Styrkjum úthlutað til atvinnuleikhópa
Í gær var tilkynnt hvaða atvinnuleikhópar fá styrki frá Menntamálaráðuneytinu árið 2011. Alls sóttu 67 aðilar um styrki til 85 verkefna auk sex umsókna um samstarfssamninga. Á fjárlögum 2011 eru alls 58,4 millj. kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð renna 4 millj. kr. til skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna skv. ákvörðun Alþingis. Samtals er úthlutað til […]
Snúður og Snælda sýnir Rauðu klemmuna
Leikfélagið Snúður og Snælda er nú að hefja sitt 21. leikár. Það má því segja að leikfélagið sé búið að slíta barnsskónum. En á síðasta ári hélt það upp á 20 ára afmælið með sýningu á Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo. Að þessu sinni býður félagið upp á leikritið Rauða klemman […]
Freyvangsleikhúsið frumsýnir Góða dátann Svejk
Laugardaginn 19. febrúar klukkan 20:00 frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit hið stórskemmtilega og sígilda verk, Góði Dátinn Svejk, í leikgerð Írans Colin Teevan. Munu sýningar standa fram á vor. Stór hópur leikara og annara góðhjartaðra koma að uppsetningunni eða um fimmtíu manns, er síðast var talið. Leikstjóri er Þór Tulinus.
Aukasýningar á Súldarskeri
Vegna gríðarlegrar aðsóknar að Súldarskeri eftir Sölku Guðmundsdóttur í Tjarnarbíó er búið að bæta við fjórum auka sýningum 18. 22. 23 og 27. febrúar. Verkið er ærslafull, tragíkómísk ráðgáta sem gerist í einangruðu bæjarfélagi sem á sér ógnvænlegt leyndarmál. Tvær leikkonur leika öll hlutverkin, sem eru samtals hátt í tuttugu talsins. Leikstjóri er Harpa Arnardóttir […]
Sjálfstæðir leikhópar í Borgarleikhúsinu
Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna (SL). Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus […]
Lab Loki sýnir Svikarann í Tjarnarbíói
Lab Loki frumsýnir Svikarann í Tjarnarbíó laugardaginn 19. febrúar. Verkið er einleikur, fluttur af Árna Pétri Guðjónssyni, en Rúnar Guðbrandsson leikstýrir. Þeir hafa í sameiningu unnið leikgerðina sem sækir innblástur m.a. til franska rithöfundarins Jean Genet og byggir einkum á leikverki hans Vinnukonunum (Les Bonnes). Filippía Elísdóttir sér um útlit sýningarinnar og Garðar Borgþórsson hannar […]
Blessað barnalán í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri er Sigurður Blöndal sem enn á ný leggur Leikfélaginu til krafta sína. Fyrsta leikritið sem hann leikstýrði fyrir 10 árum síðan var Týnda teskeiðin, líka eftir Kjartan. Hann leikstýrði einnig Emil í Kattholti, Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum hjá Leikfélaginu sem öll […]
Góðverk á Gjaldeyri
Halaleikhópurinn Góðverkin kalla Leikstjórar: Margét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson Leiðin til vítis er vörðuð góðum ásetningi segir einhversstaðar og því má snúa upp á leikritið Góðverkin kalla sem Halaleikhópurinn frumsýndi um liðna helgi. Leikritið sem er eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, gerist í þorpinu Gjaldeyri við Ystunöf og bakgrunnurinn í […]
Leikhúsnámskeið hjá Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ stendur fyrir þremur námskeiðum tengdum leiklist nú á vorönn. Hlín Agnardsdóttir, rithöfundur og leikstjóri, heldur tvö námskeið í leikritun, bæði grunn- og framhaldsnámskeið. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur, heldur námskeið sem hann kallar „úr heimi sviðslistanna“ þar sem hann fer í gegnum leiklistarsöguna í máli og myndum.
