Ályktun gegn ósanngjörnum niðurskurði til Bandalagsins

bil_island_logo

Á haustfundi Bandalags íslenskra leikfélaga var samþykkt ályktun til að mótmæla þeim gríðarlega niðurskurði sem áhugaleikfélög verða fyrir á fjárlögum næsta árs. Það kom áhugaleikfélögunum á Íslandi auðvitað ekkert á óvart að framlög til starfseminnar yrðu skorin niður á næsta ári. Við núverandi aðstæður er annað nánast óhugsandi. Það kom á hinn bóginn mjög á […]

Jesús litli á Litla sviðinu

Borgarleikhúsið frumsýnir þann 21. nóvember trúðleikinn Jesús litli í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Við erum stödd í Palestínu á því herrans ári núll. Rómverjar hafa sölsað undir sig landið og Heródes er settur landsstjóri. Þegar spyrst út að frelsari muni fæðast í landinu kemur tilskipun frá honum um að myrða skuli öll sveinbörn, tveggja ára og […]

Leikritunarsjóður auglýsir eftir umsóknum

Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um starf leikskálds Borgarleikhússins árið 2010. Stjórn sjóðsins velur skáld sem hún býður eins árs samning við Borgarleikhúsið. Laun, sem taka mið af starfslaunum listamanna, eru greidd mánaðarlega. Skáld skal þegar hafa sýnt árangur við skáldskap en reynsla af leikritun er ekki skilyrði. Skáldið fær aðstöðu í leikhúsinu, vinnur […]

Nóg að gera hjá Fólkinu í blokkinni

Leikfélag Húsavíkur sýnir um þessar mundir fjölskyldusöngleikinn Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson, í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar. Og undanfarið hefur verð mikið um dýrðir í blokkinni á Húsavík. 1100 gestir hafa þegar litið við í blokkinni og þar á meðal höfundurinn sjálfur.

Síðustu sýningar á Manni í mislitum sokkum

Leikfélag Ölfuss sýnir um þessar mundir gamanleikinn Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Bachman í leikstjórn Gunnars B. Guðmundssonar. Þegar hafa verið sýndar 12 sýningar og áhorfendur eru sammála um að þetta sé skemmtun sem ekki megi láta framhjá sér fara en um 650 manns hafa nú séð Steindóru gömlu og vini hennar í Versölum. […]

Stjörnukvöld Leikfélags Patreksfjarðar

Leikfélag Patreksfjarðar blæs til gleðikvölda einu sinni í mánuði í vetur og verður það í formi söng- og spurningakeppni. Hið fyrsta verður haldið þann 14. nóvember næstkomandi. Kvöldið hefst á spurningakeppninni og síðan tekur karókíkeppni við. Hver keppandi getur einungis keppt fyrir eitt lið.

Málþing um íslenska leiklistarfræði

Laugardaginn 14. nóvember nk. efna Leikminjasafn Íslands og Listaháskóli Íslands til málstofu um íslenska leiklistarfræði. Málstofan er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Hún verður haldin í fundasal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu og hefst kl. 14.00.  

Mjallhvít og dvergarnir sjö í Mosfellsbæ

Sunnudaginn 15. nóvember verður leikritið Mjallhvít og dvergarnir sjö frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Æfingar hafa staðið yfir síðustu vikur, en alls taka yfir tuttugu leikarar og tónlistarmenn þátt í sýningunni. Höfundur leikgerðar er Margarete Kaiser og þýðandi er Stefán Jónsson. Leikstjóri er Herdís Þorgeirsdóttir. Leikritið er fullt af gleði og söng og frábær skemmtun fyrir […]

Heilsugæslan í Búðardal, Grundarfirði, Arnardal og Suðureyri

Hápólitíski gamanleikurinn Heilsugæslan verður sýndur víða um helgina. Leikurinn hefst í Búðardal á fimmtudag 12. nóvember. Sýnt verður í Dalabúð og hefst sýningin kl.20.30. Daginn eftir föstudaginn 13. nóvember verður Heilsugæslan í Grundarfirði. Sýnt verður á hinum geggjaða stað Kaffi 59 og hefst leikurinn kl.20.30. Miðasala á báðar sýningarnar opnar hálftíma fyrir sýningu.

Prologos úthlutar styrkjum

Nýlega fór fram fjórða úthlutun úr Leikritunarsjóðnum Prologos, sem starfar við Þjóðleikhúsið. Umsóknir voru fjölmargar að vanda, en alls bárust 36 umsóknir nú. Þrír höfundar hljóta handritsstyrki og einn leikhópur hlýtur styrk vegna leiksmiðjuverkefnis. Höfundar sem hlutu styrk að þessu sinni til að þróa áfram leikhandrit sín eru Didda Jónsdóttir vegna handritsins Vonska, Einar Þór […]

Út í kött! – Dans og söngleikur fyrir börn

Lýðveldisleikhúsið sýnir um þessar mundir nýtt íslenskt leikverk fyrir börn. Þetta er dans og söngleikur sem ber nafnið Út í kött! og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Þessi ævintýraleikur er fyrir börn á öllum aldri og fullorðnir ættu líka að hafa gaman að þessu fjöruga verki.

