Lokað vegna sumarleyfa

bil_island_logo

Skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga, Leikhúsbúðin og Leiklistarvefurinn fara í sumarleyfi 1. júlí. Við opnum aftur þriðjudaginn 5. ágúst. Við biðjumst afsökunnar ef þetta veldur viðskiptavinum okkar vandræðum en vegna niðurskurðar og hagræðingar í rekstri er búið að fækka starfsmönnum í einn og því ekki lengur hægt að hafa opið allt árið.

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

hokuskegg1

Hökuskegg frá Kryolan. Handhnýtt hökuskegg úr ekta mannshári í tveimur stærðum og 5 litum. Skeggin eru hnýtt í mjúkt og endingargott tjull þannig að þau eru margnota með góðri meðferð. Notið fljótandi skegglím til að líma þau niður. Stærri skeggin kosta 9.750 kr. og þau minni 6.900 kr. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík […]

BLAM! Síðustu sýningar um helgina

blam

Þrír kúgaðir skrifstofumenn sólunda lífi sínu á sorglegustu skrifstofu veraldar undir vökulu auga siðblinds yfirmanns. Í hvert sinn sem hann lítur undan, nýta þeir tækifærið til að „blamma“: Að endurgera uppáhalds senurnar sínar úr hasarmyndum. Þegar yfirmaðurinn fer að „blamma“ með þeim færist fjör í leikinn og við tekur stórhættuleg saga sem leikin er á […]

Fréttir frá Tjarnarbíói

logo

Á morgun fimmtudag, kl. 17:30, verður haldinn opinn fundur í Tjarnarbíó um dagskrá leikársins 2014-2015. Leikrit, dansverk, tilraunaverkefni og vinnustofur listamanna hafa nú verið bókuð fyrir næsta leikár og mynda glæsilega heild sem Tjarnarbíó er stolt af að tilkynna. Sjá nánar hér fyrir neðan. Á fundinum mun framkvæmdastjóri hússins, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, fara yfir þau […]

Grímuhafar 2014

kristbjorgkjeld

Íslensku sviðslistaverðlaunin, Gríman, voru veitt í 12. skiptið við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í kvöld. Sýningarnar Ragnheiður og Gullna hliðið voru sigursælar og hlutu báðar þrenn verðlaun á hátíðinni en Ragnheiður var meðal annars valin sýning ársins. Kynnar kvöldsins voru Bergur Ebbi og Dóri DNA og slógu þeir á létta strengi eins og þeim einum er […]

Leiklistarskólinn settur

skoli_styrur

Leiklistarskóli BÍL var settur að Húnavöllum í morgun í 18. sinn. 49 nemendur hófu þá nám á þremur brautum, 18 á Leiklist I hjá Ágústu Skúladóttur, 15 á sérnámskeiði fyrir leikara hjá Rúnari Guðbrandssyni og 16 á Leikritun II hjá Karli Ágústi Úlfssyni. Skólastýrurnar Dýrleif Jónsdóttir og Hrefna Friðriksdóttir settu skólann sem stendur til sunnudagsins […]

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

artex

Artex frá Kryolan Tveggja þátta silikonefni til að búa til þrívíddar húðbrellur, s.s. brunasár, ör og þ.h. og svo til að fela húðlýti. Efnin eru seld saman í tveimur 40 ml. glerkrukkum og kostar pakkinn 4.500 kr. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga í júní frá 9-13 og […]

Arty Hour #4 í Tjarnarbíói

logo

Arty Hour er að sanna sig sem vettvangur listamanna til að segja frá sér og kynnast verkum annarra. Eftir því sem verkin þróast er skemmtilegt að fylgjast með breytingunum, sjá þróunina úr hugmyndum í heil atriði úr verkunum. Fjórða listastundin verður haldin 19. júní í Tjarnarbíó. Sumir þeirra sem koma fram munu segja frá þróun […]

Laust pláss á Sérnámskeiði fyrir leikara!

skolalogo200

Alveg óvænt var að losna eitt pláss á Sérnámskeið í leiklist í Leiklistarskóla Bandalagsins sem settur verður laugardaginn 14. júní. Kennari er Rúnar Guðbrandsson. Opið er fyrir umsóknir til mánudagsins 9 júní (annar í hvítasunnu) – fyrstur kemur, fyrstur fær! Endilega dreifið þessum upplýsingum til félaga ykkar ef ske kynni að þar leyndist einhver áhugasamur […]

Skiladagur styrkumsókna er 10. júní!

bil_island_logo

Skilaboð til aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga: Athugið að síðasti skiladagur styrkumsókna vegna leikársins 2013-14 er þriðjudagurinn 10. júní. Heimilt er að póstleggja umsóknir þann dag. Og rétt er að ítreka að skrifstofa Bandalagsins og Leikhúsbúðin verða lokuð vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 5. ágúst.

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

crememakeup1

Créme make-up frá Grimas Olíu og vaxbaseraður farði sem þekur vel – hið eina sanna leikhússmink. Litirnir blandast vel sem er forsenda þess að skyggingar o.þ.h. takist vel. Frábært t.d. þegar búa á til karaktera eða gera þarf leikara eldri en þeir eru. Ofnæmisprufaður farði án parabena, glutenlaus og án lyktarefna. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg […]

Til­nefn­ing­ar til Grím­unn­ar 2014

eldraunin_poster

Til­nefn­ing­ar til Grím­unn­ar, ís­lensku sviðslita­verðlaun­anna 2014, voru kunn­gjörðar í dag og hlaut Eld­raun­in Eld­raun­in eft­ir Arth­ur Miller í leik­stjórn Stef­ans Metz, í sviðssetn­ingu Þjóðleik­húss­ins, flest­ar til­nefn­ing­ar eða ell­efu tals­ins. Verðlaun­in verða veitt í 12. sinn við hátíðlega at­höfn á Stóra sviði Borg­ar­leik­húss­ins þann 16. júní nk. og sýnd í beinni út­send­ingu á RÚV.

Aðalfundur Leikfélags Ölfuss

Aðalfundur Leikfélags Ölfuss verður haldinn í stofu 14, Grunnskólanum í Þorlákshöfn þriðjudaginn 10. júní kl. 20:00. Auk aðalfundarstarfa verða verkefni leikársins rædd og tekið fagnandi á móti nýjum félögum. Þeir sem verða 18 ára á árinu geta gengið í félagið og að sjálfsögðu allir aðrir sem eldri eru og áhuga hafa á leiklist.

Hugleikur sýnir í Þjóðleikhúsinu

Kreppusöngleikur leikfélagsins Hugleiks, Stund milli stríða, var á vordögum valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins af dómnefnd Þjóðleikhússins og verður sýndur á stóra sviði leikhússins laugardagskvöldið 7. júní nk. Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem Þjóðleikhúsið velur sýningu úr áhugaleikhúsinu og býður henni til sín.

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

pudurburstar1

Púður og kinnalitaburstar frá Grimas Burstarnir eru úr mjúku, eftirgefanlegu hrosshári og sérstaklega fínir til að bursta á púður, kinnalit og skyggingar. Burstarnir koma í 4 stærðum; nr. 4 kostar kr. 1.160, nr. 6 kr. 1.500, nr. 8 kr. 2.750 og nr. 10 kr. 3.875. Minni stærðirnar henta best í kinnalitinn og til að skyggja […]

“Long-form improv” námskeið í júní

long_form

Í „long-form improv“ búa leikararnir í sameiningu til um það bil hálftíma langa sýningu út frá t.d einu orði sem þeir fá frá áhorfendum. „Long-form improv“ er fyrir alla. Á fyrri námskeiðum hafa verið leikarar, dansarar, handritshöfundar, myndlistarmenn, grafískir hönnuðir og fleiri.Þetta er frábært verkfæri fyrir fólk til að öðlast öryggi í spunavinnu, fá þjálfun […]

