Vegna mikillar aðsóknar verður aukasýning á Gutta og félögum hjá Leikfélagi Kópavogs, sunnudaginn 3. mars kl. 16.00.  Uppselt er á sýningar laugardaginn 2. og 3. mars kl. 14.00. Gutti og félagar er byggt á Guttavísum og fleiri kvæðum Stefáns Jónssonar. Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti er einmitt aðalpersónan í leiksýningunni ásamt félögum sínum úr hverfinu. Nánari upplýsingar á www.kopleik.is.

Verkið er eftir Örn Alexandersson en hann er jafnframt leikstjóri. Auk Gutta eru aðrar persónur úr kveðskap Stefáns sem allir þekkja, svo sem Óli Skans og Vala kona hans, Ranka sem var rausnarkerling, Pennastokkur læknir og fleiri koma einnig við sögu í verkinu. Stefán Jónsson er einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar og sögur hans og ljóð hafa lifað með okkur um áratugaskeið. Sögurnar um Hjalta litla auk ljóða hans og vísna um Gutta, Ara og fleiri minnisstæða karaktera eiga ríkan hljómgrunn meðal landsmanna. Um Stefán hefur verið sagt: „Hann leitaðist við að segja börnum sögur sem gerðu þau að þenkjandi manneskjum og að sama skapi höfða til barnsins í þeim“

Gutti og félagar henta sérstaklega börnum á aldrinum 4-104 ára. Ákveðið hefur verið að miðaverð geri fjölskyldunni kleift að koma saman á sýninguna án þess að stórsjái á buddunni og miðinn kostar því aðeins 1.200 kr. Hægt er að kaupa miða á www.midakaup.is/kopleik en einnig er hægt að senda miðapöntun á midasala@kopleik.is .