Hlini kóngsson – Sögustund í Kúlunni
Undanfarin þrjú ár hefur Þjóðleikhúsið boðið börnum í elstu deildum leikskóla með kennurum sínum í heimsókn í leikhúsið til að fræðast á skemmtilegan hátt um leikhúsið og kynnast töfraheimi þess. Börnin taka þátt í sögustund með leikhúsívafi, en nú er spunnið og leikið út frá gamla ævintýrinu um Hlina kóngsson. Sögustundin hefur notið mikilla vinsælda […]
Leikfélagi Peðið sýnir óperuna Bjarmaland – rísandi land
Í tengslum við októberhátíð á Gallery – Bar, Hverfisgötu 46, sýnir Leikfélagið Peðið óperuna Bjarmaland – rísandi land eftir Jón Benjamín Eiríksson og Andreu Gylfadóttur. Verkið er sett í skemmtilegan óperustíl með tónlist eftir Andreu Gylfadóttur, sem einnig leikstýrir verkinu. Sýningar verða laugardaginn 8. október kl. 20:00 og sunnudaginn 9. október kl. 16:30. Einnig verður […]
Nývirki hjá Freyvangsleikhúsinu
Haustverkefni Freyvangsleikhússins 2011 verður frumsýnt föstudaginn 7. október kl. 20:00 í Freyvangi. Að þessu sinni er um að ræða stuttverkasýninguna Nývirki þar sem frumflutt verða 9 verk eftir 8 höfunda í leikstjórn 5 félagsmanna í Freyvangsleikhúsinu. 16 leikarar fara með hlutverkin og a.m.k. 7 aðstoðarmenn sjá um búninga, leikmuni, lýsingu, hljóð, sviðsmynd, miðasölu, afgreiðslu o.s.frv.
Evrópski trúðurinn – Námskeið í Gaflaraleikhúsinu
Þetta er námskeið sem rannsakar gleði og léttleika trúðsins. Það byggir á evrópskri trúðahefð sem notar rauða nefið (minnstu grímu í heimi). Námskeiðið býður þér upp á tækifæri til að draga fram þinn eigin trúð og gefur þér möguleika á að kynnast veröld þar sem trúðurinn þinn notar ýmsar aðferðir og tækni úr leikhúsinu á […]
Allt í plati á Króknum
Haustverkefni Leikfélags Sauðárkróks er barnaleikritið Allt Ì plati eftir Þröst Guðbjartsson. Leikarar eru 12 og sumir að stíga sín fyrstu skref á leiksviðinu. Leikstjóri er Íris Baldvinsdóttir. Stefnt er á frumsýningu í lok október. Í Allt í plati er farið inn í ævintýraheima þekktra barnaleikrita og er það Lína Langsokkur sem leiðir leikinn og kynnir […]
Námskeið í leiktækni
Leikfélag Kópavogs stendur fyrir námskeiði í leiktækni fyrir vana leikara dagana 8. 9. og 11. október. Leiðbeinandi er Rúnar Guðbrandsson. Námskeiðið hefst laugardaginn 8. okt. kl. 10.00. Enn eru nokkur laus pláss. Námskeiðið kostar 3.000 kr. fyrir utanfélagsmenn en er ókeypis fyrir félaga í LK. Þeir sem vilja taka þátt sendi tölvupóst á lk@kopleik.is.
Fúsi froskagleypir snýr aftur
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur hafið á ný sýningar á barnaleikritinu Fúsa Froskagleypi eftir Ole Lund Kirkegaard í Gaflaraleikhúsinu. Sýningin sló í gegn síðasta vetur og þurfti að hætta sýningum fyrir fullu húsi í vor. Verkið er bráðfjörugt barna og fjölskylduleikrit með skemmtilegri tónlist Jóhanns Moravek undir leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Leikritið fjallar á gamansaman hátt um samskipti […]
Einkamál.is aftur á svið
Hugleikur mun þann 7. október nk. hefja á ný sýningar á leikritinu Einkamál.is eftir Árna Hjartarson. Leikritið var frumsýnt sl. vetur og fékk lofsamlega dóma gagnrýnenda. Þegar sýningum var hætt í vor var uppselt flest sýningarkvöld. Sem fyrr er sýnt í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9.
