Starfsáætlun 2011-2012
Starfsáætlun Bandalags íslenskra leikfélagaleikárið 2011-2012 Almenn starfsemi: 1. Rekstur þjónustumiðstöðvar, Leiklistarskóla, Leiklistarvefsins og annarra fastra liða í starfseminni. 2. Leita eftir hækkuðum framlögum úr opinberum sjóðum og frá einkaaðilum til starfsemi áhugaleikfélaganna og sameiginlegra verkefna. 3. Halda áfram samstarfi við Þjóðleikhúsið með Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins. Sérverkefni ársins: 1. Taka þátt í Stuttverkahátíð í Færeyjum […]
Starfsáætlun 2016-2017
Starfsáætlun Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2016-2017 Almenn starfsemi 1. Rekstur þjónustumiðstöðvar, Leiklistarskóla, Leiklistarvefsins og annarra fastra liða í starfseminni. 2. Leita eftir hækkuðum framlögum úr opinberum sjóðum og frá einkaaðilum til starfsemi áhugaleikfélaganna og sameiginlegra verkefna. Sérverkefni ársins 1. Að haldið verði námskeið í stjórnun leikfélaga og markaðssetningu samhliða aðalfundi 2017. 2. Að halda afmælishátíð í […]
Búlúlala á Ísafirði
Búlúlala Öldin hans Steins er nýtt leikverk fyrir leikara og tónlistarmann sem Kómedíuleikhúsið setur á svið til að minnast aldarafmælis Steins Steinars. Leikurinn verður frumsýndur fimmtudaginn 8. maí í Tjöruhúsinu á Ísafirði. Alls verða þrjár sýningar á Ísafirði eftir það verður flakkað um Vestfirðina og sýnt á Flateyri, á Bíldudal, í Bolungarvík og í […]
Villidýr og Pólitík á Akureyri
Það eru þeir Radíusbræður, Davíð Þór og Steinn Ármann, sem leiða saman hesta sína á ný í íslensku útgáfunni af þessum víðfrægðu Ricky Gervais uppistandssýningum. Hafa þeir gert þessar sýningar að sínum eigin með hjálp leikstjórans Gunnars B. Guðmundssonar, sem leikstýrði síðasta Skaupi og kvikmyndinni Astrópíu. Sýningin var frumsýnd í Borgarleikhúsinu á vormánuðum og verður […]
Hugleikur til Västerås
Hugleikur leggur land undir fót í dag. Sýningu félagsins á leikritinu Útsýni eftir Júlíu Hannam hefur verið boðið á leiklistarhátíð sænska áhugaleikhússambandsins, ATR, í Västerås, sem fram fer 29. apríl til 4. maí. Leikstjórn Útsýnis er í höndum gamalkunnra Hugleikara, þeirra Rúnars Lund og Silju Bjarkar Huldudóttur, en þau hafa bæði starfað með leikfélaginu í […]
Nýr íslenskur söngleikur í Þjóðleikhúsinu
Söngleikurinn Ástin er diskó, lífið er pönk verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 1. maí nk. Frá Stóra sviðinu berast nú taktfastir diskótónar í bland við argasta pönk því viðfangsefni Hallgríms Helgassonar, höfundar verksins, er litríkur átakatími í íslensku menningarlífi. Í verkinu hljóma gamlar (og nýjar) diskó- og pönkperlur í frábærum flutningi okkar bestu listamanna. Leikstjóri […]
Vill einhver elska ….
49 ára gamlan mann? Hann vinnur hjá skattinum… og týndi skjalatöskunni sinni… og fann aðra með 400 milljónum… Leikfélag Sauðárkróks sýnir gamanleikinn Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney í nýrri leikgerð og þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Frumsýning verður sunnudaginn 27. apríl klukkan 20:30 í Bifröst á Sauðárkróki. Leikstjóri er Jón St. Kristjánsson.
