Leikfélag Hafnarfjarðar stendur fyrir höfundasmiðju og stuttverkahátíð
Í kvöld, föstudaginn 24. apríl verður haldin höfundasmiðja hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar í gamla Lækjarskóla. Höfundasmiðjan hefst klukkan 18 um kvöldið og stendur til tvö um nóttina. Ætlunin er að allir þeir sem hafa áhuga á að skrifa stuttverk hittist og skrifi saman hver sinn leikþátt út frá sameiginlegu þema með stuðningi hver frá öðrum. Höfundasmiðjan […]
Creature sýnt hjá LA og Þjóðleikhúsinu
Creature er nýtt verk eftir leikhúslistamanninn Kristján Ingimarsson, sem þekktur er fyrir að feta ótroðnar slóðir og nota líkamann á óvæntan og sérstæðan hátt í sýningum sínum. Sýningin var frumflutt í Husets Teater í Kaupmannahöfn en verður sýndur hjá Leikfélagi Akureyrar 1. og 2. maí og í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 14, 15, 16 og 17. […]
Dauði í kreppunni sýnt í Jaðarleikhúsinu
Efnahagurinn er í rusli, hagkerfið sprungið, hundruðir hungraðir. Einhversstaðar, einhvernveginn hefur forsætisráðherra verið myrtur. Kreppan stendur sem hæst þegar tveir mótmælendur myrða óvart forsætisráðherrann. Hvert á að láta líkið? Kann einhver að þrífa? Er Grettir sterki nógu sterkur? Er hægt að redda málunum áður en Sigurlaug kemur? Og síðast en ekki síst, er þetta kannski […]
Samþætting tækni í leikhúsinu
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir: Umsóknarfrestur á námskeiðið Samþætting tækni í leikhúsinu hefur verið framlengdur til 4. maí Með sífelldri þróun tölvutækninnar hafa orðið til leiðir og forrit sem gera manni kleift að flétta saman hljóð, ljós og myndband í eina heild og jafnvel nýja hluti með s.s. gagnvirka tækni. Þetta kallar á yfirsýn allra […]
Athyglisverðasta áhugasýning leikársins 2008-2009
Nú er runninn út frestur til að sækja um að koma til greina í vali Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningunni og er þátttakan óvenju góð þetta árið, alls sækja 18 leikfélög um með 20 sýningar. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, mun svo tilkynna niðurstöður dómnefndar á hátíðarkvöldverði aðalfundar Bandalagsins sem haldin verður á Hótel Hlíð í Ölfusi þann […]
Aukasýning á Ég heiti Rachel Corrie
Leikkonan Þóra Karitas Árnadóttir hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í einleiknum Ég heiti Rachel Corrie en verkið byggir á skifum Rachel sem lést við friðargæslustörf í Palestínu þegar ísraelsk jarðýta ók yfir hana þar sem hún mótmælti niðurrifi húsa á Gaza svæðinu.
Þjóðleikur stærsta leiklistarhátíð Íslandssögunnar
Stærsta leiklistarhátíð sem haldin hefur verið hérlendis fer fram á Egilsstöðum helgina 24.-26. apríl. Þar verða í boði 28 leiksýningar á vegum þrettán leikhópa ungs fólks sem allir hafa starfað undir merkjum Þjóðleiks, tilraunverkefnis á vegum fræðsludeildar Þjóðleikhússins og fleiri aðila, í vetur. Um 200 þátttakendur, víðsvegar að af Austurlandi koma saman á Egilstöðum og […]
Sýningar- og aðsóknarmet í Hörgárdalnum slegið
Leiksýningin Stundum og stundum ekki, sem Leikfélag Hörgdæla hefur verið að sýna að Melum í Hörgárdal frá því í byrjun mars, mun slá sýninga- og aðsóknarmet hjá leikfélaginu. Gamla sýningametið var 21 sýning á leikritunum Þrek og tár og Síldin kemur og síldin fer. Aðsóknarmet verður líka slegið, því nú þegar hafa um 1.800 manns séð sýninguna.