Umóknareyðublað fyrir NEATA-hátíðina 2012

Aðildarfélög Bandalags ísl. leikfélaga geta sótt um að fara með sýningu á hátíðina. Þau sækja um til Bandalags ísl. leikfélaga fyrir 15. febrúar 2012 á eyðublöðum sem finna má hér. Upptökur af sýningum þurfa að fylgja umsóknum. Ef fleiri en ein sýning sækir um skipar stjórn Bandalagsins valnefnd sem velur sýningu. Hátíðin verður sú sjöunda […]
Æfingar hafnar á Eftir lokin
Leikhópurinn SuðSuðVestur æfir nú leikritið Eftir lokin eftir Dennis Kelly, í leikstjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Stefán þýðir einnig verkið ásamt Lilju Nótt Þórarinsdóttur en hún leikur jafnframt annað hlutverk verksins á móti Sveini Ólafi Gunnarssyni. Frumsýnt verður í Tjarnarbíói þann 29. október.
Beðið eftir gæsinni í Hafnarfirði og á Akranesi
Leikfélagið Frjálst Orð sýnir einleikinn Beðið eftir gæsinni eftir Ásgeir Hvítaskáld í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði fimmtudaginn 6. október klukkan 20:00 og sunnudag 9. október klukkan 20:00 og á Akranesi í Gamla Kaupfélaginu laugardaginn 8. október klukkan 20:30. Þessi einleikur var frumfluttur á bæjarhátið Egilsstaða á Ormsteiti í ágúst s.l. við frábærar móttökur.
Nemendaleikhús LHÍ sýnir Á botninum
Föstudaginn 23. september frumsýndi Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands Á botninum eftir Maxim Gorkí, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Verkið er fyrsta uppfærsla vetrarins hjá Nemendaleikhúsinu en í útskriftarhópnum eru 10 verðandi leikarar. Sýningar fara fram í Smiðjunni, leikhúsi Listaháskóla Íslands við Sölvhólsgötu 13.
Listaverkið frumsýnt 29. september
Þjóðleikhúsið frumsýnir á fimmtudaginn Listaverkið eftir Yazmina Reza en mörgum leikhúsunnendum er í fersku minni sýning Þjóðleikhússins á Listaverkinu árið 1997 með þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Ingvari E. Sigurðssyni og Baltasar Kormáki. Í þessari endurfrumsýningu verksins sameina þeir á ný krafta sína á leiksviði undir leikstjórn Guðjóns Pedersens og snúa aftur í sömu hlutverkum. Listaverkið […]
Eldfærin aftur á svið um helgina
Gói og Þröstur snúa aftur á Litla svið Borgarleikhússins um nú um helgina í Eldfærunum – fyrsta ævintýrinu af mörgum þeir félagar kynna ungum leikhúsgestum á komandi árum. Guðjón Davíð Karlsson fer með hlutverk dátans og Þröstur Leó Gunnarsson leikur allt annað í verkinu. Guðjón Davíð Karlsson fer með hlutverk dátans og Þröstur Leó Gunnarsson […]
Hassið í Halanum
Halaleikhópurinn hefur ráðið leikstjórana Margréti Sverrisdóttur og Odd Bjarna Þorkelsson til að leikstýra leikritinu Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo, jafnframt því að uppfæra og staðfæra verkið. Æfingar munu hefjast í nóvember og fyrirhugað er að frumsýna kringum mánaðarmótin janúar / febrúar 2012.
