Leikritið Ég heiti Rachel Corrie sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 19. mars síðastliðinn hefur vakið athygli á einu stærsta pólitíska málefni samtímans – deilu Ísraels og Palestínu. Sunnudaginn 19. apríl kl. 15-17 stendur Borgarleikhúsið fyrir málþingi um samtal leikhússins og áhorfandans. Á meðal framsögumanna eru foreldrar Rachelar, Craig og Cindy Corrie, en þau hafa haldið fyrirlestra víða um heim í þau sex ár sem liðin frá því dóttir þeirra lét lífið við sjálboðastörf í Palestínu.

Dagskrá málþingsins:
 
Samtal leikhússins og áhorfenda – Magnús Geir Þórðarsson leikhússtjóri Borgarleikhússins opnar dagskrána og fjallar um hvernig leikhúsið kappkostar að eiga í virku samtali við samtíma sinn.
 
Ein rödd skiptir máli – foreldrar  Rachel Corrie, Craig og Cindy Corrie segja frá  persónulegri reynslu sinni af því að halda baráttu dóttur sinnar áfram, uppsetningum á verkinu víða um heim og þeim viðbrögðum sem það hefur vakið. Þau eru nýkomin af Gaza svæðinu og sýna myndir og lýsa ástandinu eins og það blasti við þeim.
 
Hlé
 
Leitin að raunveruleikanum – Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri og leikhúsfræðingur fjallar um  gildi heimildaleikhúss
 
Að brjótast inní stærsta fangelsi í heimi – Sveinn Rúnar Hauksson læknir segir frá áksorunum í hjálparstarfi
 
7 gyðingabörn – 10 mínútna leikrit fyrir Gaza- eftir Caryl Churchill í leikstjórn Graeme Maley. Þýðandi Jón Atli Jónasson. Leikarar: Ásta Sighvats Ólafsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Harpa Arnardóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Jóhanna Jónas, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Páll Sigþór Pálsson, María Ellingsen, Sólveig Arnarsdóttir, Sólveig Guðmundsdótir,
 
Fundarstjóri er María Ellingsen leikari og leikstjóri – Aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfir.
 
Síðustu sýningar á Ég heiti Rachel Corrie eru kl. 22.00 laugardaginn 18. apríl og kl. 20.00 sunnudaginn 19. apríl. Foreldrar Rachel Corrie verða viðstaddar báðar sýningarnar og svara spurningum áhorfenda að leiksýningunni lokinni.

{mos_fb_discuss:3}