Leikklúbburinn Krafla kaupir hús

Leikklúbburinn Krafla hélt í gær sinn fyrst stjórnarfund félagsins í „nýju“ félagsheimili sínu en leikklúbburinn festi nýverið kaup á félagsheimilinu Sæborg í Hrísey af fasteignum Akureyrarbæjar. Þar mun í framtíðinni verða stunduð blómleg leiklistarstarfsemi. Húsið er í frekar lélegu ástandi en Krafla hefur hug á að lagfæra það með tíð og tíma. Einnig verður hægt […]

Stúdentaleikhúsið sýnir Gestasprett

Nú fer að líða að frumsýningu Stúdentaleikhússins á nýju frumsömdu verki sem kallast Gestasprettur en það ver verður frumsýnt laugardaginn 7.nóvember. Stúdentaleikhúsið kaus nýja stjórn í byrjun leikársins og réð sú stjórn Tinnu Lind Gunnarsdóttur leikkonu til okkar sem leikstjóra og Valgerði Rúnarsdóttur dansara sem umsjónarmann hreyfinga ogkóreógrafíu.  Hafist var við handa að skapa verk […]

Halaleikhópurinn tekst á við Svartfugl

Halaleikhópurinn er að hefja æfingar á Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson, Ágústa Skúladóttir mun leikstýra og gera nýja leikgerð í samvinnu við Þorgeir Tryggvason. Af því tilefni verður samhristingur miðvikudaginn 4. nóv. n.k. kl. 20.00 í Halanum, Hátúni 12. 105 Rvk. Ágústa og Toggi munu kynna leikritið og hvernig æfingartímabilinu verður háttað. Stefnt verður að frumsýningu […]

Bugsy Malone frumsýndur á laugardaginn

Laugardaginn 31. október frumsýnir unglingadeild Leikfélags Keflavíkur söngleikinn Bugsy Malone í leikstjórn Ingólfs Níelsar Árnasonar. Æfingar hafa staðið yfir undanfarnar sex vikur en alls taka um 60 unglingar þátt í þessari skemmtilegu sýningu.

Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir Fjölskylduna

Föstudaginn 30. október verður Fjölskyldan eftir bandaríska leikskáldið Tracy Letts frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Hilmir Snær Guðnason, þýðandi Sigurður Hróarsson og tónlist fyrir sýninguna samdi KK. Fjölskyldan hlaut þrenn eftirsóttustu leiklistarverðlaun Bandaríkjamanna: Drama Desk, Pulitzer og loks Tony-verðlaunin sem besta leikrit ársins 2008.

Þetta er ekki einleikið

Hugleikur sýnir sjö einleiki fyrir konur sunnudaginn 1. nóvember og mánudaginn 2. nóvember kl. 20 bæði kvöld undir yfirskriftinni Þetta er ekki einleikið. Um er að ræða afrakstur af einleikjanámskeiði sem Agnar Jón Egilsson hefur stýrt á síðustu vikum. Sýnt er í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Tekið er á móti frjálsum framlögum við innganginn […]

Sindri silfurfiskur frumsýnt 31. október

sindri1

Þjóðleikhúsið frumsýnir Sindra silfurfisk, nýtt íslenskt barnaleikriti eftir Áslaugu Jónsdóttur, laugardaginn 31. október kl. 13:30. Sýningin er í Kúlunni, barnaleikhúsi Þjóðliekhússins að Lindargötu 7. Hafdís í skrautfiskabúðinni Fjörfiskar er löngu hætt að selja fallegu fiskana sína. Þeir eru vinir hennar og hún vill miklu heldur segja þeim sögur, eins og til dæmis söguna af Sindra […]

Allt á fullt hjá Leikfélagi Selfoss

litlaleikhsid

Leikfélag Selfoss mun hefja af fullum krafti núna í vikunni, vinnu við stóru uppsetningu vetrarins. Um er að ræða leikgerð Hafnarfjarðarleikhússins á Birting sem unnin er upp úr samnefndri sögu franska rithöfundarins Voltaire, í þýðingu Halldórs Laxness. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson sem er uppalinn hjá leikfélaginu og hefur leikstýrt nokkrum sinnum áður hjá Leikfélagi […]

Fólkið í blokkinni frumsýnt á Húsavík

Fjölskyldusöngleikurinn Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur hjá Leikfélagi Húsavíkur á laugardag. Oddur Bjarni Þorkelsson leikstýrir. Verkið fjallar um fólk sem býr í blokk í Reykjavík og það ákveður að setja upp söngleik í blokkinni. Þar búa nefnilega meðlimir hljómsveitarinnar Sónar, sem átti einn „hittara“ fyrir 10 árum, Fólkið í blokkinni.

