Saumastofan á Hofsósi
Leikfélag Hofsóss frumsýnir Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson í Höfðaborg á Hofsósi laugardaginn 25. mars kl. 20:30. Leikstjóri er María Sigurðardóttir. Saumastofan er leikrit með söngvum sem frumsýnt var árið 1975, í tilefni kvennaársins. Leikritið er skrifað sem ádeila á þjóðfélagið á sínum tíma og er staða konunnar miðpunktur ádeilunnar. Verkið segir frá degi í lífi starfsfólks á saumastofu en ein kvennanna á afmæli og slá þær upp veislu í tilefni þess. Velt er upp ýmsum spurningum um stöðu konunnar, svo sem launamismun kynjanna, feðraveldið, þriðju vaktina og annað sem enn er í brennidepli. Þannig á verkið, þrátt fyrir að...
Sjá meira


