Leikfélag Vestmannaeyja 100 ára!

Leikfélag Vestmannaeyja fagnar 100 ára afmæli sínu um þessar mundir. Af því tilefni kemur félagið til höfuðborgarinnar helgina 11. og 12. júní og sýnir leikritið „Fullkomið brúðkaup“ eftir Robin Hawdon í þýðingu Arnar Árnasonar og í leikstjórn Ara Matthíassonar.

Rokk – áhugaleiksýning ársins sýnd 10. og 11. júní

Leikfélagið Hugleikur sýnir leikritið Rokk í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins fimmtudaginn 10. og föstudaginn 11. júní en sýningin var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins leikárið 2009-2010. Aðeins þessar tvær sýningar verða á Rokki í Þjóðleikhúsinu. Tónlist skipar vitaskuld stóran sess í sýningunni og er hún verk Eggerts Hilmarssonar, sem er einn af meðlimum Ljótu hálfvitanna. Það […]

Síðustu sýningar á Herra Potti og ungfrú Lok

Enn gefst tækifæri til að sjá “Herra Pott og ungfrú Lok” sem frumsýnd var í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu siðasta laugardag. Síðustu sýningar eru nú helgina 5. og 6. júní kl. 13 og 15. Hér er um heimsfrumsýningu á ræða á tónlist eftir Bohuslav Martinu og sögu Chisthophe Garda sem í fyrsta sinn er sýnt í […]

Leikfélag Ölfuss með tvö frumsamin útvarpsleikrit

Helgina 4.- 6. júní eru Hafnardagar í Þorlákshöfn og mikið um dýrðir. Af því tilefni verður opið hús hjá Leikfélagi Ölfuss í litla húsinu við Hafnarskeið á laugardaginn frá kl. 13-18. Húsinu hefur verið breytt í franskt kaffihús, Café Balance og fyrir utan verður listasmiðja (brúðuleikhúsgerð) og andlitsmálun fyrir börn. Haldin var samkeppni um nafn […]

Sýning tileinkuð sögu leiklistar í Hafnarfirði

Leikminjasafnið hefur samstarf við Byggðasafn Hafnarfjarðar um sýningu um leiklist í Hafnarfirði sem verður opnuð á Björtum dögum, föstudaginn 4. júní kl 17 í Góðtemplarahúsinu að Suðurgötu 7. Í Hafnarfirði hefur verið leikið í meira en 130 ár. Þar hafa bæði starfað áhugaleikfélög og atvinnuleikhús, auk þess sem ýmsir þjóðkunnir leikarar eru hafnfirskir að uppruna […]

Útsending fréttabréfa

bil_island_logo

Á sumrin hægist mjög um í leiklistarheiminum eins og flestir vita og minna um fréttnæma atburði. Af þeim sökum verða útsendingar fréttabréfsins því óreglulegar á tímabilinu 1. júní til 30. ágúst.

Hugleikur gefur Rokklag á netinu

Hugleiksmenn fóru í stúdíó fyrir nokkru og tóku upp lag úr sýningunni Rokki, enda varla annað hægt þar sem verkið fjallar ekki síst um hljómsveitir og meikdrauma. 27 heitir lagið (eða XXVII ef nördatilhneygingum textahöfundar fá að ráða) og fjallar um nokkur helstu rokkgoð sögunnar sem öll dóu á því aldursári.

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Hans klaufa

Laugardaginn 29.maí kl 16:00, frumsýnir Leikhópurinn Lotta fjölskylduleiksýninguna Hans klaufa í Elliðarárdalnum. Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Í framhaldi af frumsýningunni mun Leikhópurinn Lotta ferðast um landið með Hans klaufa. Sýndar verða tæplega 80 […]

Faust kveður Borgarleikhúsið en æfingar hafnar á Enron

Síðasta sýning Borgarleikhússins og Vesturports á Faust verður næstkomandi laugardag 29. Maí. Nú kveður sýningin Ísland og heldur í sumarlok til London þar sem hún verður frumsýnd í Young Vic leikhúsinu vinsæla í október. Sýningin verður kl. 16 svo spenntir Eurovision áhugamenn þurfa ekki að missa af neinu. Þeir geta bæði notið stórkostlegrar uppsetningar á […]

Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Maí

Í dag, fimmtudaginn 27. maí kl. 12:30, sýnir Áhugaleikhús atvinnumanna Maí, örverk um áráttur, kenndir og kenjar og verður það sýnt í beinni útsendingu á vefsíðunni www.herbergi408.is frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð.  Leikstjóri er Steinun Knútsdóttir og leikari er Orri Huginn Ágústsson.

