Starfsemi Leikfélags Kópavogs komin á fullan skrið

Leikfélag Kópavogs hyggst halda úti öflugri starfsemi í vetur líkt og undanfarna vetur. Þegar eru hafin námskeið fyrir börn og unglinga og framundan eru uppsetningar á þremur leikþáttum nú í október, fyrirlestrar um leiklistarsögu og svo aðalverkefni vetrarins sem ætlunin er að frumsýna í janúar. Rúnar Guðbrandsson hefur verið ráðinn til að leikstýra því.
Sek frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar

Sek eftir Hrafnhildi Hagalín í leikstjórn Ingibjargar Huldar Haraldsdóttur verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar 4. október. Sek byggir á dómsmáli frá 19. öld. Lífsþræðir ábúenda og vinnumanns í Rifshæðarseli á Melrakkasléttu fléttast saman í örlagaríkum ástarþríhyrningi. Með því að styðjast við texta og tilsvör úr dómskjölum frá þessum tíma byggir höfundurinn, Hrafnhildur Hagalín, upp spennandi […]
Leikfélaga Rangæinga æfir Góðverkin kalla!

Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Rangæinga á gamanleiknum Góðverkin kalla! Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann er jafnframt einn höfunda verksins ásamt Sævari Sigurgeirssyni og Þorgeiri Tryggvasyni. Frumsýnt verður í Hellubíói á Hellu í byrjun nóvember og verður leikfélagið í samstarfi við veitingahúsið sem rekið er í húsinu.
Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir

Aðalfundur Leikfélagins Sýnir verður haldinn mánudaginn 30. september kl. 20.00 í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Venjuleg aðalfundarstörf. Ræddar verða hugmyndir að næstu verkefnum. Gamlir og nýir félagar velkomnir.
Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla 2013

Leikfélag Hörgdæla heldur aðalfund sinn fimmtudagskvöldið 26. september nk. kl. 20.30 á Melum í Hörgárdal. Á dagskrá eru lagabreytingar auk venjulegra aðalfundarstarfa og umræðu um spennandi vetrarstarf sem framundan er. Félagar hvattir til að mæta og ný andlit eru ætíð velkomin á Mela.
Styttist í frumsýningu á Jeppa á Fjalli

Jeppi á Fjalli verður frumsýndur föstudaginn 4. október næstkomandi á Nýja sviði Borgarleikhússins. Benedikt Erlingsson, Bragi Valdimar og Megas seiða epískan tón-sjónleik þar sem Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk Jeppa. Leikhópurinn samanstendur af leikurum og tónlistarmönnum og hefur Ingvar til að mynda verið á stífum harmonikkuæfingum fyrir hlutverkið. Höfundur leikmyndar er Gretar Reynisson en […]
Tenórinn aftur á fjalirnar

Tenórinn var frumsýndur í Iðnó fyrir tíu árum síðan og sýndur þar og víða annarsstaðar við feikilega góðar undirtektir bæði gagnrýnenda og áhorfenda. Til að halda upp á tíu ára afmælið kemur sýningin nú aftur á fjalir hins gamla og sögufræga samkomuhúss, Iðnó. Höfundur Tenórsins er Guðmundur Ólafsson og túlkar hann jafnframt titilhlutverkið en undirleikara […]
Maður að mínu skapi frumsýnt í Þjóðleikhúsinu

Nýtt verk úr smiðju Braga Ólafssonar, Maður að mínu skapi, verður frumsýnt laugardaginn 14. september á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Fyrri leikrit Braga Ólafssonar, Hænuungarnir og Belgíska Kongó hlutu afbragðs viðtökur og voru bæði tilnefnd til Grímunnar, auk þess sem Bragi var tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna fyrir Hænuungana. Líkt og í þessum verkum fer Eggert Þorleifsson […]
Horn á Höfði í Tjarnarbíói

