Lýðveldisleikhúsið sýnir Drauganet
24. nóvember kl. 20:30 …
Sex í sveit á Iðavöllum
Leikfélag Fljótsdalshéraðs sýnir um þessar mundir gamanleikinn Sex í sveit, eftir Marc Camoletti í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Oddur Bjarni Þorgkelsson leikstýrir. Leikritið er sýnt á Iðavöllum. Gerður hefur verið góður rómur að sýningunni en Sigurður Ingólfson var á staðnum: Ég er yfirleitt lítið hrifinn af försum með tilheyrandi hlaupum og hurðaskellum og þess vegna […]
Syngjandi skemmtilegt
Hugleikur frumsýndi Jólaævintýri, nýja leiksýningu sína í Tjarnarbíói, laugardaginn 19. nóvember. Eins og flestir vita hefur Hugleikur skapað sér sérstöðu með frumsömdum, heimatilbúnum leikverkum í gegnum tíðina og svo er einnig að þessu sinni en þó með því tilbrigði að byggt er á heimsþekktri erlendri sögu eftir einn af helstu skáldjöfrum heimsins. Okkar maður var […]
Jólaævintýri Hugleiks frumsýnt
Hugleikur frumsýnir í Tjarnarbíó Jólaævintýri Hugleiks, laugardaginn 19. nóvember kl. 20.00. Leikfélagið ræðst nú í það stórvirki að setja upp leikgerð af Jólaævintýri Dickens. Þetta er fyrsta íslenska leikgerðin á þessari sögu, sem hefur verið vinsælt viðangsefni leikhúsfólks frá því hún kom út árið 1843. Söguna þekkja flestir, klassísk saga sem öll fjölskyldan getur notið […]
Trainspotting frumsýnt hjá Leikfélagi Keflavíkur
Föstudaginn 18. nóvember frumsýnir Leikfélag Keflavíkur verkið Trainspotting eftir Irvine Welsh í Frumleikhúsinu í Keflavík. Þýðing verksins er eftir Megas, en leikstjóri er Jón Marinó Sigurðsson. Með aðalhlutverk fer Rúnar Berg Baugsson, en þetta er hans frumraun á sviði.
Frumsýning í Hveragerði
Ástir liggja til allra átta – kramin hjörtu? Leikfélag Hveragerðis verður með kaffileikhús í nóvember í húsi félagsins, Völundi við Austurmörk. Frumsýning verður laugardaginn 19. nóvember kl 20.30.
Sex í sveit slær í gegn á Iðavöllum
Leikfélag Fljótsdalshéraðs sýnir um þessar mundir verkið Sex í sveit eftir Marc Camoletti í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar. Skemmst er frá því að segja að sýningin hefur slegið í gegn eystra og uppselt var á þrjár af fjórum fyrstu sýningunum. Bætt hefur verið við aukasýningum til að anna eftirspurn.
Helgarnámskeið í bardagatækni á sviði
The Nordic Stage Fight Society (NSFS) heldur helgarnámskeið í tækni og sviðshreyfingum með langstaf í Reykjavík síðustu helgina í nóvember. Þjálfun með staf er mjög góð undirstaða undir sviðsslagsmál með hvers konar vopnum og á þetta vopn sér sögulega hefð í mörgum menningarheimum.
Ferna hjá Mosfellingum
Leikfélag Mosfellsveitar frumsýndi fjögurra þátta leikdagskrá í Bæjarleikhúsinu föstudaginn 11. nóvember. Þættirnir voru eftir tvo meðlimi félagsins þá Pétur R. Pétursson og Lárus J. Jónsson og leikstýrt af þremur innanfélagsmönnum. Leikfélagið hefur ekki lagt það í vana sinn að spreyta sig á styttri þáttum og það er vel til fundið að gefa félagsmönnum tækifæri til […]
Leiktu Betur – spunakeppni framhaldsskólanna
Stærsta leikhússportkeppni á Íslandi, Leiktu betur, verður haldin þann 11. nóv. á vegum Unglistar. Húsið opnar kl. 19.30. Keppnin fer fram í AGÓGES-salnum í Sóltúni 3. Aðgangur er ókeypis, allir velkomnir.