Ársrit BÍL 2009-10 komið út
Eftir allnokkra töf vegna innbrots er Ársrit Bandalagsins 2009–2010 loksins komið út. Reyndar er það fyrst og fremst aðgengilegt hér á netinu og er hægt að hala því niður sér að kostnaðarlausu. Þó er hægt að kaupa útprentuð eintök á 1500 kr. í þjónustumiðstöð Bandalagsins, Suðurlandsbraut 16 (eða panta og fá sent í póstkröfu á […]
Með fullri reisn í Hörgárdalnum
Leikfélag Hörgdæla hefur hafið æfingar á leikritinu Með fullri reisn eftir Terrance McNally. Leikritið er þýtt af Karli Ágústi Úlfssyni og leikstýrt af Jóni Gunnari Þórðarssyni og hefur hann ásamt leikurum staðfært verkið heim í Hörgárdalinn. Um er að ræða bændur sem sjá sér þann kost vænstan í kreppunni að drýgja tekjurnar með því að […]
Íslendingum boðið í Leiklistarskóla MáF í Færeyjum
Meginfélag áhugaleikara í Færeyjum bíður áhugasömum Íslendingum á námskeið í leikmyndagerð hjá danska leikmyndahöfundinum Jan de Neergaard eða á önnur námskeið í Leiklistarskóla Færeyja, sem starfa mun 1.-5. júní 2011 í Lýðháskóla Færeyja. Í skólanum verður einnig kennd leikritun, leikstjórn og leiklist. Íslendingum er boðin þátttaka í námskeiðinu, fæði og gisting þeim að kostnaðarlausu. Sjálfir […]
Brák á leið í Þjóðleikhúsið
Einleikurinn Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur hefur verið sýndur undanfarin þrjú ár á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi. Verkið var sérstaklega skrifað til flutnings þar og hefur sýningin, í leikstjórn Atla Rafns Sigurðarsonar, gengið fyrir fullu húsi í þrjú ár. Nú hefur Landnámssetur – Brynhildur þegið boð Þjóðleikhússins um að sýna verkið í Kúlunni og hefjast sýningar […]
Skemmtileg dauðans alvara hjá Hugleik
HugleikurHelgi dauðansLeikstjórar: Rúnar Lund og Sigurður PálssonÉg hef stundum stungið upp á því að kalla síðustu aldamótakynslóð á Íslandi, „Friends“ kynslóðina, því að engin kynslóð hefur verið eins mikið mótuð af þessari amerísku sjónvarpsþáttaseríu og hún. Það var því ánægjuefni að sjá íslenskan leikritahöfund loksins takast á við það verkefni að skoða þennan hóp þar […]
Ballið á Bessastöðum á Stóra sviði Þjóðleikhússins
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 3. febrúar Ballið á Bessastöðum, nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Gerði Kristnýju með tónlist eftir Braga Valdimar Skúlason. Verkið er byggt að hluta á hinum geysivinsælu Bessastaðabókum eftir Gerði Kristnýju og tónlistin er eftir Braga Valdimar Skúlason, sem meðal annars hefur getið sér gott orð með Baggalúti og Memfismafíunni, en semur nú í […]
Let´s Talk Iceland: Sjö frumsýningar á sjö dögum.
Kraðak ehf hefur frá júlí 2009 sýnt gamansýningar ætlaðar ferðamönnum á hverju kvöldi á Restaurant Reykjavík við góðar undirtektir. Undanfarnar vikur hafa hins vegar orðið þónokkrar breytingar á sýningunni og leikarahópurinn stækkað. Þá heitir sýningin ekki lengur Let´s talk Local – Reykjavík heldur Let´s talk Iceland.
