Halldór í Hollywood – Frumsýning

Fyrsta frumsýning haustsins á Stóra sviði Þjóðleikhússins er Halldór í Hollywood eftir Ólaf Hauk Símonarson en það verður frumsýnt á föstudag. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Leikritið byggir á Ameríkuárum Halldórs Kiljans Laxness 1927 – 1929 þegar Halldór var ungur ofurhugi. Í Hollywood heillaðist hann af kvikmyndaiðnaðinum og ætlaði sér að slá í gegn sem handritshöfundur […]

Nýtt verk í Hafnarfjarðarleikhúsinu

Um helgina verður frumsýnt nýtt íslenskt verk í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Það ber heitið "Hvað EF?" og í því er farið yfir staðreyndir varðandi vímuefnaneyslu. Verkið er efitir Einar Má Guðmundsson og Valgeir Skagfjörð sem einnig semur tónlist verksins ásamt Guðmundi Inga Þorvaldssyni. Auk þess tók leikhópurinn virkan þátt í vinnu handrits, en hann skipa: Felix Bergsson, […]

Stutt gaman

Hugleikur hóf vetrardagskrá sína föstudaginn 8. október með leikþáttadagskrá í Þjóðleikhúskjallaranum.  Leiklistarvefurinn átti útsendara á staðnum eins og oft áður og hefur hann skrifað umsögn um dagskrána.

Ársrit BÍL komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir leikárið 2004 til 2005 er komið út. Í ritinu er að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi áhugaleikfélaganna og Bandalagsins. Þá eru þar einnig greinar um ýmislegt sem tengist leiklistinni. Fjöldi mynda er einnig í ritinu sem hægt er að sækja hér af vefnum í PDF-formi. ðæýöáþ

Æfingar hafnar á Frelsi

Á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins verður frumsýnt þann 20. október verkið Frelsi eftir Hrund Ólafsdóttur. Þetta er frumraun Hrundar í atvinnuleikhúsi. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson. Hvað gerir þú þegar enginn hlustar á þig? Þegar ranglætið er svo mikið að þú gætir öskrað þig hásan en þú átt þér ekki rödd? Þegar lygin er svo stór að […]

Leikhúsunnendur athugið! Nýjung á leiklistarvefnum!

Þarf að skipuleggja leikhúsferðir í mánuðinum? Viðburðadagatalið, sem birtist vinstra megin á forsíðunni, hefur nú verið sett í gang og inniheldur upplýsingar um allar leiksýningar sem okkur hafa borist spurnir af að sýndar verði í októbermánuði. Ætlunin er að uppfæra síðan dagatalið vikulega, þannig að það nái ævinlega um mánuð fram í tímann.

Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum

Fimm einþáttungar frumsýndir um helgina. Leikfélagið Hugleikur verður með verður með mánaðarlegar skemmtidagskrár í Þjóðleikhúskjallaranum í vetur. Fyrsta dagskráin verður föstudag og laugardag næstkomandi og hefst kl. 21, en húsið er opnað kl. 20.30. Hugleikur hefur undanfarin ár lagt áherslu á uppsetningu frumsaminna einþáttunga og dagskráin einkennist af því.

Bangsímon fyrir norðan

Leikfélag Blönduóss hyggur á sýningu barnaleikrits nú á haustdögum. Fyrir valinu hjá þeim að þessu sinni varð verkið Bangsímon, leikgerð Erics Olson byggð á sögu A.A. Milne. Þýðing á íslensku er eftir Huldu Valtýsdóttur og Kristján frá Djúpalæk. Sögur A.A. Milne um Bangsímon eru heimsþekktar og hafa átt miklum vinsædum að fagna um áratugaskeið. Til […]

