Leiklistarnámskeið fyrir ungt fólk
Bandalag norskra leikfélag heldur nú í þriðja sinn sumarskóla í leiklist fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára. Skólinn er á vegum ungliðasamtaka norrænu leikfélagana, NUTU. Í þetta sinn verður hann haldinn í Ringerike lýðháskólanum í Hønefoss. Skólinn er staðsettur í göngufæri við miðbæjar smábæjarins Hønefoss sem er í um klukkustundar akstursfjarlægð frá […]
Kveðja frá Guðrúnu Höllu, fráfarandi formanni Bandalagsins
Kæru vinir og félagar! Að afstöðnu mjög velheppnuðu bandalagsþingi á Hallormsstað langar mig að þakka ykkur sem þar voruð ánægjulega samveru og samvinnu um helgina og falleg orð í minn garð. Ykkur, sem ekki áttuð heimangengt sem og þeim heppnu sem voru á Hallormsstað, vil ég þakka afar ánægjuleg samstarf og samveru í bandalagsstarfinu síðustu […]
Aðsóknarmet hjá Leikfélagi Hörgdæla
Uppfærsla Leikfélags Hörgdæla á söngva- og gamanleiknum Síldin kemur og síldin fer eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur hefur slegið í gegn. Uppselt hefur verið á 17 sýningar af 20 og áhorfendametið hefur verið slegið, tæplega 1.900 manns hafa nú þegar séð sýninguna.
Fréttir af aðalfundi Bandalagsins
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga var haldinn um síðustu helgi. Að þessu sinni bauð Leikfélag Fljótsdalshéraðs Bandalaginu heim, og var fundurinn því haldinn að Hallormsstað á Fljótsdalshéraði. En Leikfélg Fljótsdalshéraðs átti einmit 40 ára afmæli á liðnu leikári. Fundinn sóttu um 40 manns frá 14 leikfélögum og þykir miður að áhugi virðist fara dvínandi á því […]
Athygliverðasta áhugaleiksýning ársins – Umsögn dómnefndar
Dómnefnd Þjóðleikhússins hefur valið sem áhugaverðustu áhugaleiksýninguna 2006-2007 Listina að Lifa, sýningu Leikfélags Fljótsdalshéraðs á verki Sigríðar Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga, Hallormsstað. Greinargerð dómnefndar má lesa hér.
Leikfélagið Sýnir 10 ára!
Leikfélagið Sýnir heldur upp á 10 ára afmæli sitt í sumar. Á þessum merku tímamótum vantar fólk til að halda uppi merki félagsins en öll þessi ár hefur verið leikið á sumrin og sýnt úti undir berum himni auk þess að fara í leikferðir um landið. Síðast en ekki síst hefur verið farið í Svarfaðardalinn […]
Síðustu sýningar á Bingó!
