Frá Leikfélagi Vestmannaeyja

Þann 28. október var frumsýnt hjá Leikfélagi Vestmannaeyja verkið „Móglí“ eftir Illuga Jökulsson í leikstjórn hins frábæra leikstjóra Jóns Stefáns Kristjánssonar.

Stuttverk 2006 – Úrslit tilkynnt í dag

Atkvæðagreiðslu í Stuttverkasamkeppni Leiklistarvefsins 2006 er lokið. 15 stuttverk voru í valinu og völdu lesendur þau 3 bestu. Úrslit verða tilkynnt og verðlaun afhent kl. 16.00 í dag, föstudaginn 10. nóvember á skrifstofu Bandalags íslenskra leikfélaga, Laugavegi 96. Einnig verða verkin sem lenda í efstu sætunum þremur leiklesin. Allir velkomnir.

Stuttverkasamkeppni 2006

Eftirfarandi 15 stuttverk voru valin af forvalsnefnd fyrir Stuttverkasamkeppni 2006. Nú er komið að lesendum að velja þau bestu. Veldu 3 verk, hvorki fleiri né færri. Stuttverkin eru hér í PDF-formi. ATH! Ef valin eru fleiri eða færri en 3 verk teljast ÖLL þau atkvæði ógild! Borið hefur á því að ekki sé farið eftir […]

Frá Leikfélagi Hörgdæla

Aðalfundur leikfélagsins var haldinn mánudagskvöldið 16. október 2006. Í stjórn félagsins eru: Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, formaður, Kristín Haraldsdóttir varaformaður, Ásgeir Már Hauksson gjaldkeri, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir ritari og Bernharð Arnarson meðstjórnandi. Á fundinum var samþykkt að Arnsteinn Stefánsson, Stóra-Dunhaga, yrði heiðursfélagi leikfélagsins. Nú í haust mun Leikfélagið setja upp dagskrá um Kristján frá Djúpalæk (Dreifar […]

Danny and the deep blue sea

Austurbær er að hefja sýningar á leikritinu Danny and the deep blue sea eftir John Patrick Shanley í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Verkið verður sýnt í nýuppgerðu “black-box”  rými á efri hæðinni, í Silfurtunglinu. Brit Pop leikrit, beint frá Bretlandi, beint í æð. Leikendur eru bresku hjónin Nicolette Morrison og Matthew Hugget. Leikið er á […]

Manntafl í Borgarleikhúsinu

Ákveðið hefur verið að taka upp sýninguna Manntafl eftir Stefan Zweig frá fyrra leikári. Sýningin fékk afar góðar viðtökur og var ÞórTulinius tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir einleikinn.  Aðeins 4 sýningar eru í boði og sú fyrsta verður sunnudaginn 29.október.   Manntafl er hiklaust ein af perlum skáldverka tuttugustu aldarinnar. Hún er uppgjör snillings af gyðingaættum […]

Láttu ekki deigan síga, Guðmundur

Þá er loksins komið að því að áhorfendur geti séð uppfærslu á verkinu  “Láttu ekki deigan síga Guðmundur”, hjá Leikfélagi Siglufjarðar í leikstjórn hins magnaða leikstjóra Guðjóns Sigvaldasonar.  Höfundar eru Hlín Agnarsdóttir og Edda Björgvinsdóttir. Frumsýnt verður þann 27. október í Bíó Café og hefst sýningin kl. 21:00.  Húsið opnar kl. 20:00.

Purpuri

Leikhópurinn Jelena er nýr leikhópur sem setti upp verkið Purpuri eftir Jon Fosse í ágúst síðastliðnum. Varð hópurinn því á undan nokkrum öðrum hérlendis að setja upp verk eftir spúttnikkleikskáldið Fosse, sem ku vera einna mest leikinn allra Norðurlenskra skálda þessi árin. Nú stendur til að sýna fjórar sýningar á þessu verki í tengslum við […]

Aukasýning á Systrum

Allra síðasta tækifæri til að sjá hina margverðlaunuðu sýningu Hugleiks, Systur, gefst í Möguleikhúsinu föstudagskvöldið 27. október nk. Þetta er aukasýning og enn er hægt að fá miða. Þá gildir hið vinsæla "systratilboð" ennþá, en samkvæmt því greiða systrahópar aðeins fyrir einn miða óháð fjölda systranna. Miðapantanir eru á www.hugleikur.is eða í síma 551 2525.

Dogmatísk Sólarferð í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 28.október mun Dogmaleikhópur Borgarleikhússins opna dyrnar fyrir almenningi. Síðastliðnar fjórar vikur hefur leikhópurinn verið að skoða hlutverk leikarans í vinnunni með leikverkið. Vettvangur rannsóknarinnar hefur verið Sólarferð eftir Guðmund Steinsson.  Leikararnir hafa kastað á milli sín hugmyndum að úrlausnum og leikaðferðum, án tilkomu leikstjóra eða útlitshönnuða. Þeir hafa velt fyrir sér ábyrgð leikarans í […]

Purpuri á Fosse-hátíð

Leikhópurinn Jelena tekur aftur upp sýningar í tengslum við Jon Fossehátíð Þjóðleikhússins á leikritinu Purpuri. Leikritið fjallar um hóp af ungum strákum sem hafa stofnað hljómsveit sem er enn heldur stefnulaus. Ung stúlka bætist í hóp þeirra og myndast spenna milli hljómsveitarmeðlima og hennar. Hvernig er að vera ungur og eiga í erfiðleikum með að […]

Stórfengleg!

Föstudaginn  27. október frumsýnir Þjóðleikhúsið leikritið Stórfengleg! eftir Peter Quilter í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Stórfengleg! er glænýr gamanleikur um Florence Foster Jenkins, “verstu söngkonu allra tíma”. Jenkins varð víðfræg fyrir hljómplötur sínar og tónleika sem hún hélt í New York á 4. og 5. áratugnum. Hún þótti heillandi persónuleiki, var gædd óbilandi sjálfstrausti, en hafði […]

Alveg brilljant skilnaður

Einleikur Eddu Björgvinsdóttur , sem frumsýndur var í mars árið 2005, hefur verið sýndur 130 sinnum fyrir fullu húsi og við fádæma undirtektir áhorfenda um allt land, en rúmlega 20 þúsund manns hafa nú þegar séð sýninguna. Það er því óhætt að segja að sýningin Alveg brilljant skilnaður er einhver sú vinsælasta sem sýnd hefur […]

Herra Kolbert

Laugardagskvöldið 28. október verður Herra Kolbert eftir David Gieselmann frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Hér er á ferðinni margverðlaunað leikrit sem sýnt hefur verið um allan heim og vakið mikla athygli. Í verkinu tvinnast saman ómótstæðilegur húmor og hvöss ádeila. Hver er herra Kolbert? Hver er með númer 26, sleppa chillíinu? Er Herra Kolbert í kistlinum […]

Fjölbreytt Jon Fosse hátíð í Þjóðleikhúsinu

Jon Fossehátíð verður haldin í Þjóðleikhúsinu dagana 28. og 29.október n.k.í samvinnu við Norska sendiráðið í Reykjavík.  Jon Fosse sjálfur verður aðalgestur hátíðarinnar ásamt sænska leiklistargagnrýnandanum Leif Zern sem hefur skrifað bók um skáldið. Leif Zern hefur starfað sem menningarritstjóri á dagblaðinu Expressen en er þekktastur sem einn helsti virtasti leiklistargagnrýnandi Svía, en hann skrifaði áralangt um leiklist […]

Leiklistarskóli BÍL auglýsir:

Námskeið í stjórnun leikfélaga, fyrirlestrar og umræður. Haldið laugardaginn 18. nóvember 2006 frá kl. 10.00 til 17.00 í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Síðasti skráningardagur í dag, 10. nóvember!

