Föstudaginn 9.mars frumsýnir Leikdeild UMF Skallagríms í Borgarnesi gamanleikritið Sex í Sveit. Verkið verður sýnt í félagsheimilinu Lyngbrekku. Sex leikarar taka þátt í sýningunni og leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.

Leikdeildin hefur verið á miklum hrakhólum undanfarin 7 ár og hrakist milli gamalla iðnaðarhúsa í Borgarnesi. Sökum þess hefur ekki verið tækifæri á að setja upp leikrit jafn títt og menn hafa viljað. En þetta árið fékk leikdeildin inni í félagsheimilinu Lyngbrekku, sem er um 15 km vestan við Borgarnes.

Lyngbrekka er kjörinn staður fyrir leiksýningar og er það von allra er að verkinu koma að þar fá leikfélagið aðsetur til frambúðar.

Leikarar í sýningunni eru eftirtaldir:
Jónas Þorkelsson – Benedikt
Þröstur Reynisson – Ragnar
Inga Hólmfríður Gunnarsdóttir – Þórunn
Margrét Jómundsdóttir – Sólveig
Margrét Hildur Pétursdóttir – Sóley
Ragnar Gunnarsson – Benoný

Eins og áður segir er frumsýnt 9.mars
Næstu sýningar eru:
11.mars
13.mars – Örfá sæti laus
14.mars
16.mars

Allar sýningar hefjast kl 20:30
Miðapantanir í síma: 869-7157

{mos_fb_discuss:2}