Aukasýning á Þú ert hér 8. október
Í tilefni af Keðju – alþjóðlegri sviðslistahátíð í Reykjavík þann 8. október verður sýnd ein aukasýning af leikritinu Þú er hér eftir þá Hall Ingólfsson, Jón Atla Jónasson og Jón Páll Eyjólfsson, sem jafnframt leika og leikstýra sýningunni. Sýningin vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd árið 2008 sem svar Borgarleikhússins og Mindgroup við þeim […]
Frumsýning á Rigoletto í Íslensku óperunni
Óperan Rigoletto eftir Giuseppe Verdi verður frumsýnd í Íslensku óperunni næstkomandi laugardagskvöld, 9. október kl. 20. Aðalsöngvararnir í verkinu eru íslenskum óperuunnendum að góðu kunnir, en þeir eru Ólafur Kjartan Sigurðarson sem Rigoletto, en hann hefur haslað sér völl sem einn fremsti óperusöngvari Íslands á erlendri grundu undanfarin misseri, Þóra Einarsdóttir sem Gilda og Jóhann Friðgeir […]
Hauststarf Halaleikhópsins að hefjast
Starfsemi Halaleikhópsins leikárið 2010-11 hefst með félagsfundi í Halanum, Hátúni 12. Kl. 20.00, þann 2. október þar sem verkefni leikársins verða kynnt. Aðalverkefnið er gamanleikurinn Góðverkin kalla eftir þríeykið Ármann Guðmundsson, Þorgeir Tryggvason og Sævar Sigurgeirsson, sem frumsýnt verður eftir áramót, en ráðnir hafa verið tveir leikstjórar til að setja verkið upp, þau Oddur Bjarni […]
Áhugaleikhúss atvinnumanna sýnir September
September, örverk um sekt og sakleysi, verður sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is kl. 12.30 fimmtudaginn 30. september frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð. Verkið er níunda örverkið af 12 sem Áhugaleikhús atvinnumanna býður áhorfendum upp á endurgjaldslaust. Verkin taka á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tilvist í Reykjavík 2010 og […]
Hvað býr í pípuhattinum? sýnt í Útgerðinni og Kjarnanum
Hvað býr í pípuhattinum? er lifandi innsetning eða lifandi leikvöllur fyrir börn og fullorðna (eða jafnvel börn á öllum aldri), sem opnaður verður í Útgerðinni, Grandagarði 16, á laugardaginn næstkomandi, þann 2. október. Verkið er unnið af 4 listamönnum sem koma úr hinum ýmsu geirum listaheimsins; Sunnu Schram, myndlistakonu, Hannesi Óla Ágústssyni og Ævari Þór […]
Lokað um óákveðinn tíma
Bandalag íslenskra leikfélaga varð fyrir miklu tjóni þegar brotist var inn á skrifstofu þess á Suðurlandsbrautinni aðfaranótt mánudagsins og öllum tölvubúnaði hennar stolið. Vegna þessa verður skrifstofan lokuð um óákveðinn tíma. Því miður glataðist allt bókhald fyrirtækisins og því þarf að setja upp nýtt sölukerfi áður en hægt verður að opna fyrir verslunina á ný. […]
Leikfélaga Ölfuss æfir Stútungasögu
Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Ölfuss á gaman- og stríðsleiknum Stútungasögu eftir þau Ármann Guðmundsson, Hjördísi Hjartardóttur, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikritið gerist undir lok Þjóðveldisaldar og greinir frá hvernig þeir Stútungar, nýorðnir valdamestir allra á landinu, glopra sjálfstæði landsins til Norðmanna fyrir röð óheppilegra tilviljanna og mannlega glópsku. Ætlunin er að frumsýna verkið […]
Bannað börnum í Freyvangsleikhúsinu
Fimmtudaginn 30. september verður erótíska hryllingskómedían Bannað börnum frumsýnd í Freyvangsleikhúsinu í Eyjafjarðarsveit. Bannað börnum sem er leikrit í fullri lengd er nýjasta viðbótin í „Haustverkefni Freyvangsleikhússins“ sem hleypt var af stokkunum síðasta haust með uppsetningu á Memento Mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Bannað börnum er frumsamið verk eftir fjóra meðlimi Freyvangsleikhússins, þá Daníel Frey Jónsson, […]
Hetja sýnt í Landnámssetrinu
Gamanleikurinn Hetja verður frumsýndur í Landnámssetrinu Borgarnesi þann 25. September næstkomandi. Hetja er einleikur í leikstjórn Víkings Kristjánssonar þar sem Kári Viðarsson fer með öll hlutverkin. Verkið segir frá Landnámsmanninum Bárði Snæfellsás flóknu sambandi þeirra feðga Bárðar og Gests. Sýningin er ýkt og reiðir sig á ímyndunarafl áhofenda sem skipa stórann sess í sýningunni.
