Opið hús í Þjóðleikhúsinu á morgun
Þjóðleikhúsið opnar dyr sínar upp á gátt milli kl. 13 og 16, laugardaginn 6. september en þá gefst gestum og gangandi kostur á að kynna sér starfsemi leikhússins, yst sem innst. Boðið verður upp á skemmtiatriði fyrir alla aldurshópa, kynnisferðir um leikhúsgaldrana baksviðs, leiksmiðjur og þjóð(leikhús)legar veitingar, svo eitthvað sé nefnt. Þarna gefst einnig gott […]
Spekingurinn Einar Áskell í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir, í samvinnu við Fígúru leikhús Bernds Ogrodniks, brúðuleiksýninguna Klókur ertu, Einar Áskell nk. laugardag, 30. ágúst. Gestaleikur þessi er verk brúðugerðarmannsins Bernds Ogrodniks sem byggir á heimsþekktum sögum Gunillu Bergström um þennan uppátækjasama snáða. Sýnt verður í Kúlunni, barnasviði Þjóðleikhússins á Lindargötu 7 og hefst sýningin kl. 15.
Borgarleikhúsið og SPRON gera tímamótasamning
Fyrir helgi undirrituðu Ólafur Haraldsson framkvæmdastjóri SPRON og Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri Borgarleikhússins samstarfssamning. Samningur þessi er afar rausnalegur af hálfu SPRON sjóðsins. Með samningnum er námsmönnum og fólki yngra en 25 ára, gert kleift að verða fastagestir í Borgarleikhúsinu á mun lægra verði en áður hefur þekkst, en SPRON niðurgreiðir áskriftarkort fyrir ungt fólk […]
Við flytjum!
Skrifstofa Bandalags ísl. leikfélaga flytur af Laugavegi 96 fimmtudaginn 28. ágúst nk. Við opnum að Suðurlandsbraut 16 kl. 9.00 mánudaginn 8. september. Þann sama dag milli kl. 17.00 og 19.00 verðum við með opið hús fyrir þá sem vilja koma og fá sér kaffi og kíkja á nýju aðstöðuna. Opnunartími á Suðurlandsbrautinni verður sá sami […]
Leikárið 08/09 í Borgarleikhúsinu
Það verður mikið um dýrðir í Borgarleikhúsinu á komandi leikári en fyrsta leikár nýs leikhússtjóra, Magnúsar Geirs Þórðarsonar, var kynnt starfsfólki í gær. Óhætt er að segja að fjölbreytnin sé mikil en verkin eru ólík innbyrðis, ný íslensk leikrit eru áberandi í bland við erlend gæðaverk, ný og eldri. Mörg verk höfða til allrar fjölskyldunnar, […]
Hreyfiþróunarsamsteypan frumsýnir DJ Hamingja
Íslenskt dansverk verður frumflutt fimmtudaginn 21. ágúst kl. 18:00 í Smiðjunni Sölvhólsgötu 13. Það er Hreyfiþróunarsamsteypan sem er þar á ferð og lýsir verkinu á eftirfarandi hátt: Dansverk sem horfist í augu við einveruna í margvíslegum myndum. Hvernig á að teygja sig út til fólks án þess að missa jafnvægið? Getum við haldið partíinu gangandi […]
Síðustu sýningar á Galdrakarlinum í Oz
Leikhópurinn Lotta hefur í sumar sýnt útileiksýninguna Galdrakarlinn í Oz um allt land en nú líður að síðustu sýningum sumarsins. Næstu sýningar verða á Selfossi, Elliðaárdal og í Grindavík núna í vikunni. Síðasta sýningin í Elliðaárdalnum verður síðan miðvikudaginn 27. ágúst.
Hverjir vilja fara til Monaco 2009?
