Samlestur á Extravaganza í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 16. september kl. 13.00 verður opinn samlestur á nýju verki Sölku Guðmundsdóttur, Extravaganza. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]
Nýjar spennandi vörur í Leikhúsbúðinni
Nú nálgast Hrekkjavakan óðfluga og margir örugglega farnir að velta fyrir sér gerfum og aðferðum. Leikhúsbúðin var að fá tvö frábær sett á alveg ótrúlegu verði, annars vegar Sugar Skull Kit og hins vegar Zombie Kit. Settið kostar ekki nema 6.750 kr. stk. Zombie settið inniheldur: Fresh Scratch sultublóð, 15 ml Cine-Wax 10 g 1 […]
Ósk um gagnrýni á sýningu
Snertu mig – ekki!
Nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki! verður frumsýnt föstudaginn 16. september hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er gamandrama sem fjallar um samband hjóna og vinkonu þeirra eða, eins og vinsælt hefur verið í íslenskum bíómyndum, vandamál miðaldra karlmanns. Snertu mig – ekki! er eftir Örn Alexandersson, en leikstjóri er Sigrún Tryggvadóttir. Örn og Sigrún hafa lengi starfað […]
Ubbi kóngur sækir um að fara til Monaco 2017
Þann 1. september sl. rann út frestur til að sækja um að fara með íslenska leiksýningu á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco sem haldin verður í ágúst 2017. Tvær umsóknir bárust og skipaði stjórn Bandalagsins því þriggja manna valnefnd sem skilaði af sér þann 10. september. Niðurstaða nefndarinnar er eftirfarandi: Valnefnd vegna alþjóðlegrar leiklistarhátíðar í Mónakó árið 2017 […]
SENDING eftir Bjarna Jónsson
Laugardaginn 10. september kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu nýtt verk eftir eitt okkar fremsta leikskáld, Bjarna Jónsson. Leikstjóri er Marta Nordal. Gretar Reynisson gerir leikmynd og Stefanía Adolfsdóttir búninga. Árið er 1982. Sjómannadagurinn er framundan. Það er barist í Palestínu og Bubbi Morthens túrar með Egó um landið til þess að kynna nýjustu […]
Sóley Rós ræstitæknir
Frumsýningin í Tjarnarbíói laugardaginn 10. september kl. 20.30. Sóley Rós er 42 ára mamma, amma, eiginkona og skúringakona.Verkið er byggt á viðtölum við raunverulega íslenska hvunndagshetju sem hefur átt lygilegt lífshlaup, hefur kynnst mótlæti og sárum missi sem hver sem er gæti kiknað undan. Sóley Rós er einstök persóna. Hún er Bjartur í Sumarhúsum, hún […]
Byrjendanámskeið í sviðsbardagalistum
Byrjendanámskeið í sviðsbardagalistum hefst sunnudaginn 11. september. (5 skipti, 17 klst.) Staður: Dansverkstæðið, Skúlagata 30, Reykjavík. Tími: Sunnudagar kl. 12:00-15:0o (engin æfing 2. okt) Lokaæfing 16. okt. 12:00-17:00 Verð: 11.500 Kennari: Ine Camilla Bjørnsten Takmarkað pláss! Hafið samband á ahaettuatridi@arcticaction.no Nánari upplysingar um námskeiðið á ensku: Beginner workshop in stage fighting over 5 Sundays (17 hours), 11.september – 16.oktober. […]
Opið hús hjá Borgarleikhúsinu og nýtt leikár kynnt
Laugardaginn 3. september opnar Borgarleikhúsið allt upp á gátt og býður alla velkomna í heimsókn milli klukkan 13:00 og 16:00. Að venju verða skoðunarferðir um húsið, innlit á æfingar og atriði á Stóra sviðinu. Villi vísindamaður mun kynna dagskrána í forsalnum. Hannes og Smári taka lagið og Lalli töframaður og ofurhetjurnar Óður og Flexa leggja […]
Act alone leiklistarhátíðin sett í 13. sinn
Elsta leiklistarhátíð landsins, Act alone, verður haldin í þrettánda sinn 11. – 13. ágúst næstkomandi. Hátíðin er haldin í sjávar- og einleikjaþorpinu Suðureyri við Súgandafjörð. Eins og nafnið gefur til kynna er hátíðin helguð einleiknum og er eina sinnar tegundar á landinu – ef ekki bara á öllum Norðurlöndunum. Margt er fleira einstakt við Act […]
Einleikur í Tjarnarbíói
“Barry and his Guitar“ er söngleikur á ensku þar sem leikarinn, grínistinn og tónlistarmaðurinn Bragi Árnason fer með öll hlutverkin í eigin verki. Aðeins ein sýning í Tjarnarbíói, laugardaginn 13. ágúst kl. 20:30. Við kynnumst Barry, feimnum en viðkunnalegum ungum draumóramanni, sem vinnur á kaffihúsi í London. Hann bæði syngur og spilar á gítar. Einn […]
Auglýst eftir leikstjóra
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra til að kljást við haustverkefni félagsins sem áætlað er að verði fjölskyldusýningin Kardemommubærinn. Æfingatímabil verður u.þ.b. frá miðjum september fram í byrjun nóvember. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 28. ágúst nk.
