Haustfundur 1. október 2006

Haustfundur Bandalags íslenskra leikfélaga Haldinn á Hótel Selfossi 01.10. 2006 Fundur settur kl. 09.00 Sigríður Lára Sigurjónsdóttir flutti lítinn “skyndihjálparpistil” til bjargar deyjandi leikfélögum. SKYNDIHJÁLP Fyrir leikfélög í andnauð Algeng sjúkdómseinkenni – Félagaleysi – Peningaleysi – Húsnæðisleysi – Aðsóknarleysi – Almennt vonleysi Félagaleysi – Gæði félagsins mælist ekki í fjölda á félagaskrá –    Einu sinni […]

Málþing um Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga 30. september 2006

Hótel Selfossi 30.09.2006 Málþing um Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga Framsöguerindi: Gunnhildur Sigurðardóttir, fráfarandi skólastýra, kynnti dagskrá málþingsins og fjallaði um aðdraganda og starfsemi skólans til þessa. Málþing 9:00 – 12:00 Framsöguerindi Aðdragandi – starfsemi – Gunnhildur Sigurðardóttir Húsnæðismál skólans – Margrét Tryggvadóttir Niðurstöður úr könnun – Hrefna Friðriksdóttir Skólinn frá sjónarhóli leikfélags – Sigríður Lára, […]

Aukasýning á Jólaperu

Þar sem uppselt er á Jólaperu – helgileikinn um Jósef frá Nasaret sunnudaginn 10. desember kl. 18.00 hefur verið ákveðið að hafa aukasýningu sama dag kl. 20.00. Enn eru nokkrir miðar lausir á sýninguna 17. desember kl. 18.00. Söngleikurinn var frumsýndur fyrir fullu húsi fyrsta sunnudag í aðventu á efri hæð Grand Rokk við Smiðjustíg. […]

Alþjóðleg sviðslistasmiðja í Lettlandi

Alþjóðlegi háskólinn Global Theatre Experience (IUGTE) heldur sviðslistasmiðju undir stjórn Sergey Ostrenko í Riga í Lettlandi dagana 30. mars til 4. apríl í vor. Aðeins eru örfá pláss í boði og munu námskeiðshaldarar velja úr umsækjendum þá sem þeim þykir henta. Ítarleg ferilskrá þarf að fylgja umsóknum. Smiðjan er opin leikstjórum, leikskáldum, leikurum, dönsurum, danshöfundum, […]

Jólabónus Hugleiks kemur manni í jólastuð

Nú glymja í eyrum alla daga jólapopplögin sívinsælu og þótt maður reyni að flýja þau þá smjúga þau allstaðar. Sama hvaða tökkum er snúið á radíóinu eða sjónvarpskassanum þá er mamma allstaðar að kyssa jólasvein. Þessvegna var það afar hressandi að skreppa í Jólabónus hjá Hugleik og hlusta á öll ójólalögin eða andjólalögin eða hvað […]

Varaðu þig á vatninu – Jólasýning

Laugardaginn 9. desember sýnir Leikfélag Mosfellssveitar jólasýningu á verkinu Varaðu þig á vatninu eftir Woody Allen í leikstjórn Guðjóns Þorsteins Pálmarssonar. Miðaverð verður aðeins kr. 1.200 á þessa sýningu og boðið verður upp á jólaglögg og piparkökur í hléi. Einnig munu þrír heppnir leikhúsgestir hafa með sér jólatré heim.

Barnaleikhúshátíð í anda Astrid Lindgren

Nordisk amatörteaterraad (NAR) Sveriges Amatörteaterraad og Vimmerby-bær bjóða barnaleikhúshópum (leikendum á aldrinum 9 til 14 ára) frá Norðurlöndunum og baltnesku löndunum á SPUNK-hátíðina í Vimmerby 18. – 24. júní 2007. Hátíðin er hluti af hundrað ára afmælishátíð Astrid Lindgren. Þau lönd sem boðið er að taka þáttí hátíðinni eru hópar frá aðildarlöndum NAR og baltnesku […]

Endurtekur sagan sig?