Bandalag íslenskra leikfélaga auglýsir eftir leiksýningu til að sækja um að fara á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco dagana 17.-26. ágúst 2009. Hátíðahaldarar í Monaco bjóða leikhópi sem telur allt að 10 manns frítt uppihald í 4 daga. Hópurinn má vel vera stærri og stoppa lengur, þá þarf bara að borga eitthvað fyrir það. Allur ferðakostanður […]
Hugleikur og Leikfélag Kópavogs á NEATA-hátíð í Riga
Nú stendur yfir í Riga, höfuðborg Lettlands, leiklistarhátíð NEATA eða Norður-Evópska leiklistarsambandsins. Fulltrúi Íslands á hátíðinni er sýningin Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur sem Hugleikur og Leikfélag Kópavogs sýna í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Bingó verður sýnt á morgun, föstudaginn 8. ágúst.
Leikfélagið Sýnir frumsýnir á Akureyri
Leikfélagið Sýnir frumsýnir leikverkið Eyjuna á Akureyri 2. ágúst n.k. Eyjan er spunaverk sem segir sögu þriggja kvenna sem lenda saman á eyðieyju eftir hræðilegt flugslys og verða að takast á við nýjan veruleika. Ekki er allt sem sýnist á eyjunni og stuttu eftir brotlendinguna byrja mörkin milli draums og veruleika að mást út. Innan […]
Lotta leggur land undir fót
Leikhópurinn Lotta heldur nú í mikla leikferð um landið og mun sýna Galdrakarlinn í Oz á 18 stöðum víðsvegar um land. Nú þegar hefur Lotta heimsótt Vestfirðina og Suðurland auk þess sem sýnt hefur verið í bæum í nágrenni Reykjavíkur. Fyrsta sýningin í leikferðinni verður í Mofellssbæ í dag og síðan liggur leiðin upp á […]
Superhero í Jaðarleikhúsinu í Hafnarfirði
Dramatíski gamaneinleikurinn Superhero verður aftur sýndur í Jaðarleikhúsinu nú í júlí í tilefni af Act alone. Leikari verksins, sænsk-ungverski leikarinn Erik Hakansson kom aftur til landsins til þess að taka þátt í einleikjahátíðinni Act alone á Ísafirði þar sem hann vakti mikla athygli, en boðið verður upp á fjórar auka sýningar á verkinu í Jaðarleikhúsinu, […]
Ventlasvín og fleira hjá Frú Normu
Nú standa yfir sýningar á Ventlasvín innsetningarleikverki sem frú Norma setur upp í samstarfi við Leikfélag Fljótsdalshéraðs og Leikfélag Seyðisfjarðar. Sýningar eru í gömlum vélasals Sláturhússins á Héraði sem nýlega var breytt í menningarmiðstöð og hýsir nú m.a. frú Normu leikhús. Verkið gerist á mörkum lygi og raunveruleika. Kannski gerist það í vélarrými […]
Aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar 2008
Þriðjudaginn 15. júlí nk. verður aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar haldinn í húsnæði félagsins í Gamla Lækjarskóla. Fundurinn hefst klukkan 20.00 og á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Hvetjum alla þá sem hafa áhuga á starfinu til að mæta. Sjáumst öll! Kveðja, Leikfélag Hafnarfjarðar
Galdrakarlinn í Oz á Vestfjörðum
Dagana 5. og 6. júlí leggur Leikhópurinn Lotta land undir fót og heldur til Vestfjarða með útisýningu sína á Galdrakarlinum í Oz. Laugardaginn 5. júlí kl. 14:00 verður sýning á Bíldudal og sunnudaginn 6. júlí kl. 14:00 verður sýnt á túninu við Gamla sjúkrahúsið á Ísafirði en þar sýndi leikhópurinn einmitt Dýrin í Hálsaskógi í […]
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 3.-4. maí 2008 í Skagafirði
Aðalfundur Bandalags íslenkra leikfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga í Árgarði í Skagafirði 3.-4. maí 2008 1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason formaður Bandalagsins stakk uppá Maríu Grétu Ólafsdóttur, Lf. Sauðárkróks, og Guðrún Höllu Jónsdóttur, Lf. Selfoss, sem fundarstýrum og Ármanni Guðmundssyni starfmanni skrifstofu […]
Styttist í Act alone á Ísafirði
Hulunni hefur nú verið svipt af dagskrá Act alone sem haldin verður í Hömrum, Ísafirði dagana 2. til 6. júlí 2008. Það eru engar ýkjur að segja að dagskráin hafi aldrei verið jafn glæsileg og í ár. Boðið verður uppá 24 sýningar, leiklistarnámskeið og kennslustund í að reka eins manns leikhús. Að vanda er aðgangur […]
Dauðasyndirnar halda áfram
Leikritið Dauðasyndirnar, guðdómlegur gleðileikur, sem frumsýnt var þann 8. maí síðastliðinn í Borgarleikhúsinu mun halda áfram göngu sinni næsta haust og verða hluti af glæsilegri dagskrá næsta starfsárs. Síðustu sýningar eru nú um helgina og fyrir löngu orðið uppselt. Í verkinu segir frá hremmingum Dantes og ferð hans um hringi helvítis í leið sinni um […]
Stóla fyrir Óla!