Barnaleikritið Út í kött! í Tjarnarbíói
Lýðveldisleikhúsið sýnir leikritið Út í kött! eftir Benóný Ægisson í Tjarnarbíói sunnudaginn 30. janúar kl 14. Þetta er ævintýraleikur með dansi og söng fyrir börn en fullorðin börn ættu líka að hafa gaman að þessu fjöruga verki. Leikin atriði mynda skemmtilega umgjörð utan um söng- og dansatriði þar sem ævintýrapersónur í litríkum búningum bregða á […]
Stutt í frumsýningu hjá Halaleikhópnum
Halaleikhópurinn vinnur nú hörðum höndum að uppfærslu sinni á verkinu Góðverkin kalla! eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, en allir eru þeir meðlimir Ljótu hálfvitanna og ekki er þetta í fyrsta skipti þar sem þeir félagar koma að uppsetningu leikverka fyrir Halaleikhópinn með einhverjum hætti. Þess má til gamans geta að leikstjórar […]
Leikfélag Selfoss á fullu skriði
Hafnar eru æfingar hjá Leikfélagi Selfoss á nýju leikverki. Að þessu sinni var ákveðið að setja upp spunaverk í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Gunnar Björn hefur leikstýrt víða, meðal annars kvikmyndunum Astrópíu og Gauragangi sem og áramótaskaupum síðustu tveggja ára. Verkið er gamanleikur fyrir alla fjölskylduna, en meginþráður þess byggir á sunnlenskum þjóðsögum og er […]
Helgi dauðans hjá Hugleik
Helgi dauðans nefnist nýtt íslenskt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur sem Hugleikur frumsýnir laugardaginn 22. janúar kl. 20.00 í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Leikstjórar eru Rúnar Lund og Sigurður H. Pálsson. Í Helgi dauðans beinir höfundur sjónum sínum að veruleika íslenskra háskólanema sem reyna eftir fremsta megni að feta einstigið milli lærdóms og skemmtunar, […]
Elsku barn í Borgarleikhúsinu
Borgarleikhúsið frumsýndi í vikunni sem leið leikritið Elsku barn eftir breska leikskáldið Dennis Kelly í þýðingu Hafliða Arngrímssonar. Elsku barn er nístandi leikrit sem fjallar um óbærilegan sársauka og lætur engan ósnortinn. Hér er á ferð heimildaleikrit sem fjallar um tilraunir fólks til að leita sannleikans. Í þeirri mögnuðu leit komumst við á snoðir um […]
Súldarsker sýnt í Tjarnarbíói
Föstudaginn 14. janúar var Súldarsker, nýtt leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur, frumsýnt í Tjarnarbíó. Verkið er ærslafull, tragíkómísk, ráðgáta sem gerist í einangruðu bæjarfélagi sem á sér ógnvænlegt leyndarmál. Leikarar eru Aðalbjörg Árnadóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir en Harpa Arnardóttir leikstýrir.
Sveinn skotti á faraldsfæti
Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Lýðveldisleikhúsið hefur að nýju sýningar á hinni svívirðilegu skemmtun og svörtu kómedíu Síðasti dagur Sveins skotta. Tvær sýningar verða í Edinborgarhúsinu, sú fyrri föstudaginn 21. janúar og einnig daginn eftir, báðar sýningarnar hefjast kl. 20. Á sunnudag 23. janúar verður leikurinn sýndur í Félagsheimilinu á Þingeyri kl. 20. Ekki er honum […]
Fjögur leiklistarnámskeið í Hafnarfirði
Gaflaraleikhúsið og Leikfélag Hafnarfjarðar standa fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn, unglinga og fullorðna í vetur. Leiðbeinendur verða þau Björk Jakobsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson og Ágústa Skúladóttir. Námskeið fyrir 10 – 12 ára hefjast 20. janúar, fyrir 13 – 15 ára þann 24. janúar og 16 ára og eldri þann 19. janúar. Námskeið Ágústu hefst í mars. […]
Þrjár aukasýningar á Stútungasögu
Leikfélag Ölfuss sýnir nú allra síðustu sýningar á Stútungasögu. Um er að ræða 3 sýningar sem verða laugardaginn 8. janúar, föstudaginn 14. janúar og laugardaginn 15. janúar. Allar sýningar hefjast klukkan 20 og sýnt er í Versölum í Þorlákshöfn. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson.
