Nýtt íslenskt barnaleikrit, Gutti og félagar, byggt m.a. á Guttavísum Stefáns Jónssonar, verður frumsýnt föstudaginn 22. febrúar næstkomandi hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er eftir Örn Alexandersson en hann er jafnframt leikstjóri. Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti er einmitt aðalpersónan í leiksýningunni ásamt félögum sínum úr hverfinu. Aðrar persónur úr kveðskap Stefáns sem allir þekkja, svo sem Óli Skans og Vala kona hans, Ranka sem var rausnarkerling, Pennastokkur læknir og fleiri koma einnig við sögu.

Stefán Jónsson er einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar og sögur hans og ljóð hafa lifað með okkur um áratugaskeið. Sögurnar um Hjalta litla auk ljóða hans og vísna um Gutta, Ara og fleiri minnisstæða karaktera eiga ríkan hljómgrunn meðal landsmanna. Um Stefán hefur verið sagt: „Hann leitaðist við að segja börnum sögur sem gerðu þau að þenkjandi manneskjum og að sama skapi höfða til barnsins í þeim fullorðnu.“

Gutti og félagar henta sérstaklega börnum á aldrinum 4-104 ára. Ákveðið hefur verið að miðaverð geri fjölskyldunni kleift að koma saman á sýninguna án þess að stórsjái á buddunni og miðinn kostar því aðeins 1.200 kr. Einfaldast er að kaupa miða á midakaup.is/kopleik en einnig er hægt að senda pöntun á midasala@kopleik.is. Næstu sýningar eru lau. 23. og sunnudag 24. febrúar kl. 14.00 en aðeins eru 6 sýningar áætlaðar í febrúar og mars. Alls 15 leikarar taka þátt í sýningunni um Gutta og félaga og er hún sýnd í Leikhúsinu að Funalind 2.