Kaþarsis – Örleikritahátíð í FSu
Næstkomandi þriðjudags- og miðvikudagskvöld 21. og 22. apríl verður haldin örleikritahátíð í FSu. Hátíðin er skipulögð af kennara og nemendum í áfanganum ÍSL 643 sem er valáfangi í bókmenntum. Leikritin eru öll samin og leikstýrð af nemendum áfangans, yfirlesin, greind og gagnrýnd af kennara og hópnum sem heild. Leikendur í verkunum eru nemendur sem nýlega […]
Gefðu Jéns séns hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Hörður S. Dan. skellti sér á sýningu Unglingadeildar Leikfélags Hafnarfjarðar Gefðu Jens séns. Þetta er sýning byggð á spunavinnu sem unglingarnir hafa staðið í frá því í janúar. Endaði sú vinna með fjögurra vikna formfastari vinnu og er þessi sýning útkoma þess.
Málþing í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 19. apríl
Leikritið Ég heiti Rachel Corrie sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 19. mars síðastliðinn hefur vakið athygli á einu stærsta pólitíska málefni samtímans deilu Ísraels og Palestínu. Sunnudaginn 19. apríl kl. 15-17 stendur Borgarleikhúsið fyrir málþingi um samtal leikhússins og áhorfandans. Á meðal framsögumanna eru foreldrar Rachelar, Craig og Cindy Corrie, en þau hafa […]
Stuttverkahátíðin Margt smátt 23. maí 2009
Nú er komið að 5. stuttverkahátíðinni okkar, Margt smátt, í Borgarleikhúsinu. Hátíðin verður haldið laugardaginn 23. maí næstkomandi og verður hún með sama sniði og síðast, í október 2007, en mál manna var að sú hátíð hefði verið sérstaklega vel heppnuð. Frestur til þess að tilkynna um þátttöku á hátíðinni er til föstudagsins 1. maí. […]
English: About BÍL
The Icelandic Amateur Theatre Association (Bandalag Íslenskra Leikfélaga) was founded in 1950. Its purpose is to safeguard the common interests of its members; the Icelandic Amateur Theatres and Clubs. It runs a service centre in Reykjavík where you can find, among other things, the largest and most accessible collection of playscripts, both original icelandic plays […]
Sjóræningjaprinsessan vinsæl
Uppselt hefur verið á fyrstu fimmtán sýningar á Sjóræningjaprinsessuna, nýtt íslenskt barna- og fjölskylduleikrit með söngvum sem Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir. Litlir og stórir, ungir sem gamlir og allt þar á milli hafa skemmt sér konunglega á sýningum og greinilegt að margir efnilegir sjóræningjar leynast í hópi áhorfenda þar sem þeir hafa eftir […]
Lokasýningar á Hinum illa dauðu
Nú um helgina verða loksýningar hjá Leikfélagi Keflavíkur á hryllingssöngleiknum Hin illa dauðu. Leikfélagið þurfti að leigja ýmsan tæknibúnað fyrir þessa sýningu og er leigutíminn útrunninn. Þetta verða því allra síðustu sýningar og lokatækifæri fólks til að sjá þetta frábæra verk sem hlotið hefur mikið lof gagnrýnenda. Sýningin tekur þátt i samkeppninni um áhugaverðustu áhugaleiksýningu […]
Leikfélag Sauðárkróks með afmælissýningu
Í gær voru slétt 121 ár frá því að Leikfélag Sauðárkróks var stofnað en það var 13. apríl 1888. Þetta var níu árum áður en þeir stofnuðu leikfélag í Reykjavík. LS starfaði af miklum móð í tvo áratugi, en lagðist svo í dvala. Var endurreist árið 1941 og hefur í tæp sjötíu ár verið burðarásinn […]