Útsendari okkar fór á frumsýningu hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar um helgina og ritar sitt álit: "Leikfélag Hafnarfjarðar á 70 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni afmælisins ákvað stjórn þess að setja upp að nýju Ráðskonu Bakkabræðra, vinsælasta leikrit sem þar hefur á fjalir komið. Sú sýning var sett upp í lok seinni heimsstyrjaldar og að […]

Jólabónus Hugleiks

Nú fer aðventan í hönd og þá er hefð fyrir því að leikfélagið Hugleikur bregði sér í jólafötin og skemmti sér og öðrum sem aldrei fyrr. Jóladagskrá Hugleiks heitir að þessu sinni Jólabónus og verður framin í Þjóðleikhúskjallaranum þriðjudaginn 5. og fimmtudaginn 7. desember klukkan 21.00. Leikfélagið Hugleikur fékk á dögunum viðurkenningu á degi íslenskrar […]

Lokasýning á Umbreytingu í Þjóðleikhúsinu

Á síðasta leikári leysti Kassinn, hið nýja svið Þjóðleikhússins við Lindargötu, Litla sviðið af hólmi sem leiksvið, og nú hefur Litla sviðið hlotið nýtt nafn, Kúlan, og öðlast nýtt hlutverk fyrir leikhúsgaldur og leiklistaruppeldi. Vígslusýning Kúlunnar var sýning brúðusnillingsins Bernds Ogrodniks, Umbreyting – Ljóð á hreyfingu, sem var frumsýnd á Listahátíð í Reykjavík á liðnu […]

Helgileikur um Jósef frá Nasaret

Sunnudaginn 3. desember klukkan 18.00 frumsýnir leikhópurinn Peðið söngleikinn Jólapera – helgileikurinn um Jósef frá Nasaret, á Grand Rokk. Jólapera er þriðja leikverkið sem Peðið setur upp en áður hefur hópurinn sýnt leikritið Lamb fyrir tvo og söngleikinn Barpera. Báðar sýningarnar voru liður í Menningarhátíð Grand Rokk en leikhópurinn samanstendur af fastagestum og velunnurum staðarins. […]

Ráðskona Bakkabræðra í Hafnarfirði

Laugardaginn 2. desember frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar gamanleikinn Ráðskona Bakkabræðra eftir norska leikskáldið Oskar Braaten. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson og taka 12 manns þátt í sýningunni. Leikfélag Hafnarfjarðar heldur nú í ár upp á 70 ára afmæli sitt og í tilefni af því var sýnt nýtt íslenskt verk, Hin endanlega hamingja, eftir Lárus Húnfjörð, í byrjun […]

Höfundur Herra Kolbert til Íslands

David Gieselmann, höfundur Herra Kolberts, er væntanlegur til Íslands til að sjá rómaða uppfærslu á leikriti sínu hjá LA. Verk Gieselmanns hafa verið sýnd um allan heim en Herra Kolbert er hans þekktasta verk en það hefur verið sýnt um nær alla Evrópu auk Bandaríkjanna, Ástralíu og Suður Ameríku. Gieselmann þáði boð um að koma […]

Brot af því besta

Upplestrakvöld eru orðin fastir liðir í Borgarleikhúsinu á aðventunni. Rithöfundar munu þetta árið lesa úr verkum sínum fimmtudagskvöldið 30. nóvember kl. 20.00 og fimmtudagskvöldið 7. desember kl. 20.00.   Fimmtudagskvöldið 30. nóvember lesa höfundarnir: Auður Jónsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Árni Þórarinsson, Bragi Ólafsson, Einar Már Guðmundsson og Sigurjón Magnússon úr verkum sínum. Fimmtudagskvöldið 7. desember er […]

Æfingar hafnar á Svörtum ketti hjá LA

Hafnar eru æfingar á leikritinu Svartur köttur eftir Martin McDonagh. Leikritið er margverðlaunað og hefur víða vakið verðskuldaða athygli. Sömu sögu er að segja um fyrri verka McDonaghs, s.s. Koddamaðurinn, Halti Billi og Fegurðardrottningin frá Línakri sem öll hafa verið sýnd hérlendis. Frumsýning verður 20. janúar hjá LA í Samkomuhúsinu en þá eru liðin 100 […]

Maður í mislitum sokkum

Leikdeild Umf. Íslendings er þessa dagana að sýna gaman-farsann Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman.  

