Hugleikur sýnir Mér er hafið Hugleikið

Næstkomandi laugardag frumsýnir Leikfélagið Hugleikur stuttverkadagskrá sem hlotið hefur nafnið Mér er hafið Hugleikið. Höfundar leikfélagsins hafa leitað til hafsins eftir innblæstri og afraksturinn er fjögur leikverk þar sem söngur, seiður, ilmur og hættur hafsins eru í forgrunni. Alls verða sýndar tvær sýningar, 23. og 24. nóvember kl. 20 í leikhúsinu að Eyjarslóð 9. Aðgangseyrir […]
Allra síðustu sýningar á Hjartaspöðum

Nú um helgina sýna Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið síðustu tvær sýningarnar á hinu vinsæla verki Hjartaspaðar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýningin hlaut lofsamlega dóma og var tilnefnd til tveggja grímuverðlauna árið 2013. Sýningarnar eru laugardaginn 23. og sunnudaginn 24. nóvember og hefjast kl. 20. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.
Sýningum líkur á Makalausri sambúð

Leikfélag Ölfuss sýnir nú síðustu sýningar á Makalausri sambúð eftir Neil Simon í leikstjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar. Síðustu sýningarnar verða föstudaginn 22. nóvember og laugardaginn 23. nóvember og hefjast báðar kl. 20. Sýnt er í Versölum (Ráðhúsi Ölfuss).
Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sagnakonuna

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sagnakonan eftir Óskar Guðmundsson í Safnaskálanum að Görðum á Akranesi. Leikgerðin er unnin af leikstjóranum Jakobi S. Jónssyni og leikhópnum. Frumsýningin verður föstudaginn 22. nóvember kl. 20. Lífshlaup Guðnýjar Böðvarsdóttur frá Görðum á Akranesi, móður Snorra Sturlusonar, er um margar sakir merkilegt og hugmyndin að gera lífi hennar stutt skil í leikþætti […]
Arnar Jónsson fær ekki að hætta

Bætt hefur verið við tveimur aukasýningum á Sveinsstykki, einleik Arnars Jónssonar í Þjóðleikhúsinu. Sýningarnar verða 5. og 15. desember. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Að sýningunni stendur Hið lifandi leikhús í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Þess má geta að Þjóðleikhúsið hefur raunar ekki alveg sleppt hendinni af Arnari Jónssyni, en hann mun stíga á svið í Eldrauninni […]
Hundraðasta Mary Poppins sýningin í kvöld

Óhætt er að segja að leikhúsgestir hafi tekið Mary Poppins og Bert vini hennar fagnandi því í kvöld er komið að sýningu númer 100 og uppselt hefur verið á allar sýningar frá upphafi. Mary Poppins er þriðja sýning Leikfélags Reykjavíkur sem fer yfir 50.000 gesti í 117 ára sögu Leikfélagsins (hinar eru Fló á skinni […]
Jóreykur leiklesið í Tjarnarbíói

Leikritið Jóreykur í leikstjórn Þorsteins Bachmann verður leiklesið í Tjarnarbíó miðvikudaginn 20. nóvember. Leikarar eru Halldór Halldórsson (Dóri DNA), Svandís Dóra Einarsdóttir, Þorbjörg Helga Dýrfjörð og Steinþór Hróar Steinþórsson (Steindi Jr.). Frítt er inn á leiklesturinn og aðgangur öllum opinn. Leiklesturinn hefst stundvíslega kl. 20 og tekur rúma klukkustund.
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu

Laugardaginn 16. nóvember kl. 13 frumsýna Skoppa og Skrítla Jólahátíð sína. Í aðdraganda jóla halda Skoppa og Skrítla mikla hátíð til að bjóða sjálfan jólasveininn velkominn til byggða. Hann kemur til að aðstoða þær við að fagna hátíð ljóss og friðar og útbúa gjafir fyrir alla góðu vinina og vinkonurnar. Þegar undirbúningur hátíðarinnar stendur sem […]
Stúdentaleikhúsið frumsýnir Sá á fund sem finnur sig

Fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20 frumsýnir Stúdentaleikhúsið Sá á fund sem finnur sig, nýtt leikverk byggt á hugmynd leikstjórans Péturs Ármannssonar sem vinnur handritð með Jónasi Reyni Gunnarssyni. Sýnt er í Dansverkstæðinu, Skúlagötu 28, 101 Reykjavík (inngangur er við hliðina á Kex Hostel). Sýningartíminn er stuttur og því mikilvægt að tryggja sér miða sem fyrst.
Líf og fjör í Bæjarleikhúsinu

Sunnudaginn 17. nóvember frumsýnir Leikfélag Mosfellssveitar nýtt barnaleikrit eftir Agnesi Wild sem heitir Jólin hennar ömmu. Þetta er falleg jólasaga þar sem fjallað er um samband álfa og manna. Leikstjóri er Jóel Sæmundsson. Frumsýning verður sunnudaginn 17. nóvember kl. 16 og verða sýningar á sunnudögum kl. 16 til jóla. Hægt er að panta miða í […]
Stóru börnin í Tjarnarbíói

Leikhóurinn Lab-Loki sýnir um þessar mundir Stóru börnin, sem er nýtt íslenskt leikverk eftir Lilju Sigurðardóttur. Verkið fjallar á margræðan hátt um gildi ástarinnar og varpar fram þeirri spurningu hvort hægt sé að setja á hana verðmiða. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson og með hlutverk fara Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein og Stefán […]
Átta nýir heiðursfélagar Leikfélags Reykjavíkur

Aðalfundur Leikfélags Reykjavíkur var haldinn fyrir skömmu. Á fundinum lét Inga Jóna Þórðardóttir af formennsku í félaginu, sem hún hefur gegnt í rúm níu ár. Í máli hennar kom fram að aðsókn hafi aldrei verið meiri en undanfarin ár og að síðasta rekstrarár hefði verið það stærsta í sögu félagsins, en þá fór veltan í […]
Táknmálstúlkun á Óvitum sunnudaginn 10. nóvember

Þjóðleikhúsið býður heyrnarlausum og heyrnarskertum á öllum aldri að njóta hinnar bráðskemmtilegu sýningar leikhússins á Óvitum eftir Guðrúnu Helgadóttur, með táknmálstúlkun. Næstkomandi sunnudag verður sérstök sýning með táknmálstúlkun á Óvitum, í samstarfi við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Sýningin hentar einnig öðrum áhorfendum, en táknmálstúlkunin fer þannig fram að tveir túlkar eru hvor sínu megin við […]
Refurinn frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 16. nóvember verður frumsýning á verkinu Refurinn eftir Dawn King á Litla sviði Borgarleikhússins. Verkið sem gerði Dawn King að stjörnu í bresku leikhúslífi er leikstýrt af Vigni Rafn Valþórssyni og er þetta fyrsta leikstjórnarverkefni hans við Borgarleikhúsið en hann hefur getið sér gott orð fyrir sýningarnar Munaðarlaus og Lúkas. Þýðinguna gerði Jón Atli […]
Jólanótt Viktoríu – Jólasýning Borgarbarna

Borgarbörn setja um nú upp jólasýningu áttunda árið í röð. Leikstjóri og höfundur handrits er Erla Ruth Harðardóttir, söngstjóri er Rebekka Sif Stefánsdóttir og danshöfundur er Auður Finnbogadóttir. Leikarar eru átján talsins, allir á aldrinum 11-15 ára. Sýnt er í Iðnó, frumsýning er 29. nóvember og er sýnt fram að jólum.
Frumsýning á Sveinsstykki á stóra sviði Þjóðleikhússins

Þann 10. nóvember mun Arnar Jónsson frumsýna einleikinn Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson á stóra sviði Þjóðleikhússins. Verkið er sett upp á þeim tímamótum sem Arnar kveður Þjóðleikhúsið eftir langan og farsælan feril við húsið en Arnar varð nýlega sjötugur. Með sýningunni vill Þjóðleikhúsið einnig heiðra minningu Þorvalds Þorsteinssonar sem lést á árinu, langt fyrir aldur […]
Góðverkin kalla! í Hellubíói