Leikhópurinn Lotta í Elliðaárdalnum

hroihottur

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Hróa hött, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum í Elliðaárdalnum miðvikudaginn 28. maí, klukkan 18:00. Þetta er áttunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Að frumsýningu lokinni […]

Aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar

lf.hafnarfj

Leikfélag Hafnarfjarðar boðar til aðalfundar leikfélagsins laugardaginn 31. maí 2014, kl. 15:00. Aðalfundurinn verður haldinn í Gaflaraleikhúsinu, Strandgötu 50 í Hafnarfirði.

Fanclub sýnir í Tjarnarbíó

death

Dansflokkurinn Fanclub sýnir verkið DEATH í Tjarnarbíó 29. og 30. maí. Dansflokkurinn Fanclub samanstendur af fjórum ungum konum sem fara sínar eigin leiðir og bjóða listamönnum sem þeim þykja spennandi í samstarf. Flokkurinn kynnir nú samstarf við tvo framsækna danshöfunda, Kim Hiorthøy (NO/SE) og Itamar Serussi (IL/NL), en sýningin er í tveimur hlutum og fjalla […]

Leikhús án leikara í Borgarleikhúsinu

der_klang

Der Klang der Offenbarung des Göttlichen er leikhús án leikara; verk sem drifið er áfram af magnaðri tónlist Kjartans Sveinssonar og sérstæðum leikmyndum Ragnars Kjartanssonar. Þetta er óhefðbundin leikhúsupplifun, sem gerð var fyrir hið virta Berlínarleikhús Volksbühne og er nú frumsýnt í Borgarleikhúsinu miðvikudaginn 28. maí kl 20. Aðeins eru þrjár sýningar á verkinu og takmarkaður miðafjöldi er í boði.

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

transparent1

Grimas Transparent Powder Hvítt, laust púður sem verður gegnsætt þegar það er borið á olíubaseraðan farða eða vax. Notað til að festa og matta farða. Púðrið fæst í 20 gr. dósum á kr. 1.500 og 60 gr. dósum á kr. 2.125. Langvinsælasta púðrið í versluninni. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin […]

Vorverkin hjá Leikfélagi Kópavogs

bolero01_250x167

Vorverkin, þriggja þátta leikdagskrá Leikfélags Kópavogs verður frumsýnd í Leikhúsinu Funalind 2, þriðjudaginn 27. maí kl. 19.30. Þættirnir eru Úlfur í ömmugæru eftir og í leikstjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar, Strikið eftir Pál J. Árdal í leikstjórn Arnar Alexanderssonar og Bóleró eftir David Ives í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Alls taka 12 leikarar þátt í leikdagskránni. Dagskráin […]

Wide Slumber í Tjarnarbíói á Listahátíð

wide_slumber

Wide Slumber er nýtt tónleikhúsverk úr smiðju VaVaVoom og Bedroom Community sem fléttar saman lifandi tónlist eftir Valgeir Sigurðsson við leikhúsgaldur VaVaVoom (S. Sunna Reynisdóttir og Sara Martí). Verkið er innblásið af ljóðabókinni Wide Slumber For Lepidopterists eftir a. rawlings, þar sem mismunandi stigum svefns er líkt saman við lífshring fiðrilda og prósi hins vakandi […]

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

hargel

Extra sterkt hárgel frá Kryolan. Kemur í 500 ml. dósum og kostar 4.500 kr. Gelið festir mjög vel og endist lengi. Næst úr hárí með vatni og sápu. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða […]

Rommí á Bíldudal

d_l_coburn

Það má með sanni segja að  leiklistarlífið hafi verið í góðum gangi á Vestfjörðum síðustu ár. Áhugaleikfélögin vestra hafa sett upp hvert stykkið á fætur öðru og það sem enn betra er að mörg félög hafa verið að vakna af sínum Þyrnirósadvala. Nú hefur hið fornfræga Leikfélagið Baldur á Bíldudal vaknað á nýjan leik og […]