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir Varaðu þig á vatninu

Miðvikudagskvöldið 22. nóvember klukkan 20:00 verður leikritið Varaðu þig á vatninu eftir Woody Allen frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson og taka átta leikarar þátt í sýningunni. Leikritið gerist á tímum kalda stríðsins og fjallar um bandaríska fjölskyldu sem leitar skjóls í bandaríska sendiráðinu í Vúlgaríu eftir að hafa tekið þar ljósmyndir […]

Smiður jólasveinsins í Möguleikhúsinu

Möguleikhúsið er um þessar mundir að hefja að nýju sýningar á barnaleikritinu Smiður jólasveinanna, eftir Pétur Eggerz. Leikritið var fyrst sýnt fyrir jólin 1992 og hefur allar götur síðan notið mikilla vinsælda, var m.a. gefið út á geisladiski fyrir jólin 1993. Í leikritinu segir frá Völundi gamla sem situr í litla kofanum sínum hátt upp […]

Hnerrinn æfður á Selfossi

Æfingar eru hafnar af fullum krafti hjá Leikfélagi Selfoss í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið sem um ræðir heitir Hnerrinn og er blanda sjö ótengdra leikþátta og leikgerðra smásagna eftir Anton Chekov. Meðal verkanna eru þekktir þættir á borð við Björninn og Bónorðið en einnig er þarna að finna leikþætti sem ekki hafa áður verið […]

Nemendaleikhúsið sýnir Blóðbrullaup

Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands æfir nú sýninguna Blóðbrúðkaup eftir F.G.Lorca. Þetta er annað verkefni vetrarins og er frumsýning 24.nóvember n.k. á Litla Sviði Borgarleikhússins en sýningin stendur til 10.desember. Blóðbrúðkaup er allt í senn – blanda af hreinræktuðu raunsæi, ljóðlist og ævintýri. Harmsaga um ástir og hefndir í óbilgjarnri veröld sem endurtekur grimmdarverk og  fávisku ætt […]

Jólaleikrit í Borgarleikhúsinu

Miðvikudaginn 22.nóvember frumsýna BORGARBÖRN jólaleikritið Réttu leiðina á Nýja sviði Borgarleikhússins. Borgarbörn er nýstofnað barna og unglingaleikhús Sönglistar og Borgarleikhússins og það eru hvorki fleiri né færri en 22 börn/unglingar sem taka þátt í hverri sýningu. Þess má geta að í tengslum við sýninguna verður tekið á móti jólapökkum sem Borgarbörn munu afhenda Rauða krossinum, […]

Síðustu sýningar á Þjóðarsálinni

Nú eru einungis tvær sýningar eftir á hinni karnivalísku leiksýningu Þjóðarsálinni. Þær verða fimmtudaginn 23. nóvember og föstudaginn 24. nóvember kl. 20.00 í Reiðhöll Gusts í Kópavogi, nánar tiltekið í Álalind 3. Sýning þessi hefur vakið mjög sterk viðbrögð áhorfenda sem og gagnrýnenda. Fimm leikarar fara með stór hlutverk, þau Árni Pétur Guðjónsson, Árni Salomonsson, […]

Hugleikur hlýtur viðurkenningu á degi íslenskrar tungu

Menntamálaráðherra veitti í gær leikfélaginu Hugleik sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu. Formaður félagsins tók við viðurkenningunni við athöfn í Hjallaskóla í Kópavogi í dag. Viðurkenningin var veitt í tengslum við verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem eru veittþann 16. nóvember, ár hvert. Þau voru nú veitt í 11. sinn. Áður hafa 19 aðilar fengið sérstakar […]

Umfjöllun um Listina að lifa

Sigurður Ingólfsson brá sér á frumsýningu hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs um helgina. Hann hafði þetta að segja: Um helgina var frumsýnt á Iðavöllum nýtt leikrit eftir ungan höfund, Listin að lifa. Þetta er góð sýning og vel uppfærð. Þarna eru þrír leikarar sem skila sínu afskaplega vel. Það að skrifa leikrit um mannsæfi er stórt verkefni […]

Herra Kolbert einungis á Akureyri

Vegna fjölda fyrirspurna og áskorana vill LA koma eftirfarandi á framfæri: Engin áform eru uppi um að sýna Herra Kolbert né næstu uppsetningar LA í Reykjavík. Uppsetningunni á Herra Kolbert hefur verið afar vel tekið og verður hún sýnd á Akureyri í nóvember og desember. Síðasta sýning á Herra Kolbert verður 16. desember.  

Hvers vegna láta konurnar svona?

Námskeið á vegum Þjóðleikhússins um Bakkynjur eftir Evripídes í nýrri og glæsilegri þýðingu Kristjáns Árnasonar sem m.a. styðst við nýgríska útgáfu af leiknum eftir gríska heimspekinginn og ljóðskáldið Giorgos Chimonas. Bakkynjur eru nú settar upp í fyrsta sinn á Íslandi og eru jafnframt jólasýning Þjóðleikhússins. Frumsýning er 26. desember n.k.

Sambúðarverkir frumsýndir á Dalvík

Nú er komið að frumsýningu á nýju leikverki hjá Leikfélagi Dalvíkur. Yfirheiti verksins er Sambúðarverkir, en verkið samanstendur af fimm einþáttungum sem allir eru skrifaðir af leikskáldum úr Dalvíkurbyggð. Þættirnir eiga það sameiginlegt að þeir gerast í raðhúsi og það á einum og sama deginum. Höfundar einþáttunganna eru sex: Lovísa María Sigurgeirsdóttir, Freyr Antonsson, Júlíus […]

Ristruflanir í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið setur upp sýninguna „Ristruflanir“ í Freyvangi 10. og 11. nóvember. Eyjafjarðarsveit er sveitarfélag í hröðum vexti, en þegar allt á að gerast í einu, koma upp vandamál… svonefndar ristruflanir. Sveitarstjórinn tekst á við Pólverja og morgunsvæfa vinnumenn úr sveitinni, á meðan Sporvagninn Girnd ferðast um svæðið og selur karlmönnum misblátt efni, þeim til dægrastyttingar. […]

Verðlaun í Stuttverkasamkeppni afhent

Verðlaun í í Stuttverkasamkeppni Leiklistarvefsins voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjónustumiðstöð Bandalagsins í dag. Fyrstu verðlaun hlaut Helga Hreinsdóttir fyrir verkið Undinn upp á þráð – bráð en hún skrifaði undir dulnefninu Nóra. Jöfn í 2. og 3. sæti voru þau Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson með verkið Kaffi og með því og Hrefna Friðriksdóttir með […]

Leiklestur í Borgarleikhúsinu

Nú fara í hönd leiklestrar á úrslitaverkum úr samkeppni Borgarleikhússins, Sakamál á svið. Núna á sunnudaginn, 12. nóvember, verður fyrsta verkið lesið. Það er leikritið Engu að tapa eftir Jónínu Leósdóttur og Gunnar H. Jónsson. Lesturinn fer fram á þriðju hæð Borgarleikhússins og hefst klukkan 17.00. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir, en leiklesendur verða: Hildigunnur Þráinsdóttir, […]

Aukasýningar í Austurbæ

Breska leikritið Danny and deep blue sea fékk feikigóðar undirtektir um síðustu helgi í Austurbæ og vegna fjölda áskoranna verða tvær aukasýningar á laugardaginn 11. nóvember kl. 20 og 22. Danny and the deep blue sea er eftir John Patrick Shanley í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Verkið verður sýnt í nýuppgerðu “black-box”  rými á efri […]