Jesús litli á Akureyri
Fyrsta leiksýningin sem við bjóðum upp á á nýju ári er Jesús litli, gestasýning frá Borgarleikhúsinu, sem var ótvíræður sigurvegari Grímunnar síðasta leikár. Jesús litli verður sýnd í Hofi frá og með 15. janúar og aðeins í takmarkaðan tíma. Jesús litli var ótvíræður sigurvegari Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grímunnar nú í vor. Jesús litli var valin sýning […]
Fyrsti samlestur á Staðgreitt við undirskrift!
Aðalverkefni Leikfélags Kópavogs þetta leikárið verður eldfjörugur farsi sem hlotið hefur vinnuheitið Staðgreitt við undirskrift (Cash on Delivery) og er eftir Michael Cooney, son „farsakóngsins“ Ray Cooney (Viltu vinna milljón, Með vífið í lúkunum, Nei, ráðherra) en Michael er af mörgum talinn arftaki hans. Í verkinu er eins og vænta á ferðinni misskilningur á misskilning […]
Áhugaleikhús atvinnumanna gefur út bók
Bók Áhugaleikhúss atvinnumanna „2010, lárétt rannsókn“ kom út 31.desember í tengslum við sýningu leikhússins á annál ársins 2010, 12 örverkum um áráttur, kenndir og kenjar. Þetta er í fyrsta sinn hérlendis sem gefið er út bókverk sem tekur á samtímasviðslist en til þessa hafa einungis verið fjallað um sögu sviðslista í bókformi, markar því útgáfan […]
Annáll Kómedíuleikhússins – Annó Kómedí 2010
,,Nú árið er liðið…” enn eitt Kómdíuárið að baki og við hæfi að horfa um öxl og kikka á hvað vestfirska atvinnuleikhúsið hefur verið að fást við á árinu. Sannarlega var árið 2010 Kómískt við bættum við okkur leikara, frumsýndum fjögur ný íslensk leikverk, sjöunda Act alone leiklistarhátíðin var haldin, Leiklistarkóli Kómedíu tók til starfa […]
Ofviðrið frumsýnt 29. desember
Jólafrumsýning Borgarleikhússins í ár er Ofviðrið eftir William Shakespeare í nýrri þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar og leikstjórn Oskaras Korsunovas. Ofviðrið hverfist um heiftarleg átök hinna æðri og lægri hvata. Leikrit sem fjallar um fegurðina í dyggðinni og hina nauðsynlegu fyrirgefningu eftir áföll. Ofviðrið er dásamlegur gleðileikur uppfullur af húmor, ást og krafti. Hér er öllu […]
Lokað yfir hátíðirnar

Um leið og við hérna á þjónustumiðstöð Bandalagsins óskum ykkur gleðilegra jóla og þökkum fyrir árið sem er að líða, viljum minna á að síðasti opnunardagur þjónustumiðstöðvarinnar fyrir jól er 22. desember, hún verður lokuð frá 23. desember og fram yfir áramót og við opnum aftur mánudaginn 3. janúar. Hlökkum til að sjá ykkur á […]
Leikstjóra vantar á Sauðárkrók
Leikfélag Sauðárkróks leitar að leikstjóra fyrir Sæluvikuleikrit félagsins 2011. Starfstímabil leikstjóra er frá byrjun mars 2011 til 1. maí 2011. Áhugasamir geta sent formanni LS, Sigurlaugu Dóru Ingimundardóttur tölvupóst á netfangið sigurlaugdora@hotmail.com. Einnig er hægt að fá upplýsingar í síma 8625771. Í umsókn skal koma fram menntun, reynsla, launaóskir og hugmyndir að verkefnum. Öllum umsóknum […]
Síðustu sýningar á jólaleikriti Borgarbarna
