Litið á Batnandi mann
Á fimmtánda starfsári sínu setur Halaleikhópurinn upp leikritið Batnandi maður eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn höfundar. Verkið segir sögu sjómannsins Sigmars sem lendir í vinnuslysi og ákveður að fá sig úrskurðaðan öryrkja í þeim tilgangi að njóta lífsins á kostnað skattgreiðenda. Það ætlunarverk tekst honum en rekur sig brátt á að líf öryrkjans er kannski […]
Sögustund í Kópavogi
Það er alltaf skemmtileg tilfinning að fara í leikhús og hafa ekki hugmynd um hvað bíður manns. Þó að vissulega geti brugðið til beggja vona þá er bara eitthvað svo heillandi við óvissuna, maður er einhvern veginn frjáls undan öllum fyrirfram væntingum og öll skilningarvit fara á fullt að meðtaka minnstu vísbendingar um hvað í […]
Leiklistardagar hjá Leikfélagi Siglufjarðar
Alþjóðasamtök leiklistarfólks, ITI, sem er ein af undirstofnunum UNESCO hafa frá 1962 haft 27. mars ár hvert sem Alþjóðlegan leiklistardag. Leiklistarsamband Íslands, sem er Íslandsdeild ITI, hefur frá stofnun sinni haldið upp á þennan dag og fengið hverju sinni málsmetandi listamann úr sínum röðum til að semja ávarp í tilefni dagsins. Að þessu sinni er […]
Martröð hjá Leikfélagi Kópavogs
Leikfélag Kópavogs á fimmtugsafmæli í ár og því er nóg um að vera á þeim bænum í vor. Félagið sýnir nú annað verk sitt á þessu ári. Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýndi í gærkvöldi, fimmtudag 22. mars, leikverkið Martröð. Verkið er byggt á Draumi á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare. Martröð er að miklu leyti unnin og […]
Frumsýning á Hofsósi
Leikfélag Hofsóss frumsýnir í kvöld 23. mars, gamanleikinn Ef væri ég gullfiskur! eftir Árna Ibsen í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Óhætt er að segja að Þröstur sé orðinn hagvanur í Skagafirðinum en hann hefur leikstýrt mörgum verkum hjá Leikfélagi Sauðárkróks en að þessu sinni tókst Hofsósingum þó að krækja í hann. Hlutverk í leikritinu eru 10 […]
Léttleiki í Lyngbrekku
Gísli Einarsson skrifar: Góðir farsar eru alltaf kærkomin glæta í skammdeginu. Nóg er af hörmungum og leiðindum í heiminum sem oftar en ekki rata síðan á leiksvið og þykir reyndar fínt. Ég er hinsvegar þeirrar skoðunar að leikverk eigi fullan rétt á sér og vel það þó þau skilji ekkert annað eftir sig en óminn […]
Power of love í Austurbæ
Power of Love er komið aftur til landsins eftir leikferð til Króatíu og Slóveníu. Sýningar hefjast að nýju í mars, dagana 23., 24., 29. og 30. mars, í Silfurtunglinu í Austurbæ. Sýningar hefjast allar klukkan 20:00. Ath. Aðeins þessar 4 sýningar. Miðasala er í Austurbæ frá 13:00-17:00 og í síma 551-4700, einnig er hægt að […]
Leikhúsdagar í Þjóðleikhúsinu
Alþjóðasamtök leiklistarfólks, ITI, sem er ein af undirstofnunum UNESCO hafa frá 1962 haft 27. mars ár hvert sem Alþjóðlegan leiklistardag. Leiklistarsamband Íslands, sem er Íslandsdeild ITI, hefur frá stofnun sinni haldið upp á þennan dag og fengið hverju sinni málsmetandi listamann úr sínum röðum til að semja ávarp í tilefni dagsins. Að þessu sinni er […]
Leikskáld athugið!