Netverkið Herbergi 408 tilnefnt til Evrópuverðlaunanna
Netverkið Herbergi 408 eftir Hrafnhildi Hagalín og Steinunni Knútsdóttur er tilnefnt til Evrópuverðlaunanna, Prix Europa 2010 í flokki nýmiðla. Verkið var frumflutt í netleikhúsinu Herbergi 408, sem stofnað var af höfundum vorið 2009. Netleikhúsið er eina leikhúsið sinnar tegundar hér á landi og má nálgast tilnefnda verkið í leikhúsinu á www.herbergi408.is. Verkið er gagnvirkt leikverk […]
Hitað upp fyrir íslenska menningardaga í Færeyjum
Tveir íslenskir leikhópar, Stopp-leikhópurinn og Tímamótaverksmiðjan, og hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir hyggjast heimsækja Færeyjar dagana 24.-26. septemberog halda þar tónleika og sýna leiksýningar. Fyrst er þó ætlunin að hita upp fyrir ferðina hér heima fyrir og afla fjár til ferðarinnar og verða leiksýningarnar Bólu-Hjálmar og Jörundur því sýndar saman í Norræna húsinu kl. 20.00, laugardaginn 18. […]
Kómedíuleikhúsið frumsýnir Bjarna á Fönix
Kómedíuleikhúsið á Ísafirði frumsýnir föstudaginn 17. september einleikinn Bjarni á Fönix á söguslóðum í Alviðru í Dýrafirði. Sýnt verður í gömlu hlöðunni og hefst sýningin stundvíslega klukkan 21:00. Önnur sýning fer svo fram laugardaginn 18. september á veitingastaðnum Talisman á Suðureyri, þar hefst borðhald kl. 19.00 og leiksýning að því loknu um kl. 21.00.
Komið og farið tilnefnt fyrir Íslands hönd á IATA-hátíð
Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur ákveðið að framlag Íslands til IATA leiklistarhátíðarinnar í Tromsö 2011 verði uppsetning Leikfélagsins Peðsins á Komið og farið eftir Samuel Beckett í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar í íslenskri þýðingu Árna Ibsen. Það verður svo valnefnd á vegum IATA (Alþjóða áhugaleikhúsráðsins) sem sker endanlega úr hvort sýningin verður valin til sýninga í […]
Opið leiklistarnámskeið/leiksmiðja hjá LK
Leikfélag Kópavogs stendur fyrir opnu námskeiði í leiklist nú í september. Í kjölfar námskeiðsins hefjast síðan æfingar á stuttum leikþáttum sem verða frumsýndir í lok október. Námskeiðið er aðallega ætlað þeim sem hafa litla eða enga reynslu af leiklist en er þó opið öllum áhugasömum. Stjórnandi er Hörður Sigurðarson. Námskeiðið er í þremur hlutum og hefst […]
Rocky horror frumsýnt hjá LA
Í kvöld, föstudaginn 10. september, frumsýnir Leikfélag Akureyrar söngleikinn Rocky horror eftir Richard O’Brien í þýðingu Veturliða Guðnasonar. Sýning LA á Rocky Horror verður fyrsta sýningin sem sýnd verður í Hofi, nýju Menningarhúsi á Akureyri. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson og um tónlistarstjórn sá Andrea Gylfadóttir.
Úr heimi leiksviðslistanna – Námskeið hjá Endurmenntun HÍ
Í október stendur Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands fyrir námskeiði sem ber yfirskriftina Úr heimi leiksviðslistanna. Fyrirlesari er Jón Viðar Jónsson leiklistarfræðingur. Á námskeiðinu er farið yfir leiklistarsöguna frá fyrstu heimildum um hana, allt til okkar daga. Fyrirlestrarnir verða á mánudögum kl. 20.15, skráningarfrestur er til 27. september 2010 og hægt er að skrá sig hér.