Nú fer hver að verða síðastur að berja Leikfangalíf, nýtt jólaleikrit Borgarbarna, augum. Einungis eru laus sæti eru á sýningar sem eru kl. 11:00 og kl. 17:30 föstudaginn 17. desog á báðar sýningar laugardaginn 18. desember (kl. 14:00 og kl. 16:00). Uppselt er á báðar sýningar sunnudaginn 19. desember. Sýningargestum stendur til boða að koma […]
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins 26. desember – Lér konungur
Eitt af höfuðverkum leikbókmenntanna, Lér konungur, er jólasýning Þjóðleikhússins. Rétt eins og undangengin 60 ár er jólafrumsýningin á annan dag jóla markar einn af hápunktum menningarlífsins. Sýningin á Lé konungi verður engin undantekning og er um sannkallaða hátíðarsýningu er að ræða. Einn af eftirsóttustu leikstjórum í heiminum í dag, Benedict Andrews leikstýrir, Arnar Jónsson fer […]
Gjafabréf á viðburði í Tjarnarbíó
Nú gefst einstakt tækifæri til að kaupa gjafabréf á alla þá viðburði sem verða í Tjarnarbíó 2011. Hægt er að kaupa gjafabréf fyrir 3 upphæðir, 1000 kr – 2000 kr – 3000 kr og verður hægt að nota þau á alla viðburði sem fram fara í Tjarnarbíó. Ekki þarf að ákveða fyrirfram notkun gjafabréfsins heldur […]
Nóbelshöfundurinn aldrei vinsælli
Sýningar Þjóðleikhússins á Gerplu og Íslandsklukkunni hafa gengið fyrir fullu húsi frá því þær voru frumsýndar á Stóra sviði Þjóðleikhússins snemma á árinu, Gerpla í febrúar og Íslandsklukkan á 60 ára afmæli leikhússins í apríl. Það má því segja að Halldór Laxness hafi enn og aftur slegið í gegn, og nú fyrir tilstilli krafts og […]
Jól á Norðurpólnum
Á aðventunni breytist Norðurpóllinn í sannkallaða jólaveröld. Leikhúsið verður skreytt hátt sem lágt, það verða piparkökur á hverju borði, jólatónlistin ómar, íslenskir handverksmenn kynna vörur sínar og boðið verður upp á föndur fyrir börnin. Hátíðleikinn ræður ríkjum hjá okkur og íslensk, gamaldags jólastemning styttir okkur biðina fram að jólum. Þegar áhorfendur hafa fengið að njóta […]
Tveir handritsstyrkir og þrír til leiksmiðjuverkefna
Gífurlegur fjöldi umsókna barst í Leikritunarsjóðinn Prologos að þessu sinni, en alls bárust 65 umsóknir frá 59 aðilum, og hafa umsóknir í sjóðinn aldrei verið fleiri. Nú er úthlutað úr sjóðnum í sjötta sinn, og hljóta tveir höfundar handritsstyrki og þrír aðilar styrki vegna leiksmiðjuverkefna. Leikritunarsjóðurinn Prologos, sem hefur starfað við Þjóðleikhúsið frá því í júní […]
Velta af menningu 191 milljarður árið 2009
Á fréttamannafundi sem haldin var núna í vikunni í Bíó Paradís kynnti Margrét Sigrún Sigurðardóttir niðurstöður rannsóknar á hagrænum áhrifum skapandi greina. Árið 2009 var velta af menningu 191 milljarður, sem var 6% af heildarveltunni það árið. Á fundinum tók Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, til máls og sagði að menningin væri það sem gerði […]
Litla Hryllingsbúðin og Karíus og Baktus í Stykkishólmi
Síðasliðnar vikur hefur Leikfélagið Grímnir staðið í stórræðum. Það er ekki á hverjum degi sem leikfélag úti á landi setur upp þrjár leiksýningar á einum mánuði. Síðastliðin laugardag frumsýndi leikfélagið Litlu Hryllingsbúðina eftir Howard Ashman og Alan Menken, sem byggð er á samnefndri kvikmynd Rogers Corman. Sýningin er sýnd á Hótel Stykkishólmi og leikstjórn er […]