Barnasýning Horn á Höfði, verður sýnd í Tjarnarbíói frá 15. september nk. Sýningin var upphaflega frumsýnd í Grindavík 2009 en hún var valin Barnasýning ársins 2010 á Grímunni og var svo sýnd í Borgarleikhúsinu sama haust. Sýningin hlaut einróma lof en Horn á höfði er fjörleg sýning sem höfðar til ungra sem aldinna. Leikstjóri er […]
Skrímslið litla systir mín í Þjóðleikhúsinu

Þann 14. september hefjast sýningar á Skrímslið litla systir mín í Leikhúskjallaranum í Þjóðleikhúsinu. Höfundur, hönnuður og flytjandi er Helga Arnalds en leikstjóri og meðhöfundur Charlotte Böving. Skrímslið litla systir mín er sögustundarsýning Þjóðleikhússins og munu því öll 5 ára börn koma að sjá verkið. Boðið verður upp á opnar sýningar fyrir almenning um helgar […]
Leikfélag Ölfuss æfir Makalausa sambúð
Leikfélag Ölfuss hefur hafið æfingar á gamanleiknum Makalaus sambúð eftir Neil Simon en eftir leikritnu var einmitt gerð kvikmyndin The Odd Couple sem skartaði þeim Jack Lemon og Walter Matthau í aðalhlutverkum en ólíkt kvikmyndinni eru konur í aðalhlutverkum í þessari leikgerð. Leikstjóri er Eyjapeyjinn Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson sem meðal annars hefur numið og leikið […]
Haustfundur Leikfélags Selfoss

Leikfélag Selfoss býður þér á opinn kynningarfund miðvikudaginn 11. september í Litla leikhúsinu við Sigtún kl. 20.30. Fundurinn er tilvalið skjól fyrir votum vindum haustsins í heimilislegum og hlýjum faðmi leikhússins þar sem dagskrá vetrarins verður kynnt. Fyrsta verkefnið verður kynnt sérstaklega af leikstjóranum sjálfum.
Soðið svið sýnir Hættuför í Huliðsdal

Leikhópurinn Soðið svið frumsýndi sl. helgi í samvinnu við Þjóðleikhúsið nýtt íslenskt barnaleikrit, Hættuför í Huliðsdal, í Kúlunni. Höfundur verksins er Salka Guðmundsdóttir og leikstjóri Harpa Arnardóttir. Leikhópurinn Soðið svið vakti mikla athygli fyrir sýninguna Súldarsker, en það verk var einnig eftir Sölku Guðmundsdóttur og listrænir aðstandendur og leikarar voru flestir þeir sömu og nú.
Mary Poppins aftur á svið og geisladiskur kominn út

Einn vinsælasti söngleikur allra tíma, Mary Poppins, fer aftur á svið í Borgarleikhússins á morgun föstudag 6. september Sýningin er sú viðamesta og flóknasta sem Borgarleikhúsið hefur nokkru sinni ráðist í – mannmörg og krefjandi dans og söngatriði, hraðar og stórar sviðskiptingar, háskaleg flugatriði og ótal tæknibrellur. Alls eru 50 manns á sviði í Mary […]
Lokasýning á Sjö samúræjum

Allra síðasta sýning Leikfélagsins Sýnir á Sjö samúræjum, í Elliðaárdal, verður laugardaginn 7. september kl. 18. Hér er um að ræða útileiksýningu, byggða á klassískri kvikmynd Akira Kurosawa, þar sem áhorfendur eru leiddir um Elliðaárdalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að sér að vernda fátæka bændur fyrir ofríki grimmra ræningja. Höfundur […]
Ítrekun – NEATA hátíð 2014 og leiksmiðja fyrir ungmenni

Dagana 1. til 6. júlí 2014 verður áttunda NEATA-leiklistarhátíðin haldin, að þessu sinni í Porvoo í Finnlandi. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið og samvera í hátíðarklúbbi. Fyrir og samhliða hátíðinni í Porvoo verður hálfs mánaðar leiksmiðja á vegum NEATA-Youth. Aðildarlönd NEATA eru […]
Leikfélag Kópavogs kynnir dagskrá leikársins