Miðasala hafin á Rokk í Þjóðleikhúsinu

Nú er hafin miðasala á Athyglisverðastu áhugaleiksýningu ársins sem er að þessu sinni Rokk frá Hugleik í Reykjavík. Sýningin verður fimmtudaginn 10. júní en verkið hefur verið sýnt fyrir troðfullu húsi hjá Hugleik undanfarið. Sýningin í Þjóðleikhúsinu er því síðasti séns til að upplifa Rokkið. Höfundar eru Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam, Sigurður H. Pálsson og […]

Aukasýningar 39 þrepum í Íslensku óperunni

Fjöldi manns sótti sýningar LA helgina 7,-9. maí í Íslensku óperunni. Það var frábær stemmning, mikið hlegið og dynjandi fagnaðarlæti í lok sýninga. Vegna fjölda áskorana – og fyrir þá sem ekki komust þá helgi – verða  aukasýningar á  39 þrepum í Íslensku óperunni  helgina 21.-24. maí. Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir.

Aðalfundur Halaleikhópsins 2010

Fimmtudaginn 20. maí kl. 20.00 heldur leikfélagið Halaleikhópurinn aðalfund  í húsnæði sínu, Halanum Hátúni 12. Dagskrá fundarins verður skv. lögum félagsins og eru allir hvattir til að mæta, bæði gamlir meðlimir og þeir sem kunna að hafa áhuga á að starfa með félaginu en það starfar einmitt undir kjörorðunum leiklist fyrir alla.

Hellisbúinn á ferð um landið 5. – 19. júní

Sýningum á Hellisbúanum í Reykjavík lauk föstudaginn 30. apríl með látum. Nú þegar hafa 20.000 manns séð sýninguna. Vegna fjölda áskorana hefur nú ákveðið að fara í túr um landið. Hellisbúinn verður á ferðinni 5. – 19. júní og heimsækir sex bæjarfélög og verður ein sýning á hverjum stað.

Birtíngur kveður Suðurland

Leikritið Birtíngur sem Leikfélag Selfoss sýndi í vetur, heldur nú brátt í víking og ferðast norður yfir heiðar á NEATA-leiklistarhátíðina sem haldin verður á Akureyri 10.–15. ágúst næstkomandi. Áður en Birtíngur kveður Suðurland fyrir fullt og allt munu þó verða sýndar tvær fjáröflunarsýningar í Litla leikhúsinu við Sigtún á hátíðinni Vor í Árborg til að […]

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 1.-2. maí 2010 í Eyjafirði

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði 1.- 2. maí, 2010 1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason formaður setti fundinn og stakk upp á Bernharð Arnarssyni, Leikfélagi Hörgdæla, og Ingólfi Þórssyni, Freyvangsleikhúsinu, sem fundarstjórum og Ármanni Guðmundssyni, ritara þjónustumiðstöðvar, og Guðfinnu […]

Laus pláss í Leiklistarskóla Bandalagsins á Húnavöllum

skolalogo200

Vegna forfalla er núna laust pláss á grunnnámskeið í leikstjórn í Leiklistarskóla Bandalagsins á Húnavöllum dagana 12.-20. júní. Kennari á námskeiðinu er Sigrún Valbergsdóttir. Einnig er laust pláss á Röddin í leikhúsinu, framhaldsnámskeið Þórhildar Örvarsdóttur í Complete Vocal-tækni í raddbeytingu. Nánar um skólann hér

Aukasýningar á Munaðarlaus á Norðurpólnum

Fáar leiksýningar hafa vakið meiri lukku á árinu og komið meira á óvart en sýning leikfélagsins Munaðarleysingjar á leikritinu Munaðarlaus e. Dennis Kelly í leikstjórn  Vignis Rafns Valþórssonar. Sýningin var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og í kjölfar þess var henni boðið að vera óvissusýning ársins hjá Leikfélagi Akureyrar. […]

Af ástum manns og hrærivélar í Þjóðleikhúsinu

Það verða eflaust ófá hlátrasköllin sem munu hljóma þegar hjartnæmi heimilistækjasirkusinn Af ástum manns og hrærivélar verður frumsýndur fimmtudaginn 20. maí í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins. Það eru þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kristján Ingimarsson sem leika sambýlisfólkið Söru og Guðjón. Augasteinninn í lífi þeirra er Nilfisk ryksuga.

Kaffileikhús hjá Halaleikhópnum

Föstudaginn 14. maí kl. 20.00 og sunnudaginn 16. maí kl. 17.00 verður Halaleikhópurinn með Vorhristing, sýnd verða nokkur stuttverk, gjörningur framinn og tónlist flutt. Léttar veitingar verða í boði í hléi en þær eru innfaldar í miðaverði sem er aðeins 1.200 kr.