Metnaðarfullt gaman á Seltjarnarnesi
Jóhanna Ástvaldsdóttir og Grétar Guðni Guðmundsson eru bæði stofnfélagar í Leiklistarfélagi Seltjarnarness sem hefur verið starfrækt frá árinu 1998. Þau ásamt öðrum meðlimum leiklistarfélagsins vinna nú að uppsetningu verksins Margt býr í þokunni eftir William Dinner og William Morum í þýðngu Ásgerðar Ingimarsdóttur. Verkið, sem er í leikstjórn Bjarna Ingvarssonar, verður frumsýnt 19. apríl í […]
Margt smátt – Frestur til að tilkynna þátttöku
Nú líður að 5. Margt smátt stuttverkahátíðinni okkar í Borgarleikhúsinu. Hátíðin verður haldin laugardaginn 23. maí næstkomandi og verður hún með sama sniði og síðast, í október 2007, en mál manna var að sú hátíð hefði verið sérstaklega vel heppnuð. Frestur til þess að tilkynna um þátttöku á hátíðinni er til föstudagsins 1. maí. Senda […]
Magnús Magnússon skellti sér á Töðugjaldaball
Félagar í Ungmennafélagi Reykdæla láta hreint ekki deigan síga í leiklistinni þrátt fyrir að síðastliðinn vetur hafi verið ráðist í umfangsmikla sýningu þegar Þið munið hann Jörund var fært upp á aldar afmælinu. Verkefni þessa vetrar er um margt frábrugðið hefðbundnum leiksýningum. Afraksturinn mátti síðan sjá síðastliðið föstudagskvöld þegar frumsýndur var í Logalandi nýr söng- […]
Málþing Hugleiks Áhugaleikhús og frumsköpun
Sunnudaginn 19. apríl nk. stendur leikfélagið Hugleikur fyrir málþingi undir yfirskriftinni Áhugaleikhús og frumsköpun á Rósenberg kl. 16.00 í tilefni af 25 ára starfsafmæli félagsins síðar í þessum mánuði. Hugleikur var stofnaður árið 1984 og hefur um árabil verið einn virkasti áhugaleikhópur landsins. Hann hefur þá sérstöðu meðal íslenskra leikfélaga að leikverkin eru öll saman […]
Peðið sýnir Hvers vegna hokra ef bræða má ál?
Leikfélagið Peðið á Grand Rokk frumsýnir söngleikinn Álperu á föstudaginn langa kl. 16.00. Höfundur verksins er Jón Benjamín Einarsson sem einnig leikstýrir verkinu ásamt Vilhjálmi Hjálmarssyni. Tónlist er samin af þeím Björgúlfi Egilssyni og Kormáki Bragasyni sem jafnframt sjá um tónlistarflutning ásamt Hallgrími Guðsteinssyni, Jóakim Karlssyni, Lísu Pálsdóttur og Tómasi M. Tómassyni.
Viltu vera vinur minn á FACEBOOK?
Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir laugardaginn 4. apríl nýtt spunaleikverk um heitasta netfyrirbæri síðari ára, Facebook. Aðalpersóna verksins uppgötvar töfraheim Facebook og sogast smám saman inn í hann með ýmsum afleiðingum á líf hennar. Leikstjóri er Anna Brynja Baldursdóttir og ellefu leikarar skipta á milli sín hlutverkum. Sýningin er unnin af leikstjóra og leikhóp með "devised […]
Hin illa dauðu í Keflavík
Leikfélag Keflavíkur sýnir um þessar mundir söngleikinn Hin illa dauðu sem byggður er á kvikmyndunum góðkunnu Evil dead, Evil dead 2 og Evil dead 3. Leikstjóri sýningarinnar er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Hörður S. Dan brá sér á sýninguna og hér má fræðast um hvernig hann upplifði hana.