Leikfélag Akureyrar hyggst ráða eitt til tvö leikskáld til að skrifa handrit að leikverki fyrir leikhúsið. Stefnt er að uppsetningum á árunum 20082010. Áhugasamir sendi hugmynd að leikverki til leikhússins ásamt ferilskrá höfundar fyrir 25. apríl n.k. merkt leikskáld. Leikskáld sem starfa fyrir Leikfélag Akureyrar, starfa skv. kjarasamningi leikhússins og Rithöfundasambands Íslands. Nú þegar […]
Ávarp á alþjóðlega Barnaleikhúsdeginum
20. mars 2007. Það verður aldrei lögð of mikil áhersla á það hversu mikilvægt gott leikhús er fyrir börn. Börn eiga ekki auðvelt með að segja okkur hvers vegna þau eru reið, hrædd eða fyrir hvað þau skammast sín og við eigum stundum erfitt með að giska á það. Vandaðar leiksýningar og góðar sögur eru […]
Hugleikur frumsýnir Epli og eikur
Epli og eikur er gamanleikur með söngvum sem Hugleikur frumsýnir í Möguleikhúsinu föstudaginn 23. mars. Höfundur er Þórunn Guðmundsdóttir og leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson. Verkið fjallar um ástir og áhugamál nokkurra einstaklinga sem tengjast ýmsum böndum. Hin margslungnu samskipti persónanna þróast á fyndinn og blæbrigðaríkan hátt þar sem ýmsum brögðum er beitt við persónusköpun […]
Viltu tjá þig?
Nú hefur þeim möguleika verið bætt við hér á vefnum að lesendur geta hafið umræður á spjallborði, beint út frá tilteknum fréttum eða greinum. Ef smellt er á Lesa meira… neðan við grein er hún öll birt og neðst má þá sjá tengil sem opnar nýtt innlegg á spjallborði um greinina. Ef umræða er þegar […]
Ævintýri og leikgleði
Ungmennafélögin Baldur, Samhygð og Vaka í Flóahreppi, frumsýndu í félagsheimilinu Þingborg um helgina gleðileikinn Draumur á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare í leikstjórn Gunnars Sigurðssonar. Verkið fjallar um elskendur sem lenda í veseni og misskilningi og álpast inn í töfraskóg þar sem álfurinn Bokki stríðir þeim svo um munar. Inn í flækjuna blandast flokkur handverksmanna sem […]
Þið munið hann Jörund, á Hólmavík
Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Þið munið hann Jörund 24. mars næstkomandi í Félagsheimilinu á Hólmavík. Leikstjóri er Skúli Gautason, en hann hefur leikstýrt tveimur uppsetningum hjá leikfélaginu áður, Sex í sveit og Tobacco Road. Æfingar hafa gengið vel. Þó létu leikarar sig ekki muna um að eyða einni nótt á æfingatímabilinu uppi á Steingrímsfjarðarheiði. Þar voru […]
Ímyndunarveikin eða Þögn Molières
Þjóðleikhúsið hefur í samvinnu við Pourquoi Pas Franskt vor á Íslandi boðið hingað til lands gestaleik á einu af vinsælustu verkum franskra leikbókmennta, Ímyndunarveikinni eftir Molière. Einn af áhugaverðustu leikstjórum Frakka af yngri kynslóðinni, Arthur Nauzyciel, leikstýrir sýningunni. Sýningin hefur hlotið mikið lof og verið sýnd víða um Frakkland og í Rússlandi á undanförnum […]
Nú fljúga hvítu englarnir í Logalandi
