Sjóræningjaprinsessan í Hafnarfirði

sjoraeningjaprinsessan1

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir laugardaginn 6. apríl barna- og fjölskylduleikritið Sjóræningjaprinsessuna eftir Ármann Guðmundsson, einn af meðlimum Ljótu hálfvitanna, en hann semur einnig tónlistina ásamt Guðmundi Svafarssyni. Söngtextar eru eftir Ármann og Sævar Sigurgeirsson. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson og er leikritið sýnt í Gaflaraleikhúsinu við Víkingastræti.

Aukasýningar á Gutta um helgina

GuttiOgFelagar01_200x150

Tvær aukasýningar verða á Gutta og félögum hjá Leikfélagi Kópavogs nú um helgina. Þegar er uppselt á sýningu sun. 7. apríl og miðum fer óðum fækkkandi lau. 6. apríl. Uppselt hefur verið á allar sýningar frá byrjun. Gutti og félagar er byggt á Guttavísum og fleiri kvæðum Stefáns Jónssonar. Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar […]

Stúdentaleikhúsið sýnir AUKA

auka1

Stúdentaleikhúsið frumsýndi frumsamda leikverkið AUKA fimmtudaginn 4. apríl  í Norðurpólnum. Leikstjórn er í höndum Bjartmars Þórðarsonar en undir stjórn hans hefur hópurinn sem skipaður er ungu og efnilegu sviðslistafólki skapað kraftmikla og gamansama spunasýningu þar sem farið er út fyrir öll mörk og áhorfendum er ögrað. Ekki aðeins af efnistökum leikritsins heldur einnig af nálægð […]

Aðalfundur og einþáttungahátíð í Borgarfirði dagana 3.–5. maí

bil_island_logo

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Logalandi í Borgarfirði dagana 4. og 5. maí 2013.  Einþáttungahátíð verður haldin á sama stað föstudaginn 3. maí. Ekki er hægt að segja til um setningartíma hátíðarinnar fyrr en ljóst verður hve margir leikþættir koma á hátíðina og hvað þeir taka langan tíma í sýningu og verður það tilkynnt […]

Allra síðasta sýning á Homo Erectus

porupiltar

Lokasýning Pörupilta á uppistandinu Homo Erectus  verður sýnd í Þjóðleikhúskjallaranum föstudaginn 5. apríl. Sýningin var sýnd fyrir fullu húsi sl. vetur, sem fyrri hluti sýningarinnar Uppnáms þar sem tvíeykið Viggó og Víóletta stigu á stokk eftir hlé. En nú hafa Pörupiltar unnið uppistandið Homo Erectus áfram. Uppistandið er lengra, fyndnara og fræðilegra – fjallkonan hefur bæst […]

Íslenskt ávarp á alþjóðadegi leiklistar

messiana_tomasd

eftir Messíönu Tómasdóttur, sviðslistakonu Nú er ár barnaleikhúss og því er þetta ávarp á alþjóðlegum degi leiklistar helgað börnum. Það hefur verið lögð mikil áhersla á færni í uppeldi barna og er það vel, en á móti þurfum við að styrkja andlega þáttinn í uppeldi þeirra og þar gegna listir lykilhlutverki, ásamt trúnni á fegurð, […]

Ávarp á alþjóðleikhúsdaginn 27. mars 2013

dario_fo_franca_rame

eftir Dario Fo Fyrr á tíð brugðust yfirvöld við sviðsetningum Commedia dell´Arte-leikara með því að flæma þá úr landi. Yfirstandandi kreppa veldur því að leikarar og leikhópar eiga í erfiðleikum með að finna leikrými og að ná til áhorfenda með sýningum sínum. Þar sem gagnrýnið leiklistarfólk býr við þær aðstæður að hafa hvorki leiksvið né […]

Leikfélögin í Fjallabyggð sýna nýtt íslenskt leikrit

stongin_inn1

Þann áttunda mars sl. frumsýndu Leikfélögin á Ólafsfirði og Siglufirði nýtt íslenskt leikrit, Stöngin inn!, í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði. Höfundur og leikstjóri er Guðmundur Ólafsson. Þegar hafa verið fimm sýningar við feikigóðar viðtökur. Næsta sýning verður á Skírdagskvöld 28. mars. Þetta er fyrsta sameiginlega leiksýning leikfélaganna tveggja í Fjallabyggð og fyrsta skrefið í að […]