Leiklistarnámskeið hjá Árna Pétri Guðjónssyni

Verið er að setja saman 10-12 manna hóp fyrir leiklistarnámskeiði fyrir áhugafólk hjá Árna Pétri Guðjónssyni.  Námskeiðið hefst í byrjun nóvember og mun standa að öllum líkindum fram í mars.  Þetta er frábært tækifæri fyrir leiklistaráhugafólk, og sérstaklega fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir inntökuprófin í Leiklistardeild Listaháskólans næsta vor. Árni Pétur er frábær […]

Brúður og grímur – Sýning og námskeið

Danski leikhópurinn Scene 1 verður í Norræna húsinu í Reykjavík frá 11.–15. október 2005. Heimsóknin er hluti af ferð til Íslands og Færeyja og hópurinn hlakkar til að kynna brúðu- og grímuleiksýninguna „Konan frá hafinu“ og grímunámskeiðið „Ferð töframannsins“. Konan frá hafinu Hugmyndin að leiksýningunni „Konan frá hafinu“ er fengin úr gamalli norrænni þjóðsögu. Þar […]

Velheppnuð fyrirlestrahelgi í Hafnarfirði

Nú um helgina stóð Leiklistarskóli Bandalagsins í fyrsta skipti fyrir fyrirlestrahelgi. Í þetta skiptið var umræðuefnið "Hinar þúsund þjalir leikstjórans" þar sem fjallað var um samvinnu leikstjórans við hina listrænu hönnuði leiksýningarinnar. Snillingarnir Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahönnuður, Þórunn Elísabet Sveinsdóttir búningahönnuður, Ásta Hafþórsdóttir leikgervahönnuður og Egill Ingibergsson ljósahönnuður leiddu þáttakendur í allan sannleika um hina óteljandi  […]

Vetrardagskrá Íslensku óperunnar

Kynning á verkefnum starfsársins 2005-6 fór fram í Íslensku óperunni í sl. fimmtudag, en framundan er spennandi og skemmtilegt ár og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Meðal þess sem verður á dagskrá Óperunnar í vetur eru óperan Tökin hert (The Turn of the Screw), frumsýning 21.október, hádegistónleikar í samstarfi við MasterCard, dansverkið […]

Áheyrnarprufa í Borgarleikhúsinu

Leikfélag Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu auglýsir ÁHEYRNARPRUFU laugardaginn 8. október Leitað er að LEIKKONU / SÖNGKONU til að taka þátt í uppfærslu LR og Íd á CARMEN, leikriti með söngvum, sem byggir á óperu Bizets. Æfingar hefjast í nóvember 2005 og frumsýnt verður í janúar 2006.  Leikstjóri: Guðjón Pedersen. Danshöfundur: Steven Shropshire. Tónlistarstjóri: Agnar Már Magnússon. […]

Edit Piaf í 80. sinn

Brynhildur Guðjónsdóttir mun túlka Edith Piaf, eina frægustu söngkonu heims, í 80. skipti á föstudagskvöld. Nú fer hver að verða síðastur til að sjá þessa frábæru sýningu. Brynhildur "Piaf" Guðjónsdóttir hefur heillað landann með ógleymanlegri túlkun sinni á Edith Piaf, einhverri eftirminnilegustu rödd síðustu aldar, en fyrir hana hlaut Brynhildur Grímuna – Íslensku leiklistarverðlaunin sem besta […]

Sex í sveit á Iðavöllum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs hefur hafið æfingar á verkinu Sex í sveit eftir Marc Camoletti. Oddur Bjarni Þorkelsson leikstýrir. Stefnt er að frumsýningu í félagsheimilinu Iðavöllum á Völlum í nóvemberbyrjun. Æfingar hafa farið nokkuð hægt af stað en mönnun verksins hefur gengið nokkuð erfiðlega sökum einstaks atvinnugóðæris eystra. Gamanleikritið Sex í sveit heitir á frummálinu Pyjamas pour […]

„Forðist okkur“ frumsýnt

Nemendaleikhúsið og Common Nonsense standa að sýningunni Forðist okkur. Frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu 29. september. Verkið er eftir Hugleik Dagsson. Leikstjórar eru Stefán Jónsson og Ólöf Ingólfsdóttir, leikmynd og búningar eru í höndum Ilmar Stefánsdóttur, lýsingu annast Egill Ingibergsson og hljóðmynd skapar Davíð Þór Jónsson.

