Nemendaleikhúsið í Smiðjunni
Æfingar eru nú í fullum gangi hjá útskriftarárgangi leiklistardeildar Listaháskóla Íslands, en starfsemi Nemendaleikhúsins 2009-2010 er hafin. Nemendaleikhúsið hefur nú fengið aðsetur sitt í Smiðjunni á Sölvhólsgötu en í vetur verða sýndar þrjár sýningar í Smiðjunni. Fyrsta verkefni vetrarins er hin magnaða háðsádeila Eftirlitsmaðurinn eftir Nikolai Gogol í nýrri þýðingu Bjarna Jónssonar.
Allra meina bót í Hveragerði
Nú kreppist kreppan enn meir og menn þurfa að skera, skera bæði UPP og niður í samfélaginu. Við í Leikfélagi Hveragerðis viljum sem minnst minnast á svoleiðis fréttir og umtal en í þetta skiptið verður ekki hjá því komist að mikið verður skorið UPP á sviðinu okkar hér í Hveragerði.
Æfingar hafnar á Manni í mislitum sokkum
Leikfélag Ölfuss æfir nú af kappi gamanleikinn Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Bachman í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Verkið fjallar á gamansaman hátt um ástir og örlög nokkurra eldri borgara og stöðu þeirra í þjóðfélaginu. Frumsýning er áætluð þann 16. október og verður sýnt í Versölum í Þorlákshöfn.
Sýningar á Út í kött! hefjast að nýju
Sýningar Lýðveldisleikhússins á barnaleikritinu Út í kött! hefjast að nýju um helgina í Gerðubergi. Út í kött! er nýr dans og söngleikur fyrir börn á öllum aldri sem var frumsýndur síðastliðið vor. Verkið er ævintýraleikur og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Sýningarnar verða laugardaginn 26. september og sunnudaginn 27. […]
Aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar
Næstkomandi laugardag, 26. september klukkan 15:00, verður aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar haldinn í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, kosning stjórnar, farið yfir reikninga félagsins og áætlun um vetrarstarfið framundan kynnt.
Rúi og Stúi á Sauðárkróki
Leikfélag Sauðárkróks er komið á fullt í æfingar á barnaleikritinu Rúi og Stúi eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson. Æfingar ganga ljómandi vel, enda hinn þaulreyndi leikstjóri Þröstur Guðbjartsson við stjórnvölinn og er stefnan sett á frumsýningu 25. október.
Heima er best í Borgarleikhúsinu
Fyrsta verkið sem frumsýnt er á Nýja sviði Borgarleikhússins í ár er verkið Heima er best eftir írska leikskáldið Enda Walsh. Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir verkinu og leikarar eru Þröstur Leó Gunnarsson, Guðjón Davíð Karlsson, Jörundur Ragnarsson og Dóra Jóhannsdóttir. Verkið fjallar um föður sem hefur flúið frá Írlandi með tvo syni sína sem hann […]
Námskeið í leikhúslýsingu
Námskeið í leikhúslýsingu hefst laugardaginn 26. september á vegum Raftækniskólans. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira.
Djúpið á Akureyri
Leikverkið Djúpið verður sýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri núna um helgina. Verkið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu 5. júní og hlaut einróma lof gagnrýnenda. Aðalhlutverkið leikur Ingvar E. Sigurðsson, og höfundurinn Jón Atli Jónasson leikstýrir. Leikmynd gerir Árni Páll Jóhannsson, tónlist er eftir Hilmar Örn Hilmarsson og lýsingu hannaði Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Námskeið í leikhúsgagnrýni
Þann 27. september nk. stendur Bandalag ísl. leikfélaga fyrir stuttu námskeiði í gagnrýniskrifum fyrir leikhús. Leiðbeinendur verða þau Þorgeir Tryggvason og Hrund Ólafsdóttir, sem bæði hafa skrifað leikhúsgagnrýni fyrir Morgunblaðið.
Blikur á lofti í starfi sjálfstæðra leikhúsa
Áhrifa efnahagslægðar á Íslandi er farið að gæta í starfi sjálfstæðra leikhúsa. Á komandi leikári munu færri uppsetningar líta dagsins ljós miðað við fyrri ár, meðal annars vegna húsnæðisskorts hafa fleiri atvinnuleikhópar sótt á náðir stofnanaleikhúsanna með uppsetningar sínar og leikhópar sækja í auknum mæli til útlanda.