Föstudaginn 1. nóvember frumsýnir Leikfélag Rangæinga gamanleikinn Góðverkin kalla í hinu fornfræga Hellubíói á Hellu. Höfundar eru Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason en Ármann er jafnframt leikstjóri verksins. Hellubíó hefur nú verið gert upp er þar rekið veitingahús með ýmsa menningarstarfsemi í gamla salnum. Það er því tilvalið að gera sér glaðan dag […]
Mixtúra í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs býður fólki Mixtúru, dagskrá þriggja leikþátta sem að sögn henta vel við sleni og skammdegisdrunga. Sýnt er í Leikhúsinu, Funalind 2, fös. 1. nóv. kl. 20.00. Leikþættirnir eru Móðurímyndin eftir Alan Ayckbourn í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar, Bílabúðin eftir Eugène Ionesco í leikstjórn Arnar Alexanderssonar og Frásögur færandi eftir leikstjórann Hrund Ólafsdóttur og leikhópinn. Alls taka tíu […]
Makalaus sambúð í Ölfusi

Leikfélag ÖlfussMakalaus sambúð eftir Neil SimonLeikstjórn: Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson Leikfélag Ölfuss er um þessar mundir að sýna leikritið makalaus sambúð eftir Neil Simon. Þetta er verk sem er búið að festa sig í sessi með bestu gamanverkum leikhúsmenningarinnar. Hefur Neil gert þó nokkrar útgáfur út frá sömu hugmynd, hvortveggja í leikhúsi sem í sjónvarpi. Tvær […]
Fimmtíu þúsund gestir á Mary Poppins

Gríðarleg velgengni Mary Poppins heldur áfram og mun gestur númer 50.000 mæta á sýningu um næstu helgi. Sá gestur, sem verður númer 50.000, verður leystur út með veglegum vinningum. Óhætt er að segja að leikhúsgestir hafi tekið Mary Poppins og Bert vini hennar fagnandi og laugardaginn 10. nóvember er komið að sýningu númer 100.
Það er ekki allt sem sýnist

Leikfélag Selfoss Maríusögur eftir Þorvald Þorsteinsson Leikstjóri: Guðfinna Gunnarsdóttir Það er ekki allt sem sýnist, er yfirskrift þessa dóms um hinar grátbroslegu Maríusögur sem frumsýndar voru í Litla leikhúsinu við Sigtún síðastliðinn föstudag. Og hvað er líka raunverulegt? Hvað er minning og hvað er draumur? Hvernig vitum við hvað gerðist í raun og veru og […]
Borgarleikhúsið býður leikskólabörnum í heimsókn

Öllum börnum í leikskólum Reykjavíkur fæddum árið 2008 er boðið í Borgarleikhúsið í vikunni. Kynning á undraveröld leikhússins verður haldin á Stóra sviðinu kl 10.00 alla morgna frá mánudegi til fimmtudags. Nýstofnuð fræðsludeild leikhússins, með Ástrósu Elísdóttur í forsvari, stendur fyrir heimsóknunum.
Jóhann Sigurðarson hlýtur viðurkenningu Stefaníusjóðs

Leikarinn Jóhann Sigurðarson hlýtur viðurkenningu Minningarsjóðs frú Stefaníu Guðmundsdóttur þetta árið. Stefanía Borg, formaður stjórnar minningarsjóðsins, og Þorsteinn Gunnarsson leikari og stjórarmeðlimur, sáu um að kynna og afhenda Jóhanni styrkinn og Stefaníustjakann við hátíðlega athöfn á Litla sviði Borgarleikhússins strax að lokinni síðustu sýningu verksins Rautt. Jóhann fer með aðalhlutverkið í Rautt og hlaut fyrir […]
Hjartaspaðar snúa aftur

Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið sýna leikritið Hjartaspaða aftur nú í nóvember. Sýningin hlaut lofsamlega dóma og var tilnefnd til tveggja Grímuverðlauna í júní sl. Aðeins verða 6 sýningar á verkinu að þessu sinni. Í þessu verki eru farnar nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða […]
Pollock? frumsýnt í Kassanum