Aukasýningar á Alveg brilljant skilnaði

Einleikurinn ‘Alveg brilljant skilnaður’ hefuir verið sýndur í Borgarleikhúsinu við miklar vinsældir og hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningum. Í fréttatilkynningu segir m.a. að vegna gífurlega vinsælda leikritsins "Alveg brilljant skilnaður" sem sýnt hefur verið í Borgarleikhúsinu við fádæma góðar undirtektir hefur verið ákveðið að bæta við nokkrum aukasýningum. Fáheyrt er að leikrit á […]

Vetrarstarf Hugleiks hafið

Í kvöld, þriðjudagskvöld 27. sept., verður fyrsti samlestur á nýju leikriti eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur, Snæbjörn Ragnarsson og Þorgeir Tryggvason sem gengur undir vinnuheitinu Jólaævintýri Hugleiks. Verkið er mislauslega byggt á Jólaævintýri eftir Dickens og stefnt er að frumsýningu upp úr miðjum nóvember. Áhugasamir eru hvattir til að mæta. Lesturinn hefst í Hugleikhúsinu […]

Belgíska Kongó á Akureyri

Belgíska Kongó eftir Braga Ólafsson gekk fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu síðasta vetur, en verkið var frumsýnt vorið 2004. Eggert Þorleifsson fékk Grímuverðlaunin fyrir besta leik í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á hinni fjörgömlu Rósalind. Leikhópurinn mun nú leggja land undir fót og sýna 2 gestasýningar hjá Leikfélagi Akureyrar, föstudaginn 30/9 og laugardaginn 1/10.  

Leikfélag Hafnarfjarðar – Vetrarstarfið í gang

Leikfélag Hafnarfjarðar ætlar ekki að slá slöku við, þó svo að síðasta vetur hafi þar verið slegið félagsmet með fjölda uppsetninga. Vetrarstarfið er að hefjast og fyrsta uppsetning vetrarins verður nýtt verk eftir Lárus Vilhjálmsson sem ber heitið Freysteinn gengur aftur. Miðvikudagskvöldið 21. september kl. 20:00 verður haldinn fundur í húsakynnum leikfélagsins í gamla Lækjarskóla […]

Fyrirlestrahelgi hjá Leiklistarskóla Bandalagsins

Við minnum á að skráningafrestur á fyrirlestrahelgi í Hafnarfirði, 1.-2. október, rennur út á miðvikudag, 21. september. Heiti námskeiðsins er Hinar þúsund þjalir leikstjórans eða Tæknipungapróf fyrir leikstjóra  eða Allt sem leikstjórinn þarf að vita um tæknimál en hefur ekki þorað að spyrja um. Nánari upplýsingar hér. Skráning í síma 551 6974 og í tölvupósti […]

Fundur í Stúdentaleikhúsinu í kvöld

Nú fer starf Stúdentaleikhússins á haustönn að hefjast, og verður upphafsfundur haldinn mánudagskvöldið 12. september klukkan 20:00 í stofu 132 í Öskju. Þar geta allir sem einhvern áhuga hafa á að taka þátt í leiklist komið og kynnt sér hvað við ætlum að gera í haust. Mikilvægt er að allir sem vilja vera með í […]

Aðalfundur 7. og 8. maí 2005

1.Fundur settur. Fundarstjórar: Ingólfur Þórsson og Regína Sigurðardóttir Fundarritarar: Dýrleif Jónsdóttir og Sigríður Lára Sigurjónsdóttir Fundarmenn kynna sig: Leikfélagið Grímnir, Erna B. Guðmundsdóttir Leikfélagið Grímnir, Halldóra B. Ragnarsdóttir Leikfélagið Grímnir, Margrét Ásgeirsdóttir Freyvangsleikhúsið, Guðrún Halla Jónsdóttir Freyvangsleikhúsið, Ingólfur Þórsson Halaleikhópurinn, Jón Eiríksson Hugleikur, Ármann Guðmundsson Hugleikur, Hrefna Friðriksdóttir Hugleikur, Hulda B. Hákonardóttir Hugleikur, Þorgeir Tryggvason […]