Fantastar – leiksýning við höfnina

fantastar

Hvalur hefur tekið sér bólfestu í húsi við höfnina. Hann tælir til sín gesti og gangandi með seiðandi söng sínum. Risakræklingur er bundinn við bryggju – fljótandi hljóðfæri liggur við höfnina.  Þegar komið er inn í gin hvalsins hefst andlegt ferðalag, sem er lyginni líkast.  Þetta ferðalag í gegnum iður hvalsins er þekkt minni í […]

Ungmennin í LÖ frumsýna Loka Laufeyjarson

lokil

Unglingadeild Leikfélags Ölfuss hefur síðan í mars æft nýtt leikverk sem nefnist Loki Laufeyjarson og er eftir þau Gísla Björn Heimisson, Guðmund Lúðvík Þorvaldsson og Guðrúnu Sóleyju Sigurðardóttur. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson en hann leikstýrði uppsetningu félagsins í haust á leikritinu Makalausri sambúð eftir Neil Simon. Frumsýnt verður í Versölum mánudaginn 26. maí kl. […]

Peðið sýnir á Hlemmur Square

hrutsthattur

Leikfélagið Peðið frumsýnir á föstudaginn Hrútsþátt hreðjamikla – hetju og kynlífsögu eftir Jón Benjamín Einarsson og höfund Njálu, að þessu sinni er sýnt á Hostelinu Hlemmur Square á Laugaveginum. Leikfélagið hefur undanfarinn mánuð æft af krafti undir stjórn Magnúsar Guðmundssonar þetta skemmtilega verk eftir Jón og höfund Njálu. Að venju er mikið um söng og […]

Fundargerð aðalfundar 3. maí 2014 í Vestmannaeyjum

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn í Menningarhúsinu Kviku í Vestmannaeyjum dagana 3. og 4. maí 2014 1.    Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason, formaður Bandalagsins setti fundinn og stakk upp á Birki Högnasyni og Unni Guðgeirsdóttur frá Leikfélagi Vestmannaeyja sem fundarstjórum og Magnþóru Kristjánsdóttur, […]

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

tannlakk3

Tannlakk frá Grimas. Tannlakk er fljótandi alcoholbaserað efni sem ætlað er til litunar á tönnum. Það kemur í 10 ml. glösum með pensli. Það er framleitt í 7 litum; gull, silfur, rautt, hvítt, svart, brúnt og nicottine. Glasið kostar 1.875 kr. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá […]

Fuglinn blái fyrir Amnesty

amnesty

Vonarstrætisleikhúsið með stuðningi Tjarnarbíós efnir til leiklestrar á Fuglinum bláa þriðjudaginn 13. maí til eflingar hugsjónastarfi Amnesty International, en Íslandsdeild Amnesty verður 40 ára á þessu ári. Fuglinn blái er eitt þekktasta verk leikbókmenntanna og t.d. hlaut höfundurinn Maurice Maeterlinck bókmenntaverðlaun Nóbels fyrir það verk árið 1911. Hátt á annan tug þjóðkunnra listamanna taka þátt […]

Útlagar yfirtaka Gamla bíó

fjalla_gisli

Útlagar hafa löngum verið á Íslandi og eru jafnvel enn. Þekktustu útlagarnir eru án efa Gísli Súrsson og Fjalla-Eyvindur. Kómedíuleikhúsið hefur samið leikrit um báða þessa kappa sem hafa notið mikilla vinsælda. Nú verða báðir leikirnir sýndir saman og því boðið uppá sannkallaða útlaga leikhústvennu. Sýnt verður í hinu stórglæsilega Gamla bíói enda dugar ekkert […]