Nýr söngleikur Ólafs Hauks Símonarsonar, Fólkið í blokkinni, verður frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins 10. október n.k. og er undirbúningur kominn á fullan skrið. Leikhúsið reiðir sig á aðstoð landsmanna, því nú vantar ekki einn og ekki tvo, heldur ríflega 400 stóla til notkunar í sýningunni. Óskað er eftir því að landsmenn komi með stóla […]
Nýr sjóður til eflingar leikritun á Íslandi
Stofnaður hefur verið nýr sjóður, Prologus, með það að markmiði að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið. Sjóðurinn er stofnaður af Bjarna Ármannssyni og Helgu Sverrisdóttur, í samvinnu við Þjóðleikhúsið. Stofnframlag sjóðsins er 16 milljónir króna, en sjóðurinn mun starfa frá árinu 2008 til ársins 2010. Sjóðurinn var formlega stofnaður í […]
Leiklistarskóli Bandalagsins settur
Leiklistarskóli Bandalags ísl. leikfélaga var settur á laugardaginn að Húsabakkaskóla í Svarfaðardal. Þar er í ár boðið uppá þrjú námskeið; grunnnámskeið í leikritun, kennari Bjarni Jónsson, Leiklist II – framhaldsnámskeið fyrir leikara, kennari Ágústa Skúladóttir og sérnámskeið fyrir leikara, kennari Rúnar Guðbrandsson. Nemendur á námskeiðunum eru samtals 41.
Allt fyrir andann forsala hafin
Í september næstkomandi kemur út bókin Allt fyrir andann Bandalag íslenskra leikfélaga, 19502000. Þar er rakin saga Bandalagsins í 50 ár en allt frá stofnun hefur hreyfingin verið öflugur bakhjarl leikfélaganna í landinu og tilkoma hennar blés nýju lífi í leikstarf úti um allt land. Hægt er að kaupa bókina í forsölu og setja […]
Skeifa Ingibjargar á Grand Rokk
Leikfélagið Peðið frumsýnir rokkkabarettinn Skeifu Ingibjargar eftir Benóný Ægisson á efri hæð Grand Rokk, laugardaginn 7. júní klukkan 15.00. Verkið fjallar um Ingibjörgu, stórfrænku Jóns forseta og síðar konu hans, sem beið sjö ár í festum eftir því að Jón giftist henni. Á meðan á biðinni stóð kom hún sér upp rosalegustu skeifu sem höfundur […]
Áhorfendaverðlaun Grímunnar 2008
Gríman – Íslensku leiklistarverðlaunin verða veitt í sjötta sinn við hátíðlega athöfn föstudaginn 13. júní á Stóra sviði Þjóðleikhússins og í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Útsendingin hefst kl. 20:55, strax að loknum leik Hollands og Frakklands á Evrópumótinu í knattspyrnu sem fram fer sama dag. Kosning er nú hafin til áhorfendaverðlauna Grímunnar 2008. Verðlaunin gefa […]
Skoska leikritið krufið
Hópur leikara Þjóðleikhússins starfar þessa dagana í vinnusmiðju kenndri við eina þekktustu hetju Shakespeares, sjálfan Makbeð. Þessi hópur mun sýna afraksturinn af vinnumiðjunni í haust en að þessu sinni er farin fremur nýstárleg leið að þessari merku leikhúshetju Shakespeares. Vinnusmiðjuna leiðir Stefán Hallur Stefánsson leikari en varnarþing hennar er á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Vinnan hefur þó […]
Leikhópurinn Lotta sýnir Galdrakarlinn í Oz
Í sumar mun Leikhópurinn Lotta sýna undir berum himni fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz víðsvegar um landið en leikhópurinn sýndi einmitt Dýrin í Hálsaskógi í fyrrasumar við miklar vinsældir. Frumsýning verður sunnudaginn 1. júní í Elliðaárdal og verða þá tvær sýningar sú fyrri klukkan 14:00 og seinni klukkan 17:00. Verkið verður síðan sýnt í Elliðaárdalnum sýnt […]
SL heldur málþing i Iðnó
Fimmtudaginn 29. Maí kl. 12-14 halda Sjálfstæðu leikhúsin málþing í Iðnó um stöðu stjálfstætt starfandi sviðslistamanna. Yfirskrift málþingsins er Er starfsumhverfi sjálfstæðra leikhópa í takt við tímann?
Lokasýning á Barninu 30. maí
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir núna næstkomandi föstudagskvöld leikritið Barnið eftir Edward Albee í leikstjórn Lárusar Vilhjálmssonar í síðasta sinn. Sýningin hest klukkan 20.00 og í tilefni af 100 ára afmælis Hafnarfjarðarbæjar býður leikfélagið FRÍTT á þessa sýningu. Þar sem sætaframboð er takmarkað er samt sem áður nauðsynlegt að panta miða og það er hægt að gera […]
Spennandi námskeið á Act alone í sumar
Sigurður Skúlason leikari heldur námskeið í textaflutningi, laust mál og bundið á einleikjahátíinni Act alone sem haldin verður á Ísafirði í sumar. Yfirskrift námskeiðsins er Hvað felst í textanum og hvernig komum við því til skila í flutningi?. Kennt verður fimmtudaginn 3. og föstudaginn 4. júlí í Háskólasetri Vestfjarða þar sem skráning fer jafnframt fram […]
Halaleikhópurinn í Þjóðleikhúsinu
Á hverju ári stendur Þjóðleikhúsið fyrir vali á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, tilkynnti um valið á áhugasýningu ársins á þingi Bandalags íslenskra leikfélaga í Skagafirði þann 3. maí s.l., en fyrir valinu í ár varð sýning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu, leikgerð Dale Wasserman byggðri á skáldsögu Ken Kesey í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur. Að […]
Tilnefningar til Grímunnar 2008
Leiklistarsamband Íslands boðar til fréttamannafundar föstudaginn 16. maí á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Fundurinn hefst kl. 16. Tilkynnt verður um hvaða sýningar og listamenn hljóta tilnefningar til Grímunnar – Íslensku leiklistarverðlaunanna árið 2008. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem jafnframt er verndari Grímunnar, afhendir þeim listamönnum viðurkenningar er tilnefningar hljóta. Gríman – Íslensku leiklistarverðlaunin verða […]
Yfir landamæri lista og landa
Íslenskum áhorfendum gefst nú einstakt tækifæri til að sjá hina óvenjulegu og rómuðu samísku leiksýningu Sá hrímhærði og draumsjáandinn. Samíska leikhúsið Beaivvá sýnir verkið í Kassanum í Þjóðleikhúsinu þriðjudagskvöldið 27. maí nk. Leikstjóri sýningarinnar og listrænn stjórnandi leikhússins er Haukur J. Gunnarsson. Haukur er íslenskum áhorfendum að góðu kunnur fyrir uppsetningar sínar og gestaleiki hér […]
2 fyrir 1 hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar.