Leikfélagið Sýnir boðar til aðalfundar
Sunnudaginn 27. apríl nk. verður aðalfundur Leikfélagsins Sýna haldinn í húsnæði Leikfélag Hafnarfjarðar í Gamla Lækjarskóla. Fundurinn hefst klukkan 16.00 og á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Borgarbörn fagna 444 ára afmæli Shakespeares
Borgarbörn, barna- og unglingaleikhús, frumsýna Allt í misgripum eftir William Shakespeare á Nýja sviði Borgarleikhússins þann 23. apríl kl. 19:00. Sýningin er hluti af Shakespeare 24, sem er stærsta alþjóðlega Shakespeare-leiklistarhátíð, sem haldin hefur verið meðal barna og unglinga.
Aðalfundur BÍL 2008 – Einþáttungahátíð fellur niður!
Vegna lítillar þátttöku fellur einþáttungahátíðin niður sem við ætluðum að halda í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga helgina 1.-4. maí. Þátttaka í aðalfundi er lítil og því var nauðsynlegt að leita nýrra samninga við staðarhaldara hjá Félagsheimilinu Árgarði og gistiheimilinu að Bakkaflöt. Það er komin ný dagskrá og miðast hún við tvær gistinætur og […]
Aukasýning á 39½ viku
Hugleikur verður með aukasýningu á leikritinu 39½ viku eftir Hrefnu Friðriksdóttur föstudaginn 25. apríl í Möguleikhúsinu við Hlemm vegna góðrar aðsóknar. Lokasýning var sl. miðvikudag og var þá sýnt fyrir troðfullu húsi. Leikstjórar 39½ viku eru Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam og Sigurður H. Pálsson.
Hverjir eru höfundar leikhússins?
Mánudaginn 21. apríl kl. 20 munu Leiklistarsamband Íslands og Leiklistardeild Listaháskóla Íslands standa fyrir fyrirlestri um stöðu höfundar í nútímaleikhúsi á Kaffi Sólon, Bankastræti 7a, 2. hæð. Fyrirlesarar eru Charlotte Böving, leiklistarkona og Jón Atli Jónasson, leikskáld.
Rocky Horror á Hornafirði
Leikfélag Hornafjarðar í samvinnu við FAS sýnir nú Söngleikinn Rocky Horror í leikstjórn Jóns Inga Hákonarsonar. Frumsýnt var þann 10. apríl og fara sýningar fram í Mánagarði. Kór- og tónlistarstjóri er Anna Lilja Karlsdóttir. Þessi frægi söngleikur Richards O'Briens nýtur gífurlegra vinsælda hér á landi og er í uppsetningunni lögð áhersla kraftmikinn og líflegan flutning.
Djöflaeyjan í Breiðumýri
Leikdeild ungmennafélagsins Eflingar í samstarfi við framhaldsskólann á Laugum frumsýndi þann 5. apríl sl. leikritið Þar sem djöflaeyjan rís í leikgerð Kjartans Ragnarssonar í gær. Sýnt í félagsheimilinu Breiðumýri sem er í nágrenni við Lauga í Reykjadal. Leikstjóri er Hörður Benónýsson og tónlistarstjóri Pétur Ingólfsson. Um ljósin sér Jón Arnkelsson og er Elín Kjartansdóttir búningahönnuður […]
Stúdentaleikhúsið sýnir Drottinn blessi blokkina
Þann 9. apríl sl. frumsýndi Stúdentaleikhúsið nýtt íslenskt verk sem ber heitið Drottinn blessi blokkina og er unnið í samvinnu leikhóps og leikstjóra. Sagan gerist, eins og titillinn gefur til kynna, í blokk og segir frá persónu sem skyndilega verður viðskila við förunaut sinn og uppgötvar sjálfstæðan vilja. Það er gluggað í íbúðir og líf […]
Mómó í Þorlákshöfn
Leikfélag Ölfuss frumsýndi fjölskylduleikritið Mómó eða skrítin saga um tímaþjófana og barnið sem frelsaði tímann úr klóm þeirra í leikstjórn Hrundar Ólafsdóttur laugardaginn 5. apríl. Leikritið er byggt á sögu þýska rithöfundarins Michael Ende, þess sama og skrifaði Söguna endalausu, og fjallar um litlu stúlkuna Mómó sem birtist dag einn í rústum gamals hringleikahúss og […]
Barnið frumsýnt í Hafnarfirði