Síðustu vikurnar hafa Hugleikur og Leikfélag Kópavogs sýnt leikritið Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur í Hjáleigunni í Félagsheimili Kópavogs. Nú standa þar fyrir dyrum stórframkvæmdir, sem fela meðal annars í sér að Hjáleigan verður rifin. Ljóst er að það þarf að aflýsa nokkrum áður auglýstum sýningum á Bingó. Sýningar falla niður frá og með 3. maí. […]
Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins
Þá er komið að hinu árlega vali Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins. 10 verk hafa sótt um að koma til greina að þessu sinni. Valið verður að venju tilkynnt á hátíðarkvöldverði á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga, sem að þessu sinni verður haldið á Hallormsstað. Helmingur verkanna sem í ár koma til greina er frumsaminn. Við […]
Lokasýning á Þið munið hann Jörund á Hólmavík
Laugardaginn 28. apríl n.k. verður lokasýning á ævintýraverkinu "Þið munið hann Jörund" í félagsheimilinu á Hólmavík. Reiknað er með gargandi stemmingu þetta kvöld og fullu húsi gesta. Áhugasömum er þess vegna bent á að panta miða á sýninguna í síma 865-3838. Í tilefni dagsins vill Leikfélagið bjóða einn frían drykk með hverjum keyptum miða. Geta […]
Sex í sveit á Sauðárskróki
Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir gamanleikinn Sex í sveit eftir Marc Camoletti í Bifröst á Sauðárkróki sunnudaginn 29. apríl kl. 21:00. Ensk leikgerð er eftir Robin Howdon, íslenskun og staðfæring er eftir Gísla Rúnar Jónsson en leikstjórn er í höndum Jóns Stefáns Kristjánssonar. Verkið er sett upp í tilefni að Sæluviku á Sauðárkróki, en leiksýningar í Sæluviku […]
Einn koss enn í Þjórsárveri
Leikfélag Ölfuss sýnir Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan eftir Marc Camoletti í leikgerð Sigurðar Atlasonar, í Þjórsárveri, næstkomandi sunnudag, þann 29. apríl. Sýningin hefst klukkan 16. Miðapantanir í síma 664-6454. Miðar verða einnig seldir við innganginn klukkustund fyrir sýningu. Leikritið fjallar um kvennamanninn Jónatan sem heldur við þrjár flugfreyjur sem […]
Leikritasamkeppni Peðsins
Leikfélagið Peðið efnir til leikritasamkeppni í tengslum við Menningarhátíð Grand Rokks sem haldin verður dagana 31. maí3. júní 2007. Leitað er eftir drögum/hugmyndum/grind að leikverki sem hentað gæti til uppsetningar hjá leikhópnum. Skilafrestur er til 15. maí og skal handritum skilað á Grand Rokk, Smiðjustíg 6, 101 Reykjavík, í umslagi merktu Leikritasamkeppni Peðsins og nafn […]
Krónikur dags og nætur
Leikrænn flutningur á textum eftir Xavier Durringer verður á 3. hæðinni í Borgarleikhúsinu þann 27. apríl, kl. 21:00. Sýningin Krónikur dags og nætur er byggð á bók Durringer Les chroniques des jours entiers et des nuits entières sem inniheldur fjölmarga stutta prósatexta og samtöl. Verkefni leikstjóra og þýðenda var að finna 26 texta héðan og […]
Stuttverk og leiklestrar hjá Hugleik
Leikfélagið Hugleikur gerir ekki endasleppt í vetur. Sýningum er nýlokið á "Eplum og eikum" eftir Þórunni Guðmundsdóttur, sýningar standa yfir á "Bingó" eftir Hrefnu Friðriksdóttur í samstarfi við Leikfélag Kópavogs, og nú sýnir félagið fjóra nýja einþáttunga í Þjóðleikhúskjallaranum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Hugleikur sýnir í kjallaranum, félagið hefur verið með reglulegar […]
Ég vil hvergi annarsstaðar vera
Hvað er bingó? Mikið meira en ég hélt að það væri svo mikið er víst. Það eru allir þessir gluggar sem má opna og loka og allar þessar tölur og svo bókstafirnir. Þetta er grunnurinn sem höfundurinn Hrefna Friðriksdóttir, notar í verkinu Bingó, sem sýnt er um þessar mundir í Hjáleigunni í Kópavogi. Leikstjóri er […]
Inntökupróf í The Royal Scottish Academy of Music and Drama
The Royal Scottish Academy of Music and Drama mun senda fulltrúa sína til að taka fólk í inntökupróf hér á landi. Prófin fara fram í Möguleikhúsinu sunnudaginn 29. apríl næstkomandi og hefjast klukkan 9.30. Um ræðir tvö mismunandi BA gráðu nám. Annars vegar Acting (leikaranám) 3ár og hins vegar Contemporary Theatre Practice 4ár. Um er […]
Einn koss enn í Þorlákshöfn
Leikfélag Ölfuss í Þorlákshöfn er komið á fulla ferð. Félagið frumsýnir næstkomandi sunnudagskvöld gamanleikinn Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan eftir Marc Camoletti í leikgerð Sigurðar Atlasonar. Leikritið fjallar um kvennamanninn Jónatan sem heldur við þrjár flugfreyjur sem vinna eftir föstum áætlunum sem ekki skarast. Þegar nýjar hljóðfráar þotur eru teknar […]
Barnastjörnur óskast!