Með fullri reisn á ný
Leikfélag Hörgdæla hefur ávkeðið að taka aftur upp sýningar á Með fullri reisn þar sem hætta þurfti sýningum fyrir fullu húsi og með hundruð manna á biðlista sl. vor. Alls var leikritið sýnt 30 sinnum og sáu það 2.800 manns en nú verður 10 sýningum bætt við og hefjast þær 20. október. Forsala á sýninguna […]
Kortasala hafin hjá Leikfélagi Akureyrar

Kortasala fyrir nýtt leikár er hafin hjá Leikfélagi Akureyrar og er óhætt að segja að mikið verði í boði í leikhúsinu fyrir Akureyringa í vetur. Leikárið byrjar á að í september verða tvær gestasýningar en í október verða tvær frumsýningar á vegum LA, Svarta kómedían og Íslenski fjárhundurinn – saga þjóðar. Í nóvember verða svo […]
Síðustu sýningar á Tristram og Ísönd
Nú um helgina verða síðustu sýningar á uppsetningu Leikfélagsins Sýna á Tristram og Ísönd í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýnt verður föstudaginn 16., laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. september og hefjast allar sýningar kl. 20. Ekki verða fleiri sýningar þar sem einn leikaranna heldur erlendis í leiklistarnám. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig leikgerðina […]
Leikfélag Ölfuss æfir Himnaríki
Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Ölfuss á hinu bráðskemmtilega gamanleikriti Himnaríki eftir Árna Ibsen. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir verkinu og er það í þriðja sinn sem hann starfar með LÖ en hann leikstýrði tveimur sýningum hjá félaginu árið 2009, Blúndum og blásýru og Manni í mislitum sokkum. Himnaríki verður frumsýnt þann 14. október í Versölum, […]
Gróska 2011
Félag leikrita og handritshöfunda efnir til höfundahátíðar og umræðu um starf og stöðu höfundarins. Lesið verður úr nýjum íslenskum leikverkum eftir fimmtán höfunda. Í hópnum eru bæði reynsluboltar, höfundar sem þekktir eru fyrir ritstörf en einnig leikskáld sem eru að stíga sín fyrstu skref í ritlistinni. Alls munu á þriðja tug leikara taka þátt í […]
Dýnamískt 30 stunda leiklistarnámskeið
Dagana 3.-14. október heldur leikhúslistakonan Pálína Jónsdóttir leiklistarnámskeið þar sem hún kennir list og tækni leikarans með aðferðum Suzuki, Viewpoint og Composition. Þáttakendur læra líkamlegt æfingakerfi Suzuki leikaraþjálfunarinnar, spunaaðferðir og leikhústungumál Viewpoint aðferðarinnar og Composition sem þjálfar þátttakendur í að setja leikatriði saman. Á námskeiðinu verður unnið með klassíska texta í Suzuki þjálfuninni og í […]
NEATA-hátíðin í Danmörku 2012

Dagana 31. júlí til 5. ágúst 2012 verður sjöunda NEATA-leiklistarhátíðin haldin, að þessu sinni í Sønderborg á Suður-Jótlandi. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið og samvera í hátíðarklúbbi.
Fjölbreytt dagskrá hjá Leikfélagi Kópavogs
Leikfélag Kópavogs er með margt spennandi á prjónunum á komandi leikári. Í september verður í boði leiksmiðja sem er hugsuð fyrir byrjendur og styttra komna í leiklist. Unglingadeild félagsins hefur störf 19. september með námskeiði undir stjórn Grímu Kristjánsdóttur og í kjölfarið verður sett upp sýning sem áætlað er að frumsýna um miðjan nóvember. Í október verður haldið 3ja daga námskeið fyrir vana […]
Tristram og Ísönd frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu
Leikfélagið Sýnir frumsýnir í Gaflaraleikhúsinu þann 10. september nýja leikgerð af riddarasögunni um Tristram og Ísönd og þeirri óbærilegu ást sem þau báru hvort til annars og þeim grimmu örlögu sem stíuðu þeim í sundur. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig leikgerðina ásamt Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur. Einungis verða sýndar fimm sýningar.
