Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja frumsýnir þann 16. mars leikritið Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson. Verkið var fyrst sett upp af Leikfélagi Reykjavíkur við gífurlegar vinsældir og nú er það komið í Gnúpverjahreppinn. Saumastofan er gamanleikrit með tónlist og söng ásamt dramatísku ívafi. Leikstjóri verksins er Svandís Dóra Einarsdóttir og sýnt er í félagsheimilinu Árnesi.
Saumastofan var skrifuð í tilefni af kvennaárinu 1975 sem náði hápunkti með kvennafrídeginum sama ár. Leikritið sló í gegn og var sýnt yfir 200 sinnum á 3 árum. Saumastofan var ádeila inn í þjóðfélagið á sínum tíma, þar sem staða konunnar innan feðraveldisins var miðpunktur ádeilunnar. Af hverju eru konur með lægri laun en karlar? Af hverju hafa karlmennirnir völdin þegar konan er sú sem í raun og veru heldur öllu saman? Kjartan beinir athyglinni að mikilvægum spurningum sem eiga fullt erindi enn þann dag í dag. Hvað hefur raunverulega breyst?
Sýningardagar eru eftirfarandi:
16. mars kl. 16.00 Frumsýning
20. mars kl. 20.00
21. mars kl. 20.00
26. mars kl. 20.00
27. mars kl. 20.00
Miðaverð er 2.000 kr.
Panta má miða í síma 897 1112 eða saumastofan@uppsveitir.is.