Haustfundur 9. og 10. október 2004

Haldinn á Hótel KEA á Akureyri 9. – 10. október 2004 Einar Rafn Haraldsson, formaður og fundarstjóri setti fund. Fundarmenn kynntu sig: Einar Rafn Haraldsson, formaður, Leikfélagi Fljótsdalshéraðs, Egilsstöðum Guðrún Halla Jónsdóttir, varaformaður, Freyvangsleikhúsinu, Eyjafirði Lárus Vilhjálmsson, ritari, Leikfélagi Hafnarfjarðar Hörður Sigurðarson, meðstjórnandi og lénsherra, Leikfélagi Kópavogs Júlíus Júlíusson, meðstjórnandi, Leikfélagi Dalvíkur Margrét Tryggvadóttir, varastjórn, […]

Leiklistarnámskeið á Ísafirði

Kómedíuleikhúsið stendur fyrir leiklistarnámskeiði í Edinborg á Ísafirði dagana 16. – 18. september. Um er að ræða spunanámskeið þar sem unnið verður með röddina og líkamann. Búnar verða til senur og í lok námskeiðs verður endað með lítilli sýningu. Kennari er Steinunn Knútsdóttir, kennari við Leiklistardeild Listaháskóla Íslands sem hefur getið sér gott orð í […]

Pakkið á fjalirnar að nýju

Föstudaginn 9. september verður leikritið Pakkið á móti eftir Henry Adam tekið til sýninga á ný hjá LA. Leikritið verður einungis sýnt í september. Leikritið vakti verðskuldaða athygli þegar það var frumsýnt síðastliðið vor og komust færri að en vildu. Pakkið á móti hlaut hins vegar alveg nýja merkingu eftir hryðjuverkaárásirnar á London 7. júlí […]

Rússarnir koma

Þjóðleikhúsið tekur á móti RAMT-leikhúsinu frá Moskvu dagana 8.-11. september. Leikhúsið setur upp tvær sýningar hér á landi; Kirsuberjagarðinn eftir Anton Tsjekov og Að eilífu eftir Árna Ibsen. Rossisky Akademicesky Molodezhny Teater – Leikhús æskunnar RAMT-leikhúsið var stofnað árið 1921 af þjóðarlistakonunni Natalíu Sats. Hún var jafnframt listrænn stjórnandi leikhússins á árunum 1921-1937. Á þessum […]

Dauði og jarðarber – Síðustu sýningar

Eftir ferðalag um allt land í sumar er Félag flóna komið á höfuðborgarsvæðið með grínharmleikinn Dauða og jarðarber. Leikritið er í leikstjórn Ágústu Skúladóttur (Klaufar og kóngsdætur barnasýning ársins 2004 -Gríman). Leikurinn fjallar um tvo sígaunabræður sem búið hafa hjá ömmu sinni alla ævi. Bræðurnir komast að því sér til mikillar skelfingar á afmælisdag ömmunnar […]

Spennandi dagskrár stóru leikhúsanna

Stóru atvinnuleikhúsin hafa nú birt dagskrá sína fyrir leikárið og kennir að vanda margra grasa. Sitt sýnist hverjum eins og gjarnan vill vera og ekki kemur á óvart að Varríus hefur sína skoðanir eins og sjá má hér.  Lesendur geta tjáð skoðun sína á dagskránum með því að taka þátt í könnuninni hér á vefnum.