Blóðberg í Loftkastalanum
Stúdentaleikhúsið frumsýndi fyrir skömmu leikritið Blóðberg sem byggt er á hinni þekktu kvikmynd Magnolia. Útsendari okkar leit á sýningu og hefur ritað um upplifun sína.
Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir
Fjórir einþáttungar verða á fjölunum hjá Leikfélagi Mosfellsssveitar föstudaginn 11. nóvember. Ekki einungis eru þættirnir heimasmíðaðir heldur er leikstjórn einnig í höndum heimamanna.
Hugleikur í Leikhúskjallaranum
Hugleikur býður upp á blandaða skemmtidagskrá í Leikhúskjallaranum föstudags- og laugardagskvöld, 11. og 12 nóvember undir nafninu Þetta mánaðarlega, en félagið verður með mánaðarlegar skemmtanir þar í vetur.
Nýbreytni hjá Þjóðleikhúsinu
Á þriðja þúsund manns sóttu sýningar Þjóðleikhússins um helgina. Uppselt var á nánast allar sýningar, t.a.m. sáu tæplega 1000 manns Halldór í Hollywood á Stóra sviðinu. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp í Þjóðleikhúsinu að sýna leiksýningar á verkefnaskrá leikhússins aðeins í takmarkaðan tíma, en sýna hins vegar þeim mun þéttar þann tíma sem þær […]
Frumsýning í Vestmannaeyjum
12 nóvember nk. er frumsýning hjá Leikfélagi Vestmannaeyja. Leikritið Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson varð fyrir valinu í þetta sinn. Jón Ingi Hákonarson leikstýrir ásamt konu sinni Laufeyju Brá Jónsdóttur sem einnig sér um leikmynda- og búningahönnun.
Námskeið hjá Halaleikhópnum
Halaleikhópurinn hefur fengið Ármann Guðmundsson til liðs við sig og ætlar í samstarfi við hann að skella á fót 20 klukkustunda leiklistarnámskeiði. Kennt verður í tvær stundir í senn og reynt að kenna 4 stundir um helgar. Fyrsta kvöldið verður haldið 8. nóvember klukkan 19:00. Á þeim fundi mun Ármann fara yfir framhaldið og finna […]
Stúdentaleikhúsið frumsýnir
Þann 5. nóvember frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikritið Blóðberg eftir P.T. Andersson í Loftkastalanum. Í brúnni situr Agnar Jón Egilsson, en hann sér um leikstjórn og leikgerð.
Frumsýning hjá Leikfélagi Kópavogs
Þann 5. nóvember frumsýnir Leikfélag Kópavogs leikritið Það grær áður en þú giftir þig sem byggt er á Kirsuberjagarðinum eftir Tsjekov. Leikstjóri er Sigrún Sól Ólafsdóttir.
Barnadagskrá á Dalvík
Þann 5. nóvember n.k. mun Leikfélag Dalvíkur frumsýna sérstaka barnadagskrá, valin atriði úr verkum Thorbjörns Egners. Leikstjóri sýningarinnar er Arnar Símonarson.
Brim í Þjóðleikhúsinu
Margverðlaunuð sýning Vesturports, Brim eftir Jón Atla Jónasson, verður sýnd í örfá skipti í nóvember á Litla sviði Þjóðleikhússins. Þeir sem ekki hafa séð þessa mögnuðu sýningu ættu að tryggja sér sæti núna! Miðasala er hafin á netinu.
Fótbrot á frumsýningu
Á frumsýningu Leikfélags Sauðárkróks…
Frumsýning hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs
Sex í sveit eftir Marc Camoletti, er haustverkefni Leikfélags Fljótsdalshéraðs. Frumsýnt verður í félagsheimilinu Iðavöllum, föstudaginn 4. nóvember kl. 20. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er öllum hnútum kunnugur á Héraði og leikstýrir þar nú í fimmta sinn.
Frelsi frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
Frelsi eftir Hrund Ólafsdóttur verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu á föstudagskvöld. Frelsi er frumraun Hrundar í atvinnuleikhúsi. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson. Hvað gerir þú þegar enginn hlustar á þig? Þegar ranglætið er svo mikið að þú gætir öskrað þig hásan en þú átt þér ekki rödd? Þegar lygin er svo stór að hún kæfir lífið […]
Klippimyndir frá Kaupmannahöfn
i ballettinn verður með tvær gestasýningar á Klippimyndum – ævintýraleg barnaballetsýning byggð á verkum H.C. Andersens – á Stóra sviði Þjóðleikhússins sunnudaginn 30. október kl. 14:00 og 16:00. Höfundur ballettsins er Pär Isberg.
