Ævintýri Múnkhásens í Gaflaraleikhúsinu
Þann 22. mars frumsýnir Gaflaraleikhúsið fjölskyldusýninguna Ævintýri Múnkhásens eftir Sævar Sigurgeirsson. Þetta er nýtt leikverk með söngvum, byggt á ótrúlegum ýkjusögum þekktasta lygara heimsins, þýska barónsins Múnkhásen (eða Karl Friedrich Hieronymus, Freiherr von Münchhausen). Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en tvö leikstjórnarverk hennar þar sem Sævar var meðal höfunda hafa unnið til Grímuverðlauna sem besta barnasýningin: […]
Dauðir rísa
Leikfélag MosfellssveitarAndlát við jarðarförHöfundur: Dean Craig, leikgerð María Guðmundsdóttir og Guðný María Jónsdóttir.Leikstjóri: Guðný María Jónsdóttir. Leikfélag Mosfellssveitar fer oft ótroðnar slóðir í verkefnavali sínu og svo er einnig nú. Þau vinna leikhandrit upp úr kvikmynd eða kvikmyndahandriti réttara sagt, Death at a Funeral, breskri gamanmynd frá 2007 sem reyndar hefur verið endurgerð fyrir ameríku […]
Sá glataði sýndur á aukasýningu
Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu á Þeim glataða. Hún verður sunnudaginn 25. mars kl. 20. Sá glataði nefnist nýtt íslenskt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, leikstjóra og leikhópinn í leikstjórn Ágústu Skúladóttur sem Hugleikur frumsýndi í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9 í seinasta mánuði.
Enginn með Steindóri á Hofsósi
Eftir stranga æfingatörn undanfarnar vikur frumsýnir Leikfélag Hofsóss nú í kvöld gamanleikinn Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur. Þetta er fyrsta og enn sem komið er, eina leikrit Nínu Bjarkar í fullri lengd en hún hefur skrifað nokkra styttri þætti fyrir leiksvið. Leikarar eru 9 talsins en auk þess kemur fjöldi aðstoðarmanna að sýningunni. […]
Andlát við jarðarför í Mosfellsbæ
Föstudaginn 16. mars verður leikritið Andlát við jarðarför frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikritið er byggt á bresku kvikmyndinni Death at a funeral eftir Dean Craig og leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir. María Guðmundsdóttir ásamt Guðnýju Maríu sáu um handritsvinnu. Eva Björg Harðardóttir hannar leikmynd og búninga og Hörður Guðjónsson lýsingu.
La Bohème frumsýnd í Eldborg
Hið ódauðlega meistaraverk, óperan La Bohème eftir Puccini, verður frumsýnd föstudaginn 16. mars kl. 20 í Eldborg í Hörpu. Hér er um að ræða aðra sýningu Íslensku óperunnar í hinum nýju húsakynnum, en skemmst er að minnast fyrstu uppsetningarinnar, Töfraflautunnar, sem 13.000 manns sáu síðastliðið haust. Nú er komið að meistaraverki Puccini um bóhemana í […]
Að eilífu sýnt hjá Leikfélagi Bolungarvíkur
Leikfélag Bolungarvíkur rumskaði á vordögum síðastliðnum eftir 17 ára fastasvefn. Ráðist var í uppsetningu á verkinu „Að eilífu,“ eftir Árna Ibsen, eftir nýjárið og var frumsýning síðastliðinn laugardag. Leikstjóri verksins er Lilja Nótt Þórarinsdóttir, leikkona, en þetta er hennar fyrsta leikstjórnarverkefni. Hún réðst ekki á garðinn þar sem hann var lægstur í þessari fyrstu uppsetningu […]
Súldarsker til Akureyrar
Í samstarfi við Leikfélag Akureyrar verður leikverkið Súldarsker eftir Sölku Guðmundsdóttur sýnt í Rýminu á Akureyri 16. og 17. mars næstkomandi. Þessi bráðskemmtilega sýning sló rækilega í gegn þegar hún var frumsýnd í fyrra og hlaut mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda. Meðal annars var sýningin tilnefnd til tvennra Grímuverðlauna. Í kjölfarið verður Súldarsker einnig sýnt […]
Sá glataði aftur á fjalirnar hjá Hugleik
Hugleikur sýnir á ný leikritið Sá glataði eftir tveggja vikna hlé. Handritið er eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur en hún vann það í samvinnu við leikstjórann Ágústu Skúladóttur og leikhópinn. Tónlist og söngtexta í verkinu samdi Þorgeir Tryggvason. Sýnt er í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9.