Haustfundur Bandalagsins 2009

bil_island_logo

Bandalag íslenskra leikfélaga boðar til haustfundar að Öngulsstöðum í Eyjafirði helgina 13. til 15. nóvember 2009. Ástæða er til að hvetja aðildarfélögin til að senda fulltrúa á fundinn en umfjöllunarefni hans eiga brýnt erindi við ykkur öll. Tilkynnið þátttöku fyrir mánudaginn 2. nóvember í netfangið info@leiklist.is eða í síma 5516974.

Ársrit Bandalagsins komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir leikárið 2008-2009 er komið út. Að venju kennir þar ýmissa grasa en þar eru birtar upplýsingar um starfsemi aðildarfélaganna og Bandalagsins á liðnu leikári. Prentuð útgáfa hefur verið send til formanna leikfélaganna en einnig er hægt að nálgast ritið á PDF-formi hér.

Sigrún Valbergsdóttir fjallar um Margt smátt

Það var sannkölluð hátíðarstemming í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi, laugardaginn 10. október þegar stuttverkahátíðin Margt smátt var sett í fimmta sinn. Þau leikfélög sem sýndu voru Halaleikhópurinn, Hugleikur, Leikfélag Hafnarfjarðar, Leikfélag Kópavogs, Leikfélag Mosfellssveitar, Leikfélag Selfoss og Meginfelag áhugaleikara Føroya. Hvorki meira né minna en 18 verk biðu þess að vera leikin; þar af fimm verk […]

Leiklistarnámskeið á Selfossi

Dagana 24. og 25. október ( laugardag og sunnudag), frá klukkan 13.00 – 17.00 bíður Leikfélag Selfoss  upp á leiklistarnámskeið undir stjórn Árna Péturs Guðjónssonar.  Námskeiðið er hugsað sem nokkurs konar masterclass námskeið fyrir þá sem hafa einhverja reynslu af leiklist. Á námskeiðinu verður farið textavinnu, unnið með senur og stutta mónólóga. Námskeiðið er krefjandi […]

Lífið liggur við næsta verkefni Leikfélags Hörgdæla

Hjá Leikfélagi Hörgdæla hefjast æfingar á leikritinu „Lífið liggur við” eftir Hlín Agnarsdóttur í desember. Leikstjóri verður Saga Jónsdóttir. Saga setti upp aðsóknarmestu sýningu allra áhugaleikhópa á landinu síðastliðinn vetur. Það var gamanleikritið „Stundum og stundum ekki”, sem Leikfélag Hörgæla sýndi. Sýningarnar urðu alls 25 og gestir alls 2.208.

Rúi og Stúi á Sauðárkróki

Sunnudaginn 25. október frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks barnaleikritið Rúi og Stúi eftir Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Heimamennirnir Rögnvaldur Valbergsson og Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson hafa samið nýtt lokalag fyrir sýninguna. Aðalhlutverkin eru í höndum Jónatans Björnssonar og Gísla Felix Ragnarssonar, en þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir báðir leikið með LS […]

Rúi og Stúi snúa aftur í Kópavogi

Leiksýningin Rúi og Stúi sem frumsýnd var hjá Leikfélagi Kópavogs síðastliðið vor verður tekin upp að nýju nú um helgina. Áætlaðar eru níu sýningar fyrsta kastið. Nýmæli er að kynning og sala sýningarinnar er í samstarfi við Kópavogsdeild Rauða krossins. Þriðjungur af miðaverði mun renna til Barna- og ungmennastarfs Rauða krossins. Á móti mun Kópavogsdeildin […]

Leikfélag Selfoss tekst á Hugarflug

Enn á ný mun Leikfélag Selfoss takast á Hugarflug en það er orðinn fastur liður í starfi félagsins. Hugarflug er eins konar grasrótarstarf leikfélagsins en þar fá leikfélagsmeðlimir og aðrir frjálsar hendur til að vinna stutt verk, ljóð eða tónlist eftir eigin nefi sem sett er saman í eina sýningu og sýnd í takmörkuðu upplagi. Hugarflugið […]

Haustleikar Halaleikhópsins 2009

Halaleikhópurinn blæs nú til Haustleika. Þetta haustið verða fjögur stuttverk sýnd og tónlist flutt á milli atriða. Sýnt verður laugardaginn 17. okt. kl. 20.00 og sunnudaginn 18. okt. kl. 17.00 í Halanum, Hátúni 12. Vöfflur, kaffi og gos verða seld í hléi.