Woyzeck frumsýnt í Borgarleikhúsinu
Woyzeck eftir Georg Büchner í samstarfi við Borgarleikhúsið, Artbox/Vesturport og Barbican Center í London. Tónlist: Nick Cave og Warren Ellis. Leikstjóri: Gísli Örn Garðarsson. Frumsýnt 28. október á Stóra sviði. Woyzeck var frumsýnt í Barbican centre í London 12.október og hefur hlotið frábæra dóma gagnrýnanda. Time Out gaf sýningunni 5 stjörnur af 5 mögulegum og Guardian […]
Óperukvöld í Þjóðleikhúskjallaranum
Ingólfur Níels Árnason fræðslustjóri Íslensku óperunnar og óperuleikstjóri heldur utan um skemmtikvöld á vegum Óperunnar sem fer fram í Leikhúskjallaranum einu sinni í mánuði í vetur. Ingólfur Níels mun leggja áherslu á að blanda saman fræðilegri umfjöllun um óperur og óperulist ásamt því að skemmta fólki um leið. Hann mun taka útgangspunkt í mannsröddinni sem […]
Leikfélag Blönduóss frumsýnir Bangsímon
Leikfélag Blönduóss frumsýnir um helgina leikritið Bangsimon. Verkið er mörgum kunnugt, en það er byggt á sögu A.A. Milne og er hér sýnd leikgerð Erics Olsons í þýðingu Huldu Valtýsdóttur. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Frumsýnt verður í félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 29. október kl. 16.00.
Frumsýning í Borgarleikhúsinu
Verkið Lífsins tré eftir Böðvar Guðmundsson, í leikgerð Bjarna Jónssonar, verður frumsýnt á nýja sviði Borgarleikhússins fimmtudaginn 27. október. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Verkið er sjálfstætt framhald Híbýla vindanna sem frumsýnd voru í janúar 2005 og hlutu frábærar viðtökur. “Lífsins tré” leiðir áhorfandann á slóðir Íslendinga í Winnipeg, þar sem þeir hafa tekið upp breska […]
Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir
Jens og risaferskjan er nafnið á leikritinu sem Leikfélags Sauðárkróks frumsýnir í Bifröst á Sauðárkróki þann 28. október nk. kl. 20:00. Þetta barnaleikrit fyrir alla aldurshópa, spennandi og fyndið enda er Roald Dahl, höfundur sögunar, heimsfrægur fyrir skemmtilega sýn á heim barna (sem og fullorðinna).
Mávahlátur í Bæjarleikhúsinu
Ungliðadeild Leikfélags Mosfellssveitar frumsýndi föstudaginn 24. október leikritið Mávahlátur, leikgerð Jóns Hjartarsonar eftir sögu Kristínar Mörju Baldursdóttur. Leikstjóri var Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir. Aðeins eru eftir 2 sýningar á verkinu. Einnig má geta þess að Leikfélagið opnaði nýjan vef í sumar og þar er hægt að fá nánari upplýsingar um sýninguna og félagið.