Leikfélag Kópavogs kynnir dagskrá vetrarins á almennum félagsfundi mánudaginn 2. sept. kl. 19.30 í Leikhúsinu. Dagskráin er afar fjölbreytt og hefst á námskeiðum fyrir 11-12 ára annarsvegar og 13-16 ára hinsvegar. Þá verður einnig haldið námskeið fyrir byrjendur sem hefst 9. september. Þá verða leiksýningar og leikdagskrár á boðstólum og verður nánar upplýst um það […]
Opið hús í Borgarleikhúsinu laugardaginn 31. ágúst

Starfsfólk Borgarleikhússins lýkur upp dyrunum á laugardag kl. 13 og býður í vöfflukaffi með fjörlegri dagskrá. Það verður líf á öllum sviðum og um allt leikhús. Gestir á öllum aldri geta upplifað töfra leikhússins, gægst baksviðs, farið í skoðunarferðir og bragðað á ljúffengum vöfflum sem leikhússtjórinn Magnús Geir, mun reiða fram af myndarskap ásamt öðru […]
Leikárið 2013-14 í Þjóðleikhúsinu

Í Þjóðleikhúsinu leggjum við okkur fram um að laða að leiklistinni og leikhúsinu fólk á ólíkum aldri með ólík áhugasvið og því er framboð og úrval sýninga fjölbreytt. Við bjóðum upp á hvorki fleiri né færri en tíu mismunandi barnasýningar í vetur, og opnum meðal annars nýtt svið sérstaklega fyrir brúðusýningar á Brúðuloftinu. Og það […]
Fjórar aukasýningar á Sjö samúræjum

Leikfélagið Sýnir sýnir fjórar aukasýningar á Sjö samúræjum, í Elliðaárdal dagana tvær næstu helgar. Laugardaginn 31. ágúst og sunnudaginn 1. september hefjast sýningar kl. 20 en föstudaginn 6. og laugardaginn 7. september kl. 18. Hér er um að ræða útileiksýningu, byggða á klassískri kvikmynd Akira Kurosawa, áhorfendur eru leiddir um Elliðaárdalinn til að fylgja sögunni […]
Leikárið framundan hjá Leikfélagi Akureyrar

Starfsemi er komin á komi á fullt að loknum sumarleyfum hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikfélagið heldur upp á 40 ára afmæli sem atvinnuleikhús í ár og tekur verkefnavalið mið af því. Leikárið byrjar á tveimur gestasýningum. Blakkát eftir Björku Jakobsdóttur verður sýnt í Samkomuhúsinu í september, frumsýnt þann 6. september og Segðu mér satt eftir Hávar […]
GRAL frumsýnir Eiðinn og Eitthvað

Leikhópurinn GRAL frumsýnir leikverkið Eiðurinn og Eitthvað, fyrsta vekrið sem Gubergur Bergsson skrifar fyrir leiksvið, á leiklistarhátíðinni LÓKAL þann 28. ágúst 2013 í Tjarnarbíói. Aðlögun og leikstjórn er höndum Bergs Þórs Ingólfssonar en leikarar eru Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Erling Jóhannesson og Benedikt Karl Gröndal. Verkið verður síðan sýnt áfram út september.
Leikárið 2012–13 hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga

Nú liggja fyrir helstu tölur um starfsemi aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2012-2013 og eru þær heilt yfir ívið lægri á öllum póstum en undanfarin ár, þótt ekki muni neinum ósköpum. Á leikárinu voru 59 aðildarfélög aðilar að Bandalaginu en fjöldi félaga með starfsemi á árinu var 36 og í þeim félögum störfuðu 2.389 félagar.
Leikhópurinn Artik frumsýnir Blik í september

Leikhópurinn Artik frumsýnir leikritið Blink eftir Phil Porter, sem hlotið hefur nafnið Blik í þýðingu Súsönnu Svavarsdóttur, þann 8. september í Gamla bíói. Leikarar eru Jenný Lára Arnórsdóttir og Hafsteinn Þór Auðunsson en Leikstjóri er Unnar Geir Unnarsson. Blink var frumsýnt 2. ágúst á síðasta ári á Edinborgar leiklistarhátíðinni. Er því um að ræða frumsýningu […]
Leikklúbburinn Saga frumsýnir Leyndarmál