ASS KOMBAT Í Tjarnarbíói
Sirkús- og leiksýningin ASS KOMBAT í Tjarnarbíói 5. ágúst kl. 20:30. Sýningin ASS KOMBAT berst gegn kynbundnu ofbeldi með gleði, sirkús, nekt og alvöru. Company Patrícia Pardo frá Spáni vann sýninguna í samstarfi við Amnesty International fyrir herferðina „My Body, My Rights”. Verkið veltir upp spurningum um líkama, sjálfsmynd og kynvæðingu. Trúðsleikur og persónulegar sögur fléttast saman […]
Lokkað og daðrað á vestfirsku leikári
Við lok hverrar vertíðar er vert að kikka um öxl og skila inn aflatölum. Vissulega er leikhúsið sjóvmennska og nú í lok leikárs er komið að löndun leikhússins vestfirska. Ekki síst vegna þess að leiklistin er list augnabliksins, er hér og nú, svo tekur eitthvað annað listaverk við. Minningin gleymist þó ekki en stundin verður […]
Dracula’s Pack
Byltingin byrjar í Reykjavík – Frumsýning 23. júní í Tjarnarbíói Dracula’s Pack er sviðsverk þar sem dans, leiklist og tónlist sameinast. Hver sýning verður einstök því áhorfendur hafa áhrif á framvindu verksins. Sýningin er samin og flutt af listamönnum frá fimm löndum í leikhúsinu Tjarnarbíói. Stjórnandi sýningarinnar er Juliette Louste sem er búsett á Íslandi og […]
Grímuverðlaunin 2016 voru afhent í kvöld
Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 14. skipti við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld en sýnt var beint frá hátíðinni á RÚV. Kynnar kvöldsins voru Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixsson. Stefán Baldursson fyrrverandi Óperu – og Þjóðleikhússtjóri hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Njála hlaut alls 10 […]
Ekkert að óttast í Þjóðleikhúsinu 4. júní
Sýning Leikfélags Hafnarfjarðar, Ekkert að óttast, var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2016 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði þann 7. maí sl. Ekkert að óttast verður sýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu laugardaginn 4. júní kl. 19.30. Ekkert að óttast (Gunnar á Leiðarenda) er gamanleikur […]
Tilnefningar til Grímunnar 2016
Njála, í leikgerð Mikaels Torfasonar, Þorleifs Arnar Arnarssonar og Ernu Ómarsdóttur, hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistarverðlaunanna, alls ellefu talsins. Sýningin ≈ [um það bil] hlaut átta tilnefningar og Mávurinn sjö. Grímuverðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 13. júní næstkomandi. Hér að neðan má sjá allar tilnefningar til Grímunnar þetta árið: 1. Sýning ársins ≈ […]
Ein stök sýning á Ubba kóngi
Fimmtudaginn 26. maí næstkomandi verður fjáröflunarsýning í Gaflaraleikhúsinu í tilefni af því að uppsetning Leikfélags Hafnarfjarðar á Ubba kóngi hefur verið valin til þátttöku á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Strawanz í Bregenzerwald í Austurríki í júní. Miðaverð aðeins 2000 kr.Pantanir á leikfelag@gmail.comÁ annan tug leikara og hljóðfæraleikara taka þátt í sýningu LH, en aðalhlutverkin, Ubbi kóngur og Ubba kona […]
Fundargerð aðalfundar 7. maí 2016 á Seyðisfirði
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga Haldinn í Félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði 7. maí 2016 Fundur settur kl. 9:01 1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa Snorri Emilsson og Rúnar Gunnarsson frá Leikfélagi Seyðisfjarðar skipaðir fundarstjórar og Halla Rún Tryggvadóttir, Leikfélagi Húsavíkur og Fanney Valsdóttir, Leikfélagi Hörgdæla fundarritarar. Lögmæti fundarins sannreynt. […]
Leikhópurinn Lotta frumsýnir Litaland
Leikhópurinn Lotta frumsýnir Litaland, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum í Elliðaárdalnum miðvikudaginn 25. maí klukkan 18:00. Þetta er tíunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Litlu gulu hænuna, Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í […]