Vinnusmiðja FLÍSS og Þjóðleikhússins

Næsta vinnusmiðja FLÍSS og Fræðsludeildarinnar verður miðvikudagskvöldið 25. október kl. 20.00 – 22.00.   Sigríður Valsdóttir leiklistarmeðferðarfræðingur mun fjalla um leiklistarmeðferð (dramatherapy) og notkun hennar í skólastarfi.   Sigríður er menntaður kennari frá KHÍ og kenndi í 2 ár áður en hún fór í framhaldsnám í leiklistarmeðferð (drama therapy) í New York háskóla. Hún útskrifaðist […]

Sex í sveit í Ólafsvík

Æfingar eru hafnar á gamanleiknum Sex í sveit eftir Marc Camoletti í íslenskun og staðfærslu Gísla Rúnars  Jónssonar. Um er að ræða bráðskemmtilegan og flókinn gamanleik sem gerist í sumarbústað hér á landi. Leikarar í verkinu eru 6 talsins, blanda af reyndum og óreyndum leikurum. Leikstjóri er Gunnsteinn Sigurðsson. Áætlað er að sýna um mánaðarmótin […]

Amadeus í Borgarleikhúsinu

Amadeus eftir Peter Shaffer verður frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins laugardaginn 21. október kl. 20.00. Leikstjóri er Stefán Baldursson Verkið fjallar um samband  Wolfgang Amadeus Mozart og Antonio Salieri, hirðtónskáld Austuríska keisarans á síðari hluta átjándu aldar. Verkið byggir á sögusögnum um dulafullan dauða Mozarts og þátt Salieri í honum. Salieri kvelst af afbrýði út […]

Gosi frumsýndur á Sauðárkróki

Haustverkefni Leikfélags Sauðárkróks að þessu sinni er barna- og fjölskyldusöngleikurinn Gosi.  Þetta er leikverk Brynju Benediktsdóttur með söngvum eftir Þórarin Eldjárn við tónlist Sigurðar Rúnars Jónssonar.  Verkið er byggt á hinni heimsfrægu sögu um strengjabrúðuna Gosa eftir ítalann C. Collodi, en sagan kom fyrst út á bók árið 1873 og er því orðin rúmlega 230 […]

Leikfélag Siglufjarðar lætur ekki deigan síga

Hjá Leikfélagi Siglufjarðar standa yfir stífar æfingar á bráðskemmtilegu verki þeirra Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, Láttu ekki deigan síga Guðmundur.   Leikurinn gerist árið 1984 og fjallar um ´68 kynslóðina svokölluðu, sigra hennar og vonbrigði á gamansaman hátt.   Í leikritinu rifjar aðalpersónan, Guðmundur Þór, upp sögu sína þegar sonur hans Garpur Snær leitar ásjár […]

Æfingar hafnar hjá Leikfélagi Dalvíkur

Nú eru hafnar æfingar á nýju leikverki hjá Leikfélagi Dalvíkur. Verkið samanstendur af 5 einþáttungum sem allir eru skrifaðir af leikskáldum úr Dalvíkurbyggð. Þættirnir eiga það sameiginlegt að þeir gerast í raðhúsi og það á einum og sama deginum.

Sænsk gestasýning í Þjóðleikhúsinu

Fimmtudaginn 19.október kl. 20.00 og föstudaginn 20.október kl. 20.00 sýnir Cinnober leikhúsið frá Gautaborg leikritið Suzannah eftir Jon Fosse á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Leikritið fjallar um Súsönnu Ibsen sem í 48 ár var eiginkona norska skáldjöfursins Henriks Ibsens. Höfundurinn kallar verkið einleik fyrir þrjár leikkonur. Einleikurinn skiptist milli þriggja radda, sem endurspegla líf Súsönnu á þremur aldursskeiðum hennar, […]