Leikklúbburinn Saga frumsýnir í kvöld, 6. ágúst, leikritið Leyndarmál eftir Jónínu Leósdóttur. Leikstjórn er í höndum leikhópsins en hann skipa ungmenni á aldrinum á aldrinum 15 til 25 ára. Leikritið verður sýnt í Rýminu á Akureyri miðvikudags- og fimmtudagskvöld klukkan 20.30. Á föstudagskvöld hefst sýning hins vegar klukkan 19.30. Leikklúbburinn Saga var stofnaður árið 1976 […]
Menningarhátíðin Act Alone 2013

Dagana 8. – 11. ágúst fer fram allsherjar leik, og tónlistarveisla fyrir vestan, nánar tiltekið á Suðureyri við Súgandafjörð. Hátíðin ber nafnið ACT ALONE og eitt af því sem gerir hana sérstaka er að frítt er inn á alla viðburði helgarinnar og því upplagt að skella sér vestur í menningarveislu með börn og buru. Dagskráin […]
Leiklistarhátíðin LÓKAL 2013

Nýjustu straumar og stefnur í leiklistinni miða í sömu átt: Listamennirnir opna dyr leikhússins í eiginlegri og óeiginlegri merkingu, bæði hvað varðar innihald og form. Dagskrá LÓKAL 2013 er einmitt sett saman í þessum anda: Áhorfendum er boðið upp á einfaldar, kraftmiklar og opnar leiksýningar og hulunni verður svipt af öllum þeim tækjum og tólum […]
Aukasýningar á Sjö samúræjum í Elliðaárdalnum

Leikfélagið Sýnir ætlar að sýna fjórar aukasýningar á Sjö samúræjum, í Elliðaárdal dagana í lok sumars, nánar til tekið dagana 31. ágúst til 7. september. Hér er um að ræða útileiksýningu, byggða á klassískri kvikmynd Akira Kurosawa, þar sem áhorfendur eru leiddir um Elliðaárdalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að sér […]
Uppsprettan auglýsir eftir handritum

Uppsprettan er að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 8 blaðsíður að lengd, eða 8 blaðsíðna heilsteypt atriði. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa handritin og velja svo úr þau þrjú handrit sem þeim þykir best, […]
Borgarleikhúsið hleypir fræðsludeild af stokkunum

Borgarleikhúsið hefur hleypt af stokkunum fræðsludeild sem starfar við leikhúsið. Markmið deildarinnar er að opna Borgarleikhúsið enn frekar fyrir ungum leikhúsgestum og að glæða, með auknu framboði á fræðslu, áhuga almennings á leikhúsi og því starfi sem þar fer fram, með sérstakri áherslu á unga áhorfendur. Ástrós Elísdóttir hefur verið ráðin fræðslufulltrúi Borgarleikhússins.
Síðasta sýning á Sjö samúræjum

Í kvöld, mánudaginn 8. júlí, sýnir Leikfélagið Sýnir síðustu sýningu á leikgerð Guðmundar Erlingsssonar á Sjö samúræjum eftir Akira Kurosawa í Elliðaárdal. Hér er um að ræða útileiksýningu þar sem náttúra Elliðaárdalsins nýtur sín til fulls í bakgrunninum og áhorfendur eru leiddir um dalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að sér […]
Kviksyndi drauma þinna – Vinnustofa i physísku leikhúsi

Dagana 18.-21. nk. júlí heldur Hrefna Lind Lárusdóttir námskeið í physísku leikhúsi í leikhúsinu Frystiklefanum á Rifi, Snæfellsnesi. Á þessu námskeiði er unnið með leiktækni Jerzy Grotowski og raddþjálfun sem byggir á hugmyndum Roy Harts. Viðfangsefnið verður draumar og þrár og verða undirmeðvitundin og draumar skoðuð í gegnum líkamstjáningu og rödd.
21:07 í Frystiklefanum