Skepna frumsýnt á Norðurpólnum
Þann 10. September nk. hefjast sýningar á leiksýningunni Skepnu á Norðurpólnum, Bygggörðum 5, Seltjarnarnesi. Skepna er kolsvört kómedía eftir kanadísku leikskáldin Daniel MacIvor og Daniel Brooks. Hún fjallar um misfurðulega einstaklinga sem virðast ekki tengjast við fyrstu sýn. Verkið er einleikur og fer Bjartmar Þórðarson með öll hlutverk sýningarinnar. Leikstjórn er í höndum Guðjóns Þorsteins […]
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna sjöttu úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2010, en úthlutað verður í október. Annars vegar er auglýst eftir hugmynd að leikriti, hinsvegar eftir hugmynd að leiksmiðju- eða tilraunaverkefni. Nánari upplýsingar og fyrirmæli um gerð umsókna er að finna á heimasíðu Þjóðleikhússins. Umsóknir skal senda með […]
Tjarnarbíó opnað 1. október
Eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar mun Tjarnarbíó opna aftur 1. október nk. en til stóð að loka húsnæðinu fyrir fimm árum vegna slæms ástands. Sjálfstæðu leikhúsin – SL hafa séð um reksturinn í nærri 20 ár fyrir borgina og munu halda því áfram. Eftir stefnumótunarvinnu hjá SL 2003 var ákveðið að gera úttekt á húsnæðinu og […]
Örverk um Ágúst eins og hann leggur sig
Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir áttunda örverkið af 12 um áráttur, kenndir og kenjar, fimmtudaginn 26. ágúst kl. 12.30 í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna. Verkið, sem heitir Örverk um Ágúst eins og hann leggur sig, er sýnt í beinni útsendingu á veraldarvefnum á slóðinni www.herbergi408.is en þar er jafnframt hægt að skoða fyrri verk úr örverkaröðinni. Leikstjóri er […]
Námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús í september
Laugardagana 4., 11. og 18. september frá kl. 9:00 – 13:00 verður boðið upp á námskeið í leikhúslýsingu í Tækniskólanum, Skólavörðuholti. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri og verða kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, […]
Leikfélagið Sýnir frumsýnir Allir komu þeir aftur
Leikfélagið Sýnir frumsýnir leikverkið Allir komu þeir aftur í dag, þann 19. ágúst klukkan 18:00 í Indjánagili í Elliðaárdalnum, í samvinnu við Sviðslistahátíðina ArtFart. Áætlað er að hafa sex sýningar alls. Í verkinu mætast nútíð og fortíð í umgjörð náttúraflanna. Sagan sem er tímalaus undirstrikar mannlegt eðli þegar uppreisn og uppgjöf mætast. Leikstjóri er Aldís […]
Ómynd á artFart
Leikhópurinn Fröken Fix, í samstarfi við Leikfélag Hafnarfjarðar, frumsýnir nýtt íslenskt verk næstkomandi föstudag á sviðslistahátíðinni artFart. Verkið ber nafnið Ómynd og er skrifað af Guðrúnu Sóleyju Sigurðardóttur og Aldísi Davíðsdóttur, sem eru jafnframt stofnendur Fröken Fix. Ómynd tekur á innilokun, eymd og erfiðum aðstæðum, en einnig hvernig hægt er að flýja þær með ímyndunaraflinu […]
Lísa í Undralandi frumsýnt í Mosfellsbæ
Föstudaginn 20. ágúst kl. 20 frumsýna 13-16 ára nemendur Leikgleði námskeiða Leikfélags Mosfellssveitar söngleikinn Lísa í Undralandi eftir sögu Lewis Carroll. Þýðingu leikgerðar annaðist Agnes Þ. Wild og umsjón tónlistar annast Sigrún Harðardóttir en þær eru jafnframt leikstjórar. Agnes stundar nám í East 15 leiklistarskólanum í Bretlandi og Sigrún tónlistarnám í Listaháskóla Íslands.