Héri Hérason frumsýndur á Siglufirði
Leikfélag Siglufjarðar hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur. Í febrúar bretti fólk upp ermarnar og var hafist handa við æfingar á gamanleikritinu Héri Hérason eftir Coline Serreau. Guðjón Sigvaldason er leikstjóri en hann hefur áður unnið með Leikfélagi Siglufjarðar, síðast árið 2006 þegar Láttu ekki deigan síga Guðmundur eftir Eddu Björgvinsdóttir og Hlín Agnarsdóttur var […]
Aðalfundur Bandalags ísl. leikfélaga 2009
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn að Hótel Hlíð í Ölfusi dagana 1. og 2. maí 2009. Fundurinn verður settur föstudagsmorguninn 1. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil laugardaginn 2. maí. Fundargestir eru boðnir velkomnir fimmtudagskvöldið 30. apríl. Engin skipulögð dagskrá er þá um kvöldið en fólk getur farið á leiksýningu hjá Leikfélagi […]
Sex í sveit í Biskupstungum
Föstudaginn 3. apríl frumsýnir Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna gamanleikinn Sex í sveit eftir Marc Camoletti í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Sýnt verður í félagsheimilinu Aratungu og hefjast sýningar kl. 20.30. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson.
Tónlistarskólinn í Reykjavík sýnir tvær óperur
Föstudagskvöldið 3. apríl verða sýndar tvær óperur í uppfærslu Tónlistarskólans í Reykjavík í samvinnu við Íslensku óperuna. Þessi óperusýning sætir nokkrum tíðindum, því hér er um að ræða annars vegar frumflutning á nýrri íslenskri óperu, Gilitrutt eftir Þórunni Guðmundsdóttur, og hins vegar frumflutning á Íslandi á fyrstu óperu Rossinis, La cambiale di matrimonio. Leikstjórn er í höndum […]
Leikfélag Sauðárkróks leggur Roklandi lið
Kvikmyndafélagið Pegasus hefur verið á Sauðárkróki síðustu daga við æfingar og undirbúning vegna kvikmyndarinnar Roklands, sem byggir á samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar. Leikfélag Sauðárkróks hefur verið framleiðendum myndarinnar innanhandar og lagt til leikara í ýmis aukahlutverk. Það var éljagangur og norðangarri sem mætti leikurum og kvikmyndafólki á Nöfum ofan við Krókinn um hádegisbil á mánudag […]
Gefðu Jens séns sýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Unglingadeild Leikfélags Hafnarfjarðar laugardaginn 4. apríl í húsakynnum félagsins í Gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði, nýtt frumsamið spunaverk sem ber nafnið Gefðu Jens séns. Það er unnið af leikhópnum og leikstjórum hans. Leikhópurinn samanstendur af 8 eldhressum unglingum, en umsjónarmenn og leikstjórar eru þær Guðrún Sóley Sigurðardóttir og Hrefna Lind Lárusdóttir.
Auðun og ísbjörninn á Ísafirði
Kómedíuleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt leikverk Auðun og ísbjörninn miðvikudaginn 1. apríl kl. 20 í Tjöruhúsinu á Ísafirði. Leikurinn er byggður á Íslendingaþættinum Auðunar þáttur vestfirzka sem er án efa besti og vinsælasti allra Íslendingaþátta. Hér segir frá bóndastrák frá Vestfjörðum sem leggst í víking og á vegi hans verður taminn ísbjörn. Auðun ákveður að gefa […]
Valhalla Bank skipuleggur magnaða opnunarhátíð
Undirbúningur að stofnun Valhalla Bank gengur vonum framar. Bankinn mun opna þann 2. apríl og í tilefni þess verður blásið til opnunarveislu þrisvar sinnum. Fyrsta hátíðin verður þann 2. apríl, næsta 3. apríl og sú síðasta 11. apríl. Ástæða þess er gríðarleg eftirspurn að hátíðinni sem og vilji bankans til að tengjast fólkinu á starfsvæði […]
Leiksýningar 2007-2008 í tölum
