Fimmtudaginn 26. maí næstkomandi verður fjáröflunarsýning í Gaflaraleikhúsinu í tilefni af því að uppsetning Leikfélags Hafnarfjarðar á Ubba kóngi hefur verið valin til þátttöku á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Strawanz í Bregenzerwald í Austurríki í júní.
Miðaverð aðeins 2000 kr.
Pantanir á leikfelag@gmail.com
Á annan tug leikara og hljóðfæraleikara taka þátt í sýningu LH, en aðalhlutverkin, Ubbi kóngur og Ubba kona hans, eru í höndum Halldórs Magnússonar og Huldar Óskarsdóttur. Tónlistin er frumsamin af Eyvindi Karlssyni fyrir sýninguna og söngtextar eru eftir Karl Ágúst Úlfsson og Þórarin Eldjárn.
Leikritið Ubbi kóngur er kannski betur þekkt sem Bubbi kóngur, en Herranótt frumflutti það hér á landi undir því nafni árið 1969 í leikstjórn Sveins Einarssonar. Aðalhlutverk í þeirri uppfærslu voru leikin af Davíð Oddssyni og Signýju Pálsdóttur.
Leikritið er óhefðbundið og gráglettið ærslaverk fyrir fullorðna og er meginþema verksins græðgi, spilling og valdníð.
Alfred Jarry skrifaði Ubba kóng (Ubu roi á frummálinu) undir lok 19. aldar og vakti leikritið heit viðbrögð þegar það var fyrst flutt í París árið 1896. Steingrímur Gautur Kristjánsson þýddi verkið upphaflega, en Leikfélag Hafnarfjarðar flytur það í nýrri og endurbættri þýðingu hans.
Ágústa Skúladóttir er einn vinsælasti leikstjóri á landinu í dag. Ubbi kóngur var fimmta sýningin undir hennar stjórn á fjölunum á síðasta leikári, en á þessu leikári hefur hún m.a. leikstýrt Rakaranum í Sevilla hjá Íslensku óperunni, Yfir til þín og Umhverfis jörðina á 80 dögum í Þjóðleikhúsinu og Góða dátanum Svejk og Hasek vini hans í Gaflaraleikhúsinu.