Núna! – Þrjú ný íslensk verk frumsýnd

nuna

Í fyrravetur fékk Borgarleikhúsið sex ung leikskáld til að skrifa stutt verk um íslenskan samtíma. Þrjú þessara verka voru valin til sviðsetningar og verða frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins fyrsta föstudag eftir páska, 12. apríl kl. 20. Sýningin ber heitið Núna! og samanstendur af verkunum Skríddu eftir Kristínu Eiríksdóttur, Svona er það þá að vera […]

BLAM! frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins 3. apríl

blam

BLAM!, nýjasta verk Krisjáns Ingimarssonar, verður frumsýnt á Stóra sviðinu strax eftir páska, miðvikudaginn 3. apríl kl 20. BLAM! er óður til leikgleði og hugrekkis, bræðingur af „Die hard“ og „The Office“, verk án orða þar sem frábærir listamenn (og eldhugar) endasendast um sviðið í stórhættulega fyndnum slagsmálaleik. Sýningin hefur slegið rækilega í gegn í […]

Gúttó – Hlegið hátt og dansað dátt í 40 ár á Ísafirði

gutto

Litli leikklúbburinn á Ísafirði frumsýnir söngsýninguna Gúttó – Hlegið hátt og dansað dátt í 40 ár laugardaginn 23. mars kl. 21. Um er að ræða fjöruga söngsýningu þar sem saga Gúttó á Ísafirði er rifjuð á fjörugan hátt í tali og tónum. Andi hljómsveita eins og BG og Ingibjörg, Ásgeir og félagar, Gancia, Villi Barði […]

Einþáttungahátíð í Borgarfirði

bil_island_logo

Í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga, sem haldinn verður dagana 3.-5. maí nk. í Reykholti í Borgarfirði, verður haldin einþáttungahátíð í félagsheimilinu Logalandi föstudaginn 3. maí. Hátíðin verður með tiltölulega hefðbundu sniði, hámarkslengd þátta er 30 mínútur. Frestur til að tilkynna þátttöku á hátíðinni er til 19. apríl. Ekki verða gerð sérstök eyðublöð fyrir […]

Gæsahúð á Melum

djakninn2

Leikfélag HörgdælaDjákninn á MyrkáHöfundur og leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson Það er langt í frá leiðinlegt að dusta rykið af góðum drauga- og þjóðsögum okkar Íslendinga, rifja þær upp og kynna fyrir nýjum kynslóðum. Á Melum í Hörgárdal býður Leikfélag Hörgdæla upp á söguna af djáknanum á Myrká, sögu sem flestir kannast við og gerðist í […]

Sindri silfurfiskur á Akureyri

sindri1

Leikfélag Akureyrar sýnir hið hugljúfa brúðuleikrit Sindri Silfurfiskur næstu tvær helgar. Þessi sýning hefur fengið margróma lof hvarvetna enda sérstaklega töfrandi og falleg. Í sýningunni er sérstök ljósatækni notuð til þess að skapa undurfallegan neðansjávarheim. Töfrandi kynjadýr hafsins svífa um og hrífa áhorfendur á öllum aldri. Sýningartími er um 40 mínútur.

Makalaus sambúð á Hólmavík

makalaus_sambud

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir gamanleikinn Makalaus sambúð eftir Neil Simon í þýðingu og leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar, þann 15. mars í Félagsheimilinu á Hólmavík og hefst sýningin kl. 19.00. Alls eru 8 leikarar og hópur aðstoðarfólks sem taka þátt í verkefninu að þessu sinni. Leikfélagið stefnir að sýningarhaldi á fleiri stöðum en það mun koma betur í […]

Saumastofan í Gnúpverjahreppi

saumastofan_hopur

Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja frumsýnir þann 16. mars leikritið Saumastofuna  eftir Kjartan Ragnarsson. Verkið var fyrst sett upp af Leikfélagi Reykjavíkur við gífurlegar vinsældir og nú er það komið í Gnúpverjahreppinn. Saumastofan er gamanleikrit með tónlist og söng ásamt dramatísku ívafi. Leikstjóri verksins er Svandís Dóra Einarsdóttir og sýnt er í félagsheimilinu Árnesi.

