Húrra fyrir Freyvangsleikhúsinu!
Freyvangsleikhúsið hefur sýnt leikritið ,Gaukshreiðrið síðan 16. febrúar og hefur aðsókn verið góð að sögn. Ég undirritaður brá mér á sýningu í gærkvöldi 8. mars og verð að segja að ég varð hrifinn, stórhrifinn. Verkið er samið upp úr bók eftir Ken Kensey og Dale Wasserman gerði leikgerð upp úr bókinni, en Karl Ágúst Úlfsson þýddi þessa leikgerð. En ,,Gaukshreiðrið“ var fyrst sýnt hér á landi á, Húsavík árið 1992 og þá í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur og María Sigurðardóttir leikstýrði. ,,Gaukshreiðrið“ gerist á geðveikrahæli, en fjallar í raun ef til vill ekki um slíka stofnun, heldur er þetta dæmisaga úr samfélagi og viðbrögðum þess við fólki sem ekki vill eða er tilbúið...
Sjá meira


