Föstudaginn 19. janúar frumsýnir Þjóðleikhúsið Sælueyjuna eftir Jacob Hirdwall í leikgerð Maríu Ellingsen og Grétu Maríu Bergsdóttur í Kassanum.
Hér er á ferðinni heimsfrumsýning á glænýju verki sem gerist á Íslandi og fjallar um siðferðileg álitamál í okkar samtíma.

Kaldan haustmorgun finnst maður uppi á hálendinu nær dauða en lífi. Hann krefst þess að ná tali af Arnari Hallgrímssyni, umdeildum forstjóra íslenska erfðagreiningarfyrirtækisins Genome Genetics. Maðurinn trúir Arnari fyrir mikilvægu leyndarmáli. Tekla, ung og metnaðarfull vísindakona, er ráðin til Genome. Flókinn vefur spinnst um þau þrjú og brátt er framtíð mannkyns í húfi.  

Hvort sem leikritið er kallað vísindaskáldskapur, framtíðartryllir eða einfaldlega ástarsaga þá er hér um að ræða verk sem tekst á við áleitnar spurningar.
Hvernig förum við með þá þekkingu sem við öðlumst og hversu langt er maðurinn tilbúinn að ganga í leit að heilbrigði, lækningu eða jafnvel eilífu lífi? Er Ísland sælueyjan sem fjallað er um í verkinu?
Verkið gerist á Íslandi og því eiga sumar persónur þess og atburðir án efa eftir að koma áhorfendum kunnuglega fyrir sjónir.

Jacob Hirdwall er fæddur árið 1967. Hann hefur starfað sem dramatúrg, leikskáld, þýðandi, leikstjóri, fyrirlesari, menningarblaðamaður og leikari. Hann hefur unnið við yfir 75 verkefni í kvikmyndum, sjónvarpi og leikhúsi. Á undanförnum tólf árum hefur hann unnið sem dramatúrg við ýmis leikhús í Svíþjóð, meðal annars Borgarleikhúsið í Gautaborg og Borgarleikhúsið í Stokkhólmi, og Leiklistarháskólann í Stokkhólmi. Frá árinu 2001 hefur hann starfað við Konunglega leikhúsið í Stokkhólmi. Ásamt Stefan Larsson leikstjóra endurreisti hann árið 2003 Elverket eða Rafstöðina, tilraunaleikhús Konunglega leikhússins, og stýrði þar leikskáldahópi árin 2003-2006. Jacob stofnaði Växthuset eða Gróðurhúsið, samtök sem vinna að því að efla samtímaleikritun í Svíþjóð. Jacob hefur meðal annars þýtt leikrit eftir Philip Ridley, David Harrower, Eugene O’Neill, Tennessee Williams, Sarah Kane, Arthur Miller og Zinnie Harris.

Leikstjórn
María Ellingsen

Leikgerð
Gréta María Bergsdóttir
María Ellingsen

Leikmynd og búningar
Snorri Freyr Hilmarsson

Ljósa- og myndbandshönnun
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Gideon Kiers

Dramatúrg
Gréta María Bergsdóttir

Höfundur
Jacob Hirdwall

Þýðing
Salvör Aradóttir

Tónlist
Ólafur Björn Ólafsson

Leikarar
Anna Kristín Arngrímsdóttir
Atli Rafn Sigurðarson
Baldur Trausti Hreinsson
Elma Lísa Gunnarsdóttir
Hjálmar Hjálmarsson
Kristján Franklín Magnús
Sólveig Arnarsdóttir
Þórunn Erna Clausen