Hallvarður Súgandi kemur undan feldi

sexisveit_poster

Leikfélagið Hallvarður Súgandi á Suðureyri frumsýnir föstudaginn 15. mars farsann Sex í sveit eftir Marc Camoletti. Leikritið, sem er þýtt og staðfært af Gísla Rúnari Jónssyni, var upphaflega var sýnt í Borgarleikhúsinu við gríðarlega góðar undirtektir og hefur í kjölfarið verið vinsælt viðfangsefni áhugaleikfélaga um land allt. Þetta er fyrsta uppsetningin hjá Hallvarði í 6 […]

Leiklistarskóli Bandalagsins 2013

skolalogo200

Starfstími skólans á þessu ári er frá 8. til 16. júní að Húnavallaskóla í Austur-Húnavatnssýslu. Skráning í skólann hefst 15. mars og stendur til til 15. apríl.  Fjögur námskeið verða í boði að þessu sinni. Í takt við traustar hefðir leggjum við áherslu á að byggja ofan á góðan grunn sem þegar hefur verið lagður […]

Félegt fés frumsýnt á Bolungarvík

felegtfes_poster

Leikfélag Bolungarvíkur frumsýnir farsann Félegt fés eftir Dario Fo, laugardaginn 9. mars í Félagsheimili Bolungaríkur. Þýðinguna gerði Þórarinn Eldjárn en Magnús Guðmundsson leikstýrir. Þetta er önnur sýning Leikfélags Bolungarvíkur eftir að það var endurreist en sl. vetur en þá sýndi það Að eilífu eftir Árna Ibsen. Auk frumsýningar verður Félegt fés sýnt dagana 15., 16., 29, […]

Frumsýning á Kántrý Mos

kantrymos_poster

Föstudaginn 8. mars verður sýningin KÁNTRÝ MOS frumsýnd hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikstjóri er Þórunn Lárusdóttir og höfundur María Guðmundsdóttir. Um tónlist sér Birgir Haraldsson ásamt hljómsveit. Þetta er frumraun Þórunnar sem leikstjóri en höfundur verksins hefur samið nokkur verk sem leikfélagið hefur sett á svið. Aðstandendur sýningarinnar og leikarar telja 36 manns.

Aukasýningar á Hjartaspöðum í mars

hjartaspadar1

Gaflaraleikhúsið í samvinnu við Skýjasmiðjuna frumsýndi leikritið Hjartaspaða þann 12. janúar sl. við frábærar undirtektir bæði áhorfenda og gagnrýndenda og komust færri að en vildu. Því hefur fjórum aukasýningum verið bætt við nú í mars, sunnudagana 10. og 17. mars kl. 18 og 20. Leikstjóri sýningarinnar er Ágústa Skúladóttir. Drephlægileg uppátæki gamalmennanna á dvalarheimilinu Grafarbakka […]

Óþekkur er ætíð anginn sá

GuttiOgFelagar01_200x150

Leikfélag KópavogsGutti og félagar eftir Örn Alexandersson byggt á kvæðum Stefáns JónssonarLeikstjóri: Örn Alexandersson „Gutti aldrei gegnir þessu, grettir sig og bara hlær…“. Þessar línur þekkja líklega allir Íslendingar sem komnir eru til vits og ára. Gutti er einn ódælasti drengurinn í íslenskri bókmenntasögu og nú má fylgjast með uppátækjum hans á fjölunum hjá Leikfélagi […]

Skrifin um Djáknann á Myrká

jon_gunnar

Jón Gunnar Þórðarson skrifar um tilurð Djáknans á Myrká. Þegar ég kynntist bændunum úr Hörgárdal höfðu þeir hug á að afklæðast í leikritinu Með fullri reisn og vildu ráða mig til að leikstýra. Sú hugmynd var skondin og skemmtileg en ég vildi síðar setja upp Djáknann á Myrká. Það var samþykkt. Og nú er verkið […]

Málþing um Kjartan Ragnarsson 4. mars

kjartan_ragnarsson

Mánudaginn 4. mars nk. stendur Leikfélag Reykjavíkur fyrir sínu árlega málþingi sem að þessu sinni fjallar um samtímalistamanninn Kjartan Ragnarsson, leikstjóra, leikskáld, leikara og frumkvöðul. Dagskráin er fjölbreytt, stuttir fyrirlestrar, pallborðsumræður, flutt brot úr leikverkum, tónlistaratriði og upptökur frá uppsetningum Kjartans. Auk listamanna Borgarleikhússins munu KK og  hljómsveitin 4 á palli taka þátt í flutningnum.  […]