Ársrit BÍL komið út

Ársrit BÍL fyrir leikárið 2005 – 2006 er komið út. Að venju kennir þar ýmissa grasa enda eru þar dregnar saman fréttir og upplýsingar um starfsemi félaganna og Bandalagsins á liðnu leikári. Prentuð útgáfa hefur veirð send til leikfélaganna en einnig er hægt að nálgast eintak í PDF-formi hér. ðæþýíóáú

Ljósanámskeið

Leikfélag Selfoss býður upp á ljósanámskeið helgina 21. og 22. október   Skráningarfrestur er út miðvikudaginn 18. október. Kennari er Benedikt Axelsson. Hann hefur verið atvinnuljósamaður í fjölda ára hjá bæði Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og undanfarin ár hjá Íslenska dansflokknum auk þess sem hann hefur unnið með nokkrum áhugaleikfélögum. Námskeiðið hentar að hluta öllum sem […]

Ert þú með hugmynd í maganum?

Leitum að skapandi listamönnum til þess að taka þátt í næstu sýningum 108 PROTOTYPE.  Fyrsta sýning gekk vonum framar! Megináherslan er lögð á ferlið, hugmyndir og tilraunir. Næstu sýningar eru: Sun 29. október kl: 20:00 Sun 27. nóvember kl: 20:00   Hafðu samband á steinunn_k@hotmail.com 108 PROTOTYPE er röð mánaðarlegra sýninga þar sem listamenn frá […]

Act alone í Sjónvarpinu í kvöld

Heimildarmynd um Act alone er nefnist Leikur einn verður sýnd í Sjónvarpinu í kvöld, þriðjudaginn 10. október kl. 21.10. Það er Ísfirska kvikmyndafyrirtækið digi-Film sem gerir myndina sem er í leikstjórn Jóhannesar Jónssonar, kvikmyndagerðamanns og aðal digimanns. Myndin var gerð á Act alone 2005.

Æfingar hafnar hjá Leikfélagi Rangæinga

Þegar prestfrú ein tekur upp á því  spila í getraunum gegn vilja eiginmannsins og án hans vitundar getur ekkert verra komið fyrir en… að hún vinni. Leikfélag Rangæinga hefur hafið æfingar á leikritinu Getraunagróði eftir Philip King.   Verkið er gamanleikur þar sem hlutir ganga hratt fyrir sig og mikið er um misskilning og ærsl.   […]

Leikhússport á Íslandi

[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ _builder_version=“3.22″][et_pb_row admin_label=“row“ _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text admin_label=“Text“ _builder_version=“4.4.1″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ hover_enabled=“0″] Þeir sem áhuga hafa á spuna og leikkhússporti takið eftir: Ég og fleiri erum að koma saman spunahóp sem myndi hittast reglulega (1–2 í viku) og æfa og keppa.Allir þeir sem áhuga hefðu á því að vera […]

Áhugaleiklistin undir hnífnum

Hið árlega fjárlagafrumvarp var kynnt á dögunum. Eins og venjulega var látið að því liggja að nú væri kaupmáttaraukning í þjóðfélaginu og smjör drypi af nánast hverju strái, en þó verða menn að passa sig á þenslunni. Einhverra hluta vegna kemur það meðal annars í hlut hins fjársvelta leikhúsgeira að halda aftur af henni. Aðildarfélög […]

Þjóðleikhúsið frumsýnir á Selfossi

Þjóðleikhúsið frumsýnir Patrek 1,5 eftir Michael Druker í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi þriðjudaginn 10. október kl. 13.00. Þetta er hvorki hefðbundinn staður né stund fyrir frumsýningu á vegum Þjóðleikhússins en ástæðan er sú að hér er um að ræða leikrit sem er einkum ætlað ungu fólki og markar sýningin upphaf leikferðar Patreks 1,5 um landið […]

Lína Langsokkur á Patreksfirði

Leikfélag Patreksfjarðar hefur nú vaknað af nokkurra ára dvala og hafið starfsemi aftur af fullum krafti. Nú um helgina frumsýnir það sitt þrítugasta leikrit, en félagið var stofnaði 13. maí 1967 og á því fertugsafmæli í vor. Verkið sem sýnt verður að þessu sinni er Lína Langsokkur eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Elvars Loga Hannessonar […]

Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum

Í fyrravetur gekk Hugleikur til samstarfs við Þjóðleikhúskjallarann og sýndi þar sjö sýningar undir nafninu Þetta mánaðarlega. Þar var um að ræða einþáttungasýningar, eitt klukkutímalangt óperuþykkni, eina klukkutíma leiksýningu, auk þess sem margar sýninganna voru kryddaðar með tónlist af ýmsu tagi. Verkefninu lauk síðan í maí með tónlistardagskrá þar sem rifjuð var upp tónlist úr […]

Gosi á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks hefur hafið æfingar á söngleiknum um hinn eina sanna spýtustrák Gosa.  Leikverkið er eftir Brynju Benediktsdóttur með söngvum eftir Þórarinn Eldjárn við tónlist Sigurðar Rúnars Jónssonar.  Leikstjórn er í öruggum höndum Þrastar Guðbjartssonar, en leikendur og aðrir aðstandendur sýningarinnar eru ungir og gamlir, reyndir og óreyndir, af ýmsum ættum og úr mörgum héruðum. […]

Sitji guðs englar í Þjóðleikhúsinu

Föstudaginn 29. september n.k. frumsýnir Þjóðleikhúsið Sitji guðs englar eftir Guðrúnu Helgadóttur í leikgerð Illuga Jökulssonar og leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar. Leikgerðin er byggð á þremur bókum Guðrúnar, Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Leikritið gerist í íslensku sjávarþorpi í síðari heimsstyrjöldinni og miðpunkturinn er barnmörg stórfjölskylda. Gegnum litríkt líf hennar kynnast […]

Leikritunarnámskeið hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs verður með námskeð í leikritun bráðlega og stjórn þess verður í styrkum höndum Hrefnu Friðriksdóttur. Á námskeiðinu verður farið í leikritun og verður sjónum einkum beint að skrifum á styttri verkum/einþáttungum.

Systur – Verðlaunaverk Hugleiks aftur á fjalirnar

Leikfélagið Hugleikur frumsýndi leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu síðastliðið vor. Sýningin fékk frábæra dóma og mjög góða viðtökur, og af því tilefni hyggst félagið sýna fimm sýningar á verkinu í haust. Endurfrumsýningin verður sunnudaginn 24. september og sú síðasta föstudaginn 20. október.

Vinnusmiðjur Þjóðleikhússins

Vinnusmiðja Þjóðleikhússin hefur verið starfrækt undanfarin þrjú ár. Í vetur mun Félag um leiklist í skólastarfi, FLÍSS,  sjá um starfsemi vinnusmiðjunnar í samráði við Fræðsludeildina. Markmið vinnusmiðjunnar er að gefa kennurum og leikurum sem áhuga hafa á kennslu tækifæri til að kynnast vinnubrögðum ýmissa listamanna og kennara og veita kennurum sem vilja nota leiklist í […]

Mein Kampf frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Mein Kampf eftir George Tabori verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins þann 23. september. Gísli Rúnar Jónsson þýddi verkið en leikstjórn er í höndum Hafliða Arngrímssonar Verkið er hárbeittur og meinfyndinn gamanleikur um sambýli gyðingsins Slómó og Adolfs Hitlers er sá síðarnefndi kemur úr sveitinni til Vínarborgar í þeim erindagjörðum að nema málaralist við Listaakademíuna […]

Karíus og Baktus á Akureyri

Laugardaginn 23. september verður hið sígilda barnaleikrit Karíus og Baktus eftir Thorbjorn Egner frumsýnt hjá LA. Verk Thorbjorns Egners eru ætíð vinsæl en þetta er í fyrsta sinn sem Karíus og Baktus eru settir upp norðan heiða. Í uppsetningu LA er tónlistin flutt í nýrri og grallaralegri útgáfu hljómsveitarinnar 200.000 naglbítar. Karíus og Baktus verða […]