Blúndur og blásýra á Seyðisfirði

Föstudaginn 7. maí sl. frumsýndi Leikfélag Seyðisfjarðar gamanleikinn Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjóri er Snorri Emilsson. Frumsýningin gekk þó ekki áfallalaust því rafmagnið fór af Seyðisfirði skömmu skömmu fyrir hlé. Til að hafa ofan af fyrir frumsýningargestum gengu systurnar Abby og Marta Brewster, sem leikritið snýst að miklu […]

Ódauðlegt verk um stríð og frið frumsýnt

Fimmtudaginn 6. maí frumsýnir Áhugaleikhús atvinnumanna Ódauðlegt verk um stríð og frið eftir Steinunni Knútsdóttur. Verkið sem var forsýnt á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni LOKAL, er viðleitni til þess að skilja hvað það er í mannlegu eðli og samskiptum sem leiðir til átaka og ófriðs og er þriðja verkið í fimm verka röð eða kvintólógíu um mannlegt […]

Talsverðar breytingar á stjórn Bandalagsins

Á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga, sem haldinn var að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði, sl. helgi, urðu talsverðar breytingar á stjórn Bandalagsins. Tveir stjórnarmenn, þeir Ingólfur Þórsson, Freyvangsleikhúsinu, og Hörður Sigurðarson, Leikfélagi Kópavogs, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, Hugleik, ákvað að hætta í stjórn eftir árs setu þar. Í stað þeirra […]

Rokk athyglisverðasta áhugaleiksýningin

Sýning Hugleiks, Rokk var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af valnefnd Þjóðleikhússins. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, tilkynnti valið á nýafstöðnum aðalfundi BÍL sem haldinn var að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði. Miklar breytingar urðu á stjórn á fundinum en nánar verður sagt frá honum og vali athyglisverðustu sýningarinnar síðar. Hér til hliðar má sjá Þjóðleikhússtjóra afhenda Þorgeiri Tryggvasyni sem leikstýrði Rokki […]

Sólheimaleikhúsið sýnir í Þjóðleikhúsinu

Nú eru einungis tvær sýningar eftir hjá Sólheimaleikhúsinu á leikritinu, Þar sem að sólin á heima! eftir Eddu Björgvinsdóttur. Leikritið er skrifað sérstaklega í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima og fjallar um ævi Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur stofnanda Sólheima. Þaulreyndir leikarar Sólheimaleikhússins takast á við mörg ólík hlutverk og syngja að auki undurfalleg lög Péturs […]

39 þrep í Íslensku óperunni í maí

Leikfélag Akureyrar hefur ákveðið að sýna gamanleikinn 39 ÞREP í Íslensku óperunni í maí vegna mikillar eftirspurnar, en uppselt var á nær 50 sýningar fyrir norðan í vetur. Í þessum óborganlega gamanleik fara fjórir leikarar á kostum í 139 hlutverkum. Verkið er samið af Patrick Barlow en byggir á hinni frægu kvikmynd Hitchcocks, The 39 […]

Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Apríl

Fimmtudaginn 30. apríl sýnir Áhugaleikhús atvinnumanna sitt fjórða örverk um áráttur kenndir og kenjar. Örverkin sem öll eru kennd við mánuðinn sem þau eru flutt í, eru stuttar hugleiðingar um mannlega tilvist í Reykjavík dagsins í dag og eru hvert um sig frumsýnd síðasta fimmtudag í mánuði allt árið 2010. Apríl er sagður grimmastur mánaða […]

Rausnarlegt boð í Leiklistarskóla MÁF í Færeyjum

Meginfélag Áhugaleikara í Færeyjum rekur leiklistarskóla að íslenskri fyrirmynd og í ár er boðið upp á nokkur námskeið, þar á meðal námskeið í leikmyndagerð haldið af mjög virtum, dönskum leikmyndagerðarmanni, Jan de Neergaard. MÁF var að senda okkur skilaboð um að þeir bjóði nokrum íslendingum á námskeiðið ÓKEYPIS! Þeir þurfa bara að borga farmiðann sinn. […]

Rokkhjartað slær á Grandanum

HugleikurRokkLeikstóri: Þorgeir Tryggvason Það var nokkuð tilhlökkunarefni að koma í fyrsta skipti á sýningu hjá Hugleik í litla leikhúsinu þeirra á Eyjaslóðinni. Þau hafa alllengi verið á þeytingi um Reykjavík með sýningar sínar og jafnvel þurft að fara í úthverfi eins og Kópavog og Seltjarnarnes. Það sem má segja um húsið er að mér finnst […]

Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugaleiksýningunni

Nú er orðið ljóst hvaða sýningar sækja um að verða útnefndar í hinu árlega vali Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugaleiksýning ársins. Einungis níu sýningar sækja um í ár, sem er umtalsverð fækkun frá síðasta ári en þá voru umsóknirnar 19. Niðurstöður valnefndar verða tilkynntar á aðalfundi Bandalagsins að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði, laugardaginn 1. maí.

Faust sýnt í Young Vic leikhúsinu í London

Samningar hafa náðst um leikferð Borgarleikhússins og Vesturports með leikritið Faust í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar til hins virta leikhúss Young Vic í London komandi haust. Frumsýnt verður 1. október og verður sýnt í sex vikur samfleytt. Sýningin verður sýnd sjö sinnum í viku og er því ljóst að 42 sýningar á uppsetningunni verða í […]

Málþing um sviðslistir á Barnamenningarhátíð 2010

Í tilefni af yfirstandandi Barnamenningarhátíð boða Leiklistarsamband Íslands og Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010 til málþingsins Allir á svið?, laugardaginn 24. apríl klukkan 10–14. Málþingið er einhvers konar stefnumót sviðslista- og skólafólks og er í formi nokkurra örstuttra erinda sem öll varpa ljósi á stöðu sviðslista í íslenskum skólum og barnamenningu. Hverju erindi lýkur á spurningu […]

Hugleikur frumsýnir Rokk

Hugleikur frumsýnir nýtt íslenskt leikrit sem nefnist Rokk í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar föstudaginn 23. apríl kl. 20.00 í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9. Höfundar leikritsins eru Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam, Sigurður H. Pálsson og Þórarinn Stefánsson, en höfundur tónlistar er Eggert Hilmarsson. Einungis eru fyrirhugaðar 5 sýningar á Rokki.

Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýnir Draugar og forynjur

Leiklistarfélag Seltjarnarness hefur í vetur unnið að uppsetningu á leikverkinu Draugar og forynjur og sunnudaginn 25. apríl kl. 14.00 er komið að frumsýningu og þá um kvöldið kl. 20.00 verður 2. sýning. Verkið er hvort tveggja í senn frumsamið í samvinnu leikfélaga og leikstjóra Bjarna Ingvarsson og byggt á ýmsum þjóðsögum. Sýnt er í Félagsheimilinu […]

Tvö verk frumsýnd í Norðurpólnum um helgina

Það verður mikið um að vera í leikhúsinu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi um helgina því þar verða tvær leiksýningar frumsýndar. Laugardaginn 24. apríl frumsýnir leikhópurinn Börn Loka Glerlaufin eftir Philip Ridley í leikstjórn Bjartmars Þórðarsonar og sunnudaginn 25. apríl verður svo leikritið Tveir fátækir pólskumælandi Rúmenar eftir Dorota Maslowska í leikstjórn Heiðars Sumarliðsonar frumsýnt. Norðurpóllinn er […]

Íslandsklukkan frumsýnd á 60 ára afmæli Þjóðleikhússins

Þjóðleikhúsið verður 60 ára á fimmtudaginn 22. apríl, sumardaginn fyrsta, og þá um kvöldið verður jafnframt frumsýning á Íslandsklukkunni í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Íslandsklukkan var ein af þremur opnunarsýningum Þjóðleikhússins og verkið hefur, jafnt á bók sem á sviði, notið gífurlegra vinsælda hjá íslensku þjóðinni. Svipmiklar persónur þess, á borð við Jón Hreggviðsson (Ingvar E […]

Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu

Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 30. apríl 2010 kl. 12:30-16:45. Á þinginu verður kynnt greining á núverandi menningarstefnu á sviði lista, menningararfs, safna, fjölmiðla og æskulýðs- og íþróttamála. Tilgangur þingsins er að fá viðbrögð við fyrirliggjandi greiningu og að fá fram hugmyndir sem […]

Fólkið í blokkinni frumsýnt á Sauðárkróki

Á Sauðárkróki hafa menn fundið sér áhugamál þar sem fjölskyldan vinnur saman að uppbyggilegum verkefnum. Þetta áhugamál er leiklistin. Hvort sem um tilviljun er að ræða eða ekki, þá vill svo skemmtilega til að um þessar mundir eru bræður og systur, mæðgin og feðgin, mæðgur og feðgar að setja upp söngleikinn Fólkið í blokkinni með Leikfélagi […]

Síðustu sýningar á 39 þrepum

Hinn geysivinsæli gamanleikur 39 þrep hjá Leikfélagi Akureyrar hefur nú verið sýndur fyrir fullu húsi frá því í janúar. Í þessum nýstárlega og sprenghlægilega spennu-gamanleik takast fjórir hugrakkir leikarar á við 139 hlutverk, í einhverjum hröðustu, mest spennandi og fyndnustu 100 mínútum sem sést hafa á leiksviði. 39 þrep hlaut hin virtu Olivier verðlaun sem […]