Leikfélag Akureyrar leitar að börnum á aldrinum 714 ára til að leika við hlið atvinnuleikara í fyrstu frumsýningu haustsins 2007. Þar er á ferðinni fjölskylduleikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar. Jón Ólafsson semur nýja tónlist fyrir sýninguna og stýrir hljómsveit. Skráning í áheyrnarprufurnar fer fram í leikhúsinu á Akureyri, föstudaginn 20. apríl […]
Kynning á Sædýrasafninu
Þjóðleikhúsið stendur fyrir kynningu á Sædýrasafninu, nýju leikriti eftir frönsku skáldkonuna Marie Darrieussecq, í Leikhúskjallaranum laugardaginn 21. apríl kl. 15:00. Dagskráin er einn af viðburðum í Viku bókarinnar og liður í frönsku menningarkynningunni Pourquoi Pas Franskt vor á Íslandi. Sædýrasafnið er nýtt leikrit sem hin þekkta franska skáldkona Marie Darrieussecq hefur skrifað sérstaklega […]
Síðustu sýningar á Eplum og eikum
Nú fer sýningum að ljúka á leikritinu Epli og eikur sem Hugleikur sýnir í Möguleikhúsinu. Höfundur er Þórunn Guðmundsdóttir, en leikstjóri Oddur Bjarni Þorkelsson. Síðustu sýningar eru: Miðvikudag 18. apríl Fimmtudag 19. apríl -Allra síðasta sýning Sýningar hefjast klukkan 20.00 og miðapantanir eru á hugleikur.is og í síma 551 2525. Miðaverð er kr. 1.500. En […]
Leikritasamkeppni á Menningarhátíð Grand Rokk
Leikfélagið Peðið hefur ákveðið að blása til leikritasamkeppni í tilefni Menningarhátíðar Grand Rokk. Skilafrestur á leikritum eða úrdráttum úr slíkum verður að skila fyrir 15.maí næstkomandi, undir leyninafni með réttur nafni og símanúmeri í lokuðu umslagi. Skila skal leikritunum á Grand Rokk Smiðjustíg 6, 101 Reykjavík. Dómnefnd skipuð Viðari Eggertssyni leikstjóra, Þorgeiri Tryggvasyni Hugleikara og […]
Skrímsli á Bíldudal
Kómedíuleikhúsið frumsýnir einleikinn Skrímsli í Baldurshaga á Bíldudal á sumardaginn fyrsta, 19. apríl. Mun þetta vera í annað sinn sem atvinnnuleikhús frumsýnir á Bíldudal, en áður hefur Kómedíuleikhúsið frumsýnt þar einleikinn um Mugg. Frá örófi alda hafa skrímsl af ýmsum toga reglulega sést í sjó og vötnum á Íslandi. Strax í Landnámu er getið sjávar- […]
Hjónabandsglæpir í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt leikrit eftir Eric-Emmanuel Schmitt, Hjónabandsglæpi, í Kassanum 18. apríl. n.k Hjónabandsglæpir er nýtt leikrit úr smiðju Eric-Emmanuel Schmitt, en leikrit hans Abel Snorko býr einn og Gesturinn hafa notið mikilla vinsælda meðal íslenskra áhorfenda. Í Hjónabandsglæpum tekst höfundur á óvæginn og óvæntan hátt við ástina, hjónabandið og samskipti kynjanna. Í verkinu blasa […]
Stúdentaleikhúsið sýnir í Kartöflugeymslunum
Stúdentaleikhúsið sýnir þessa dagana leikritið EXAMINASJÓN. Verkið er byggt á sagnabálknum The Bottom Inspectors, en það eru sögur sem birtast í hinu virta sorptímariti VIZ sem gefið er út á Bretlandseyjum. Verkið er sýnt í Kartöflugeymslunum í Átrúnsbrekku. Guðjóns Þorsteinn Pálmarsson, betur þekktur sem Denni, leikstýrir og um tónlistarstjórn sér Snæbjörn Ragnarsson, betur þekktur sem […]
Gersemar gærdagsins í Kúlunni
Þjóðleikhúsið kynnir sérstæða franska gestasýningu Etabl´île í Kúlunni á mánudagskvöldið 16. apríl kl. 20.00. Aðeins er um þessa einu sýningu í Þjóðleikhúsinu að ræða og því fágætt tækifæri fyrir leikhúsáhugafólk en Turak hópurinn undir stjórn Michael Laubu hefur getið sér gott orð víða um heim. Hér er á ferðinni sérstæð leiksýning einskonar ævintýraferð um töfraveröld […]