Í tilefni af alþjóða leiklistardeginum þann 27. mars nk. hefur Hagstofa Íslands sent frá sér frétt um leiksýningar leikhúsa og leikhópa leikárið 2007-2008. Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga nam ríflega 414 þúsundum á síðasta leikári, leikárinu 2007/2008. Þetta samsvarar því að hver landsmaður hafi sótt leiksýningu 1,3 sinnum á leikárinu. Gestum […]
Fjórar sýningar í gangi hjá LA um páskana
Það verður úr nógu að velja fyrir þá sem hyggjast dvelja í höfuðstað Norðurlands núna um páskana en Leikfélag Akureyrir býður uppá 4 sýningar yfir hátíðirnar. Þetta eru Fúlar á móti með þeim Eddu Björgvins, Helgu Brögu og Björk Jakobs sem slegið hefur rækilega í gegn, Tenórinn, sem saminn og fluttur er af Guðmundi Ólafssyni, […]
Ávarp Alþjóða leiklistardagsins, 27. mars 2009
Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóða leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjald leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska […]
Borgarholtsskóli sýnir Rómeó og Júlíu
Leikfélag Zeus í Borgarholtsskóla frumsýnir eitt frægasta meistaraverk leikbókmenntanna: Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare, í þýðingu Hallgríms Helgasonar. Þetta er kynngimagnaður og meinfyndinn harmleikur þar sem jogglað er með hnífa, barist með prikum, staðið á öxlum og ástin tekur heljarstökk út yfir líf og dauða. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.
Frestur til að sækja um Athyglisverðustu áhugaleiksýninguna
Á aðalfundi Bandalagsins, 1. og 2. maí nk. verður val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningunni tilkynnt eins og hefð er fyrir. Frestur til að sækja um fyrir leiksýningu að koma til greina í valinu rennu út 20. apríl nk. og skulu umsóknir berast til Þjóðleikhússins ásamt myndbandsupptökum af sýningunni ekki seinna en þá um daginn. Leikfélög […]
Sjö gyðingabörn, leikrit fyrir Gaza í Borgarleikhúsinu
Sjö gyðingabörn leikrit fyrir Gaza, er nýtt 10 mínútna leikrit eftir Caryl Churchill, sem frumsýnt var í Royal Court leikhúsinu í London í febrúar síðastliðnum. Churchill skrifaði leikritið nú í janúar í kjölfar átakanna á Gaza. Verkið birtir okkur sjö svipmyndir sem eiga sér stað á mismunandi tímum í sögunni.
Í dag er alþjóðlegur leikhúsdagur barna
Alþjóðlegi barnaleikhúsdagurinn er haldinn ár hvert að frumkvæði ASSITEJ International alþjóðasamtaka um barna- og unglingaleikhús. Með samskiptaneti sem tengir saman þúsundir leikhúsa og einstaklinga um allan heim hvetur ASSITEJ leikhúslistamenn sem vinna að leiksýningum fyrir börn og unglinga að slá hvergi af listrænum kröfum í starfi sínu. ASSITEJ leitast við að sameina ólíka menningarheima […]
Ég heiti Rachel Corrie frumsýnt 19. mars
Einleikurinn, Ég heiti Rachel Corrie, verður frumsýndur á Litla sviði Borgarleikhússins, þann 19. mars kl 20.00. Verkið er umdeilt en það tók tæpt ár fyrir Bandaríkjamenn að þora að setja það upp í heimalandinu, af ótta við reiði og uppþot vegna stjórnmálaskoðana Rachel Corrie og sýn hennar á ástand heimsmála. María Ellingsen leikstýrir leikkonunni Þóru […]
Sendu mér SMS
Félagar í Umf. Reykdæla hafa oft á tíðum farið ótróðnar slóðir í verkefnavali. Undanfarnar vikur hafa þeir staðið í ströngu og eru nú að færa á svið í Logalandi nýjan frumsaminn söng- og gamanleik eftir heimamenn. Höfundar eru þeir Bjartmar Hannesson bóndi á Norður Reykjum og Hafsteinn Þórisson bóndi og tónlistarkennari á Brennistöðum. Hafsteinn samdi […]
