  Sýningargestum stendur til boða að koma með jólapakka merktum […]

Með fullri reisn í Brún, Bæjarsveit

Leikdeild Ungmennafélagsins Íslendings í Borgarfirði, frumsýndi gamanleikinn Með fullri reisn eftir Englendinginn Terrence Mcnally, undir leikstjórn Margrétar Ákadóttur, föstudaginn 12. nóvember. Húsfyllir var og skemmtu frumsýningargestir sér hið besta, enda uppsetningin með eindæmum hressileg. Í leikarahópnum að þessu sinni má sjá borgfirska bændur, nemendur, mjólkurbílstjóra, skógfræðinga,  leikskólakennara, forstöðumann og fleiri snillinga.

Íslandsklukkan sýnd á Akureyri um næstu helgi

Um næstu helgi, 19.-21. nóvember, heldur Þjóðleikhúsið í leikferð norður yfir heiðar með Íslandsklukkuna. Alls verða þrjár sýningar í menningarhúsinu Hofi á Akureyri, kvöldsýningar á föstudegi og laugardegi en á sunnudeginum er sýning kl. 14. Íslandsklukkan var frumsýnd þann 22. apríl á liðnu vori, í tilefni af 60 ára afmæli Þjóðleikhússins. Sýningin hefur fengið frábærar […]

Leikfélagið Grímnir frumsýnir þrjú leikverk á einum mánuði

Mikill kraftur er í Leikfélaginu Grímni í Stykkishólmi um þessar mundir en félagið frumsýnir þrjú leikrit núna á einum mánuði. Nú þegar hefur Grímnir frumsýnt einþáttunginn Kvöldhúm í þýðingu og leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Þann 25. nóvember verður svo Litla hryllingsbúðin frumsýnd og þann 1. desember Karíus og Baktus en Guðjón leiktýrir þessum sýningum einnig.

Mojito sýnt í Tjarnarbíói

Um sl. helgi var Mojito, nýtt leikverk eftir Jón Atla Jónasson, frumsýnt í Tjarnarbíói í leikstjórn höfundar. Hér er á ferðinni glænýtt, bráðfyndið og sjóðandi heitt leikverk úr íslenskum raunveruleika. Í verkinu er fjallað um gildismat síðustu ára, gildismat góðærisins og hvaða gjald það í raun og veru felur í sér fyrir þá sem aðhyllast […]

Stuttverk fyrir yngstu börnin hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Sunnudaginn 14. nóvember kl. 17 verður frumsýnd stuttverkadagskrá fyrir yngstu börnin hjá Leikfélagi Mosfellssveitar Sýningin kallast Ævintýri gerast enn og þar koma fram hinar ýmsu ævintýrapersónur eins og prinsessan á bauninni, geiturnar þrjár og leikhúsflugurnar Bía og Finnur. Aðeins verða sýndar þrjár sýningar, sunnudaginn 14. nóvember kl. 17, sunnudaginn 21. nóvember kl. 14 og sunnudaginn […]

Réttarhöldin eftir Franz Kafka leikgerð hjá Stúdentaleikhúsinu

Á laugardaginn kemur, 13. nóvember, mun Stúdentaleikhúsið frumsýna Réttarhöldin eftir Franz Kafka á Norðurpólnum, Sefgörðum 3, Seltjarnarnesi. Leikstjóri er Friðgeir Einarsson en hann skrifaði einnig leikgerð verksins. Skáldsagan Réttarhöldin heitir á frummálinu Der Prozess og er eins og áður segir eftir Franz Kafka  en hún var fyrst gefin út árið 1925 og er ein af […]

Æfingar hafnar á Helgi dauðans

Hjá leikfélaginu Hugleik standa nú yfir æfingar á leikritinu Helgi dauðans eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Leikstjórar sýningarinnar eru tveir, þeir Rúnar Lund og Sigurður H. Pálsson. Í leikhópnum eru ellefu manns, þar af þreyta sjö hér frumraun sína með Hugleik. Stefnt er að frumsýningu í janúarmánuði.