Kompani Nord sýnir í Tjarnarbíói
Norræni leikhópurinn Kompani Nord sýnir leiksýninguna Vi, De Drunknade (We, The Drowned) í Tjarnarbíói 28. og 29. maí. Sýningin Vi, De Drunknade er uppsetning á samnefndri bók eftir danska rithöfundinn Carsten Jensen. Bókin hefur notið mikilla vinsælda, um allan heim, frá útgáfu árið 2006. Stjórnandi leikhópsins og leikstjóri sýningarinnar er finnski leikstjórinn Arn-Henrik Blomqvist. Verkið […]
16 elskendur fara til Færeyja
Sviðslistahópnum 16 elskendur hefur verið boðið að taka þátt sem fulltrúar Íslands á Norrænum sviðslistadögum sem haldnir verða í Færeyjum 24. – 28. maí næstkomandi. Þema sviðslistadaganna í ár er gagnvirkni/áhorfendaþátttaka og voru 16 elskendur því beðnir um að endurvekja sýninguna „ÍKEA ferðir“ – sem var síðast sýnd fyrir átta árum, síðsumar 2008. Sú sýning vakti […]
Hið Ubbalega hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar blæs til stuttverkahátíðar í tilefni þess að sýning félagsins Ubbi kóngur – skrípaleikur í mörgum atriðum – í leikstjórn Ágústu Skúladóttur var valin til þátttöku á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Austurríki í sumar. Stuttverkin eru innblásin af Ubba kóngi og höfundi hans, franska leikskáldinu Alfred Jarry. Áhorfendur mega því eiga von á ýmiskonar grodda, […]
Afrakstur höfundasmiðju í Borgarleikhúsinu
Fjögur glæný íslensk verk – Aðeins ein sýning þann 22. maí kl. 14.00 Félag leikskálda og handritshöfunda, FLH, og Borgarleikhúsið, í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, efna til hálfsviðsettra leiklestra á splunkunýjum verkum eftir fjóra íslenska höfunda. Verkin voru unnin í höfundasmiðju á vegum FLH og Borgarleikhússins. Verkin fjögur eru afar ólík að efni og formi. […]
Sími látins manns í Tjarnarbíói
Þegar Nína ákveður að svara í síma manns á kaffihúsi, sem hringt hefur án afláts, fer af stað atburðarás sem hefur ófyrirséðar afleiðingar. Sími látins manns er fyrsta verk leikskáldsins Söruh Ruhl sem sett er upp á Íslandi. Sími látins manns fjallar um einsemdina og þrána eftir nánd. Snjallsímar og sambærileg tæki, með ótakmörkuðu upplýsingaflæði […]
Baldursbrá aftur á svið í Hörpu
Vegna fjölda áskorana verður ævintýraóperan Baldursbrá sýnd á þremur aukasýningum í Norðurljósasal Hörpu dagana 20.-22. maí nk. Óperan er eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson og fékk mikið lof þegar hún var frumsýnd. Aukasýningarnar verða sem hér segir: Föstudaginn 20. maí 2016 kl. 19.00 Laugardaginn 21. maí 2016 kl. 14.00 Sunnudaginn 22. maí 2016 […]
Súperstar á Laugarbakka
Leikdeild Umf. Grettis á Laugarbakka í Miðfirði í samstarfi við Leikhópinn á Hvammstanga setti upp rokkóperuna Súperstar síðustu páska í Félagsheimilinu Hvammstanga. Þátttakendur sem voru allir heimamenn voru 38 talsins og var sýnt fyrir fullu húsi í fimm skipti. Ákveðið var að setja upp áhorfendapalla með því að stafla upp 600 vörubrettum svo að allir […]
Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2015-2016
Þjóðleikhússtjóri, Ari Matthíasson, tilkynnti um valið á hátíðakvöldverði aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði laugardaginn 7. maí sl.: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og þriðja sinn. Áhugasýning ársins hefur verið kærkomið tækifæri fyrir höfuðborgarbúa að upplifa þá grósku sem einkennir starf hinna fjölmörgu sjálfstæðu leikfélaga á Íslandi. Að […]
Ekkert að óttast í Þjóðleikhúsinu
Sýning Leikfélags Hafnarfjarðar, Ekkert að óttast var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2016 af valnefnd Þjöðleikhússins. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði í kvöld.