Mjallhvít í Þjóðleikhúsinu
Laugardaginn 14. apríl n.k hefjast í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu sýningar á brúðuleikritinu um Mjallhvíti í uppfærslu brúðuleikhússins 10 fingra sem Helga Arnalds stjórnar. Hér er á ferðinni sagan sígilda um Mjallhvíti og dvergana sjö eins og við þekkjum hana flest en í sýningunni leiðir sögukonan, Helga Arnalds börnin í gegnum hana á nokkuð óvenjulegan hátt […]
Bingó! Frumsýning 14. apríl
Leikfélagið Hugleikur og Leikfélag Kópavogs hafa sameinað krafta sína og setja nú upp leikritið Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Í leikritinu Bingó hittast fimm manneskjur reglulega og spila Bingó. Eins og leikurinn er í eðli sínu einfaldur og segir sig nánast sjálfur, er eitthvað með tölurnar sem tengir okkur nánar persónum verksins, […]
Salka Valka á Skaganum
Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sölku Völku eftir skáldsögu Halldórs Laxness miðvikudaginn 4. apríl. Leikstjórn er í höndum Ingu Bjarnason sem vann leikgerð verksins í samvinnu við leikhópinn. Leikgerðin byggir á leikgerð Hilmars Jónssonar annarsvegar og Stefáns Baldurssonar og Þorsteins Gunnarssonar hinsvegar. Í þessari leikgerð er meira lagt upp úr lífi Sölku Völku en í hinum tveimur.
Killer Joe, síðustu sýningar í vor
Aukasýning á skírdag. Af óviðráðanlegum ástæðum verður sýningum Skámána á KILLER JOE í Borgarleikhúsinu að ljúka nú í apríl en verkið verður tekið upp af fullum krafti í haust. Aðeins 4 sýningar eru eftir í vor. Þetta magnaða verk hefur hlotið frábærar viðtökur bæði gagnrýnenda og áhorfenda.
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2007
verður haldinn að Hallormsstað dagana 4. til 6. maí. Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2006-2007. Endilega takið með ykkur eintök ykkar leikfélaga. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum. Þið sem enn eigið eftir að sækja um gerið það sem allra fyrst. Umsóknareyðublöð má nálgast […]
Hálsfesti Helenu í Þjóðleikhúsinu
Þann 14. apríl n.k. frumsýnir Þjóðleikhúsið Hálsfesti Helenu, nýtt verðlaunaleikrit eftir eitt þekktasta nútímaleikskáld Kanada, Carole Fréchette. Hálsfesti Helenu er einstaklega áhrifamikið verk, innblásið af dvöl höfundar í Líbanon árið 2000. Aðalpersóna verksins er Helena, búsett í norðlægu landi, sem er á heimleið af ráðstefnu í borg í Austurlöndum nær, þar sem uppbygging er hafin […]
Úrslit í örleikritakeppni ráðast í kvöld
Það er ekki oft sem verk eftir leikskáld allt niður í 17 ára aldur rata á svið Þjóðleikhússins. Árleg örleikritasamkeppni fræðsludeildar hússins og leiklistardeildar LHÍ gerir það þó mögulegt. Samkeppnin er opin framhaldsskólanemum um land allt og fer úrslitakvöldið 2007 fram í kvöld, þriðjudag kl. 20.00 á Stóra sviðinu og er aðgangur ókeypis og öllum […]
Þorskastríðið í Fiskmarkaðnum
Þýski leikhópurinn Das Letzte Kleinod (Síðasti fjársjóðurinn) hefur á undanförnum mánuðum unnið að verki sem byggir á heimildum um Þorskastríðið sem háð var á Íslandsmiðum árið 1977. Verkið verður sett upp og sýnt í vinabæjunum Cuxhaven í Þýskalandi og í Hafnarfirði.