Saumastofan á Egilsstöðum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir föstudaginn 16. október kl. 20 Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjórinn, Daniel Behrend, kemur úr röðum félagsmanna, og þaðan kemur einnig tónlistarstjórinn, Freyja Kristjánsdóttir. Leikritið verður sýnt í Valaskjálf á Egilsstöðum og eru áætlaðar 10 sýningar.

Maður í mislitum sokkum í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfus frumsýnir gamanleikritið Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Bachman föstudaginn 16. október í Versölum í Þorlákshöfn. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Verkið fjallar um eldri konu sem kemur heim með mann sem hún fann í bílnum sínum. Sá hefur misst minnið og man t.d. ekki hver hann er eða hvar hann býr. Maðurinn […]

Stuttverkahátíðin Margt smátt 2009

Þá er loksins komið að því Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, verði haldin í fimmta skipti og í þetta sinn í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Eins og fram hefur komið eru nú í fyrsta skipti erlendar gestasýningar, fimm ný, færeysk stuttverk verða sýnd á vegum Meginfelags áhugaleikara Føroya. Dagskráin hefur nú tekið á sig endanlega […]

Bláa gullið frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Sunnudaginn 11. október verður Bláa gullið, nýr og spennandi trúðleikur, frumsýndur á Litla sviði Borgarleikhússins. Verkið er spunaverk leikhópsins Opið út sem í samstarfi við Borgarleikhúsið setur upp sýninguna. Leikstjóri er Charlotte Böving en hún er jafnframt höfundur verksins ásamt leikurum verksins, Maríu Pálsdóttur, Sólveigu Guðmundsdóttur og Víkingi Kristjánssyni.

Memento mori í Freyvangsleikhúsinu

Föstudaginn 2. nóvember frumsýndi Freyvangsleikhúsið leikritið Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur í minni sal Freyvangs. Leikstjóri er Daníel Freyr Jónsson. Viðtökur á verkinu voru góðar og voru það brosandi og jafnframt hugsandi leikhúsgestir sem fóru frá Freyvangi.

Heilsugæslan frumsýnd í Arnardal

Hápólitíski gamanleikurinn Heilsugæslan var frumsýndur í Arnardal um sl. helgi fyrir troðfullu húsi og við mjög góðar undirtektir. Fullt var á 2. sýningu og nú þegar er uppselt á næstu tvær sýningar í Arnardal. Því hefur verið ákveðið að vera með 3 aukasýningar í Arnardal. Ein aukasýning verður núna á sunnudag 11. október kl. 15. […]

Sýningarnar á Mörgu smáu 2009

Eins og fram hefur komið verða 18 verk sýnd á stuttverka hátíðinni Margt smátt þann 10. október nk. Sex íslensk leikfélög verða með samtals 13 sýningar auk þess sem Meginfelag áhugaleikara Føroya verður með fimm frumsamin verk. Að sýningum loknum mun Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri fjalla um hátíðina. Smellið hér að neðan til að sjá hvaða […]

Gervi og leikbúningar – nokkur pláss laus

Enn eru nokkur pláss laus á námskeið Leiklistarskóla Bandalags ísl. leikfélaga Gervi og leikbúningar – hugmyndavinna og hönnun. Sjá nánari upplýsingar hér til hægri á síðunni. Áhugasamir skrái sig sem fyrst á netfangið info@leiklist.is

Íslensk-Færeysk leiklistarhátíð á Seltjarnarnesi

Laugardaginn 10. október verður haldin Margt Smátt stuttverkahátíð. Að þessu sinni verður hún reyndar ekki í Borgarleikhúsinu, heldur í Félagsheimili Seltjarnarness. Og það er svo sannarlega ekki það eina óvenjulega við þessa hátíð. Stuttverkamenning íslenskra áhugaleikfélaga hefur nefnilega hafið útrás.

Fólkið í blokkinni æft á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur æfir nú á haustdögum leikritið Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson. Oddur Bjarni Þorkelsson leikstýrir. Með helstu hlutverk fara þau Ármann Örn Gunnlaugsson, Helga Sigurjónsdóttir og Ingvar Björn Guðlaugsson. Einnig taka margir af reyndari leikurum félagsins þátt í sýningunni, þau Sigurður Illugason, Dóra Ármannsdóttir, Gunnar Jóhannsson og Katrín Ragnarsdóttir. Áhugi ungs fólks […]

Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla

Hið geysivinsæla Leikfélag Hörgdæla heldur aðalfund sinn á Melum, Hörgárdal, þriðju­dags­kv. 6. okt. nk. kl. 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Rætt verður um starfið á komandi vetri (leikritaval og fleira). Allir áhugasamir er hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á stefnu og starf félagsins.Mætið tímanlega til að forðast biðraðir! Nýir félagar velkomnir.Stjórnin.