Möguleikhúsið er um þessar mundir að hefja að nýju sýningar á barnaleikritinu Smiður jólasveinanna, eftir Pétur Eggerz. Leikritið var fyrst sýnt fyrir jólin 1992 og hefur allar götur síðan notið mikilla vinsælda, var m.a. gefið út á geisladiski fyrir jólin 1993.

Í leikritinu segir frá Völundi gamla sem situr í litla kofanum sínum hátt upp til fjalla. Völundur er smiðurinn sem sér um að smíða allar gjafirnar sem jólasveinarnir færa börnunum á jólunum. Eftir að síðustu sveinarnir eru farnir til byggða er einmanalegt í kotinu. Þá birtast óvæntir gestir, tröllabörnin Þusa og Þrasi sem aldrei hafa heyrt talað um jólin og sjálfur jólakötturinn, sem er hættur að fara til byggða. Völundur tekur vel á móti þeim og saman rifja þau upp söguna af fæðingu Jesú. Þeim þykir sagan svo skemmtileg að þau ákveða að leika hana saman.

Smiður jólasveinanna verður sýndur í Möguleikhúsinu við Hlemm sunnudaginn 26. nóvember kl. 14:00 en sýningum síðan fram haldið í grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu.

Leikstjóri sýningarinnar er Pétur Eggerz, sem einnig hannaði leikmynd ásamt Bjarna Ingvarssyni, tónlist gerði Ingvi Þór Kormáksson og búningahönnuður Helga Rún Pálsdóttir. Leikarar eru Bjarni Ingvarsson, Ásta Sighvats Ólafsdóttir, Alda Arnardóttir og Pétur Eggerz.