Sýningar á Gálmu hefjast á ný 13. mars
Í október síðastliðinn sýndi leikhópurinn Sómi þjóðar, í samstarfi við Norðurpólinn, nýja íslenska leikverkið Gálma. Vegna anna leikara voru sýningar á verkinu fáar (Hilmir Jensson hóf á þessum tímapunkti atlögu að Íslandsmeti í fjölda búningaskipta í einni sýningu í Vesalingunum, Bjartur Guðmundsson hvarf inn í söngleikja-paradísina í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ, og Tryggvi Gunnarsson fékk olíupeninga […]
Í gegnum tíðina – frumsýning hjá Umf. Eflingu
Á undanförnum vikum hefur Leikdeild Eflingar í Reykjadal í Þingeyjarsveit æft nýtt íslenskt verk ‚ eftir Hörð Þór Benónýsson. Verkið heitir Í gegnum tíðina og er gamanleikrit með söngvum, þar sem sögð er saga íslenskrar bændafjölskyldu á seinni hluta síðustu aldar c.a. 1950 – 1980. Fjölskyldumeðlimir lenda í hinum ýmsu aðstæðum, fara á síld, lenda […]
Leiklistarskóli Bandalagsins sumarið 2012

Þá er komið að því að kynna námskeiðin sem haldin verða á þessu sextánda starfsári Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga. Skólinn verður settur þann 9. júní 2012 að Húnavöllum í Húnavatnshreppi þar sem sumarskólinn hefur starfað undanfarin tvö ár. Í sumar verða þrjú námskeið í boði. Leiklist I – grunnnámskeið í leiklist, kennari Árni Pétur Guðjónsson, […]
Leiklistarskóli Bandalagsins 2012

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga 2012 Skráning í skólann stendur yfir frá 15. mars til 15. apríl nema á Trúðanámskeiðið, þar verður opið fyrir skráningar til 30. apríl. Reglan „fyrstur kemur – fyrstur fær“ gildir við skráningar gegn greiðslu staðfestingargjalds, kr. 35.000 ef inntökuskilyrðum er fullnægt að öðru leyti. Náist ekki ásættanlegur fjöldi á eitthvert námskeiðanna […]
Yfir 5.000 gestir á Gulleyjuna

Óhætt er að segja að viðtökurnar á sýningu LA á Gulleyjunni hafa verið frábærar. Nú hafa verið sýndar hátt í þriðja tug sýninga, uppselt hefur verið á hverja einustu og hvergi lát á. Um síðustu helgi var fimmþúsundasti gesturinn á meðal áhorfenda og reyndist það vera Sigríður Kristín Sverrisdóttir frá Skriðu í Hörgársveit. Henni voru […]
Lína Langsokkur í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir leikritið um Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren, laugardaginn 10. mars klukkan 14.00 í Leikhúsinu Austurmörk 23 í Hveragerði. Leikstjóri er Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson og með aðalhlutverkið fer Esther Helga Klemenzardóttir. Með hlutverk Tomma og Önnu fara Axel Bjarkar Sigurjónsson og Ásdís Mjöll Halldórsdóttir. Undirleik annast píanósnillingurinn Guðmundur Eiríksson.
Einleikurinn Afinn á leið um landið
Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar Sigurður Sigurjónsson ferðast um landið með glænýtt íslenskt gamanleikrit í farteskinu, leikrit sem fékk mjög góða dóma sem og aðsókn í Borgarleikhúsinu á yfirstandandi og síðastliðnu leikári. Uppfærslan er samvinna þeirra Sigurðar og Bjarna Hauks Þórssonar. Áður hafa þeir unnið saman að Hellisbúanum og Pabbanum.
Revía í Reykholti
Ungmennafélag Reykdæla frumflutti föstudaginn 2. mars revíuna Ekki trúa öllu sem þú heyrir (og ekki trúa öllu sem þú sérð) í Logalandi í Reykholtsdal. Handrit og lagatextar eru eftir Bjartmar Hannesson bónda og skáld á Norður Reykjum í Hálsasveit. Það verður að teljast til viðburða þegar áhugamannaleikhús frumflytur rammíslenska revíu. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson.
16 elskendur furmsýna Sýningu ársins
Sunnudaginn 4. mars næstkomandi, frumsýnir Sviðslistahópurinn 16 elskendur stórvirkið Sýningu ársins, sviðslistaviðburð fyrir alla Íslendinga. Eins og titillinn gefur til kynna er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur en í sýningunni leitast hópurinn við að koma til móts við „leikhúsþarfir Íslendinga.“ Í því skyni hefur leikhópurinn látið gera skoðanakönnun á því hvað […]
Nei ráðherra! í Hofi laugardaginn 3. mars
Næstkomandi laugardag, hefjast sýningar á gleðileiknum Nei ráðherra! í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Hér er á ferðinni drepfyndið verk úr smiðju Ray Cooney í íslenskri heimfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. Fyrirhugaðar eru fjórar sýningar í viðbót fyrir norðan á Nei ráðherra!, laugardaginn 10. mars kl. 19 og 22 og föstudaginn 16. mars, einnig kl. 19 og […]
Venjufólk og smámenn
Leikfélag KópavogsHringurinn eftir Hrefnu FriðriksdótturLeikstjóri: Hörður Sigurðarson Leikfélag Kópavogs frumsýndi síðastliðinn sunnudag, 26. febrúar, leikritið Hringinn eftir Hrefnu Friðriksdóttur í Leikhúsinu við Funalind í Kópavogi. Í leikritinu segir frá Evgeníu sem lifir einkar fábrotnu lífi og starfar hjá opinberri stofnun. Dag einn kemur lögfræðingur til hennar og greinir henni frá láti föður hennar. Hún kynntist […]
Costa del Selfoss
Leikfélag SelfossSólarferð eftir Guðmund SteinssonLeikstjóri: Rúnar Guðbrandsson Þann 24. febrúar síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Selfoss Sólarferð eftir Guðmund Steinsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Sólarferð var sett upp í fyrsta sinn af Þjóðleikhúsinu árið 1976 við góðar undirtektir og síðan aftur 2008. Leikritið gerist snemma á áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa […]
Þjóðleikhúsið frumsýnir Dagleiðin langa inn í nótt
Föstudaginn 24. febrúar verður eitt frægasta og magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar, Dagleiðin langa inn í nótt eftir Eugene O’Neill, frumsýnt í Kassanum. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir og en þýðinguna gerði Illug Jökulsson. Leikritið hefur tvívegis áður verið sýnt í Þjóðleikhúsinu, árið 1959 undir heitinu Húmar hægt að kveldi og árið 1982 undir heitinu Dagleiðin langa […]
Sex ung leikskáld ráðin til Borgarleikhússins
Nú fyrir skemmstu réð Borgarleikhúsið sex ung skáld til að skrifa leikverk fyrir húsið. Það eru þau Auður Jónsdóttir, Kristín Eiríksdóttir, Didda, Salka Guðmundsdóttir, Heiðar Sumarliðason, Tyrfingur Tyrfingsson. Fyrr á þessu ári réð Borgarleikhúsið sex ung leikskáld til að semja stutt verk fyrir leikhúsið. Stefnt er að uppsetningu hluta þeirra á næsta ári. Nú auglýsir […]
Sólarferð á Selfossi
Leikfélag Selfoss tekur stefnuna til sólríkari stranda í vetur föstudaginn 24. febrúar kl. 20 frumsýnir það Sólarferð eftir Guðmund Steinsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Leikritið gerist á miðjum áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa del Sol. Þau ætla sannarlega að njóta sólarinnar, enda er hún ástæðan fyrir ferðum hins fölbleika […]