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir laugardaginn 12. apríl leikverkið Barnið eftir Edward Albee. Verkið er skrifað í anda absúrd verka fimmta áratugarins, verka Ionesco og Beckett en þó með sterkri tilvísun til stöðu mannsins í nútímanum. Verkið fjallar um stúlkuna og strákinn sem eignast barn og njóta lífsins í fullkomnu sakleysi og án truflana frá hinum ytri […]
Óskað eftir umsóknum á artFart
Samband ungra sviðslistamanna (Sus) lýsir eftir verkum fyrir sviðslistahátíðina artFart 3 sem haldin verður í ágúst 2008. Sviðlistahátíðin artFart 3 er tilraun sem hófst árið 2006. artFart 3 er vettvangur fyrir framúrstefnu og tilraunamennsku í íslenskri sviðslist. Við leitum að listamönnum sem hafa eitthvað að segja um samfélagið sem við lifum í og eru tilbúin […]
Börn mánans í Kópavogi
Síðastliðinn fimmtudag urðu tímamót í sögu Leikfélags Kópavogs þegar Unglingadeild félagsins frumsýndi Börn mánans eftir Michael Weller í leikstjórn Sigurþórs Alberts Heimissonar. Listin lætur ekki bíða eftir sér og það sannast í Kópavoginum þessa dagana. Þó smíði nýs leikhús Leikfélags Kópavogs hafi staðið yfir hefur Unglingadeild félagsins æft af fullum krafti undanfarnar vikur í hamarshöggum […]
Einu sinni var… hjá Leikfélagi Húsavíkur
Fimmtudagskvöldið 10. apríl frumsýnir Leikfélag Húsavíkur kvölddagskrá sem unnin er upp úr verkum sem hafa áður verið sýnd hjá félaginu. Tekin eru atriði úr Síldin kemur og síldin fer eftir þær systur Iðunni og Kristínu Steinsdætur, Skugga Sveini eftir Matthías Jochumsson, Gúmmí Tarsan eftir Ole Lund Kirkegaard og Sölku Völku eftir Halldór Laxness.
Straumar og stefnur í aðferðafræði leikstjórans
Mánudaginn 7. apríl kl. 20 mun Rúnar Guðbrandsson ræða mismunandi hugmyndir um hlutverk og aðferðafræði leikstjórans í gegnum söguna. Hann fer í gegnum strauma og stefnur sem hafa haft mótandi áhrif á leikhús vesturlanda og veltir fyrir sér stöðu leikstjórans í íslensku leikhúsi. Hann hefur boðið með sér nokkrum sviðslistamönnum sem munu tala um kynni […]
Così fan tutte í Íslensku óperunni
Hvað gerist þegar saman koma 25 söngnemendur, 30 nemendur í hljóðfæraleik, Mozart og hópur atvinnufólks úr íslensku tónlistar- og leikhúslífi? Svar: Così fan tutte í Íslensku óperunni ævintýraleg, uppátækjasöm og stórskemmtileg uppfærsla Óperustúdíós Íslensku óperunnar, í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, á einu af meistaraverkum óperubókmenntanna, þar sem hlutirnir eru langt frá því að vera það […]
Leikhópurinn Perlan fagnar 25 ára afmæli
Í tilefni af 25 ára afmæli Perlunnar, frumsýnir leikhópurinn tvö verk sunnudaginn 6. apríl næstkomandi kl. 14.00. Annars vegar er það leikverkið Mídas konungur er með asnaeyru, og hins vegar Ljón og Mýs, en Sigríður hefur sjálf unnið leikgerðir beggja verka auk þess sem hún leikstýrir. Dansverkið Body-Slap eftir Láru Stefánsdóttur, sem höfundur leikstýrir jafnframt, […]
Gítarleikararnir í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 5. apríl næstkomandi verður leikverkið Gítarleikararnir eftir Line Knutzon, í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar, frumsýnt á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu. Verkið, sem mætti kalla hlýlegan gamanleik með lifandi tónlist, fjallar um fjórar manneskjur sem koma saman til að votta nýlátnum trúbador virðingu sína. Line Knutzon hefur einstakt lag á að gæða hversdagslegar samræður persóna […]
Hver er sá ljóti?