Tinna kemur vel út
Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, má vel una við sinn hlut í ófomlegri og afar óvísindalegri könnun sem fram fór hér á vefnum undanfarnar tvær vikur. Spurt var hvernig fólki fyndist nýr Þjóðleikhússtjóri hefja sitt fyrsta heila starfsár. Skemmst er frá því að segja að um 55% töldu hana hafa staðið sig vel eða mjög vel meðan […]
Fullkomið brúðkaup, hættulega fyndið
Ég fór í gærkvöldi að sjá Fullkomið brúðkaup hjá Leikfélagi Akureyrar. Ég get sagt ykkur það að aðra eins snilld hef ég ekki séð í langan tíma. Fullkomið brúðkaup er hættulega fyndið. Sýningin er keyrð áfram af miklu öryggi og hraða frá upphafi til enda. Fullkomið brúðkaup kom mér skemmtilega á óvart og óhætt að […]
Ópera í Iðnó
Gestur – Síðasta máltíðin eftir Gaut G. Gunnlaugsson og Gunnar Kristmannsson er ný íslensk “hinsegin” óperetta/leikverk með söngvum. Verkið fjallar um þá Lauga og Óliver sem eru samkynhneigð hjón í Grafarholtinu og nýja nágrannann þeirra, atvinnuflugmanninn og sjarmatröllið Gest. Laugi er heimavinnandi en Óli vinnur í banka og þeir una nokkuð glaðir við sitt þar […]
LA býður til fullkomins brúðkaups
Gamanleikritið Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar fimmtudaginn 20. október. Hér er um drepfyndinn og rómantískan gamanleik að ræða, hann er hraður, fullur af misskilningi, framhjáhöldum og ást. Leikritið er eftir sama höfund og skrifaði leikgerðina á Sex í sveit sem er ein vinsælasta sýning LR frá upphafi. Leikritið sver sig […]
Stútungar snúa aftur!
Í vor settu ungmennafélögin Vaka, Baldur og Samhyggð upp sýninguna Stútungasögu eftir Hugleikarana Þorgeir Tryggvason, Ármann Guðmundsson, Hjördísi Hjartardóttur og Sævar Sigurgeirsson. Vegna fjölda áskorana og einróma lofs gagnrýnenda hefur verið ákveðið að taka sýninguna upp aftur og sýna sem hér segir: Föstudagskvöldið 21. október kl. 21:00 í Þingborg í Hraungerðishreppi Sunnudagskvöldið 23. […]
Tónlist fyrir Tíbet í Þjóðleikhúsinu
Fjöldi listamanna tekur þátt í sannkallaðri tónlistarhátíð á Stóra sviði Þjóðleikhússins á miðvikudagskvöld kl. 20:00. Það eru sænsk samtök, The Swedish Tibetan Society, sem stendur fyrir hátíðinni sem samanstendur af tónlistaratriðum þekktra listamanna, bæði íslenskra og erlendra. Á hátíðinni verður lögð rík áhersla á tíbeska menningu og gildi hennar. Atburðurinn og/eða umgjörð hans er á […]
Tökin hert frumsýnt í Óperunni
Aðalverkefni Óperunnar á haustmisseri, óperan Tökin hert (The Turn of the Screw) eftir Britten verður frumsýnd föstudaginn 21. október. Það er óhætt að segja að aðstandendur sýningarinnar séu komnir með smá fiðring í magann. Æfingar hafa gengið vel og það er alveg ljóst að sýningin verður stórglæsileg og áhugaverð bæði fyrir augað og eyrað. Óperan […]
Salka Valka – Frumsýning
Á laugardagskvöldið verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu verkið Salka Valka eftir Halldór Laxness í leikgerð Hrafnhildar Hagalín Guðmundsdóttur. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backman. Íslensk hetjusaga. Hvernig skyldu menn lifa og hvernig deyja í litlu þorpi undir háum fjöllum? Í landi þar sem auðurinn hefur safnast á fárra hendur? Peningar virðast liggja á lausu í útlöndum, þaðan […]
Fyrirlestur um Wagner og Parísaróperuna
Í tilefni 10 ára afmælis Richard Wagner félagsins á Íslandi býður það öllum áhugamönnum um óperutónlist til fyrirlestrar Dr. Oswald Georgs Bauer í Norræna húsinu sunnudaginn 16. október klukkan 16. Fyrirlestur Bauers, sem verður á ensku, nefnist: „Tálvonir og listræn staðfesta – Wagner og Parísaróperan”. Greint verður frá því hvað Wagner sá og lærði við […]
Harold Pinter hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels
Enska leikskáldið Harold Pinter hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels, samkvæmt tilkynningu sænsku akademíunnar, sem birt var klukkan 11. Segir akademían, að Pinter sé fremsti fulltrúi leiklistarinnar í Bretlandi eftir síðari heimsstyrjöldina. Hann afhjúpi hengiflugið sem daglegt hjal fólks feli og ryðjist inn í lokuð herbergi kúgunarinnar. Þá segir akademían, að Pinter hafi endurskapað leikhúsið og lagt áherslu […]