Þjóðleikhúsið frumsýnir Pollock? eftir Stephen Sachs í Kassanum þann 30. nóvember. Leikstjóri er Hilmir Snær Guðnason og með aðalhlutverk fara Pálmi Gestsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Þýðingu gerði Mikael Torfason. Pollock? Er glænýtt verk sem sýnt hefur verið við miklar vinsældir víðas vegar um Bandaríkin og hlaut Elliot Norton gagnrýnendaverðlaunin árið 2012. Verkið er byggt […]
Leikfélag Selfoss fumsýnir Maríusögur

Leikfélag Selfoss fumsýnir þann 25. október hinn gamansama harmleik Maríusögur eftir Þorvald Þorsteinsson í Litla leikhúsinu við Sigtún. Leikstjóri er Guðfinna Gunnarsdóttir og eru leikarar fimm talsins. Eftir því sem við í stjórn leikfélagsins best vitum er þetta fyrsta leikritið eftir Þorvald sem sett er upp eftir andlát hans. Verkið var samið fyrir útskriftarhóp Leiklistaskóla […]
Leikfélag Vestmannaeyja vantar góðan leikstjóra
Leikfélag Vestmannaeyja leitar eftir góðum leikstjóra til uppsetningar á söngleik eftir áramót. Starfstími er frá 30. janúar og út mars 2014, auk skipulags vinnu hluta úr desember. Leikfélag Vestmannaeyja er áhugaleikfélag sem er á 103. starfsári sínu. Félagið býr yfir stóru húsnæði á þrem hæðum þar sem kjöraðstæður eru til sýninga og æfinga auk þess […]
Mýs og menn snýr aftur á svið í Borgarleikhúsinu

Meistaraverk John Steinbecks Mýs og menn snýr aftur á fjalir Stóra sviðsins næstkomandi föstudag, 18. október. Verkið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á síðasta ári og fór rakleitt í hjartastað íslenskra leikhúsgesta. Hætta varð sýningum fyrir fullu húsi og verkið snýr því aftur nú í takmarkað tíma. Hér er sögð saga farandverkamannanna George og Lennie sem […]
Hús Bernhörðu Alba frumsýnt í Gamla bíói

Föstudaginn 18. október kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Hús Bernhörðu Alba. Hús Bernhörðu Alba er eitt þekktasta verk Federico García Lorca. Það er samið skömmu fyrir borgarastyrjöldina á Spáni og lýsir átökum valds og frelsisþrár, menningar og náttúru, siðsemi og kynhvatar. Valið stendur um frelsið eða dauðann. Kristín Jóhannesdóttir stýrir hér frábærum hópi listamanna í uppsetningu […]
Saumur í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 19. október frumsýnir Borgarleikhúsið í samstarfi við unga nýja listamenn leikverkið Saumur eftir Anthony Neilson. Á hverju ári útskrifar Listaháskólinn hátt á þriðja tug sviðslistafólks. Þetta fólk slær okkur blíðlega utan undir, því fylgja nýjar hugmyndir og önnur viðhorf. Ef þetta fólk væri ekki til þá myndi leikhúsið deyja út. Við þurfum að hlúa […]
Emil í 50 ár!

Freyvangsleikhúsið í Eyjafirði æfir nú af kappi fjölskylduleikritið Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren. Í ár eru 50 ár síðan fyrsta bókin kom út um Emil og strákapörin hans og m.a. í tilefni af því setur Freyvangsleikhúsið upp þessa sýningu. Þetta er mannmörg sýning með mörgum og skemmtilegum söngvum, fimm manna hljómsveit og 16 leikurum. Í […]
Borgarbörn æfa jólasöngleik

Æfingar eru hafnar á árlegu jólaleikriti/jólasöngleik Borgarbarna, barna- og unglingaleikhúss. Um frumsamið verk er að ræða, unnið uppúr hugmyndum leikstjóra og spunum leikhópsins. Leikstjóri og handritshöfundur er Erla Ruth Harðardóttir, söngstjórn er í höndum Rebekku Sifjar Stefánsdóttur og danshöfundur er Auður Finnbogadóttir.
Viltu leika hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar?