SÍðastliðna helgi opnaði Ungmennafélag Reykdæla kaffileikhús sitt í Logalandi. Á dagskrá eru tveir einþáttungar, Flugfreyjuþáttur og Er það ég eftir Kristínu Gestsdóttur, nokkur sönglög úr smiðju Magnúsar Eiríkssonar og rúsínan í pylsuendanum er svo leikritið Nú fljúga hvítu englarnir eftir Örnólf Guðmundsson ráðsmann í Reykholti. Leikritið segir frá fullorðnum sveitapresti, nokkuð ölkærum, og samskiptum hans […]
Himnaríki í Eyjum
Leikfélag Vestmannaeyja er nú á fullu að æfa Himnaríki eftir Árna Ibsen, í leikstjórn Jóns Inga Hákonarsonar Þetta er skemmtilegt og krefjandi verk fyrir leikarana en tveir þeirra eru að stíga sín fyrstu skref á sviði. Æfingarnar ganga mjög vel og er áætlað að frumsýna þann 5. apríl n.k. í Bæjarleikhúsinu í Vestmannaeyjum. Einnig er […]
Masterclass í söng og raddbeitingu
Leikfélag Selfoss býður upp á áhugavert söng- og raddbeitingarnámskeið dagana 14.-15. apríl í Litla leikhúsinu við Sigtún. Kennari verður Kristjana Stefánsdóttir, djasssöngkona og söngkennari, en Kristjana kennir söng við FÍH, ásamt því sem hún hefur unnið við raddþjálfun leikara bæði í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Núna síðast vann hún við raddþjálfun í sönleiknum Leg, sem nýlega […]
Leiklistarskóli Bandalagsins 2007
Starfstími skólans á þessu ári er frá 9. til 17. júní að Húsabakkaskóla í Svarfaðardal og helgarnar 12. til 14. og 26. til 28. október í Reykjavík. Boðið er upp á þrjú námskeið í Svarfaðardalnum, Leiklist I, kennari Ágústa Skúladóttir, sérnámskeið fyrir leikara, kennari Stephen Harper og sérnámskeið fyrir leikstjóra, kennari Egill Heiðar Anton Pálsson. […]
Örleikritakeppni fyrir framhaldsskólanema
Í fjórða sinn standa leiklistardeild LHÍ og fræðsludeild Þjóðleikhússins nú sameiginlega að leikritunarsamkeppni fyrir framhaldsskólanema. Örleikrit er einfaldlega mjög stutt leikrit, og verður í þessu tilfelli að uppfylla eftirtalin skilyrði: Lengd: Hámark 10 mínútur. Lágmark 5 mínútur (u.þ.b. 2-4 bls.) Leikarar: 3 eða færri. Leikmynd: Gamall 1 m. hár skápur ekkert annað. Leikmunir: Engir
Sex í sveit í Borgarnesi
Föstudaginn 9.mars frumsýnir Leikdeild UMF Skallagríms í Borgarnesi gamanleikritið Sex í Sveit. Verkið verður sýnt í félagsheimilinu Lyngbrekku. Sex leikarar taka þátt í sýningunni og leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Leikdeildin hefur verið á miklum hrakhólum undanfarin 7 ár og hrakist milli gamalla iðnaðarhúsa í Borgarnesi. Sökum þess hefur ekki verið tækifæri á að setja upp […]
Ást, 10. mars
Laugardaginn 10.mars frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur í samvinnu við Vesturport söngleikinn ÁST á Nýja sviði Borgarleikhússins. Söngleikurinn er eftir þá Gísla Örn Garðarsson og Víking Kristjánsson. Sagan fjallar um ástir og daglegt líf heimilismanna á elliheimili. Nína eldri kona utan af landi kemur í skammtímavistun á elliheimili í höfuðborginni, fyrir tilstuðlan ábyrgðarfulls sonar. Vistin hefur […]
Er allt að verða vitlaust?