LA frumsýnir Kaktusinn

kaktusinn

Leikfélag Akureyrar frumsýnir þann 1. mars Kaktusinn eftir þýska mannréttindalögfræðinginn Juli Zeh. Þetta er ólíkindalegt verk þar sem fjallað er á spaugilegan hátt um ótta, öryggisfíkn, raunveruleika og skáldskap. Það er leikhópur Leikfélags Akureyrar sem fara með öll hlutverk sýningarinnar, enn hann skipa Aðalbjörg Árnadóttir, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Einar Aðalsteinsson og Hannes Óli Ágústsson. Ragnheiður […]

Eyrnalangir og annað fólk á Dalvík

eyrnalagnar

Leikfélag Dalvíkur hefur á undanförnum vikum æft  fjölskylduleikritið, Eyrnalangir og annað fólk eftir þær systur, Iðunni og Kristínu Steinsdætur, tónlist er eftir Ragnhildi Gísladóttur. Leikritið gerist á Dalvík í dag og segir frá því þegar flóttamenn frá eyjunni Sebrakapra koma í bæinn með nýja siði og annað útlit en bæjarbúar. Frumsýning verður föstudaginn 8. Mars. […]

Djákninn á Myrká sýndur á Melum

djakninn1

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir glænýtt íslenskt verk fimmtudagskvöldið 28. febrúar kl. 20.00 á Melum í Hörgárdal. Verkið er byggt á þjóðsögunni um Djáknann á Myrká og er eftir Jón Gunnar Th. sem jafnframt leikstýrir verkinu. Tónlistin er eftir Skúla Gautason og er samin sérstaklega fyrir þessa sýningu. Þarna er á ferðinni klassísk ástar- og draugasaga sem […]

Bar par í Reykholtsdal

bar_par

Ungmennafélag Reykdæla frumsýnir 1. mars nk. leikritið Bar par eftir Jim Cartwright.  Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson, og er þetta þriðja skiptið í röð sem hann leikstýrir hjá UMFR. Leikendur, sem eru tólf talsins, eru á ýmsum aldri, sá yngsti 10 ára og sá elsti á óræðum aldri. Sumir að taka þátt í sinni fyrstu sýningu, […]

Aukasýning á Gutta og félögum

GuttiOgFelagar01_200x150

Vegna mikillar aðsóknar verður aukasýning á Gutta og félögum hjá Leikfélagi Kópavogs, sunnudaginn 3. mars kl. 16.00.  Uppselt er á sýningar laugardaginn 2. og 3. mars kl. 14.00. Gutti og félagar er byggt á Guttavísum og fleiri kvæðum Stefáns Jónssonar. Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti […]

Kardimommubærinn sýndur á Egilsstöðum

kardemommubaerinn1

Leikfélag Fljótsdalshéraðs og Leikfélag Menntaskólans á Egilsstöðum hafa sameinað krafta sína þennan veturinn og vinna nú að uppsetningu á Kardimommubænum eftir Torbjörn Egner. Leikstjóri sýningarinnar er Gunnar Björn Guðmundsson sem er landsmönnum að góðu kunnur m.a. fyrir leikstjórn kvikmyndanna Gauragangs og Astrópíu auk Áramótaskaupa síðustu fjögurra ára. Gunnar hefur einnig leikstýrt heilmörgum áhugaleiksýningum og setti […]

Með vífið í lúkunum frumsýnt í Hveragerði.

vifid_hopur

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir  föstudagskvöldið 1. mars  klukkan 20.00 sprenghlægilega farsann Með vífið í lúkunum  eftir breska leikskáldið Ray Cooney. Leikritið fjallar um leigubílstjórann Jón Michelsen sem býr bæði á Selfossi og í Hveragerði með tveimur konum, einni á hvorum stað án þess að önnur viti af hinni. Leikarar eru átta en með helstu hlutverk fara […]

Pörupiltar snúa aftur

porupiltar

Pörupiltar ætla að sýna þrjár aukasýningar á Uppistandinu Homo Erectus í Þjóðleikhúskjallaranum í mars. Uppistandið var sýnt sl. vetur við frábærar undirtektir gagnrýnenda og áhorfenda. Pörupiltar eru Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir. Aðeins verða sýningar, 2. 16. og 23. mars. Húsið er opnað kl. 20.30 og sýningin hefst kl. 21.00.