Leikfélag Hafnarfjarðar verður með samlestur á Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo mánudaginn 14. október næstkomandi. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta. Samlesturinn verður kl. 20.00 í Gaflaraleikhúsinu, Strandgötu 50. Athugið að sýningar á verkinu eru fyrirhugaðar í lok nóvember – byrjun desember.
Nýr leikhópur á Akureyri sýnir tvö leikverk á þessu leikári

Leikhópurinn Grímurnar var stofnaður síðastliðið haust þegar settur var upp söngleikurinn Berness, já takk & franskar á milli. Sýningin fékk góðar viðtökur og voru sýndar 12 sýningar í fullum sal Sjallans. Nú eru framundan hjá leikhópnum tvö ný og frumsamin leikverk. Á haustdögum er það gamanleikur með söng-farsa og tónlist sem heitir Gúgglaðu það bara […]
Leikfélag Ölfuss sýnir Makalausa sambúð

Þann 18. október n.k. frumsýnir Leikfélag Ölfuss leikritið Makalaus sambúð eftir Neil Simon. Leikritið verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss og leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Leikritið fjallar á kómískan hátt um vinkonur í spilaklúbbi, gleði þeirra og raunir. Það gengur á ýmsu, ekki hvað síst þegar ofurhúsmóðirin Elísabet flytur inn til Margrétar sem […]
Æfingar hafnar á Maríusögum hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á harmleiknum Maríusögur eftir Þorvald Þorsteinsson. Leikstjóri er Guðfinna Gunnarsdóttir og eru leikarar fimm talsins. Frumsýnt verður 25. október í Litla leikhúsinu við Sigtún.
Harmsaga á svið í Washington

Leikritið Harmsaga eftir Mikael Torfason verður sýnt í Kennedy Center í mars á næsta ári. Leikhópnum öllum og leikmynd verður flogið út til að vera eitt af stóru verkum á einni virtustu leikhúshátíð vestra. Um er að ræða mikla viðurkenningu fyrir það listafólk sem kemur að sýningunni sem leikstýrt er af Unu Þorleifsdóttur. Þetta er […]
Þannig aukum við lífsgæði!

Sjálfstæðu leikhúsin (SL), samtök atvinnufólks í sviðslistum á Íslandi, harma þann mikla niðurskurð til sjálfstæðra sviðslistahópa sem boðaður er í fjárlögum 2014. Innan sjálfstæða sviðslistageirans er að finna vaxtarbrodd íslenskra sviðslista, sem felst í nýsköpun, rannsóknum og tækifærum ungs sviðslistafólks til að láta að sér kveða. Menningarlegt gildi starfsins er umtalsvert, þar sem meirihluti allra […]
Brúðuheimar frumsýna Aladdín á Brúðuloftinu

Brúðuheimar, í samvinnu við Þjóðleikhúsið, frumsýna vígslusýningu Brúðuloftsins, Aladdín á sunnudaginn 6. október, í aðalbyggingu Þjóðleikhússins. Bernd Ogrodnik brúðulistamaður hefur unnið um 40 brúður fyrir þessa sýningu af sínu alkunna listfengi, af öllum stærðum og gerðum. Flestar brúðurnar eru þó svokallaðar strengjabrúður og eru þær nær allar tálgaðar út úr tré. Sýningin er veisla fyrir […]
Leiksmiðju Austurlands hleypt af stokkunum

Sviðslistamiðstöð á Egilsstöðum hleypir nú í haust af stokkunum verkefninu Leiksmiðja Austurlands sem samanstendur af röð leiklistartengdra námskeiða í fjórðungnum. Verkefnið er styrkt af Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og Menningarráði Austurlands. Fyrsta námskeið Leiksmiðjunnar verður þriggja helga námskeið í handritagerð og leikstjórn sem haldið verður 26. október til 10. nóvember í Menningarmiðstöðinni Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Kennarar námskeiðsins […]