Fimmtudaginn 8. mars verður nýr íslenskur söngleikur, Leg eftir Hugleik Dagsson og Flís, frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Leg gerist í Garðabæ í náinni framtíð. Kata er ung stúlka í fjölbraut, lífið leikur við hana, hún er sæt, sjálfstæð og hress. Á 19 ára afmælisdaginn nákvæmlega klukkan 13.30 síðdegis gerist þetta: […]
Skámáni sýnir Killer Joe
Leikhúsið Skámáni sýnir um þessar mundir verkið Killer Joe eftir Tracy Letts í Borgarleikhúsinu. Leikritið lýsir sérkennilegri fjölskyldu í Bandaríkjunum, sem býr við bág kjör en elur með sér drauma um betra líf og grípur til örþrifaráða til að sjá drauma sína rætast. Verkið hefur verið sýnt í um þrjátíu löndum og hvarvetna vakið mikla […]
Draumur í Þingborg
Að undanförnu hafa ungmennafélagar í Flóahreppi, úr Umf. Baldri, Samhygð og Vöku unnið að uppsetningu á gamanleiknum Draumur á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare. Leikstjóri er Gunnar Sigurðsson. Þessi þrjú félög sem starfa í austanverðum Flóanum eru rótgróin ungmennafélög með langa sögu og sterka hefð. Umf. Samhygð í Gaulverjabæjarhreppi og Umf. Baldur í Hraungerðishreppi voru bæði […]
Emil á Hvammstanga
Hann Emil í Kattholti er kominn á Hvammstanga með öll sín skammarstrik. Að sjálfsögðu fylgir öll fjölskyldan úr Kattholti með í kaupunum og þau taka líka á móti gestum. Leikflokkurinn á Hvammstanga frumsýndi Emil í Kattholti föstudaginn 2. mars kl. 20:00 í félagsheimili Hvammstanga. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir.
Inntökupróf í Rose Bruford College
Nú í mars fara fram inntökupróf í allar deildir Rose Bruford College í London, hér á landi. Prófin fara fram 17. og 18. mars.
Allt & ekkert frumsýnt í kvöld
Undanfarnar vikur hafa staðið yfir æfingar á ÖLLU & ENGU hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið hafði í upphafi vinnuheitið EKKERT og eins og það gefur til kynna byrjaði hópurinn með EKKERT í höndunum. EKKERT handrit. EKKERT haldreipi. Það var upphafið að ÖLLU & ENGU. Hópurinn, sem er samansettur af jafnt gömlum sem nýjum meðlimum LK, hefur […]
Herranótt Molnar
Herranótt er elsta leiklistarstofnun landsins. Að leiksýningum undir þessu nafni hafa ungmenni staðið allt frá átjándu öld. Nú setur þetta rótgróna félag upp sína 162. sýningu. Og eldist vel. Virðist satt best að segja bara ekki eldast neitt. Verkið er frá 1906, Liliom eftir Molnár. Það hefur einnig gengið í endurnýjun lífdaga, eins og félagið […]
Gott kvöld með Prímadonnum í Eyjafjarðarsveit
Föstudagskvöldið 23.febrúar síðastliðið frumsýndi Freyvangsleikhúsið leikritið Prímadonnurnar eftir Ken Ludwig í þýðingu Sögu Jónsdóttur sem einnig leikstýrir verkinu. Þetta er í fyrsta skipti sem þetta verk er sett upp hér á landi. Freyvangsleikhúsið er eitt besta áhugaleikfélagið á landinu. Félagið hefur á að skipa afar góðan leikhóp, mjög góða og reynda leikara sem hafa verið […]
Örverkasamkeppni fyrir ungt fólk
Febrúar er mánuður unga fólksins hjá Borgarleikhúsinu. Af því tilefni efnir Borgarleikhúsið til örleikritunarsamkeppni fyrir ungt fólk. Skorað er á fólk undir 25.ára og námsmenn að prófa að nota leikhúsið sem farartæki fyrir skoðanir, tilfinningar og/eða hugsanir sínar. Vinningshafinn fær að launum árskort í leikhúsið fyrir tvo.
Leikfélag Hveragerðis sextugt
Leikfélag Hveragerðis heldur upp á 60 ára afmæli sitt um þessar mundir. Í tilefni þess mun leikfélagið frumsýna þann 24. febrúar n.k. rokkóperuna Jesus Christ Superstar eftir Tim Rice og Andrew Loyd Webber. Leikstjórar eru Jón Ingi Hákonarson og Laufey Brá Jónsdóttir. Alls taka 17 leikarar þátt í sýningunni og fjögura manna rokkhljómsveit sér um […]
Aukasýningar í Borgarleikhúsinu
Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við aukasýningum á Mein Kampf og Alveg brilljant skilnaði í Borgarleikhúsinu. Báðar sýningarnar hafa gengið fyrir fullu húsi frá því sýningar hófust en nú hafa verið sýndar yfir 120 sýningar af Brilljant skilnaði í Borgarleikhúsinu og Mein Kampf er löngu komið yfir áætlaðan sýningarfjölda. Það eina neikvæða við […]
Leiklist óskast!