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Sá ljóti eftir þýska leikskáldið Marius von Mayenburg á Smíðaverkstæðinu þann 5. apríl nk. í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur. Sá ljóti er nýjasta verk Þjóðverjans Mariusar von Mayenburg sem hefur vakið mikla athygli í evrópsku leikhúslífi á undanförnum árum. Verkið er jafnframt fyrsta verk hans sem sviðsett er á Íslandi, en Ríkisútvarpið hefur […]
Áheyrnarpróf Rose Bruford College í Hinu húsinu
Dagana 5.-6. apríl fara fram áheyrnarpróf fyrir breska leiklistarskólann Rose Bruford College í Hinu húsinu Pósthússtræti 3-5, fyrir inngöngu í skólann í september 2008. Skólinn býður uppá afar fjölbreytt BA nám í leiklist, t.d. í leik, leikstjórn, allri hönnun fyrir leikhús, leikhúsfræði, leikhústónlist o.m.fl. Skólinn er staðsettur í London.
Aðalfundur og einþátttungahátíð í Skagafirði
Dagana 1. 4. maí verður aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn í félagsheimilinu Árgarði í Skagafirði og í tengslum við hann verður haldin einþáttungahátíð. Hún hefst að kvöldi fimmtudagsins 1. maí og stendur fram eftir föstudegi. Sjálfur aðalfundurinn hefst svo að morgni laugardagsins 3. maí og stendur fram að hádegi á sunnudeginum. Aðildarfélög Bandalagsins eru hér […]
Skoppa og Skrítla með nýja leiksýningu
Vinkonurnar Skoppa og Skrítla njóta ómældra vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar. Á síðasta leikári sýndu þær sitt fyrsta leikrit, Skoppa og Skrítla í leikhúsinu, í Þjóðleikhúsinu og sló sýningin rækilega í gegn. Nú er von á nýju leikriti með Skoppu og Skrítlu, og heitir það Skoppa og Skrítla í söng-leik. Sýningin verður frumsýnd í Kúlunni, barnasviði […]
Ávarp Alþjóða leiklistardagsins, 27. mars 2008
Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóða leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjald leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska […]
Hvað varð um Kaþarsis?
Leiklistarsamband Íslands og Leiklistardeild Listaháskóla Íslands boða til Leiklistarþings mánudaginn 31.mars kl.20 á Kaffi Sólon, Bankastræti 7a, 2. hæð. Fjórir frummælendur munu velta fyrir sér hlutverki leikhússins í samtímanum og opnað verður fyrir almennar umræður. Frummælendurnir eru þau Sveinn Einarsson, María Kristjánsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson og Björk Jakobsdóttir og munu þau velta fyrir sér spurningunni […]
Hugleikur frumsýnir 39½ viku
Föstudaginn 28. mars frumsýnir Leikfélagið Hugleikur leikritið 39½ viku eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Leikstjórar eru Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam og Sigurður H. Pálsson. 39½ vika er farsakenndur gamanleikur sem snýst að verulegu leyti um barneignir og sauðfjárrækt. Sveitapilturinn Valur fær afnot af skrifstofu frænku sinnar, sem starfar sem félagsráðgjafi á kvennadeild sjúkrahúss. Valur er að leggja […]
Leikfélag Sauðárkróks finnur milljón
Í byrjun mars hóf Leikfélag Sauðárkróks æfingar á gamanleikritinu Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney en Gísli Rúnar Jónsson sá um íslenskun og gerði nýja leikgerð verksins. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson.
Engisprettur frumsýndar 27. mars
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Engisprettur eftir serbneska leikskáldið Biljana Srbljanović á Stóra sviðinu þann 27. mars nk. í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Þetta ljúfsára verk fjallar á manneskjulegan og heillandi hátt um samskipti fólks, baráttu ólíkra kynslóða og samskipti í fjölskyldum, togstreituna milli foreldra og barna, systkina og hjóna. Við kynnumst hópi persóna og fylgjumst með því […]
Leikfélag Hörgdæla og Passíusálmarnir
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar verða lesnir á Föstudaginn langa í Möðruvallakirkju í Hörgárdal og hefst lesturinn kl. 13:00 og gert er ráð fyrir að honum ljúki um kl. 18:00. Þetta er í áttunda skiptið sem Möðruvallaklaustursprestakall og Leikfélag Hörgdæla standa fyrir þessum upplestri og er fólk hvatt til að mæta og eiga samverustund í kirkjunni.
Jörundur í Logalandi
Við erum stödd í Logalandi í Reykholtsdal. Hinu gamla en margstækkaða félagsheimili hefur verið umturnað og því breytt í sögusvið kráarinnar Jokers & Kings í London þar sem saga Jónasar Árnasonar af Jörundi hundadagakonungi var sögð á frumsýningu síðastliðið föstudagskvöld. Þannig hefst gagnrýni Magnúsar Magnússonar á leiksýninguna Þið munið hann Jörund sem Umf. Reykdæla sýnir […]
Bjarni Jónsson tilnefndur
Leiklistarsamband Íslands tilnefndi í dag Bjarna Jónsson til Norrænu leikskáldaverðlaunanna fyrir leikritið Óhapp! sem frumflutt var síðasta haust á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Uppsetningin hlaut afar góð viðbrögð áhorfenda jafnt sem gagnrýnenda, sem lofuðu verkið og sýninguna. Leiklistarvefurinn upplýsir með stolti að Bjarni er einn af kennurum Leiklistarskóla Bandalagsins í júní nk. og […]
Jörundur góður í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið sýnir um þessar myndir alþýðuleikinn Þið munið hann Jörund. Steinþór Þráinsson brá sér í Freyvang og hefur góð orð um sýninguna. Pistillinn er birtur á Leiklistarvefnum með góðfúslegu leyfi höfundar og Vikudags, en þar birtist hann í gær.
Bærinn breiðir úr sér í Keflavík
Föstudaginn 7. mars frumsýndi Leikfélaga Keflavíkur revíuna Bærinn breiðir úr sér eftir Breiðbandið, en það skipa þeir Magnús Sigurðsson, Rúnar Hannah og Ómar Ólafsson. Leikstjóri er Helga Braga Jónsdóttir, danshöfundur er Josy Zareen og tónlistarstjóri er Júlíus Freyr Guðmundsson.
Bingó til Riga
Norður-evrópska áhugaleikhúsráðið, NEATA, stendur fyrir leiklistarhátíðum á tveggja ára fresti og skiptast aðildarlöndin á að halda hana. Í sumar er komið að Lettlandi og verður hátíðin haldin í Riga dagana 5. til 10. ágúst. Til hennar er boðið sýningum frá aðildarlöndum NEATA: Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og Lettlandi. Að þessu sinni […]
Að byggja BAÐSTOFUNA
Bandalag íslenskra leikfélaga og fræðsludeild Þjóðleikhússins bjóða höfundum, leikstjórum, listrænum hönnuðum og öðrum áhugasömum upp á námskeið um uppsetningu BAÐSTOFUNNAR eftir Hugleik Dagsson. Námskeiðið er kærkomið tækifæri til að kynnast starfinu bak við tjöldin, skoða umgjörð, hugmyndavinnu, útfærslu og alla þá listrænu og tæknilegu vinnu sem liggur að baki leiksýningar. Síðasti skráningardagur er 25. mars […]