Þann 5. nóvember 1993 hópaðist áhugafólk um geimverur og fljúgandi furðuhluti vestur á Snæfellsjökul til að verða vitni að heimsókn úr geimnum, sem sjáendur víðs vegar um heiminn höfðu séð fyrir. Tímasetning heimsóknarinnar var nákvæm. Klukkan 21:07 áttu geimverur að lenda á jöklinum. Íbúar á utanverðu Snæfellsnesi fóru ekki varhluta af þessum einstaka viðburði, og […]
Lúkas sýnt í Rýminu á Akureyri

Nú standa yfir hjá Norðurbandalaginu sýningar á nýju leikverki sem hlutið hefur nafnið Lúkas. Sýningin er spunasýning unnin af leikhópnum Norðurbandalaginu undir leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Sýnt er í Rýminu á Akureyri og næstu sýningar verða fimmtudagana 4. og 11. júlí. Verkið samanstendur af ótrúlegum sönnum sögum, sögum um fólk, hefnd og frið, sögur af […]
Sjö samúræjar í Elliðaárdalnum

Leikfélagið Sýnir sýnir nýja leikgerð af kvikmynd Akira Kurosawa, Sjö samúræjum, í Elliðaárdal dagana 5.-8. júlí. Höfundur leikgerðar og leikstjóri er Guðmundur Erlingsson. Hér er um að ræða útileiksýningu þar sem náttúra Elliðaárdalsins nýtur sín til fulls í bakgrunninum og áhorfendur eru leiddir um dalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að […]
Íslenska óperan sýnir Carmen í haust

Næsta frumsýning hjá Íslensku óperunni verður um miðjan október en þá fer á svið ein vinsælasta ópera allra tíma, Carmen eftir Georges Bizet. Óperan hefur ekki verið sviðsett hérlendis í tæpa þrjá áratugi. Margir af okkar fremstu óperusöngvurum fara með hlutverk í óperunni en einnig munu nokkrir kornungir söngvarar þreyta frumraun sína á íslensku óperusviði. […]
Spindrift Theatre sýnir á Íslands

Leikhópurinn Spindrift Theatre sýnir í fyrsta sinn á Íslandi 3 stuttverk byggð á þremur rannsóknarverkefnum þriggja meðlima hópsins. Hópurinn samanstendur af fimm ungum konum frá Finnlandi, Noregi, Skotlandi og Íslandi sem allar lærðu leiklist í Rose Bruford College í Bretlandi. Þríleikurinn er samsettur af mismunandi tilraunum, listastefnum og stílum og er hópurinn spenntur fyrir því […]
Vesturport frumsýnir á afmælisári Act alone

Elsta leiklistarhátíð landsins, Act alone, fangar eins tuga afmæli í ár. Einsog vænta má er því dagskrá ársins sérlega einstök og einleikin. Afmælis dagskráin var formlega opinberuð í sjávarþorpinu Suðureyri í dag, föstudag. Alls verður boðið uppá 18 viðburði á hátíðinni og rétt er að taka fram að aðgangur að öllum viðburðum er ókeypis einsog […]
Gríman 2013

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 11. skiptið við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Kynnir kvöldsins var Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Gunnar Eyjólfsson hlýtur Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Macbeth var valin sýning ársins, Englar alheimsins leikrit ársins auk fjölda annarra verðlauna sem skiptast þannig:
Elfar Logi Hannesson

Netfang: komedia@komedia.is Sími: 891 7025 Nam leiklist við hin geggjaða leiklistarskóla The Commedia School í Danmörku og útskrifaðist þaðan 1997. Stofnandi og stjórnandi Act alone leiklistarhátíðarinnar og Kómedíuleikhússins. Hefur leikstýrt á fimmta tug leiksýninga um land allt hjá áhugaleikfélögum, atvinnuleikhúsum og skólum. Meðal sýninga sem ég hef sett á svið má nefna: Hassið hennar mömmu […]