Undirbúningur Sæluviku á Sauðárkróki
Í byrjun mars hófust æfingar á Sæluvikustykkinu sem að þessu sinni er gamanleikurinn Sex í sveit eftir Marc Camoletti í enskri leikgerð Robins Howdon. Íslenskun og staðfæring er eftir Gísla Rúnar Jónsson. Söguþráðurinn er í stórum dráttum sá að maður okkur býður viðhaldinu sínu með í sumarbústað, en þegar eiginkonan ákveður að koma með honum […]
Frumsýningu á Gretti frestað
Grettir verður frumsýndur 22. apríl Vegna veikinda leikara hefur Leikfélag Reykjavíkur neyðst til að fresta frumsýningu á söngleiknum Gretti, sem vera átti næstkomandi föstudag. Frumsýningin verður sunnudaginn 22. apríl. Fyrirhugaðar forsýningar verða, föstudaginn 20. apríl og laugardaginn 21. apríl kl. 20. Þeir sem keypt hafa miða á sýningar á Gretti eru vinsamlegast beðnir […]
Ávarp Alþjóða leiklistardagins, 27. mars 2007
eftir Bernd Ogrodnik Mannsandinn er uppspretta endalausra vangaveltna, hláturs og gráturs, en það er sama hvernig við lítum á tilveru okkar, það er nær ómögulegt að skilja mikilfengleik hennar. Stærsta gjöf listamannsins til mannkyns er ef til vill að geta á einhvern hátt tjáð það sem rökhugsun getur aldrei að fullu höndlað og kynslóðir vísindamanna […]
Lífið er leikhús leikhús er lífið!
Leiklistardagar 23.-27. mars 2007 Leiklistarsamband Íslands, Íslandsdeild ITI, býður þig velkomin(n) á leiklistarþing
Lífið – Notkunarreglur hjá LA
Nýtt leikverk eftir Akureyringinn Þorvald Þorsteinsson, Lífið notkunarreglur var frumsýnt síðasta föstudag hjá Leikfélagi Akureyrar. Einvalalið listrænna stjórnenda stýrir leikhópi LA og útskriftarárangi Leiklistardeildar Listaháskólans en sýningin er sett upp í samstarfi þessara aðila. Megas hefur samið tónlist við verkið sem m.a. inniheldur 10 ný sönglög við texta Þorvaldar. Magga Stína útsetur, stýrir tónlistinni […]
Gleði og gengdarlaust gaman hjá Hugleik
Ást í meinum, ást í leynum, ást á allla kanta, ásamt athyglisverðri ástríðu á tyggjói og andstyggð á frunsum er meðal þess sem tæpt er á í söng- og gleðileiknum Epli og eikur, sem frumsýndur var hjá Hugleik í Möguleikhúsinu um helgina. Höfundur verksins er Þórunn Guðmundsdóttir, Hugleikari með meiru, en Þórunn hefur heldur betur […]
Síldin komin í Hörgárdal
Fimmtudagskvöldið 22. mars frumsýndi Leikfélag Hörgdæla leikritið Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Um er að ræða gamanleik með söngvum og lifandi tónlist sem fjallar um farandverkafólk á síldarárunum, sorgir þeirra og gleði, ástir, afbrýði og samskipti við heimafólk. Leikritið verður sýnt á Melum í Hörgárdal á föstudags- og laugardagskvöldum […]