Aukasýningar á Jóni Oddi og Jóni Bjarna

Sunnudaginn 31. október frumsýndi Leikfélag Sauðárkróks barna- og fjölskylduleikritið um eðaldrengina Jón Odd og Jón Bjarna eftir Guðrúnu Helgadóttur. Áætlaðar voru 8 sýningar og var uppselt á flestar þeirra svo nú hefur verið ákveðið að bæta tveimur sýningum við. Þessa góðu aðsókn má líklega að nokkru leyti rekja til þess að miðaverð var lækkað umtalsvert […]

Herbergi 408 vekur athygli evrópsks leikhúsfólks

Gagnvirka netleikhúsverkið Herbergi 408 var tilnefnt til verðlauna í Prix Europa, keppni evrópskra ljósvakamiðla í flokknum Nýir miðlar nú á haustdögum. Prix Europa eru virt verðlaun í Evrópu en að keppninni koma opinberar sjónvarps- og útvarpsstöðvar í Evrópu og er t.a.m. RÚV aðili að keppninni. Tilnefnd eru verk í mörgum flokkum bæði heimildaefnis og leikins […]

Slappaðu af í Frumleikhúsinu í Keflavík

Föstudaginn 30. október frumsýndi Leikfélag Keflavíkur í samstarfi við Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja söngleikinn Slappaðu af eftir Felix Bergsson í leikstjórn Valgeirs Skagfjörð. Danshöfundur er Bryndís Einarsdóttir. Verkið gerist á 7. áratug síðustu aldar en það voru miklir umbrotatímar á Íslandi eins og annars staðar í heiminum. Við sögu koma ást, hatur, sorg, gleði, vinstri, hægri, […]

Gaflaraleikhúsið tekur til starfa

Á laugardaginn kemur, þann 6. nóvember, flytur Gaflaraleikhúsið formlega í höfuðstöðvar leiklistarinnar í miðborg Hafnarfjarðar. Athöfnin hefst klukkan 14:00 í gamla Gúttó við Suðurgötu 7 (fyrir aftan Þjóðkirkjuna) sem um langan aldur var hjartað í leiklistarstarfi Hafnfirðinga. Þar stendur uppi yfirlitssýning Leikminjasafns Íslands um sjónleikjahald í Firðinum.

Saga hússins… frumsýnt á Dalvík

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk föstudaginn 5. nóvember í Ungó. Nefnist það Saga hússins… og er eftir Arnar Símonarson og leikhópinn. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í sjötta sinn sem farið er í samstarf af þessu tagi. LD […]

Fjölskyldusýningar í Tjarnarbíói

Næsta sunnudag mun Grímuverðlaunasýningin Bólu Hjálmar í uppsetningu Stopp leikhópsins ríða á vaðið sem fyrsta fjölskyldusýnininginn í Tjarnarbíó. Tjarnarbíó ætlar að vera með sem vera með eitthvað fyrir fjölskylduna alla sunnudaga í nóvember og desember. Sirkus Sóley verður svo með tvær sýningar næstu tvær helgar á eftir. Í upphafi aðventu mætir svo Augasteinn í uppsetningu […]

Leikfélag Siglufjarðar leitar leikstjóra

Leikfélag Siglufjarðar leitar að leikstjóra sem mun mæta til starfa í janúar eða febrúar 2011.  Leikfélag verður 60 ára á næsta ári og hefur hug á að setja upp veglega sýningu af því tilefni. Áhugasamir geta sent formanni leikfélagsins, Vibekku Arnardóttur,  tölvupóst á netfangið vibearn@simnet.is

Bólu-Hjálmar í Tjarnarbíói 7. nóvember

Stoppleikhópurinn sýnir sunnudaginn 7. nóvember kl. 14.00 í Tjarnarbíói verðlaunaleikritið  Bólu-Hjálmar en leikritið er byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars en sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem Barna- og unglingasýning ársins 2009. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Aðeins verður þessi eina sýning.

Harry og Heimir á Akureyri

Nú er komið að því að þeir félagar Harry og Heimir sæki Akureyri heim. Þetta sprenghlægilega svakamálaleikrit verður sýnt í Samkomuhúsinu og verður fyrsta sýningin 5. nóvember. Harry og Heimir er gestasýning frá Borgarleikhúsinu, þar sem hún hefur verið sýnd fyrir troðfullu húsi alls 125 sinnum.