Leikhúslýsing fyrir áhugaleikhús
Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri.
Leikfélag Selfoss kynnir vetrarstarfið
Vetrarstarfi Leikfélags Selfoss verður ýtt úr vör með hinum árlega haustfundi í Litla leikhúsinu við Sigtún mánudaginn 12. september kl. 20:30. Á fundinum verður dagskrá vetrarins kynnt en margir stórir sem smáir viðburðir verða á dagskrá á leikárinu þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi bæði sem áhorfendur og þátttakendur.
Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig
Leikhópurinn Fjöður í hatti sýnir leikritið Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig á Norðurpólnum. Dr. Flosi og Vanja frænka hans eru bestu vinir. Flosi er doktor í hlæju- og kitluvísindum og safnar hlátri í krukkur. Hann dreymir um að verða heimsfrægur snillingur og komast í heimsmetabók Gunnars. Einn daginn býður hann Vönju frænku í heimsókn […]
Fyrst tökum við Manhattan ..
Sviðslistaþing LSI í Tjarnarbíói, sunnudaginn 4. september kl 11.00 – haldið í tengslum við sviðslistahátíðina Lókal. Fyrirlesari er Åsa Edgren, stjórnandi Loco World. Í fyrirlestri sínum mun Åsa kynna fyrir íslenska sviðslistasamfélaginu sameiginlegt norrænt átak í Norður Ameríku sem ætlað er að auka sýnileika norræna sviðslista. Hún mun fjalla um verkefni umboðsskrifstofunnar Loco World frá […]
RÚV hlýtur tilnefningu fyrir DJÚPIÐ
Útvarpsleikhúsið – RÚV hlýtur tilnefningu fyrir DJÚPIÐ eftir Jón Atla Jónasson til evrópsku ljósvakaverðlaunanna, PRIX-EUROPA 2011, í flokki útvarpsleikrita. Hátíðin er nú haldin í 25. skipti í Berlín dagana 22.-29. október næstkomandi. Keppt er um besta efnið í Evrópu bæði í útvarpi og sjónvarpi, í hinum ýmsu flokkum. Alls voru 159 útvarpsverk frá 35 löndum […]
Þjóðleikhúsið byrjar leikárið með stæl
Leikárið í Þjóðleikhúsinu er hafið af fullum krafti. Æfingar standa yfir á margvíslegum verkefnum víðsvegar um húsið. Kynningarbæklingi Þjóðleikhússins var dreift í öll hús á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri en hægt er að kynna sér leiksýningar vetrarins hér.
Fræði og framkvæmd á Lókal
Í vor útskrifuðust tíu nemendur af brautinni fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands. Brautin leitast við að skapa grundvöll til nýsköpunar og auka fjölbreytni í íslensku sviðlistaumhverfi. Þremur nemendum var boðið að sýna lokaverkefni sýn á leiklistarhátíðinni Lókal.