Karma fyrir fugla frumsýnt 1. mars

karma_fyrir_fugla

Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt verk þann 1. mars í Kassanum.  Verkið, Karma fyrir fugla, er eftir þær Kristínu Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur sem báðar eru myndlistarmenntaðar. Karma fyrir fugla er í senn ljóðrænt og sálfræðilegt verk um afleiðingar ofbeldis, heljartök fortíðarinnar á sálinni, ranglæti og fegurð. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir en hún hefur á […]

Gutti og félagar – sögu vil ég segja stutta

GuttiOgFelagar01_200x150

Nýtt íslenskt barnaleikrit, Gutti og félagar, byggt m.a. á Guttavísum Stefáns Jónssonar, verður frumsýnt föstudaginn 22. febrúar næstkomandi hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er eftir Örn Alexandersson en hann er jafnframt leikstjóri. Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti er einmitt aðalpersónan í leiksýningunni ásamt félögum sínum […]

Kómedíuleikhúsið sýnir leikrit um Sigvalda Kaldalóns

sigvaldikaldalons

Kómedíuleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt leikrit, Sigvaldi Kaldalóns, í Hömrum á Ísafirði á föstudag. Hér er á ferðinni leikverk sem fjallar um ár Sigvalda í Djúpinu fyrir vestan. Þar dvaldi hann í ein ellefu ár sem læknir. Þrátt fyrir mikið annríki í hinu afskekkta en víðferma læknishéraði gaf hann sér tíma til að semja lög. Á […]

Snúður og snælda frumsýna í Iðnó

radabruggid

Nýtt íslenskt leikverk, Ráðabruggið og bland í poka eftir Sellu Páls, Bjarna Ingvarsson og leikhóp Snúð og Snældu, verður frumsýnt í Iðnó laugardaginn 16. febrúar kl. 14. Verkið gerist á vistheimili þar sem aldraðir búa. Vistheimilið er 50 ára og í tilefni þess hefur hópur vistmanna tekið að sér að æfa upp skemmtidagskrá. Dagskráin inniheldur […]

Fjör á Ruslahaugnum

rympa_a_ruslahaugnum

HalaleikhópurinnRympa á ruslahaugnum eftir Herdísi EgilsdótturLeikstjóri: Herdís Ragna Þorgeirsdóttir Ég skrapp á laugardaginn á Rympu á Ruslahaugnum sem Herdís Ragna Þorgeirsdóttir setur upp með Halaleikhópnum í Halanum í Hátúni 12. Verkið sem er eftir Herdísi Egilsdóttur var fyrst sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 1987 við góðar viðtökur og hefur verið vinsælt viðfangsefni áhugaleikfélaga víða um […]

Mary Poppins frumsýnd á Stóra sviðinu

marypoppins

Föstudaginn 22. febrúar kl. 20 verður söngleikurinn Mary Poppins frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. Sýningin er sú viðamesta og flóknasta sem Borgarleikhúsið hefur nokkru sinni ráðist í – mannmörg og krefjandi dans og söngatriði, hraðar og stórar sviðskiptingar, háskaleg flugatriði og ótal tæknibrellur. Alls eru 50 manns á sviði í Mary Poppins (15 leikarar, 17 […]

Fyrirheitna landið frumsýnt 23. febrúar

fyrirheitna_landid

Þann 23. febrúar mun Þjóðleikhúsið frumsýna Fyrirheitna landið, nýtt verðlaunaleikrit eftir breska leikskáldið Jez Butterworth, á Stóra sviðinu. Fyrirheitna landið (Jerusalem) var frumflutt hjá Royal Court leikhúsinu í London árið 2009 og hlaut strax frábærar undirtektir og hefur verið sýnt við miklar vinsældir beggja vegna Atlantshafsins. Verkið hefur sópað að sér verðlaunum og hefur meðal […]

Æfingar hafnar á Sjóræningjaprinsessunni

lf.hafnarfj

Leikfélag Hafnarfjarðar hefur hafið æfingar á barna- og fjölskylduleikritinu Sjóræningjaprinsessan eftir Ármann Guðmundsson. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson. Það er gaman að geta sagt frá því að á fyrsta samlestur mættu yfir 20 manns og enn skemmtilegra að allir sem vildu fengu hlutverk. Tónlistin í verkinu er eftir Ármann sjálfan ásamt Guðmundi Svafarssyni og söngtexta gerir […]