Answering Answering – Machine” í Rýminu

talkingtimber

Leikhópurinn Talking Timber sýnir verkið „Answering Answering – Machine” í Rýminu laugardaginn 10. maí kl. 17:00. Hópurinn samanstendur af  Josephine Kylén Collins (SÞ), Mikkel Rasmussen Hofplass (NO), Piet Gitz-Johansen (DK) og Hanna Reidmar (SÞ). Tónlistarmennirnir  Jonny Collins Wartel og Georgia Wartel Collins sýna með þeim í þessu verki. Sýningin er flutt á ensku. Talking Timber […]

Stund milli stríða valin Athyglisverðasta áhugaleiksýningin

Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og fyrsta sinn. Að þessu sinni sóttu alls sautján leikfélög um að koma til greina við valið með nítján sýningar. Að vanda var úrval sýninganna afar fjölbreytt, leikfélögin sýndu ný frumsamin verk og eldri íslensk verk, nýleg og sígild erlend leikrit, spunasýningar, söngleiki, […]

Hamlet litli fyrir heyrnarlausa og blinda

hamlet_litli2

Laugardaginn 10 maí kl 13 verður í fyrsta sinn á Íslandi hægt að sjá og heyra leiksýningu með bæði sjónlýsingu og táknmálstúlkun. Hægt verður að fá heyrnartól fyrir sjónlýsingarnar en einnig verða þrír táknmálstúlkar sem skuggatúlka hverja og eina persónu verksins. Sýningin er í samstarfi við List án landamæra. Nýlega frumsýndi Borgarleikhúsið verkið Hamlet litla […]

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

UV-Dayglow Compact Color frá Kryolan eru kremkendir vatnslitir. Litirnir eru skærir og sterkir og hægt að ná fram flottum áhrifum í venjulegri lýsingu en þegar notað er svokallað black light hverfur allt nema það sem málað er með þessum ótrúlegu litum. Litirnir fást í 8 lita palettu, verðið er kr. 10.500. Einnig er hægt að […]

BLAM! snýr aftur í Borgarleikhúsið

blam

BLAM! Verk Krisjáns Ingimarssonar kemur aftur á Stóra sviðið þriðjudaginn 13 maí kl 20. BLAM! er óður til leikgleði og hugrekkis, bræðingur af „Die hard“ og „The Office“, verk án orða þar sem frábærir listamenn (og eldhugar) endasendast um sviðið í stórhættulega fyndnum slagsmálaleik. Sýningin hefur slegið rækilega í gegn í Danmörku og víðar um […]

Leitin að Billy Elliot

billy_elliot

Borgarleikhúsið leitar að dreng á aldrinum 9-11 ára til að leika Billy Elliot. Hugsanlega veit hinn íslenski Billy ekki að hann er stjarnan sem leitað er að. Hefur þú séð strák klifra listilega í ljósastaur? Eða stökkva stórkostlega? Er einhver sem þú þekkir sem hefur aldrei leikið, dansað og sungið en hefur vissulega hæfileika til þess? […]

Skvaldur í Egilsbúð

skvaldur

Þann 1. maí n.k. frumsýnir Leikfélag Norðfjarðar gamanleikinn Skvaldur eftir Michael Frayn í þýðingu Árna Ibsen í Egilsbúð, Neskaupstað. Leikhópurinn, sem samanstendur af fólki á öllum aldri frá 14 ára til tæplega fimmtugs, hefur unnið hörðum höndum undanfarnar vikur að uppsetningunni. Meðal annars hefur verið byggð glæsileg tveggja hæða leikmynd á sviðinu í Egilsbúð. Leikritið […]

Arty hour í Tjarnarbíói

arty_hour

Listamenn og hópar með aðstöðu í húsinu kynna verk í vinnslu fyrir gestum. 29. mars síðastliðinn var haldin hátíðleg opnun „hins nýja Tjarnarbíós“, en hluti af breytingunum sem gerðar hafa verið nýlega, er að fleiri rými en aðalsalurinn hafa verið opnuð listamönnum. Nú iðar húsið af lífi og margskonar listamenn og hópar vinna að verkum […]