Í ár setur Sólheimaleikhúsið upp skemmtilega sýningu sem fjallar um hann Jón sem þekkir ekki annað en eilíft sumar. Dag einn fara skrýtnar persónur að ryðjast inn í líf hans, hver á fætur annarri og skipta um árstíðir. Jón er í fyrstu alls ekki sáttur við þessar breytingar, en lærir smám saman að hver árstíð hefur sína kosti og galla. Höfundar eru leikstjórinn Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson ásamt Ástþóri Ágústsyni og Magnúsi Guðmundssyni og tónlistina semur Hallbjörn V. Rúnarsson forstöðuþroskaþjálfi á Sólheimum. Rúmur helmingur íbúa og starfsmanna Sólheima koma á einhvern hátt að sýningunni.
Þessi sýning, eins og aðrar, hjá Leikfélagi Sólheima er einstök á svo margan hátt. Það eitt að geta haldið úti starfandi leikfélagi í svona litlu byggðahverfi er einstakt en tilgangur þess er líka örlítið frábrugðið öðrum leikfélögum, að efla þátttöku fatlaðs fólks í leiklist. Í farsælu samstarfi félagsins við Guðmund Lúðvík, leikstjóra, hefur sú venja skapast að á fyrri hluta æfingatímabilsins er mátað í hlutverkin og handritið mátað að hópnum, eða jafnvel skrifað og svo sniðið að þörfum og óskum hópsins. Allir leikarar eru því þátttakendur í skapandi ferli sem er dýrmætur hluti af þátttökunni. Það sama á við um tónlistina. Hún er skrifuð samhliða æfingaferlinu og höfundur sækir innblástur í óskir, væntingar og smekk leikaranna.
Hér er um að ræða fjölskyldusýningu fyrir unga sem aldna, sem er innan við klukkustund. Miðapantanir eru í síma 847 5323.
Einungis er um sex sýningardaga að ræða en þeir eru:
25. apríl, fimmtudagur kl. 14:00 – Sumardagurinn fyrsti
27. apríl, laugardagur kl. 14:00
28. apríl, sunnudagur kl. 14:00
1. maí, miðvikudagur kl. 14:00 – Baráttudagur verkalýðshreyfingarinnar
4. maí, laugardagur kl. 14:00
5. maí, sunnudagur kl. 14:00