Frumsýning á Iðavöllum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs heldur upp á 40 ára afmæli sitt um þessar mundir. Félagið hefur starfað nær óslitið frá árinu 1966 og hefur verið snar þáttur í menningarlífi Austurlands í allan þann tíma. Á þessum afmælisvetri stefnir félagið að fjölbreyttri og öflugri starfsemi. Starfsemi leikársins hófst í sumar á sýningum á verkinu Miðsumarnæturdraumar í leikstjórn Guðjóns […]

Úrslit í samkeppni um sakamálaleikrit

Síðasta vor blés Borgarleikhúsið til samkeppni í ritun sakamálaleikrita undir yfirskriftinni "Sakamál á svið". Keppnin var styrkt af Spron. Úrslit í keppninni voru kunngjörð í gær. Sigurverkið verður sett upp í Borgarleikhúsinu á næsta leikári auk þess sem annað verk verður sett upp af Útvarpsleikhúsinu. Alls eru sex verk í úrslitum, en hin fjögur verða […]

Hugleikur segir sögur í Þjóðleikhúskjallaranum

Í fyrravetur gekk Hugleikur til samstarfs við Þjóðleikhúskjallarann og sýndi þar sjö sýningar undir nafninu Þetta mánaðarlega. Þar var um að ræða einþáttungasýningar, eitt klukkutímalangt óperuþykkni, eina klukkutíma leiksýningu, auk þess sem margar sýninganna voru kryddaðar með tónlist af ýmsu tagi. Verkefninu lauk síðan í maí með tónlistardagskrá þar sem rifjuð var upp tónlist úr […]

Dansleikhússport í Borgarleikhúsinu

‘Watch My Back’ er nýr dansleikhúshópur sem samanstendur af listamönnum LR og Íd, það eru þeir Peter Anderson dansari og danshöfundur, Guðmundur Elías Knudsen dansari og Björn Ingi Hilmarsson leikari sem leiða saman grínhesta sína. Dansleikhússport er ný tegund afþreyingarlistar. Hópurinn spinnur gamansamar senur með hjálp áhorfenda. Áhorfendur gefa leikurum/dönsurum stikkorð sem þeir spinna út […]

Maður í mislitum sokkum

Laugardaginn 4. nóvember frumsýnir Umf. Íslendingur leikritið Maður í mislitum sokkum, sem er gamanfarsi eftir Arnmund Backman. Þeir sem hafa gaman af góðu gríni ættu ekki að missa af þessu.

Höll ævintýranna í Möguleikhúsinu

Sunnudaginn 5. nóvember 2006 kl. 14:00 frumsýnir Möguleikhúsið við Hlemm nýtt barnaleikrit, Höll ævintýranna, eftir Bjarna Ingvarsson. Hér er á ferðinni leiksýning fyrir áhorfendur á aldrinum 2ja til 8 ára, þar sem börnin fá að taka virkan þátt í atburðarásinni og gleyma sér í heimi ævintýranna um stund.

Sakamál á svið

Kunngert verður um vinningshafa í leikritunarsamkeppni Borgarleikhússins og Spron “Sakamál á svið” fimmtudaginn 2.nóvember kl.18 í forsal Borgarleikhússins.

Kúlan, nýtt leiksvið Þjóðleikhússins

Þjóðleikhúsið opnar þann 4. nóvember næstkomandi nýtt leikrými, Kúluna, sem er helgað ungum áhorfendum og nýrri leikhúsreynslu. Kúlan er þar sem áður var Litla svið Þjóðleikhússins.

Listin að lifa

Leikfélag Fljótsdalshéraðs er þessa dagana að æfa leikritið „Listin að lifa“ eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttir. Leikritið er sérstaklega samið fyrir Leikfélag Fljótsdalshéraðs í tilefni af 40 ára afmæli leikfélagsins.