Author: lensherra

Skráning á Bandalagsþing 2024

Skráning á Bandalagsþing 2026 Skráning fulltrúa á Bandalagsþing 2026 í Reykjanesbæ. Í boði eru eftirtaldir pakkar fyrir fulltrúa og aðra fundarmenn: Gisting 2 nætur í 2ja manna herbergi 2/5-4/5 = 30.900 kr.  Gisting 1 nótt í 2ja manna herbergi = 26.900 kr. (takið fram hvora nóttina í reitnum annað) Fundarseta á laugardag m. veitingum 3.580 kr.  Hátíðarkvöldverður = 7.900/9.900 kr. Verð á gistingu er miðað við 1 fulltrúa í 2ja manna herbergi. Ef óskað er eftir sérherbergi takið það fram í reitnum Annað. Fulltrúar gera upp gistingu á staðnum. Reikningur verður sendur fyrir öðrum útgjöldum á leikfélagið eða uppgefið netfang (sjá að neðan). Skráning Nafn þingfulltrúa * Leikfélag * Netfang fulltrúa * Símanr. * Gisting pr.pers. Fös-sun í 2ja manna herbergi 30.900 kr. Fös-lau í 2ja manna herbergi 15.450 kr. Lau-sun í 2ja manna herbergi 15.450 kr. Fös-sun í eins manns herbergi 53.800 kr. Fös-lau í eins manns herbergi 26.900 kr. Lau-sun í eins manns herbergi 26.900 kr. Ósk um herbergisfélaga: Aðalfundur Fundarseta á laugardag m. veitingum 3.000 kr. Hátíðarkvöldverður laugardagskvöld Lamb+Brulee 9.900 kr. Grænmeti/Vegan 7.900 kr. Hádegisverður laugardag Hamborgari, franskar og sósa 3.590 kr. Aspassúpa og brauð 2.690 kr. Annað 0 of 101 max words Þingfulltrúar gera sjálfir upp gistingu á staðnum við hótelið sem og hádegisverð á laugardag. Reikningur verður hinsvegar sendur vegna kaffiveitinga á aðalfundi og hátíðarkvöldverðar. Takið fram hvort senda á reikning á leikfélagið eða fulltrúann sjálfan....

Sjá meira

Ærsladraugurinn á Hofsósi

Leikfélag Hofsóss frumsýndi gamanleikinn Ærsladrauginn eftir Noel Coward í Höfðaborg á Hofsósi laugardaginn 29. mars. Leikstjóri er Börkur Gunnarsson. Verkið gerist á yfirstéttarheimili bresks rithöfundar sem ætlar að afla sér vitneskju um starfsemi miðla og býður í þeim tilgangi einum slíkum í heimsókn. Skemmst er frá því að segja að ýmislegt fer á annan veg en ætlað var í upphafi en eins og nafn verksins bendir til kemur óútreiknanlegur ærsladraugur við sögu. Hlutverk í sýningunni eru sjö í höndum sex leikara en alls koma um 30 manns að sýningunni. Ærsladraugurinn var fyrst settur á svið í London árið 1941...

Sjá meira

Ferðin á heimsenda hjá Leikfélagi Blönduóss

Leikfélagið Blönduóss hefur unnið markvisst að endurreisn félagins undanfarin ár og má segja að félagið sé að komast á frábært skrið núna. Leikfélagið setur nú á svið barnasýninguna Ferðina á Heimsenda eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Stór og flottur leikhópur á öllum aldri tekur þátt í sýningunni og er það hinn reyndi leikstjóri, Sigurður Líndal sem stýrir hópnum. Ferðin á heimsenda er barnaleikrit sem fjallar um ferðalagið á Heimsenda með verndargripinn geislaglóð sem þarf að fylla af sólarorku svo ekki fari illa fyrir álfaheiminum. Leikritið er fullt af ævintýralegum persónum, álfum, galdrakall, ömmu og hetjum. Verkið er sérstaklega skapað fyrir...

Sjá meira

Alþjóðlegi leikhúsdagurinn 2025

Bandalag íslenskra leikfélaga óskar leiklistarunnendum gleðilegs alþjóðaleikhúsdags með þessum svipmyndum frá aðildarlöndum NEATA, Norður-Evrópsku áhugaleikhússamtökunum....

Sjá meira

Hárið á Hornafirði

Leikfélag Hornafjarðar, í samstarfi við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu, frumsýnir söngleikinn Hárið, næstkomandi laugardag, 29. mars. Leikstjóri sýningarinnar er Svandís Dóra Einarsdóttir, hreyfihönnuður er Sigga Soffía Níelsdóttir, tónlistarstjóri er Hörður Alexander Eggertsson, kórstjóri er Hrafnkell Karlsson, ljósahönnuður er Þorsteinn Sigurbergsson og búningahönnuður er Ágústa Margrét Arnardóttir. Að sýningunni koma 16 leikarar, sjö manna kór, fjögurra manna hljómsveit, aðstoðarleikstjóri, sýningarstjóri og þrír tæknimenn, auk fjölmargra velunnara leikfélagsins sem hafa lagt hönd á plóginn við leikmyndagerð, smíðavinnu, hár og förðun. Sýningarnar fara fram í Mánagarði, félagsheimili rétt utan bæjarmarka, sem hefur verið aðalsýningarsalur Leikfélags Hornafjarðar í fjölda ára. Eins og segir í...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert