Gleðilegt ár!

gledilegtar2013

Bandalag íslenskra leikfélaga sendir aðildarfélögum sínum, viðskiptavinum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleði og farsæld á nýju ári og þakkar samskiptin á því liðna. Þjónustumiðstöðin verður opin að venju frá 9.00 til 13.00 alla virka daga og síðdegis eftir samkomulagi.

Karíus og Baktus í Kúlunni

karius_og_baktus

Þjóðleikhúsið heldur upp á 100 ára afmæli Thorbjörns Egners með því að setja á svið tvö af hans vinsælustu leikritum, Dýrin í Hálsaskógi á Stóra sviðinu og Karíus og Baktus í Kúlunni.  Frumsýning á Karíusi og Baktusi verður í Kúlunni 29. desember. Leikstjóri er Selma Björnsdóttir og það eru Ágústa Eva Erlendsdóttir og Friðrik Friðriksson […]

Lokað um hátíðirnar

bil logo

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga Kleppsmýrarvegi 8 verður lokuð frá kl. 13.00 föstudaginn 22. desember og til miðvikudagsins 2. janúar. Bandalag íslenskra leikfélaga óskar öllum gleðilegra jóla og þakkar samskiptin á árinu sem er að líða!

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins – Macbeth

macbeth

Nú líður að jólafrumsýningu Þjóðleikhússins á Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins eftirsótta leikstjóra Benedicts Andrews, og bíða margir með eftirvæntingu eftir að fá að sjá sýninguna. Eitt magnaðasta leikrit heimsbókmenntanna, Macbeth, er jólasýning Þjóðleikhússins. Rétt eins og undangengin 62 ár er jólafrumsýningin á annan dag jóla og markar einn af hápunktum menningarlífsins. Sýningin á Macbeth […]

Mýs og menn á Stóra sviðinu

mys_og_menn

Jólasýning Borgarleikhússins, Mýs og menn, verður frumsýnd á Stóra sviðinu laugardaginn 29. desember næstkomandi. Hér er sögð saga farandverkamannanna George og Lennie sem flakka saman á milli vinnustaða, vinna til að lifa af og þrauka en deila saman fjarlægum draumi um betra líf. En suma drauma þarf að gjalda dýru verði. Steinbeck skrifaði sjálfur leikritið, […]

Leikfélag Selfoss æfir Þrek og tár

threk_og_tar_hopur

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á leikritinu Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Lilju Nóttar Þórarinsdóttur.  Þrek og tár var fyrst frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1995 og er hvort tveggja fjölskyldusaga og þroskasaga ungs manns á 7. áratug síðustu aldar.  Leikritið innheldur mikið af söngvum sem margir hverjir eru löngu orðnir landskunnir. […]

Nóttin var sú ágæt ein í Tjarnarbíói

nottin_var_su_agaet_ein

Leikfélagið Óskabörn ógæfunnar frumsýnir mánudaginn 17. desember leiksýninguna Nóttin var sú ágæt ein, jólasýningu fyrir fullorðna. Höfundur verksins er Anthony Neilson (Penetreitor, Ófagra veröld) en verkið kallast á frummálinu The Night Before Christmas. Leikstjóri er Vignir Rafn Valþórsson, en hann þýddi og staðfærði verkið ásamt Hirti Jóhanni Jónssyni. Sýningin, sem sýnd er í Tjarnarbíói, er […]

100 ár frá fæðingu Thorbjørns Egner

egner

Í tilefni af því að í dag, 12. desember, eru 100 ár liðin frá fæðingu norska barnabóka og leikritahöfundarins Thorbjørns Egner, stendur Landsbókasafnið – Háskólasafn, í samvinnu við sendiráð Noregs, Nasjonalbibliteket í Osló, Þjóðleikhúsið og Leikminjasafnið, fyrir sýningu tengdri Egner en hann, auk þess að semja verkin og tónlistina við þau, hannaði hann gjarnan búninga, […]

Ferðalagið hefst á morgun!

marypoppins

Mary Poppins hópurinn, listrænir stjórnendur, leikarar, dansarar, söngvarar, tónlistar- og tæknimenn koma saman á fyrstu samæfingu á morgun sem markar upphafið af spennandi og krefjandi æfingaferli. Þá verður leikmynd kynnt, verkið leiklesið í heild sinni í fyrsta sinn og að endingu mun danshöfundur sýningarinnar Lee Proud drífa hópinn út á gólf á fyrstu dansæfinguna. Hátt […]

Jólahlaðborð Hugleiks

jolahladbord

Hugleikur býður til jóladagskrár undir heitinu Jólahlaðborð fimmtudaginn 13. desember kl. 20.00 og sunnudaginn 16. desember kl. 17.00. Eins og nafnið gefur til kynna verður fjölbreytt efni á boðstólum, leiknir þættir og tónlist í bland. Á krepputímum er í tísku að endurnýta og betrumbæta. Sýnt er í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9.

Faust sýnt á BAM hátíðinni í New York

faust4

Sýningar á Faust uppsetningu Vesturports og Borgarleikhússins á BAM hátíðinni í New York hefjast nk. miðvikudag 12. desember. BAM er stærsta og þekktasta leiklistarhátíð Bandaríkjanna sem haldin er ár hvert í New York. Alls eru fyrirhugaðar 6 sýningar á Faust á hátíðinni, dagana 12.–16. desember. Hópur listamanna og tæknifólks frá Vesturporti og Borgarleikhúsinu hélt utan […]

Hyldýpi í Gamla bíói

hyldypi

Föstudaginn 14. desember kl. 20 frumsýnir Ragnheiður Harpa Leifsdóttir leikverkið Hyldýpi  í Gamla bíói, Ingólfstræti 2a. Hyldýpi er leikverk sem fjallar um myrkrið, geimryk, ókönnuð djúp og kafbáta. Verkið er dagskrá um dýpsta dýpi sjávar og endaleysu himingeimsins, sorgina og sköpunarkraftinn. Sjónrænt ljóð hins óvænta og undarlega. Flytjandi, leikstjóri og höfundur er Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Verkið […]

Jólagjafirnar hjá Bandalaginu

krakkar

Hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga fæst mikið úrval af „óhefðbundum“ jólagjöfum fyrir þá sem gaman hafa af því að bregða sér í allra kvikinda gerfi. Andlitslitir fyrir börn, smink fyrir fullorðna, skallar, gerfiaugnhár, gerfiskegg, tannlitur,  litahársprey, glimmer, fljótandi latex, gerfiblóð, gerfinef og margt fleira. Við erum til húsa að Kleppsmýrarvegi 8 og opnunartími er frá 9-13 […]

Halaleikhópurinn æfir Rympu á ruslahaugnum

herdis_egilsdottir

Halaleikhópurinn æfir um þessar mundir barnaleikritið Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur, í leikstjórn Herdísar Þorgeirsdóttur. Verkið er leikrit fyrir börn á öllum aldri og hófust æfingar þann 1. nóvember og verður það frumsýnt snemma næsta árs. Leikritið fjallar um hana Rympu sem lifir og býr nú á ruslahaugnum, er frekar ófyrirleitin og hagar lífi […]

Jesús litli kemur með jólin

jesus_litli4

Sýningar á Jesú litla eru orðnar fastur liður í undirbúningi jólanna hjá mörgum Íslendingum og hann snýr aftur á Litla sviðið 4. desember. Þetta er í fjórða sinn sem Jesús litli er sýndur í Borgarleikhúsinu í aðraganda jólanna og ekkert lát á vinsældum hans. Sýningin var ótvíræður sigurvegari Grímunnar árið 2010, hlaut alls 7 tilnefningar […]

Jólaleg dagskrá hjá LA í desember

leikhusid_a_akureyri

Mikið verður um að vera hjá Leikfélagi Akureyrar í desember, tvö jólaleikrit verða á fjölum þess auk þess sem leikfélagið stendur fyrir leiklestri í samvinnu við Akureyrarakademíuna og Minjasafn Akureyrar og hefur hann hlotið nafnið Upprisa hinna nafnlausu. Jólaleikritin eru Ef ég væri jólasveinn… og Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson.

Jólaævintýrið sýnt í Iðnó

jolaaevintyrid

Jólaleikrit Borgarbarna þessi jól ber nafnið Jólaævintýrið og er eftir Erlu Ruth Harðardóttur sem jafnframt leikstýrir. Er þetta sjöunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu og hafa þær allar notið mikilla vinsælda. Verkið verður frumsýnt í Iðnó 1. desember og sýnt í desember. Sýningin er rétt undir klukkustund í flutningi.

Hinn eini sanni jólaandi frumsýnt á Litla sviðinu


hinn_sanni_jolandi

Næstu helgi hefjast sýningar á jólasöguni Hinn eini sanni jólaandi eftir Guðjón Davíð Karlsson á Litla sviði Borgarleikhússins. Hér er á ferðinni notarleg sögustund fyrir alla fjölskylduna í flutningi Góa og Þrastar, kærkomið tækifæri til að  kúpla sig út úr jólaösinni og eiga stund saman í leikhúsinu. Að sýningu lokinni verður boðið upp á kakó […]

Aukasýningar á Bjarmalandi

bjarmaland_ll

Leikfélagið Peðið gefur ekkert eftir og býður uppá 3 aukasýningar á óperunni Bjarmalandi II eftir Jón Benjamín Einarsson. .Sýnt er í Kjallaranum Laugarvegi 73 og miðapantanir eru í síma 866 7677. Tónlist og leikstjórn er í höndum Andreu Gylfadóttur. Velkomin til  Bjarmalands!

Leiklistarnámskeið á Melum í Hörgárdal

djakninn_a_myrka

Leikfélag Hörgdæla verður með leiklistarnámskeið á Melum í Hörgárdal þriðjudaginn 27., miðvikudaginn 28. og fimmtudaginn 29. nóvember nk. kl. 20:30. Leiðbeinandi er Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri og mun hann m.a. taka fyrir draugasögur, ljóðalestur og grímuleik. Einnig verður verkefni vetrarins, Djákninn á Myrká, skoðað. Allir velkomnir. Námskeiðisgjald 3.000 kr., frítt fyrir skuldlausa félagsmenn. Nánari upplýsingar […]

Ef ég væri jólasveinn

efegvaerijolasveinn

Leikfélag Akureyrar frumsýnir leikritið Ef ég væri jólasveinn, sannkallað jólaævintýri fyrir börn á öllum aldri, þann 25. nóvember nk. Sveinn J. Ólason er ungur drengur í Giljaskóla og á þann draum heitastan að vera jólasveinn.  Getur verið að ósk hans rætist? Sýnt verður í Samkomuhúsinu á sunnudögum til 9. desember.

Macbeth í Þjóðleikhúsinu, miðasala hafin

macbeth

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í ár er Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins margverðlaunaða leikstjóra Benedicts Andrews. Miðasala er hafin en sýningatímabilið verður óvenju stutt, einungis verður sýnt út janúar. Margir bíða jólafrumsýningar Þjóðleikhússins með eftirvæntingu og sýningin á Macbeth verður sannkölluð hátíðarsýning. Einn af eftirsóttari leikstjórum samtímans leikstýrir Birni Thors í hlutverki Macbeths og Margréti Vilhjálmsdóttur […]

Ekki alveg barn og ekki alveg fullorðinn

MTH_poster200x150

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir frumsamið leikverk er nefnist Milli tveggja heima, fimmtudaginn 22. nóvember kl. 20.00. Milli barnæsku og fullorðinsára er undarlegur heimur unglingsáranna. Spennandi og ógnvænlegur í senn, og ekki alltaf blíður þeim sem hann gista.„Hvernig er að vera ung manneskja í samfélagi okkar nútildags?“ Þannig spurðu krakkarrnir í unglingadeild Leikfélags Kópavogs sjálf sig […]

Leikfélag Mosfellssveitar sýnir Hamagang í helli mínum

hamagangur1

Sunnudaginn 18. nóvember var leikritið Hamagangur í helli mínum frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Þetta er nýtt íslenskt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna eftir Maríu Guðmundsdóttur. Leikstjórar eru Ólöf Þórðardóttir og Eva Björg Harðardóttir. Um tuttugu manns koma að sýningunni sem er full af söng, glensi og gríni. Sýningar verða í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ á sunnudögum kl. 16.

Enn er leitað að jólunum í Þjóðleikhúsinu

leitin

Áttundu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið ævintýrið Leitina að jólunum. Undanfarin sjö ár hefur verið uppselt á allar sýningarnar og ef fer sem horfir verða 200 uppseldar sýningar á þessu skemmtilega aðventuævintýri komnar í hús fyrir jól. Það er því um að gera að bregðast skjótt við því að miðarnir renna út eins og heitt […]

Silfurtunglið frumsýnir Ég var einu sinni frægur

fraegur

Leikhópurinn Silfurtunglið frumsýnir föstudaginn 23. leikverkið Ég var einu sinni frægur þar sem stórleikararnir Þráinn Karlsson, Gestur Einar og Aðalsteinn Bergdal leika sig sjálfa, gamla, bitra, geðilla leikara sem halda að þeir séu virtir, dáðir og sívinsælir. Sýningin gerist á Kanarí og fjallar um ferð eldri borgara frá Akureyri til Kanarí sem fer algjörlega úr […]

Ást á Húsavík

ast

Leikfélag Húsavíkur hefur að undanförnu æft Söngleikinn Ást eftir þá Vesturportsfélaga Gísla Örn Garðarsson og Víking Kristjánsson. Söngleikurinn Ást er íslensk saga, sem tekur á ástinni á fjörugum nótum en – eins og vera ber – með alvarlegum undirtón. Víst er, að áhorfendur munu skemmta sér konunglega og finna til samúðar með persónum verksins – […]

Síðustu sýningar á Rummungi ræningja

pafagaukur

Nú fer hver að verða síðastur að sjá Rummung ræningja hjá Leikfélag Ölfuss því nú fara í hönd síðustu sýningar á þessu þýska fjölskylduleikriti eftir barnabókahöfundinn og leikskáldið Otfried Preussler. Þetta er ævintýri eins og þau gerast best og koma við sögu máttug galdranorn, talandi froskur, spilandi kaffikvörn, sex fötur af kartöflum og svo auðvitað […]

Kæra Jelena í Verslunarskólanum

kaera_jelena

Listafélag Verslunarskóla Íslands sýnir um þessar mundir leikritið Kæra Jelena í leikstjórn Bjartmars Þórðarsonar. Leikritið var skrifað árið 1980 í Sovétríkjunum, þar sem sagan á sér stað, og uppreisn ríkti á meðal ungu kynslóðarinnar. Ljúdmíla Razúmovskaja er höfundur verksins. Yfirvöld lögðu í fyrstu bann við sýningu þess  en  árið 1986 sló það í gegn. Síðan […]

Stúdentaleikhúsið frumsýnir Nashyrningana

nashyrningarnir

Stúdentaleikhúsið í samstarfi við Norðurpólinn sýnir eitt helsta verk Absúrdleikhússins, Nashyrningana, eftir franska skáldið Eugéne Ionesco. Verkið er nú sýnt í fyrsta sinn á Íslandi í 23 ár en þess hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Stúdentaleikhúsið hefur leikið sig inn í hjörtu landsmanna með framsæknum sýningum í áraraðir og nú verður sannarlega haldið í […]

Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

augasteinn

Ævintýrið um Augastein er hugljúft jólaævintýri sem frumsýnt var fyrir 10 árum og hefur verið sýnt reglulega á aðventunni bæði hér á landi og í Bretlandi. Nú hafa orðið kynslóðaskipti í sýningunni, því Orri Huginn Ágústsson er tekinn við af Felix Bergssyni, sem hefur borið uppi sýninguna frá byrjun. Ævintýrið um Augastein var upphaflega samið á ensku og frumsýnt […]

Velkomin til Bjarmalands!

bjarmaland_ll

Föstudagskvöldið 9. nóvember kl. 21.00 frumsýnir Leikfélagið Peðið óperuna Bjarmaland II eftir Jón Benjamín Einarsson í Kjallaranum Laugarvegi 73. Tónlist og leikstjórn er í höndum Andreu Gylfadóttur. Bjarmaland II er sjálfstætt framhald óperunnar Bjarmaland rísandi land, sem flutt var af Peðinu í fyrra. Þá kynntumst við ástföngnu fólki sem var í giftingarhugleiðingum á barnum.

Gamli maðurinn á fjalirnar að nýju

gamli_madurinn

Brúðuheimar með Bernd Ogrodnik brúðulistamann í fararbroddi, settu upp sýninguna Gamli maðurinn og hafið á Listahátíð í vor í samvinnu við Þjóðleikhúsið. Sýningin fékk frábærar viðtökur og var sýningum hætt fyrir fullu húsi í sumarbyrjun. En nú er Bernd mættur heim til Íslands til að færa Gamla manninn og hafið upp að nýju í Þjóðleikhúsinu […]

Fíasól á Króknum

fiasol_hopur

Næstkomandi laugardag, 3. nóvember, frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks barnaleikritið Fíasól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, í leikgerð hennar og Vigdísar Jakobsdóttur. Fjórir leikarar standa á sviðinu, auk þess sem tæknimaður sýningarinnar er rödd utansviðs sem og á upptöku, en nokkrir leikarar félagsins tóku upp leiklestur fyrir útvarpsraddir og raddir fyrir símtöl. Leikstjórar eru heimafólkið Guðný H. Axelsdóttir […]

Fjögur verk í undirbúningi í Þjóðleikhúsinu

macbeth

Í Þjóðleikhúsinu er hafinn undirbúningur fyrir þrjár sýningar sem frumsýndar verða eftir áramót og í næstu viku hefjast æfingar á Macbeth, jólasýningu Þjóðleikhússins. Síðustu daga hafa leikhópar þriggja sýninga sem frumsýndar verða eftir áramót í Þjóðleikhúsinu hafið undirbúningsvinnu. Fyrst má þar nefna nýtt íslenskt verk sem sérstaklega var skrifað fyrir Þjóðleikhúsið, Karma fyrir fugla, eftir […]

Gullregn frumsýnt á Nýja sviðinu

gullregn

Gullregn Ragnars Bragasonar verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins 1. nóvember næstkomandi. Gullregn er mannlegt og broslegt en um leið harmrænt verk um fólk sem við þekkjum öll. Hér birtast Íslendingar nútímans með öllum sínum kostum og göllum. Hrár og ómengaður samtími. Leikstjórn er í höndum hins margreynda kvikmyndagerðmanns Ragnars Bragasonar en þetta er frumraun […]

Leikhópurinn Artik sýnir Hinn fullkomna jafningja

hinn_fullkomni_jafningi

Leikhópurinn Artik frumsýnir leikverkið Hinn fullkomni jafningi eftir Felix Bergsson í Norðurpólnum sunnudaginn 28. október. Verkið, sem er einleikur, var sýnt árið 1998 og lék þá höfundurinn sjálfur í verkinu sem fjallar um fimm menn sem taka mismunandi á samkynhneigð sinni. Með hlutverkin fimm í sýningunni fer Unnar Geir Unnarsson og leikstjóri er Jenný Lára […]

Bastarðar frumsýnt á Stóra sviðinu

braedur

Nýtt stórvirki úr smiðju Vesturports, Bastarðar, verður frumsýnd á Stóra sviðinu 27. október næstkomandi. Bastarðar er án efa viðamesta leikhúsverkefni sem unnið hefur verið á Íslandi en það er gert í samstarfi Vesturports, Borgarleikhússins, Malmö Stadtsteater og Får302 í Kaupmannahöfn. Gísli Örn Garðarsson leikstýrir verkinu og er höfundur handrits ásamt Richard LaGravenese sem tilnefndur hefur […]

Hrekkjavakan nálgast!

halloween

Vinsælasta vörutegundin í versluninni okkar frá upphafi eru vatnslitirnir frá Grimas, en þeir eru framleiddir undir ströngu gæðaeftirliti og innihalda engin skaðleg efni. Fjölmargir grunn- og leikskólar allt í kring um landið eru fastir kúnnar hjá okkur og segir það meira en mörg orð um gæði litanna, en leik- og grunnskólakennarar vilja auðvitað bara það […]

Rummungur ræningi í Þorlákshöfn

rummungur1

Leikfélag Ölfuss frumsýnir sunnudaginn 21. október fjölskylduleikritið Rummung ræningja eftir þýska barnabókahöfundinn og leikskáldið Otfried Preussler. Þetta er ævintýri eins og þau gerast best og koma við sögu máttug galdranorn, talandi froskur, spilandi kaffikvörn, sex fötur af kartöflum og svo auðvitað sjálfur Rummungur, grimmastur og ógurlegastur allra ræningja í Ræningjaskógi. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en […]