Vegna framkvæmda fyrir framan húsnæði félagsins höfum við breytt sýningartímum og bjóðum nú uppá 2 fyrir 1 á allar sýningar! Jafnframt minnum við fólk á að mæta tímanlega, þar sem ekki er nein bílastæði að fá fyrir framan húsið. Hægt er að leggja bílum við Hafnarfjarðarkirkju eða við Gamla bókasafnið í Hafnarfirði.
Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum
Hugleikur setur endapunktinn á leikárið 2007 til 2008 með leikdagskrá í Þjóðleikhúskjallaranum. Dagskráin verður flutt þriðjudaginn 13. maí og föstudaginn 16. maí. Flutt verða fimm leikverk eftir félagsmenn, þar af eru fjögur frumflutt. Samkvæmt venju er leikstjórn í höndum liðsmanna Hugleiks. Við sögu koma m.a. ógæfufólk, tröll, framliðnir, áhugamenn um uppvask og fólk sem sýnir […]
Velheppnuðum aðalfundi Bandalagsins lokið
Nú er að baki aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2008 og var hann haldinn í boði Leikfélags Sauðárkróks í Árgarði í Skagafirði dagana 3. 4. maí. Var mál manna að fundur hinn hafi allur verið hinn besti og vel að honum staðið hjá Sauðkrækingum í hvívetna en þeir tóku á móti fundargestum á föstudagskvöld með […]
Lög Bandalags íslenskra leikfélaga
1. grein Samtökin nefnast Bandalag íslenskra leikfélaga. Heimili Bandalagsins og varnarþing er í Reykjavík. 2. grein Bandalagið er landssamtök áhugaleikfélaga á Íslandi og kemur fram fyrir hönd leikfélaganna gagnvart íslenskum og erlendum yfirvöldum. Það gætir hagsmuna áhugaleiklistarinnar innan samtaka leikhúsfólks, t.d. í Leiklistarsambandi Íslands og fer með aðild Íslands að Norræna áhugaleikhúsráðinu, NAR, Norður-evrópska áhugaleikhúsráðinu, […]
Glötuð netfangaskrá og ný bloggsíða
Leikfélagið Sýnir óskar hér með eftir fólki til að hafa á netfangaskrá þar sem eldri netfangaskrá virðist hafa gufað upp. Ef þig langar til að fylgjast með hvað félagið er að gera eða vera með endilega sendið tölvupóst á leikfelagid.synir@gmail.com . Einnig viljum við nýta tækifærið og benda fólki á bloggsíðuna okkar – www.leikfelagidsynir.blog.is […]
Langar þig til Riga í sumar?
Norður-evrópska áhugaleikhúsráðið, NEATA, stendur fyrir leiklistarhátíðum á tveggja ára fresti og skiptast aðildarlöndin á að halda hana. Í sumar er komið að Lettlandi og verður hátíðin haldin í Riga dagana 5. til 10. ágúst. Til hennar er boðið sýningum frá aðildarlöndum NEATA: Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og Lettlandi. Leiksmiðjur og gagnrýni […]
Sýning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu fer í Þjóðleikhúsið
Á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga í Skagafirði núna um helgina tilkynnti Tinna Gunnlaugsdóttir, Þjóðleikhússtjóri, hvaða leiksýning var valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin árið 2008. Fyrir valinu varð uppsetning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu eftir Ken Kesey og Dale Wasserman í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar og verður hún því sýnd í Þjóðleikhúsinu í lok leikárs.
Dauðasyndirnar frumsýnt í Borgarleikhúsinu
Þann 8. maí verður leikverkið Dauðasyndirnar frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins. Dauðasyndirnar er trúðaleikur fyrir fullorðna sem byggir frjálslega á Guðdómlegum gleðileik Dantes. 4 trúðar, þau Barbara, Gjóla, Za-ra og Úlfar, segja frá hremmingum Dantes sem þarf að fara um helvíti, og hreinsunareldinn til til þess að uppskera paradís. Á leiðinni nýtur hann traustrar leiðsagnar Virgils. […]
