BLAM! Verk Krisjáns Ingimarssonar kemur aftur á Stóra sviðið þriðjudaginn 13 maí kl 20. BLAM! er óður til leikgleði og hugrekkis, bræðingur af „Die hard“ og „The Office“, verk án orða þar sem frábærir listamenn (og eldhugar) endasendast um sviðið í stórhættulega fyndnum slagsmálaleik. Sýningin hefur slegið rækilega í gegn í Danmörku og víðar um heim og í lok síðasta leikárs hlaut hún Reumert verðlaun dómnefndar sem sýning ársins. Sýningin fékk sex Grímutilnefningar í fyrra og hlaut Kristján ein þeirra, Sproti ársins. Sýningin hefur slegið í gegn út um allan heim.
Sagan – Þrír kúgaðir skrifstofumenn sólunda lífi sínu á sorglegustu skrifstofu veraldar undir vökulu auga siðblinds yfirmanns. Í hvert sinn sem hann lítur undan, nýta þeir tækifærið til að „blamma“: Að endurgera uppáhalds senurnar sínar úr hasarmyndum. Þegar yfirmaðurinn fer að „blamma“ með þeim færist fjör í leikinn og við tekur stórhættuleg saga sem leikin er á ógnarhraða og krefst ofurmannlegra átaka.
Verkið – Kristján Ingimarsson er listrænn stjórnandi Neander leikhópsins sem hefur þróað hefur sitt eigið líkamstungumál sem samanstendur af látbragðsleik, gamanleik, fimleikum, trúðleik, dansi og leiklist – og því þvælist ekkert hefðbundið tungumál fyrir áhorfendum á sýningum þeirra. Tónlistin er áberandi og húmorinn er aldrei langt undan. Þessi nýjasta sýning Kristjáns hefur slegið rækilega í gegn í Danmörku og vakið athygli víða um heim. Sýningin hefur hlotið mikið lof og valdi dómnefnd hinna virtu Reumert verðlana hana sýningu ársins í Danmörku.
Aðstandendur Höfundar: Kristján Ingimarsson, Jesper Pedersen | Leikstjórn: Kristján Ingimarsson, Simon Boberg | Leikmynd: Kristian Knudsen | Lýsing: Edward Lloyd Pierce | Hljóðmynd: Svend E. Kristensen, Peter Kyed | Leikarar: Kristján Ingimarsson, Lars Gregersen, Didier Oberlé, Joen Højerslev