Gervi og leikbúningar – hugmyndavinna og hönnun
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir námskeið: Gervi og leikbúningar – hugmyndavinna og hönnun Námskeiðið miðar að því að efla skapandi hugsun frá handriti til hugmyndar, finna aðferðir til að koma hugmyndum um leikgervi og búninga á framfæri, og að lokum leggja fram fullbúnar hugmyndir með stikkprufum á búningum og gervum. Á námskeiðinu munum við reyna […]
Leikfélag Selfoss með tvö námskeið í haust

Leikfélag Selfoss hyggst halda tvö námskeið í leiklist í haust. Leiðbeinandi á námskeiðunum er Árni Pétur Guðjónsson leikari og verður það fyrra dagana 19.-20. september ( laugardag og sunnudag), frá klukkan 13-17 báða dagana og það seinna 24. og 25. október ( laugardag og sunnudag), frá klukkan 13-17.
Harry og Heimir – með öðrum morðum
Framundan er fyrsta frumsýning leikársins í Borgarleikhúsinu og eru það stórleikararnir Sigurður Sigurjónsson, Karl Ágúst Úlfsson og Örn Árnason sem ríða á vaðið með leikrit sitt Harry og Heimi – með öðrum morðum. Leikritið er byggt á geysivinsælum útvarpsþáttum þeirra félaga um einkaspæjarana Harry Rögnvalds og Heimi Schnitzel og svakamálin sem þeir taka að sér […]
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna fjórðu úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 14. september, en úthlutað verður í október. Leikritunarsjóðurinn Prologos hefur nú starfað við Þjóðleikhúsið í rúmt ár og er honum ætlað að efla íslenska leikritun og hvetja til nýsköpunar í leikhúsinu. Óhætt er að segja að sjóðurinn hafi boðið leikhúsfólki mikilsverð tækifæri […]
Elskendur í hádeginu
Enskt hádegisleikhús mun standa yfir í tvo daga á Kaffi Hljómalind nú í byrjun september. Er þetta í fyrsta skipti sem leikritið Elskendur – Sigurvegarar eftir Brian Friel er sýnt hér á landi. Leikendur eru Melkorka Óskarsdóttir og Adam Slynn sem bæði útskrifuðust úr enska leiklistarskólanum LAMDA á síðasta ári.
Margt smátt haldin á Seltjarnarnesi 10. október
Fáþjóðlega stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin í Félagsheimili Seltjarnarness þann 10. október nk. Umtalsverðar breytingar hafa orðið á hátíðinni frá fyrri hátíðum, sú mest afgerandi er staðsetning hennar en vegna þess hve þétt Borgarleikhúsið er bókað reyndist ekki unnt að koma henni fyrir í sýningarplani þar. Hin nýbreytnin er að á hátíðinni verða 3-5 færeyskar […]
Hauststarf Leikfélags Selfoss að fara á fullan skrið

Nú er haust- og vetrarvertíðin að hefjast hjá Leikfélagi Selfoss og nóg er á dagskrá, reyndar svo mikið að stjórnin hefur setið sveitt undanfarið við að koma öllum þeim viðburðum sem boðið verður uppá fyrir á dagatalinu. Það verður því engin lognmolla í leikhúsinu á Selfossi og mun það iða af lífi frá hausti og […]
Leikárið byrjað hjá Leikfélagi Ölfuss
Leikfélag Ölfuss hefur hafið æfingar á leikritinu Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Bachman. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson sem einnig stýrði uppfærslu félagsins síðasta vetur á hinu óborganlega gamanleikriti Blúndum og blásýru. Frumsýnt verður fyrir áramótin og verða sýningartímar auglýstir síðar.
Hold me until you break á artFart
Dagana 26. og 27. ágúst, kl: 20:00, sýnir leikhópurinn Bottlefed leikverkið Hold me until you break í Iðnó við Vonarstræti. Hold Me Until You Break er spunnin sýning um ást og sambönd, þar sem leikarar, lifandi tónlist, hönnun og lýsing gegna jafn mikilvægum hlutverkum. Leikstjóri er Kathrin Yvonne Bigler. Sýningin er á dagskrá artFart leiklistarhátíðarinnar.
Leikárið 2009-10 í Borgarleikhúsinu
Leikfélag Reykjavíkur kynnti nýlega efniskrá vetursins og eins og endra nær er hún fjölbreytt og margt þar spennandi. Þar verða hláturtaugar kitlaðar, bestu vinkonur allra barna flytja inn í Borgarleikhúsið, ný leikgerð um Faust verður frumsýnd um jólin og við bjóðum til söng- og leikveislu þegar Gauragangur, Ólafs Hauks Símonarsonar verður settur á svið eftir […]
Jörundur snýr aftur á Menningarnótt
Í tilefni Menningarnætur verður leiksýningin um Jörgen Jörgensen, betur þekktan sem Jörund hundadagakonung, flutt aftur laugardaginn 22. ágúst. Í þetta sinn verður sýnt í Batteríinu og hefst sýningin klukkan 16.00. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en höfundar handrits eru Ármann Guðmundsson og Þorgeir Tryggvason.
Vandað Bergmál í Hafnarfirðinum
Hörður S. Daníelsson fór á frumsýningu hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar sl. föstudag og sá Bergmál, verk eftir N. Richard Nash. Leikarar eru Guðrún Sóley Sigurðardóttir og Aldís Davíðsdóttir, en þær sáu einnig um leikstjórn, búninga, leikmynd, ljós og allt annað sem viðkemur sýningunni. Einnig kom Halldór Magnússon við sögu í litlu þögulu hlutverki.
Morbid á Art fart
Hörður S. Daníelsson skellti sér um daginn á sýninguna Morbid hjá The Fiasco Division í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Morbid er ein af sýningum Art fart hátíðarinnar sem nú er í fullum gangi. Þetta var devised leiksýning sem fjallar um lífið, eða tilgang lífsins eftir dauðan. Leikarar eru fimm: Alecande Roberts, Anna Zehentbauer, Kári Viðarsson, Lauren McCullum og […]
Bergmál frumsýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Föstudaginn 14. ágúst kl. 20.00 frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar leikverkið Bergmál eftir N. Richard Nash í húsnæði félagsins á neðstu hæð Menntasetursins við lækinn (Galma Lækjarskóla). Sýningin er unnin í kringum upprunalegt handrit höfundar, en ekki algerlega uppúr því, en leikendur eru Guðrún Sóley Sigurðardóttir, Aldís Davíðsdóttir og Halldór Magnússon. Guðrún Sóley Sigurðardótir og Aldís Davíðsdóttir […]
Söngleikurinn Fúttlús í Mosfellsbæ
Leikfélag Mosfellssveitar sýnir um þessar mundir söngleikinn Fúttlús eftir Dean Pitchford og Walter Bobbie í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Þýðandi verksins er Gísli Rúnar Jónsson. Sýningin er liður í sumarstarfi leikfélagsins sem gengur undir nafninu Leikgleði, Barna- og unglingaleikhúsi Mosfellsbæjar og er í ár skipað yfir 30 unglingum sem hafa æft stíft frá því 8. júní […]
Færeyskur Óþelló í Iðnó og á Húsavík
Færeyski leikhópurinn Huðrar sýnir margrómaða uppsetningu sína á Óþelló Shakespeares hér á landi núna í vikunni. Miðvikudaginn 12. ágúst verða tvær sýningar í Iðnó í Reykjavík, kl. 19 og 21 og föstudaginn 14. ágúst verður sýnt í Samkomuhúsinu á Húsavík kl. Héðan heldur hópurinn svo til Mónakó þar sem þau sýna Óþelló á leiklistarhátíð Alþjóðlega […]
Act alone leiklistarhátíðin haldin sjötta árið í röð
Eina árlega leiklistarhátíðin á Íslandi, Act alone, verður haldin hátíðleg sjötta árið í röð dagana 14. – 16. ágúst. Act alone verður í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og á Gíslastöðum í Haukadal í Dýrafirði. Að vanda er aðgangur að hátíðinni ókeypis og öllum opin enda er hér um hátíð að ræða og mikilvægt að sem flestir […]
Leikfélag Keflavíkur leitar að leikstjóra
Leikfélag Keflavíkur stendur í ströngu þessa dagana og er mikið líf í Frumleikhúsinu. Stuttu eftir aðalfund tók ný stjórn sig til og hóf framkvæmdir við breytingar á húsinu sem óðum eru að klárast. Meðal þess sem hefur verið gert er að búningageymsla hefur verið færð og gamla búningageymsaln rifin ásamt milliveggjum í kjallara, farið var […]
Rauðhetta á Suður- og Vesturlandi
Leikhópurinn Lotta verður á ferð og flugi með sýninguna sína Rauðhettu um Verslunarmannahelgina. Á laugardeginum mun hópurinn sýna á Flúðum en sýnt verður á íþróttavellinum klukkan 13:00. Síðar þann sama dag halda þau í Þrastarlund og sýna á pallinum við veitingastaðinn klukkan 17:00.
Jörundur – Slitrur úr ævisögu sýnt í Hressógarðinum
Í tilefni af 200 ára afmæli hinnar stuttu en litríku valdatíðar Jörundar hundadagakonungs á Íslandi hefur lítill leikhópur sett saman dagskrá um þennan skrautlega ævintýramann. Stiklað verður á stóru í ótrúlega viðburðaríku lífshlaupi þessa danska úrsmiðssonar og sægarps, en þó valdatíð hans á Íslandi sé sennilega hápunkturinn í ferli hans þá var hún svo sannarlega […]
Leiklistarnámskeið fyrir 10-15 ára
Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir spennandi leiklistarnámskeið frá 3.-31. ágúst, annarsvegar fyrir börn á aldrinum 10-12 ára og hinsvegar fyrir aldurshópinn 13-15 ára. Aðaláherslur námskeiðsins eru að vinna sem heild, opna sig sem einstaklingur og læra að koma fram, auk þess að hafa gaman og njóta lífsins. Námskeiðinu lýkur með leiksýningu í fullri lengd á leiksviði.
The Fiasco Division sýnir á artFart-hátíðinni
Leikhópurinn The Fiasco Division kemur til landsins með tvær nýjar sýningar sem settar verða upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu fyrstu vikuna í ágúst sem partur af leiklistarhátíðinni artFart. Leikhópurinn samanstendur af fimm verðandi útskriftarnemum sem hafa nýlokið námi við European Theatre Arts leiklistarbraut Rose Bruford College í London. Meðlimir The Fiasco Divison eru Alexander Roberts, Anna Zehentbauer, […]
Rígu® á Egilsstöðum
Frú Norma frumsýndi dans- og hreyfileikhúsverkið Rígu® eftir Guðjón Sigvaldason í frystiklefa Sláturhússins – Menningarseturs á Egilsstöðum þann 15. júlí. Verkið er samvinnuverkefni milli Leikhúss Frú Normu, Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs, Menningarráðs Austurlands og Vinnuskóla Fljótsdalshéraðs. Guðjón Sigvaldason leikstýrir einnig verkinu.
Let‘s Talk Local sýnt á Restaurant Reykjavík
Þann 9. júlí frumsýndi Kraðak nýtt leikrit sem ber nafnið Let‘s talk local. Sýnt verður á hverjum degi kl: 18 á Restaurant Reykjavík. Höfundur verksins er Snæbjörn Ragnarsson og leikstjóri Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er önnur Let‘s talk- sýningin, sú fyrsta í röðinni heitir Let‘s talk Christmas þar sem Grýla fer á kostum við að […]
Leiklistarnámskeið í Hafnarfirði
Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir spennandi leiklistarnámskeið, annarsvegar fyrir börn á aldrinum 10-12 ára og hinsvegar fyrir aldurshópinn 13-15 ára. Aðaláherslur námskeiðsins eru að vinna sem heild, opna sig sem einstaklingur og læra að koma fram, auk þess að hafa gaman og njóta lífsins.
Styrkir úr leikritunarsjóðnum Progolus
Þriðja úthlutun úr Prologos, leikritunarsjóði við Þjóðleikhúsið, hefur nú farið fram. Alls bárust 53 umsóknir frá 44 aðilum um styrk til að þróa leikhandrit og vinna að leiksmiðjuverkefnum.Ákveðið var að veita tvo styrki til þróunar leikhandrita og tvo styrki vegna leiksmiðjuverkefna. Að auki hlaut eitt leiksmiðjuverkefni framhaldsstyrk.
Leiklistarskóli BÍL í Svarfaðardal
Skólinn var settur á laugardagsmorgun og stendur starfið nú sem hæst. Hægt er að fylgjast með dagbókarskrifum á spjallinu hér á Leiklistarvefnum. Svona byrjar skólastýra fyrstu færsluna: Leiklistarskólinn settur enn á ný – í 13. sinn þann 13. júní! Og sól skín hátt á himni í Svarfaðardal á 38 nemendur á þremur námskeiðum.
Ungan leikara vantar á Akureyri
Leikfélagi Akureyrar leitar að 12-15 ára strák sem hefur áhuga á því að taka að sér stórt og krefjandi hlutverk næsta vetur. Rétt er að taka fram að viðkomandi þarf ekki að syngja. Leikritið sem um ræðir verður frumsýnt um miðjan október og munu æfingar hefjast í ágúst. Tekið verður á móti áhugasömum í Samkomuhúsinu […]
Leikhópurinn Lotta á Vesturlandi
Dagana 9. – 13. júní mun Leikhópurinn Lotta ferðast með sýninguna sína, Rauðhettu, um Vesturland. Ferðin hefst í Borgarnesi en þar er sýnt í Skallagrímsgarði, fimmtudaginn 11. júní klukkan 18:00. Um helgina verður farið á Snæfellsnesið, fyrst til Ólafsvíkur á föstudeginum en þar er sýnt í Sáinu klukkan 18:00 og á laugardeginum er sýnt annars […]