Starfsárið kynnt hjá Þjóðleikhúsinu

Á annan tug frumsýninga verða í Þjóðleikhúsinu í vetur, nýtt leikrými –  Kassinn – verður tekið í notkun, Leikhúskjallarinn rís úr öskustónni, gamla hæstaréttarhúsið að Lindargötu 3 fær nýtt hlutverk… það leika ferskir vindar um Þjóðleikhúsið í vetur.

Heimsmet í leiklist?

Draugasetrið á Stokkseyri sendi nokkra af sínum bestu fulltrúum til að hrella Reykvíkinga á Menningarnótt í boði Tryggingarmiðstöðvarinnar. Þeir fóru hamförum í höfuðborginni og eru líkur jafnvel taldar á að þeir hafi sett heimsmet.

Allt fyrir andann

ALLT  FYRIR  ANDANN Það mælti mín móðir Að mér skyldi kaupa Fleyg af fegursta víni En lát’eins og leikstjórinn – lítið mig staupa’ En ég stressast svo þegar ég sýni. Og botnlanginn brostinn Og bévítans sárin Í maganum, hvað ég er kvalinn Og gómana gleypti’ En ég gat gegnum tárin Brosað samt út í salinn. […]

Freyvangsleikhúsið

Formaður Jóhanna S.Ingólfsdóttir jsing0411@gmail.com 8673936 Gjaldkeri: Hafþór Önundarson haffionna@gmail.com Sími: 8656990 Ritari: Katrín Ósk Steingrímsdóttir katrinosk87@gmail.com Sími: 8479803 Meðstjórnandi: Aðalbjörg Þórólfsdóttir Sími: adalbjorg1969@gmail.com Vefur Frevangsleikhússins  Félagið starfar í Eyjafirði.

Halaleikhópurinn

Formaður: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir Netfang kdk@simnet.is Sími 8614402 Varaformaður: Lilja Þorgeirsdóttir Netfang: lilja0108@gmail.com Sími: 869-0224 Gjaldkeri: Kristín Margrét Bjarnadóttir Netfang kmbj@simnet.is Sími 6617235 halaleikhopurinn@gmail.com Ritari: Hanna Margrét Kristleifsdóttir Netfang: hannagull@simnet.is Sími: 896-2786 Meðstjórnandi: María Jónsdóttir Netfang: mariajons78@gmail.com Sími: 861-2767 Varamenn: Ása Hildur Guðjónsdóttir Stefanía B. Björnsdóttir Vefsíða: http://www.halaleikhopurinn.is  Félagið starfar í Reykjavík.

Leikárið hjá LA

 Mikil fjölbreytni einkennir leikárið 2005-2006 hjá LA sem kemur í kjölfar eins mesta aðsóknarárs í sögu leikfélagsins. Í vetur verða átta leiksýningar á fjölunum. Þar af eru þrjár frumsýningar á: drepfyndnum gamanleik, kraftmiklum rokksöngleik og undurfallegu átakaverki. Sýningum verður haldið áfram á Pakkinu á móti sem frumsýnt var í vor við mjög góðar undirtektir. Til […]

Fyrirlestrahelgi

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir: Fyrirlestrahelgi um tækni- og hönnunarmál fyrir leikstjóra og aðra áhugasama verður haldinn dagana 1. og 2. október 2005. Heiti námskeiðsins eru: Hinar þúsund þjalir leikstjórans eða Tæknipungapróf fyrir leikstjóra eða Allt sem leikstjórinn þarf að vita um tæknimál en hefur ekki þorað að spyrja um.

Hugleikur

hugleikur_logo

[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ _builder_version=“3.22″][et_pb_row admin_label=“row“ _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text admin_label=“Text“ _builder_version=“4.9.10″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″] Formaður: Ásta Gísladóttirasta@astriki.isSími: 6926012 Ritari: Hjörvar Péturssonhjorvarpez@gmail.comSími: 8936446 Gjaldkeri: Margrét Þorvaldsdóttirmargrett@hi.isSími: 8980526 Vefur Hugleiks Félagið starfar á höfuðborgarsvæðinu. [/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]