Búið er að gera góða leiklistaraðstöðu í menningarmiðstöðinni Þjórsárveri í Flóanum. Mótuð hefur verið metnaðarfull menningarstefna sem mun birtast á vefsíðu Þjórsárvers fljótlega. Meðal árvissra viðburða er hin vinsæla og þekkta Tónahátíð í Þjórsárveri. Listakaffi Þjórsárvers er starfrækt á sumrin, með listasýningum af ýmsu tagi. Fjör í Flóanum er árviss menningarviðburður á hverju vori og […]
Eilíf hamingja til Berlínar
Uppfærslu Hins lifandi leikhús á nýju íslensku leikverki þeirra Andra Snæs Magnasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar hefur verið boðið til hina virta Maxim Gorkí leikhúss í Berlín í næstu viku. Verkið hefur hlotið gríðargóðar viðtökur hér heima. Uppselt hefur verið á allar sýningar til þessa og hafa gagnrýnendur keppst við að lofa það og uppfærslu […]
Prímadonnurnar í Freyvangsleikhúsinu
Föstudaginn 23. febrúar næstkomandi verður gamanleikurinn Prímadonnurnar Íslandsfrumsýndur í Freyvangi, Eyjafjarðarsveit. Verkið er eftir Ken Ludwig, en hann hefur getið sér gott orð sem gamanleikskáld í Bandaríkjunum og hafa verk hans einnig verið sýnd víða um heim. Leikstjóri er hin góðkunna Saga Jónsdóttir, en hún þýðir einnig verkið. Þá er Þórarinn Blöndal hönnuður leikmyndar og […]
Bar par á Nasa
Frumsýning á hinum frábæra gamanleik Bar par eftir Jim Cartwright verður föstudaginn 23. febrúar kl. 20 á Nasa við Austurvöll. Sögusvið verksins er ónefndur bar sem er frægur fyrir ,,að annað hvort kemur fólk í pörum eða það fer í pörum". Áhorfendur fá tækifæri til að sjá og upplifa eina kvöldstund í lífi hjónanna sem […]
Batnandi maður frumsýndur hjá Halaleikhópnum
Í ár heldur Halaleikhópurinn upp á 15 ára afmæli sitt. Í tilefni af því frumsýnir hópurinn nú nýtt íslenskt verk. Leikritið heitir Batnandi maður og er eftir Ármann Guðmundsson sem jafnframt er leikstjóri. Frumsýnt verður laugardaginn 24. febrúar í Halanum, Hátúni 12.
Pétur og úlfurinn í Þjóðleikhúsinu
Laugardaginn 17. febrúar hefjast sýningar á Pétri og úlfinum eftir Sergei Prokofief í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu. Hér er um að ræða brúðusýningu snillingsins Bernds Ogrodniks sem er íslenskum leikhúsgestum að góðu kunnur eftir áralangt starf. Bernd smíðar allar brúðurnar og leikmyndina úr linditré og íslensku birki og stjórnar þeim í litríkri og spennandi sýningu. Helga […]
Síðustu sýningar á Hnerranum á Selfossi
Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir gamanverkið Hnerrann eftir Anton Chekov, sjö þætti og smásögur í leikgerð Michael Frayn. Leikstjóri og þýðandi er Hörður Sigurðarson. Þeir sem hafa áhuga á að sjá þetta stórskemmtilega verk ættu að drífa sig í Litla leikhúsið við Sigtún á Selfossi, því sýningum fer fækkandi. Síðustu sýningar verða sem hér […]