Sviðslistahátíðin artFart 5. – 22. ágúst
Sviðslistahátíðin artFart fer fram í Reykjavík dagana 5. – 22. ágúst. Dagskráin í ár er æsispennandi og hefur hátíðin aldrei verið stærri. Það er einnig óhætt að segja að hátíðin sé stærsta sviðslistahátíðin á Íslandi í dag Þema hátíðarinnar í ár er óhefðbundin rými og mun hún mun fara fram um alla Reykjavík, til dæmis […]
Hans klaufi um Verslunarmannahelgina
Leikhópurinn Lotta verður á ferð og flugi um Verslunarmannahelgina með leiksýninguna sína Hans klaufa. Laugardaginn 31. júlí verður Hans klaufi sýndur á Flúðum klukkan 13 og á Laugarvatni klukkan 17 og á sunnudaginn 1. ágúst í Munaðarnesi klukkan 13 og í Húsafelli klukkan 17. Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma […]
Alþjóðleg leiklistarhátíð á Akureyri 10-15. ágúst
Dagana 10.-15. ágúst heldur Bandalag íslenskra leikfélaga fjölþjóðlega leiklistarhátíð í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Hátíðin er á vegum NEATA, Norður-Evrópska áhugaleikhúsráðsins og verða þar sýndar leiksýningar frá öllum Norðurlöndunum, Lettlandi, Litháen, Rúmeníu og Frakklandi. Hátíðin verður sett að kvöldi þriðjudagsins 10. ágúst og verða allar leiksýningar og aðrir viðburðir hátíðarinnar í Menningarhúsinu Hofi. Alls er […]
Leikfélagið Sýnir sýnir Allir komu þeir aftur á artFart í ágúst.
Leikfélagið Sýnir er áhugaleikfélag sem starfar á landsvísu. Það var stofnað árið 1997 af hópi fólks sem hafði verið á fyrstu námskeiðum Leiklistarskóla Bandalags Íslenskra Leikfélaga. Hópurinn að þessu sinni æfir nú af kappi, undir leiðsögn Aldísar Davíðsdóttur, leikritið Allir komu þeir aftur í Elliðárdalnum í Indiánagili. Verkið sem er byggt lauslega á leikritinu Widows […]
Þjónustumiðstöðin lokar frá 8.-17. ágúst

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga að Suðurlandsbraut 16 í Reykjavík verður lokuð frá og með mánudeginum 8. ágúst vegna NEATA-leiklistarhátíðarinnar á Akureyri. Opnað verður aftur kl. 9.00 þriðjudaginn 17. ágúst. Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 13.00 föstudaginn 6. ágúst til að verða afgreiddar fyrir lokun.
Alþjóðleg leiklistarhátíð áhugamanna í Tromsö 2011
Alþjóðlega áhugaleikhúsráðið, IATA, skipuleggur reglulega leiklistarhátíðir víðs vegar um heiminn, sú síðasta var haldin í Mónakó 2009. Næsta IATA-hátíð verður haldin í Tromsö í Noregi dagana 14. til 24. júlí 2011. Bandalag íslenskra leikfélaga hefur sótt um að senda íslenska sýningu á hátíðina og auglýsir hér með eftir leikfélögum sem hafa áhuga á að taka […]
Fröken Fix sýnir Ómynd í ágúst
Leikhópurinn Fröken Fix var stofnaður vorið 2009 af Aldísi Davíðsdóttur og Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur. Aðalstefna Fröken Fix er að sjá um allt sem við kemur sýningum sjálfar. Þær leikstýra, leika, sjá um leikmynd, búninga og allt sem mögulega tengist sýningum. Tvíeykið vann að uppsetningu leikritsins Bergmál hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar sem sýnt var í ágústmánuði 2009 […]
Ari Matthíasson nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins
Starf framkvæmdastjóra við Þjóðleikhúsið var auglýst laust til umsóknar í lok maímánaðar og rann umsóknarfrestur út þann 14. júní síðastliðinn. Tuttugu og fimm umsóknir bárust, en niðurstaða um ráðningu liggur fyrir og mun Ari hefja störf þegar leikhúsið tekur aftur til stafa að loknu sumarleyfi. Ari er menntaður leikari, með BFA gráðu í leiklist frá […]
Leikfélag Reyðarfjarðar sýnir Stríðið okkar
Í tilfefni af því að 70 ár eru líðin síðan breskur her sté á land í Reyðarfirði þann 1. júlí, frumsýnir Leikfélag Reyðarfjarðar leik- og söngdagskrá sem hlotið hefur nafnið Stríðið okkar. Þar er blandað saman stuttum leiknum þátt, skrifuðum af leikstjóranum Ármanni Guðmundssyni, og tónlist frá Síðari heimstyrjöldinni. Tónlistin er flutt af kirkjukór Reyðarfjarðarkirkju […]
Leiklistarstarfsemi í Hafnarfirði – tilboð óskast
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar óskar eftir tilboðum frá leikfélögum/leikhópum um rekstur leikhúss að Strandgötu 50 í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær mun leggja umsækjendum til húsnæði og er leigutími frá 1. september 2010 – 31. desember 2013. Um er að ræða 743,4 fermetra atvinnuhúsnæði ætlað til leiksýninga og annarrar menningarstarfsemi.
Tvö ný íslensk dansverk á Jónsvöku
Verkin Kyrrja og Þáðarhaft eftir Ragnheiði Bjarnarson verða sýnd í Nýlistasafninu laugardaginn 26. júní kl. 18.00 (Þráðarhaft) og sunnudaginn 27. júní kl. 14.00 (Kyrrja). Verkin eru sýnd í samstarfi við listhátíðina Jónsvöku sem fer fram næstkomandi helgi. Kyrrja var frumsýnt 20. maí sl. og Þráðarhaft var lokaverkefni Ragnheiðar frá Listaháskóla Íslands, en hún hefur sett […]
Hin þráláta endurtekning og Kúreki
Höggmyndaleikverkið „Hin þráláta endurtekning og Kúreki“, eftir Pál Hauk Björnsson, verður sýnt frá 18. júní til 11. júlí nk. Verkið er hreyfanlegur listviðburður sem ýtir undir notkun öðruvísi dreifingarmiðla en fyrir eru á hinu hefðbundna myndlistarsviðii. Unnið er með mörk myndlistar og leikhúss, gjörninga og höggmynda, myndbandsverka, hljóðs og rauntímaatburða. Áhorfandinn er í miðju verksins, í […]
BESTA Fjallkonan 2010
Áhugaleikhús atvinnumanna efnir til keppninnar BESTA Fjallkonan 2010 fimmtudaginn 24. júní kl.12.30 í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna að Grandagarði 16. Kosin verður Besta fjallkonan og keppt er í fyndni, fegurð, frumleika og heiðarleika. Auglýst er eftir þátttakendum í keppnina sem er opin öllum, óháð kyni og aldri. Hefurðu til að bera fyndni, fegurð, frumleika og heiðarleika, […]
Verðlaunahafar á Grímuhátíðinni
Uppskeruhátíð sviðslistanna á Íslandi, Gríman, var haldin miðvikudaginn 16. júní 2010 í Þjóðleikhúsinu og í beinni útsendingu á Stöð 2. Á hátíðinni voru Grímuverðlaunin veitt í áttunda sinn í alls 17 flokkum sviðslista auk heiðursverðlauna Leiklistarsambands Íslands, sem einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, Árni Tryggvason hlaut. Sýning ársins var valin leiksýningin Jesús litli í leikstjórn Benedikts […]
Gaggað í grjótinu
Nýtt íslenskt leikrit „Gaggað í grjótinu· verður frumsýnt í Melrakkasetrinu í Súðavík 16. júní. Leikurinn er sérstaklega saminn fyrir Melrakkasetrið en safnið var opnað við hátíðlega athöfn fyrir skömmu og þar er sögð saga refsins sem hefur lifað lengur en elstu menn muna. Leikari er Elfar Logi Hannesson, Marsbil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og búninga, […]
Grímuhátíðin 2010

Uppskeruhátíð sviðslista, Grímuhátíð Leiklistarsambands Íslands, verður haldin í áttunda sinn miðvikudaginn 16. júní í Þjóðleikhúsinu. Tilnefningar voru kunngjörðar í Þjóðleikhúskjallaranum föstudaginn 4. júní sl. Verðlaunahátíðin, sem jafnframt er uppskeruhátíð sviðslistanna, var fyrst haldin árið 2003 og hefur Leiklistarsamband Íslands staðið fyrir hátíðinni árlega allar götur síðan. Aðildarfélög sambandsins eru leikhús, sviðslistahópar, fagfélög og stofnanir innan […]