16 sýningar 16 staðir 16 dagar
Kómedíuleikhúsið fer í haustleikferð um Vestfirði og Vesturland með tvö af sínum vinsælu leikverkum. Leikferðin stendur yfir dagana 9. – 24. september og verður sýnd ein sýning á dag alla dagana og það á 16 stöðum. Sýnd verða leikritin Jón Sigurðsson strákur að vestan og Bjarni á Fönix sem bæði hafa fengið ferska og góða […]
Námsskeið í hagnýtri og skapandi leiklist
Nýstofnaður Leiktækniskóli Magnúsar Jónssonar og Þorsteins Bachmann mun standa fyrir leiklistarnámskeiðum í vetur. Fyrsta námskeið hefst þriðjudaginn 6. sept. og stendur til og með 11. okt. Á námsskeiðinu munu þeir Magnús og Þorsteinn miðla af eigin reynslu en styðjast við klassíka aðferðafræði Stanislavskis, Mikhael Chekhov, Lee Strasbergs o.fl. í bland við nýja strauma og stefnur. Einnig munu […]
LÓKAL leiklistarhátíðin í Reykjavík 1. – 4. september
LÓKAL – alþjóðleg leiklistarhátíð í Reykjavík – er nú haldin í fjórða sinn. Hátíðin hefur frá upphafi haft tónlistarhátíðina Airwaves sem fyrirmynd, á LÓKAL er boðið upp á innlendar og erlendar sviðslistir sem þykja hvað markverðastar og nýstárlegastar hverju sinni. Á fjórum dögum gefst gestum tækifæri til að sækja þrettán viðburði, ganga í listabjörg og […]
Námskeið hjá Leikfélagi Ölfuss
Leikfélag Ölfuss býður félögum sínum upp á stórskemmtilegt leiklistarnámskeið dagana 23.-27. ágúst, alls 20 klukkustundir. Um er að ræða byrjendanámskeið fyrir 18 ára og eldri í umsjón Gunnars Björns Guðmundssonar þar sem fengist verður við alls kyns leiki, spuna- og textaæfingar með það að markmiði að efla sjálfstraust, sköpunargáfu og samskipti með gleði og gaman […]
Nýtt leikár í Þjóðleikhúsinu
Dagskrá haustsins í Þjóðleikhúsinu hefst með opnu húsi næstkomandi laugardag, 27. ágúst, klukkan 14:00-17:00, en opið hús er nú fastur liður í haustdagskrá leikhússins. Það verður mikið um að vera í Þjóðleikhúsinu þennan dag, þar sem gestum og gangandi verður boðið upp grillaðar pylsur, fjölskyldudagskrá á Stóra sviðinu, söngperlur í Leikhúskjallaranum, kynnisferðir, andlitsförðun og margt […]
Tristram og Ísönd í Gaflaraleikhúsinu
Leikfélagið Sýnir æfir nú af kappi nýja leikgerð af riddarasögunni um Tristram og Ísönd, þeirri óbærilegu ást sem þau báru hvort til annars og þeim grimmu örlögu sem stíuðu þeim í sundur. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig leikgerðina ásamt Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur. Sýnt verður í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði og verður frumsýning aðra […]
Leikhópurinn Maddid sýnir As Soon As They Know Me
Leikhópurinn Maddid sýnir nýtt leikhúsverk, As Soon As They Know Me, á Norðurpólnum dagana 20.-21. ágúst kl. 20:00. Verkið fjallar um hvernig nýtt umhverfi og nýjar aðstæður geta haft áhrif á okkur. Verkið er samið með svokallaðri devising leikhúsaðferð og notast við textabrot, leikspuna, tónlist og video-verk.
Beðið eftir gæsinni á Egilsstöðum
Leikfélagið Frjálst Orð sýnir nýjan einleik eftir Ásgeir Hvítaskáld á Kaffi Egilsstöðum, fimmtudaginn 18.ágúst, klukkan 20. Jón Vigfússon leikur örvæntingarfulla veiðimanninn sem hræðist mest af öllu að vera kallaður einnar gæsar veiðimaður. En gæsin er slungin og hefur áhrif á hugarheim veiðimannsins. Bráðfyndið og kaldhæðið verk.
Umsóknarfrestur að renna út
Stuttverkahátíðin í Þórshöfn í Færeyjum verður haldin 15. október á þessu ári. Færeyjar, Ísland og Noregur taka þátt og er hverju landi úthlutað 75 minútna sýningartíma sem það ráðstafar að vild. Þó mega einstakar sýningar ekki fara yfir 15 mínútur að lengd. Ef eitthvert landanna fyllir ekki tímakvótann sinn, getur annað land nýtt sér hann. […]