Beðið eftir græna kallinum

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir leikritið Beðið eftir græna kallinum laugardaginn 30. október. Gríma Kristjánsdóttir leikstýrir sex manna hópi ungra leikara í verkinu sem samið er í spunavinnu af leikstjóra og hópi. Leikritið fjallar um hóp fólks sem notar öll brögð til að komast yfir það sem það girnist.

Ódó á gjaldbuxum snýr aftur

Einleikurinn Ódó á gjaldbuxum verður tekið aftur til sýninga og sýnt í Tjarnarbíó. fimmtudaginn 28., föstudaginn 29., laugardaginn 30. og sunnudaginn 31. október kl. 20. Leikstjóri, höfundur, leikmyndar- og búningahönnuður er Ásdís Thoroddsen. Leikari er Þórey Sigþórsdóttir

Áhugaleikhúss atvinnumanna sýnir Október

Október, örverk um upp-reisn verður sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is kl. 12.30 föstudaginn 29. október frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð. Áhorfendur eru boðnir velkomnir í Útgerðina til að upplifa sjónleikinn með berum augum eða sitja í sínu umhverfi fyrir framan tölvuna og fylgjast með í beinni útsendingu. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir.

Frumsýningu Leikfélags Ölfuss á Stútungasögu frestað

Frumsýningu Leikfélags Ölfuss á Stútungasögu, sem vera átti í kvöld, þriðjudaginn 26. október kl. 20.00, hefur af óviðráðanlegum orsökum verið frestað til 2. nóvember. Leikritið er  eftir fjóreykið Ármann Guðmundsson, Hjördísi Hjartardóttur, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason og er paródía á Sturlungaöldina. Segir þar frá ástum og ofbeldi, klækjum og klaufaskap, hetjuskap og hálfvitagangi auk […]

Ódauðlegt verk um draum og veruleika frumsýnt 27. október

Sjónleikur Áhugaleikhúss atvinnumanna, Ódauðlegt verk um draum og veruleika, verður frumfluttur Miðvikudaginn 27.október í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna. Verkið er fjórða í röð fimm Ódauðlegra verka um mannlegt eðli og tilvist og gerist á huglægum stað handan tíma og rýmis. Verkið spyr hvort sé raunverulegra, það sem fer fram í huga fólks eða það sem sýnilega […]

Barnaleikrit 10 haust í röð og af því tilefni lægra miðaverð

Nú í haust hefur Leikfélag Sauðárkróks sett upp barnaleikrit í 10 ár í röð. Stjórn LS hefur ákveðið að halda upp á þessi tímamót með því að bjóða áhorfendum sínum miða á Jón Odd og Jón Bjarna á einungis 1000 krónur! Frumsýning á Jóni Oddi og Jóni Bjarna verður í Bifröst sunnudaginn 31. október kl. […]

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn sýnir Fiskar á þurru landi

Föstudaginn 22. október frumsýnir Leikfélagið Skagaleikflokkurinn Fiska á þurru landi eftir Árna Ibsen í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Sýningin hefst kl. 20 og er sýnt í Arctic-húsinu, Vesturgötu 119. Þetta er verk með undirtitilinn ólíkindagamanleikur og leikstjórinn fer skemmtilega leið í uppsetningunni, þar sem dansað er á línunni milli raunveruleikans og fáranleikans, en einnig er sótt […]

Ný íslensk ópera frumsýnd

Ný íslensk ópera, Hlini, verður frumsýnd laugardaginn 23. október í Iðnó. Flytjendur eru nemendur í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Höfundur texta og tónlistar er Þórunn Guðmundsdóttir, en þetta er þriðja óperan sem Tónlistarskólinn í Reykjavík setur upp eftir hana. Líkt og í fyrri óperum sækir Þórunn söguefnið í íslenskan þjóðararf  og notar hið alþekkta ævintýri um […]

Tvær danssýningar í Tjarnarbíói

Fimmtudaginn 21. okt kl. 20 verða tvær danssýningar sýndar í Tjarnarbíói, Singletrack eftir Jacek Luminski flutt af dönsurum ÍD og Colorblind eftir Sigríði Soffíu með dönsurum frá Silesian Dance Theatre. Þessar sýningar eru hluti af Dance Bridge verkefni Silesian Dance Theatre Pólandi, ÍD og SL á Íslandi og Samovarteateret Noregi.

