Laugardaginn 16. nóvember verður frumsýning á verkinu Refurinn eftir Dawn King á Litla sviði Borgarleikhússins. Verkið sem gerði Dawn King að stjörnu í bresku leikhúslífi er leikstýrt af Vigni Rafn Valþórssyni og er þetta fyrsta leikstjórnarverkefni hans við Borgarleikhúsið en hann hefur getið sér gott orð fyrir sýningarnar Munaðarlaus og Lúkas. Þýðinguna gerði Jón Atli Jónasson.

Samúel og Júlía eru ung hjón sem búa á hrörlegu sveitabýli. Uppskerubrestur ógnar lífsviðurværi þeirra, þau hafa orðið fyrir sárum missi og það ætlar aldrei að hætta að rigna. Kvöld eitt knýr dyra ungur maður, sendur af yfirvöldum vegna gruns um að býli hjónanna sé sýkt af refum. Refurinn er mesti óvinur ríkisins og þegna þess. Í krossferð sinni gegn refunum er manninum unga ekkert heilagt. Áhugi hans á málinu verður æ persónulegri og við tekur atburðarrás sem mun setja mark sitt á líf þeirra allra það sem þau eiga eftir ólifað.

Verkið er gríðarlega vel skrifað, spennuþrungið verk með hárbeittum undirtóni. Um leið og spennan í verkinu magnast veltum við fyrir okkur hver refurinn sé og hvort það sé yfir höfuð ástæða til að óttast. Refurinn gerði Dawn King að stjörnu í bresku leikhúslífi. Henni tekst að tvinna saman atburðarás sem heldur áhorfendum í heljartökum um leið og verkið er snilldarlega skrifuð dæmisaga.

Leikmynd og búningar hannaði Systa Björnsdóttir, lýsingu Björn Bergsteinn Guðmundsson, um hljóð sér Baldvin Magnússon, tónlistin er eftir Frank Hall og leikgervi hannar Margrét Benediktsdóttir. Leikarar eru Arnar Dan Kristjánsson, Hallgrímur Ólafsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Tinna Lind Gunnarsdóttir.