Sérstök styrktarsýning á Eldhafi miðvikudaginn 7. mars
Þann 8. mars verður Alþjóðlegur baráttudagur kvenna haldinn hátíðlegur um allan heim eins og gert hefur verið í yfir 100 ár. Af því tilefni efnir Borgarleikúsið til sérstakrar styrktarsýningar á Eldhafi þann 7. mars næstkomandi þar sem allur ágóði rennur til samtaka UN Women á Íslandi. Sýningin hefst kl 19 og að henni lokinni gefst […]
Heillandi heimsókn í Himnaríki
HimnaríkiFrevangsleikhúsiðLeikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson Föstudagskvöldið 17. febrúar s.l. frumsýndi Freyvangsleikhúsið leikritið „Himnaríki – geðklofinn gamanleik“ eftir Árna Ibsen, í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Hönnuður lýsingar er Benedikt Axelsson og leikmyndar þeir Finnur Arnar Arnarson og Þórarinn Blöndal. Verkið var frumflutt af Hafnarfjarðarleikhúsinu haustið 1995 en hefur verið skemmtilega staðfært í meðförum Freyvangsleikhússins.
Leikfélag Kópavogs frumsýnir Hringinn
Evgenía lifir fábrotnu lífi og sinnir tilbreytingasnauðu starfi á opinberri stofnun. Dag einn knýja örlögin dyra í mynd rykfallins lögfræðings. Erindi hans er að greina frá fráfalli föðurins sem hún aldrei kynntist og koma til hennar arfi. Föðurarfur Evgeníu er sannarlega óvanalegur og líf hennar tekur í kjölfarið heljarstökk með tvöfaldri skrúfu – upp frá […]
Hugleikur til Danmerkur fyrir Íslands hönd
Leiksýning Hugleiks, Sá glataði, hefur verið valin til að fara sem fulltrúi Íslands á NEATA-leiklistarhátíðina í Sønderborg í Danmörku dagana 31. júlí til 5. ágúst í sumar. Leikstjóri verksins er Ágústa Skúladóttir og handritshöfundur Sigríður Lára Sigurjónsdóttir. Tvær umsóknir bárust um að fara á hátíðina en auk Hugleiks sótti Leikfélagið Sýnir um að fara með […]
Breskur leiklistarháskóli með inntökupróf á Íslandi
Rose Bruford College of Theatre and Performance, einn af fremstu leiklistarskólum Evrópu, býður upp á nám á öllum sviðum leikhússins. Skólinn bíður upp á nám til BA gráðu í almennri leiklist, leiklist og tónlist, Amerískum leiklistarhefðum, Evrópskum leiklistarhefðum, búningahönnun, ljósahönnun, hljóðhönnun, sviðsstjórn, sviðslistum og leikhúshönnun. Og MA gráðu í leikhús fyrir unga áhorfendur og Ensemble […]
Halinn í hassinu
Hassið hennar mömmu eftir Daríó FóHalaleikhópurinnLeikstjórar: Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson Þann tíunda febrúar síðastliðinn frumsýndi Halaleikhópurinn enn eitt leikverkið í leihúsi sínu að Hátúni 12 í Reykjavík. Það er alltaf jafn merkilegt að sjá sýningar Halans þar sem fatlaðir og ófatlaðir vinna saman að því að brjóta niður múrana. Hópurinn hefur komið víða […]
Leikfélag Selfoss æfir Sólarferð
Leikfélag Selfoss tekur stefnuna til sólríkari stranda í vetur en nú standa yfir æfingar á leikritinu Sólarferð eftir Guðmund Steinsson og hefur Rúnar Guðbrandsson verið fenginn til að leikstýra. Leikritið gerist á miðjum áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa del Sol. Það gengur á ýmsu og tekið er á því […]
Aukasýningar á Ég er vindurinn
Undanfarnar vikur hefur leikfélagið Sómi þjóðar sýnt uppsetningu sína á verki Jon Fosse, Ég er vindurinn, við frábærar viðtökur. Uppselt hefur verið á nær allar sýningar og einnig hafa leikdómar um sýninguna verið vægast sagt jákvæðir. Sökum þess hefur Sómi þjóðar ákveðið að sýna nokkrar aukasýningar á verkinu. Leikstjóri er Ingibjörg Huld Haraldsdóttir en þýðinguna […]
Baðstofan frumsýnd í Félagslundi á Reyðarfirði
Föstudaginn 10.02 frumsýnir Leikfélag Reyðarfjarðar nýtt íslenskt verk, Baðstofuna eftir Gunnar Ragnar Jónsson. Í litlu koti í afskekktum dal húkir fjölskylda og lifir á litlu. Eftir að morð er framið á bæ í nágrenninu ber förumann að garði. Við það færist fjölbreytni í líf fjölskyldunnar og undarlegir atburðir fara að gerast. Hér er á ferðinni […]
Gói og Ævintýrin: Baunagrasið frumsýnt
Þann 11. febrúar næstkomandi kl. 13 verður leikritið Baunagrasið frumsýnt á Litla sviðinu. Gói og Þröstur opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum og ferðast um töfraheim ævintýranna. Á ferðalaginu nýta þeir til hins ýtrasta leik, söng og dans og bregða sér í allra kvikinda líki í anda furðusagnanna. Fyrst […]
Klerkar í klípu í Biskupstungum
Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir gamanleikritið Klerkar í klípu eftir Philip King, í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundsonar en þetta er fimmta leiksýningin sem Gunnar Björn setur upp hjá leikdeildinni. Sýningar eru í Aratungu og hefjast kl. 20.30, á undan sýningum er boðið upp á leikhúsmatseðil á Kaffi Kletti í Reykholti.
Borgarleikhúsið auglýsir eftir samstarfsverkefnum
Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna. Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus afnot […]
Freyvangsleikhúsið æfir Himnaríki
Æfingar á aðalverkefni Freyvangsleikhússin, Himnaríki – geðklofinn gamanleikur, hófust strax eftir áramót en frumsýnt verður 17. febrúar n.k. Verkið var fyrst sett upp hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu 1995 og naut strax mikilla vinsælda, en þess má geta að Leikfélag Ölfuss setti verkið upp nú á haustdögum við góðar undirtektir.
Halaleikhópurinn frumsýnir Hassið hennar mömmu
Föstudaginn 10. febrúar frumsýnir Halaleikhópurinn Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo í Halanum, Hátúni 12. Þessi leikgerð er unnin af Margréti Sverrisdóttur og Oddi Bjarna Þorkelssyni sem jafnframt leikstýra. Þau byggja hana á gömlu leikgerðinni, sem Stefán Baldursson þýddi, en hafa tekið sér leyfi til að umskrifa senur, skipta um kyn á persónum og skrifa […]
Biblíusögur á Eyjarslóð
Hugleikur Sá glataði Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Tíu Hugleikarar og einn fiðluleikari frumsýndu laugardagskvöldið 4. febrúar Þann glataða, fléttuverk úr nokkrum dæmisögum sem hafðar eru eftir „Jesú nokkrum frá Nasaret“, eins og segir í leikskrá. Af þeim biblíusögum sem notaðar eru í ívaf þessa leikverks um Lúkas, glataðan son föður Abrahams, atvinnuleysingja og björgunarmann Babýlonshóru, eru Miskunnsami Samverjinn […]
Örverkahátíðin Feigð hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar stendur að örverkahátíð laugardaginn 4. febrúar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Þar er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur heldur verða frumsýnd hvorki meira né minna en sex frumsamin verk. Og eins og það sé ekki nóg að þá fengu höfundarnir ekki nema viku til að semja verkið og leikstjóri svo […]
