ImageNemendaleikhúsið og Common Nonsense standa að sýningunni Forðist okkur. Frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu 29. september. Verkið er eftir Hugleik Dagsson. Leikstjórar eru Stefán Jónsson og Ólöf Ingólfsdóttir, leikmynd og búningar eru í höndum Ilmar Stefánsdóttur, lýsingu annast Egill Ingibergsson og hljóðmynd skapar Davíð Þór Jónsson. Hlutverk eru í höndum þeirra Aðalheiðar Halldórsdóttur, Birgittu Birgisdóttur, Dóru Jóhannsdóttur, Halldóru Malínar Pétursdóttur, Jörundar Ragnarssonar, Magneu Bjarkar Valdimarsdóttur, Stefáns Halls Stefánssonar, Sveins Ólafs Gunnarssonar, Vals Freys Gunnarssonar og Víðis Guðmundssonar

Hugmyndaheimur verksins er sprottinn upp úr verkum Hugleiks myndasögubókunum Elskið okkur , Drepið okkur og Ríðið okkur. Sögur Hugleiks er skemmtilegar, kaldhæðnar, grófar, ljótar, fallegar, ósmekklegar, gróteskar og rómantískar. Það rúmast allt í þessum heimi. Hver saga lætur ekki mikið yfir sér. Ein teikning með örlittlum texta. Í einfaldleika sínum tekst Hugleik á skondinn og áhrifamikinn hátt að beina sjónum okkar að margs skonar meinsemdum í samskiptum fólks, brengluðu gildismati, brengluðu siðferði og hættulegum félagslegum doða og afskiptaleysi. Sögur hans eru eins og ljósmynd úr lífi fólks og hann lætur okkur eftir að filla upp í götin. Forðist okkur er saga um nútímamanninn í sinni nöktustu mynd.

Miðapantanir eru í miðasölu Borgarleikhússins en almennt miðaverð er kr. 1.500 og 1.000 fyrir nemendur.