Author: lensherra

Höfundarréttur sviðsverka

Umboðsskrifstofan Nordiska ApS í samráði við Dansk Teaterforlag hefur unnið bækling um höfundarrétt sviðsverka. Bæklingurinn sem þýddur er af Hávari Sigurjónssyni gefur góða sýn yfir höfundarrétt og sýningarétt sviðsverka. Aðildarfélög BÍL sem og aðrir sem fást við sviðslistir eru hvattir til að ná í bæklinginn hér og kynna sér efni...

Sjá meira

Bakkabræður hjá Kómedíuleikhúsinu

Bakkabræður er bráðfjörug sýning um hina einu sönnu bræður frá Bakka þá Gísla, Eirík og Helga sem líklega eru með þekktustu klaufabárðum Íslandssögunnar. Í sýningunni eru kostuleg ævintýri Bakkabræðra sett í spaugilegan búning með töfrum brúðuleikhússins. Lögin í sýningunni eru sungin af Diddú við tónlist sem Björn Thoroddsen, gítarleikari, samdi og flytur. Marsibil G. Kristjánsdóttir hannar ævintýraheim leiksýningarinnar og gerir brúðurnar sömuleiðis. Leikari og þjónn brúðanna er Elfar Logi Hannesson, sem einnig er höfundur verksins ásamt Sigurþóri A. Heimissyni sem jafnframt leikstýrir. Bakkabræður er 49. leiksýning Kómedíuleikhússins og verður verkið frumsýnt þann 1. apríl nk. Sýningar halda áfram út páskana...

Sjá meira

Rúi og Stúi hjá Leikfélagi Kópavogs

Rúi og Stúi hafa smíðað vél sem getur allt. Hún getur búið til hluti, gert við hluti, gert afrit af hlutum og jafnvel gert nákvæma styttu af bæjarstjóranum. Eða hvað? Vélin bilar, bæjarstjórinn hverfur og dularfull kráka og enn dularfyllri stórþjófur koma öllu í uppnám. Hvað er til ráða annað en að baka sjálfur jólaköku? Fær Bergsteinn aðstoðarmaður sinn ástkæra bæjarstjóra aftur? Tekst Rúa og Stúa að gera við vélina?   Leikfélag Kópavogs frumsýndi barnaleikritið Rúa og Stúa sunnudaginn 14. mars síðastliðinn. Leikritið er eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson en leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Átta leikarar...

Sjá meira

Opið fyrir umsóknir í Leiklistarskóla BÍL

Opnað verður fyrir umsóknir í Leiklistarskóla BÍL 2021, sunnudaginn 14. mars kl. 16.00. Boðið er upp á 4 námskeið að þessu sinni. Námsskrána má sjá hér. Þeir nemendur sem fengu ekki að fullu endurgreitt staðfestingargjald þegar skólahald var fellt niður í fyrra eiga tryggt pláss en þurfa engu að síður að senda inn nýja umsókn. Umsóknarformið er aðgengilegt hér 14. mars. kl....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert