Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin í fimmta sinn nú í júní. Dansleikhús er nýtt og vaxandi listform en  tilgangur keppni af þessu tagi er að  styðja undir þetta form, kanna möguleika þess og veita listamönnum tækifæri til að kynnast greininni betur. Mikill áhugi er á dansleikhúsi meðal listamanna þvert á listgreinarnar en umsækjendur hafa verið úr myndlist, tónlist, dansi og leiklist. Síðastliðið ár bárust rúmlega þrjátíu hugmyndir í keppnina. Keppnin hefur verið geysi vinsæl meðal fagfólks en ekki síst hjá áhorfendum og erfitt getur verið að næla sér í miða á þennan skemmtilega viðburð, sem ár eftir ár er uppseldur langt fram í tímann. Góður grunnur hefur verið lagður að samkeppninni og er það vilji beggja liststofnana að festa keppnina enn frekar í sessi og taka skref í áttina að enn öflugra dansleikhúsi á Íslandi.

 

Nú hafa LR og Íd stofnað sameiginlegt dansleikhús. Dansleikhúsið er eðlilegt framhald af samkeppninni, en framúrskarandi þátttakendum keppninnar gefst nú kostur að vinna áfram að sínum hugmyndum með hópi listafólks úr röðum Leikfélagsins og Dansflokksins. Dansleikhúsið hóf göngu sína í desember og völdust tveir höfundar til að leiða fyrsta verkefni dansleikhússins Marta Nordal leikkona og Peter Anderson, dansari og danshöfundur. Marta er sigurvegari dansleikhús/samkeppninnar 2006  en Peter hefur átt verk í keppninni frá upphafi og hefur unnið til verðlauna,  þá hefur hann samið verk fyrir Íslenska dansflokkinn, Reykjavík dansfestival ofl.. Fjórir dansarar og fjórir leikarar taka þátt í verkefninu sem verður frumsýnt þann 7. júní sama kvöld og danleikhús/samkeppnin 2007 fer fram, en almennar sýningar á verkinu verða í haust. Spron hefur verið dyggur stuðningsaðili dansleikhússamkeppninnar frá upphafi.

Nú efna Leikfélagið og Íslenski dansflokkurinn til samkeppni um nafn á þetta nýstofnaða dansleikhús. Þeir sem hafa áhuga á að senda inn tillögur geta nálgast allar upplýsingar á heimasíðu Borgarleikhússins, www.borgarleikhus.is.