Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið sýna leikritið Hjartaspaða aftur nú í nóvember. Sýningin hlaut lofsamlega dóma og var tilnefnd til tveggja Grímuverðlauna í júní sl. Aðeins verða 6 sýningar á verkinu að þessu sinni. Í þessu verki eru farnar nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða í sýningu í fullri lengd. Verkið er drepfyndin en ljúfsár kómedía sem fjallar um stórundarleg uppátæki eldri borgaranna á dvalarheimilinu Grafarbakka sem sanna svo rækilega að lífið er ekki búið eftir áttrætt.

Grímur og Hannes hafa verið félagar á dvalarheimilinu um nokkra hríð og dagleg rútína þeirra er fyrir löngu komin í  fastar skorður. Þegar Gréta flytur inn  umturnast líf þeirra og fyrr en varir hefjast óborganleg uppátæki til að lífga upp á tilveruna og drepa leiðindin þar sem öllum brögðum er beitt.

Kári Viðarsson, leikari sem meðal annars er þekktur fyrir uppbyggingu sína á Frystiklefanum á Rifi á Snæfellsnesi bætist nú við hópinn og tekur við hlutverki hjúkrunarkonu af Álfrúnu Gísladóttur sem farin er til náms í Bretlandi.

Leikstjóri sýningarinnar er Ágústa Skúladóttir sem hefur sett mark sitt á íslenskt leikhúslíf með uppsetningum sínum á Grímusýningunum Klaufum og kóngsdætrum og Bólu Hjálmari, Dýrunum í Hálsaskógi, óperunni Töfraflautunni eftir Mozart sem var opnunarsýning Íslensku Óperunnar í Hörpu og nú síðast brúðusýAlladin á Brúðuloftinu í Þjóðleikhúsinu. Hún hefur í liði með sér leikarana Aldísi Davíðsdóttur,Orra Huginn Ágústsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson ásamt ljósahönnuðinum Sune Joenssen sem fékk Grímutilnefningu á síðasta ári fyrir bestu lýsinguna í Ævintýrum Múnkhásens.

Næstu sýningar:
Laugardaginn 2. og Sunnudaginn 3. nóvember 2013
Laugardaginn 9. og Sunnudaginn 10. nóvember 2013
Laugardaginn 23. og Sunnudaginn 24. nóvember 2013.

Ath. Það eru aðeins þessar 6 sýningar.

Miðasala Gaflaraleikhússins er opin alla virka daga frá 14:00 til 18:00, 14-20 á sýningardögum og tveimur tímum fyrir sýningar um helgar.
Sækja eða greiða þarf pantanir viku fyrir sýningardag.
Hægt er að greiða með VISA/EURO símgreiðslu.
Sími miðasölu er 565-5900 og sími í hópasölu er 895-9919 (Hjartaspaðar)

Einnig er hægt að panta miða í midasala@gaflaraleikhusid.is og á midi.is