Aðalfundur BÍL á Seyðisfirði

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga var settur á Seyðisfirði í morgun, laugardaginn 7. maí. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Svipmyndir af þinginu munu birtast hér meðan á því stendur.
Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu
Þriðjudaginn 3. maí kl. 13.00 verður opinn samlestur á nýju verki Bjarna Jónssonar, Sending. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]
Framtíð mannkynsins er á KOI
Sviðslistamennirnir Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson frumsýna leikverkið Könnunarleiðangur til KOI á föstudaginn, 29. apríl kl. 20:30, í Tjarnarbíói. Um er að ræða sjálfstætt framhald af verkinu MP5 sem vakti mikla athygli í Tjarnarbíói á síðasta leikári. Verkið segir frá spandex-geimförunum Ísaki og Vilhjálmi sem eru sendir í könnunarleiðangur til KOI. Jörðin er að deyja og þar […]
Ófeigur Hugleikur
Hugleikur Feigð eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn höfundar Ármann Guðmundsson, höfundur og leikstjóri Feigðar sem Hugleikur frumsýndi að kvöldi síðasta vetrardags í Kartöflugeymslunum í Ártúnsbrekkunni, lætur þess getið í leikskrá að verkið sé afturhvarf til þess tíma þegar hann steig sín fyrstu skref með Hugleik. Síðan eru 25 ár og þetta ástríðuleikfélag sýnir engin merki […]
Sjeikspír fyrir vestan
Laugardaginn 23. apríl eru liðin 400 ár frá andláti merkasta leikskálds allra tíma William Shakespeare. Kómedíuleikhúsið minnist skáldsins á dánardeginum fjórum öldum síðar með frumsýningu á leikverkinu Daðrað við Sjeikspír. Sýnt verður í Hörpu Vestfjarða, í Félagsheimilinu Bolungarvík. Um er að ræða sýningu að hætti kaffileikhúsa og sitja því gestir við borð og geta jafnvel […]
Hugleikur frumsýnir Feigð
Næsta miðvikudag. 20. apríl, mun Leikfélagið Hugleikur frumsýna Feigð, nýtt verk með söng-, hryllings-, drama- og gamanleikjaívafi eftir Ármann Guðmundsson. Höfundur er jafnframt leikstjóri og alls koma 15 leikarar fyrir í verkinu. Á Skollakoti í íslenskri 19. aldar sveit býr nískur maður að nafni Greipur. Hann er nýkvæntur hinni ungu og fögru Sesselju sem rennir […]
Leikfélag Mosfellssveitar býður í leikhús
Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 21. apríl kl. 15 verður barnaleikritið Ævintýraþjófarnir frumsýnt í Bæjarleikhúsinu. Í tilefni þess að Leikfélag Mosfellssveitar var valið bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2015 langar okkur að þakka fyrir okkur og því er öllum bæjarbúum, ungum sem öldnum, boðið á sýninguna. Ævintýraþjófarnir er nýtt barnaleikrit byggt á gömlum íslenskum ævintýrum skrifað af Maríu […]
Aðalfundur og einþáttungahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga 2016

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn á Seyðisfirði dagana 7. og 8. maí 2016. Í tengslum við aðalfundinn verður haldinn einþáttungahátíð í Félagsheimilinu Herðubreið föstudaginn 6. maí. Einþáttungahátíðin verður sennilega sett kl. 20.00 föstudagskvöldið 6. maí. Aðalfundurinn verður settur laugardagsmorguninn 7. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 8. maí. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu […]
Sviðslistahátíðin UNGI 2016
Sviðslistahátíðin UNGI fyrir unga áhorfendur verður haldin dagana 20. til 23. apríl. Hátíðin er haldin í fjórða sinn af ASSITEJ á Íslandi, sem eru samtök um leikhús fyrir unga áhorfendur, en skartar nafninu UNGA í fyrsta sinn í ár. UNGI fer fram víðsvegar í Reykjavík en höfuðstöðvar hátíðarinnar verða í Tjarnarbíói. Þar verða skemmtilegar sýningar […]
Leikritunarnámskeið LS og LÖ
Leikfélag Selfoss og Leikfélag Ölfuss taka höndum saman og standa fyrir leikritunarnámskeiði 16.-27. apríl. Kennari er Karl Ágúst Úlfsson. Hugmyndin að þessu verkefni kviknaði síðastliðið haust en okkur fannst liggja í loftinu að félagar í þessum nágrannafélögum hefðu þörf fyrir að læra undirstöðuatriði leikritunar. Sótt var um styrk til Uppbyggingarsjóðs Suðurlands til að standa straum […]
