Fimmtudagskvöldið 22. mars frumsýndi Leikfélag Hörgdæla leikritið Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur.

Um er að ræða gamanleik með söngvum og lifandi tónlist sem fjallar um farandverkafólk á síldarárunum, sorgir þeirra og gleði, ástir, afbrýði og samskipti við heimafólk.

Leikritið verður sýnt á Melum í Hörgárdal á föstudags- og laugardagskvöldum kl. 20:30 á næstunni.

Rauði þráðurinn er togstreitan milli síldarspekúlantsins og erfingja landsins sem planið stendur á en sá er ekki hrifinn af lýðnum og ólifnaðinum sem síldarævintýrinu fylgir. Um er að ræða viðamikið verkefni hjá leikfélaginu, t.d. koma að sýningunni milli 50 og 60 manns, þar af 19 leikarar.

Sunna Borg leikstýrir en hljóðfæraleikur er í höndum þeirra Snorra Guðvarðssonar, Jóns Hrólfssonar og Sigurðar Óla Þórissonar. Leikmynd gerir Hallmundur Kristinsson og ljósameistari er Ingvar Björnsson.

Miðapantanir eru í símum 864 7686 og 862 6821 milli kl. 17:00 og 19:00.

{mos_fb_discuss:2}