Leikfélagið Peðið sýnir Sögur af mannlífsklakanum

Síðastliðinn laugardag frumsýndi Leikfélagið Peðið leikritið Sögur af mannlífsklakanum við frábærar undirtektir áhorfenda. Sýningin fór fram í nýinnréttuðu „leikhúsi“ á  Gallerí Bar 46 að Hverfisgötu 46. Þessi leiksýning er 13 verkið sem Peðið setur upp og er höfundur þess Jón Benjamín Einarsson, leikstjóri er Björn Gunnlaugsson og tónlist er samin og flutt af Magnúsi R. […]

Þjónustumiðstöðin hefur aftur starfsemi af fullum krafti

Nú er óðum allt að komast í samt lag á Þjónustumiðstöð Bandalagsins eftir innbrotið á dögunum. Verslunin er aftur opin og komin í fulla starfsemi eftir að hafa aðeins geta veitt lágmarksþjónustu undanfarnar tvær vikur. Ráðstafanir hafa verið gerðar til að forða því að svona lagað komi fyrir aftur, t.d. er ætlunin að setja upp […]

Finnski hesturinn frumsýnt 15. október

Þjóðleikhúsið frumsýnir á föstudaginn Finnska hestinn en leikritið sló rækilega í gegn í heimalandinu þegar það var fyrst sýnt árið 2004. Síðan þá hefur leikritið verið sýnt í fjölmörgum uppsetningum í heimalandinu sem og víðar í Evrópu og Bandaríkjunum. Finnski hesturinn er bráðfyndið og snargeggjað verk um mergjað fjölskyldulíf og mál sem brenna á Íslendingum í dag. […]

Kattholt komið til Ísafjarðar

Litli leikklúburinn fagnar 45 ára afmæli sínu með veglegri uppfærslu á einu vinsælasta barnaleikriti allra tíma Emil í Kattholti eftir sænsku skáldkonuna Astrid Lindgren. Frumsýnt verður í Edinborgarhúsinu á Ísafirði laugardaginn 16. október kl.14.  Leikstjóri sýningarinnar er Elfar Logi Hannesson en hann hefur sett á svið fjölmargar vinsælar sýningar fyrir félagið í gegnum árin.

Boð fyrir barnaleiksýningu á Leiklistarhátíð í Norður-Noregi

Bandalagi íslenskra leikfélaga hefur verið falið að velja leiksýningu sem boðið verður að fara á Norræna barnaleiklistarhátíð sem haldin verður í Tana í Norður-Noregi dagana 1.-7. ágúst 2011. Þar er ætlunin að 120 börn frá öllum Norðurlöndunum, baltnesku löndunum þremur, Norðvestur-Rússlandi og Grænlandi komi saman til að þroska sig í menningarlegu, mannlegu og listrænu tilliti.

Fólkið í kjallaranum í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 9. október frumsýnir Borgarleikhúsið nýtt íslenskt leikverk, leikgerð Ólafs Egils Egilssonar á Fólkið í kjallaranum eftir Auði Jónsdóttur. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Auður Jónsdóttir var fyrsta fastráðna leikskáld Borgarleikhússins og vinnur nú að ritun leikverks fyrir leikhúsið.

Borgarstjóri opnar Tjarnarbíó formlega í dag

Eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar mun Borgastjórinn í Reykjavík opna Tjarnarbíó formlega föstudaginn 8. Okt kl. 17. Við opnunina mun Sirkus Íslands og Margrét Eir skemmta gestum ásamt því að borgarstjóri og Jóhann G. Jóhannsson, formaður SL flytja stutt ávörp. Með þeim breytingum sem Reykjavíkurborg hefur gert á þessu fornfræga húsi hefur aðstaða fyrir listviðburði að […]

Jón Oddur og Jón Bjarni á Króknum

Hjá Leikfélagi Sauðárkróks eru æfingar á barnaleikritinu Jóni Oddi og Jóni Bjarna vel á veg komnar. Tvíburarnir frægu eru hugarfóstur Guðrúnar Helgadóttur en leikritið var fyrst sett upp í Þjóðleikhúsinu 2002 í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. Stjórn Leikfélags Sauðárkróks tók þá óvenjulegu ákvörðun að ráða til sín tvo leikstjóra til að stýra verkinu,  heimafólkið Sigurlaugu Vordísi […]