ImageÁ laugardagskvöldið verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu verkið Salka Valka eftir Halldór Laxness í leikgerð Hrafnhildar Hagalín Guðmundsdóttur. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backman.

Íslensk hetjusaga. Hvernig skyldu menn lifa og hvernig deyja í litlu þorpi undir háum fjöllum? Í landi þar sem auðurinn hefur safnast á fárra hendur? Peningar virðast liggja á lausu í útlöndum, þaðan koma menn ríkir heim og kaupa upp heilu plássin.   En nú tala menn um að breytingar geti verið í nánd.Hvernig skyldi fátækri aðkomukonu með óskilgetið stúlkubarn reiða af í slíku plássi?  Hver verða örlög þeirra? 

Ilmur Kristjánsdóttir leikur Sölku Völku og Halldóra Geirharðsdóttir móður hennar Sigurlínu.
Sveinn Geirsson leikur Arnald og Ellert A. Ingimundarson Steinþór.

ImageMeð önnur hlutverk fara Bergur Þór Ingólfsson, Birna Hafstein, Guðmundur Ólafsson, Halla Vilhjálmsdóttir, Kristján Franklín Magnús, Laddi (Þórhallur Sigurðsson), Margrét Helga Jóhannsdóttir, Marta Nordal og Theodór Júlíusson.

Tónlist: Óskar og Ómar Guðjónssynir
Ljós: Kári Gíslason
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Leikmynd: Jón Axel Björnsson
Hreyfingar: Lára Stefánsdóttir
Leikstjóri: Edda Heiðrún Backman.

Sýningin tekur um 2 og hálfan tíma í flutningi. Gert er hlé milli 2. og 3. þáttar.