Ferðamaður deyr

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir laugardaginn 22. janúar nýtt gamanleikrit eftir höfundasmiðju leikfélagsins í leikstjórn Ólafs Þórðarsonar. Í kjallara í Reykjavík er hópur fólks í miðjum klíðum að standsetja íbúð fyrir útleigu til ferðamanna. Af óviðráðanlegum ástæðum neyðast þau skyndilega til að hýsa ferðamann í hálfköruðu húsnæðinu, sem leiðir af sér atburðarás sem ekkert þeirra hefði nokkurn […]
Form test
Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2022

Þrátt fyrir óvissu vegna Covid, stefnir Þjóðleikhúsið á val á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins næsta vor. Þjóðleikhúsið hefir verið í samstarfi við Bandalagið í tæpa þrjá áratugi með vali á leiksýningu úr smiðju áhugaleikfélaganna sem sérstaka athygli vekur. Í kjölfarið hefur viðkomandi félagi verið boðið að sýna í Þjóðleikhúsinu. Covid hefur komið í veg fyrir valið síðastliðin […]
Lífsins leikur – hlaðvarp um leiklistina í landinu

Leikhópurinn Leikfjelagið sem Arnfinnur Daníelsson og Halldóra Harðardóttir standa að, hefur hleypt af stokkunum hlaðvarpinu Lífsins leik. Í fyrsta þætti ræddu þau við formann og framkvæmdastjóra BÍL, þau Guðfinnu Gunnarsdóttur og Hörð Sigurðarson um þessi rúmlega 70 ára samtök áhugaleikfélaga á landinu. Þennan fyrsta þátt má hlýða á hér. Ætlun tvíeykisins er að halda áfram […]
Ársrit BÍL 2021 – vefútgáfa
Flettið með örvunum neðst. Hægt er að hlaða niður ársriti í fullum gæðum hér.
Jólakveðja frá Bandalaginu 2021

Bandalag íslenskra leikfélaga óskar aðildarfélögum, félagsmönnum, vinum og velunnurum gleðilegra jóla. Lokað verður á Þjónustumiðstöð frá og með 23. desember. Opnum aftur 4. janúar 2022. Vefverslun Leikhúsbúðarinnar er altaf opin. Sendingar gætu þó dregist um 1-2 daga.
Leikhúsmál – nýtt hlaðvarp

Kómedíuleikhúsið, atvinnuleikhús Vestfjarða, hefur komið á koppinn nýju hlaðvarpi um leiklist og leikhús. Hlaðvarpið nefnist Leikhúsmál og er nafn þáttarins nefnt eftir samnefndu tímariti er leikarinn Haraldur Björnsson gaf út um miðja síðustu öld. Umsjónarmaður Leikhúsmála er Elfar Logi Hannesson, leikari Kómedíuleikhússins og upptakari er Marsibil G. kristjánsdóttir. Leikhúsmál er vikulegur hlaðvarpsþáttur en hver þáttur […]
Hugleikur í hryllilegum leik

Um síðustu helgi sýndi Leikfélagið Hugleikur stuttverkadagskrána Hrollleikur, þar sem frumsýnd voru 5 stuttverk eftir höfunda félagsins. Þema dagskrárinnar var hrollur og hryllingur í ýmsum myndum og reyndust verkin sem af þessu þema spruttu afskaplega fjölbreytt – en um leið mjög í anda Hugleiks. Vegna heimsfaraldursins var dagskráin aðeins sýnd einu sinni, en hægt var […]
Í fylgd með fullorðnum – áheyrnarprufur

Í fylgd með fullorðnum er nýtt leikrit eftir Pétur Guðjónsson sem Leikfélag Hörgdæla mun frumsýna í mars á næsta ári. Áheyrnarprufur verða haldnar á Melum í Hörgárdal sunnudaginn 5.desember milli 10 og 14. Leitað er eftir leikurum á öllum aldri, um barna og unglingahlutverk er líka að ræða. Æfingar munu fara fram á Melum í febrúar […]
Skrifað um Smán

Smán eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Sindra Swans í uppsetningu Freyvangsleikhússins Það þarf sannarlega hugrekki að taka frumsamið verk og setja á svið hjá áhugaleikhúsi og hvað þá í miðjum faraldri. Freyvangsleikshúsið hélt handritasamkeppni fyrir um 2 árum og þetta verk var hlutskarpast á endanum. Ég vissi ekkert um hvað verkið var er ég […]
Ronja ræningjadóttir á Króknum

Leikfélag Sauðárkóks frumsýnir sunnudaginn 14. nóvember, barnaleikritið Ronju ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Sigurlaugar Vordísar Eysteinsdóttur. Sýnt er í Bifröst á Sauðárkróki . „Ronja er eitt af mörgum frábæru leikverkum Astridar en hefur kannski ekki náð alveg sama flugi og önnur eins og t.d. Lína Langsokkur og Emil í Kattholti, sem mér finnst persónulega skrýtið […]
Líf og fjör hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss Beint í æð Höfundur: Ray Cooney Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson Leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson Á mínum ungdómsárum voru sýndir þættir í sjónvarpinu sem hétu Líf og fjör í læknadeild. Þættir þessir komu upp í hugann á sýningunni Beint í æð eftir Ray Cooney. Leikritið gerist á spítala og í þessari uppsetningu er sá […]
Stúart litli í Mosfellsbæ

Leikfélagi Mosfellssveitar frumsýndi Stúart litla, glænýjan fjölskyldusöngleik föstudaginn 5.nóvember. Söngleikurinn er byggður á bókinni Stúart Litli eftir E.B. White og samnefndri kvikmynd sem flestir ættu að kannast við. Blær Kríli vill ekkert meira í heiminum en að eignast lítinn bróður. Friðrik Kríli og Nóra Kríli kynnast lítilli mús að nafni Stúart, kolfalla fyrir honum og […]
Fyrsti kossinn frumsýndur

Föstudagskvöldið 22.október frumsýndi Leikfélag Keflavíkur söngleikinn „Fyrsti kossinn“ í Frumleikhúsinu. Söngleikurinn er saminn af þeim Brynju Ýr Júlíusdóttur og Guðlaugi Ómari Guðmundssyni sem bæði hafa starfað innan leikfélagsins í mörg ár. Leikstjóri sýningarinnar er Karl Ágúst Úlfsson og danshöfundur Brynhildur Karlsdóttir. Uppselt var á frumsýninguna og óhætt að segja að stemningin hafi verið ótrúleg þar […]
Leikfélag Fljótsdalshéraðs sýnir Tom, Dick og Harry

Sundurlimuð lík, smygl og ólöglegir innflytjendur var ekki beint það sem Tom og Linda sáu fyrir sér daginn sem konan frá ættleiðingarstofunni ætlaði að koma til að taka út aðstæður á heimilinu. Dick og Harry, hinir vitgrönnu bræður Tom, sjá hinsvegar til þess að allt fer úrskeiðis sem mögulega getur gert það. Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir vandræðafarsann […]
Nýtt íslenskt leikverk hjá Freyvangsleikhúsinu

Vorið 2019 hélt Freyvangsleikhúsið handritasamkeppni og bárust nokkur handrit í samkepnnina, send til félagsins undir dulnefnum höfunda. Tekin var ákvörðun um að setja á svið verkið Smán og á daginn kom að verkið var eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Fyrirhugað var að setja upp verkið haustið 2020 en ástandið í samfèlaginu gerði það að verkum að […]
Námskeið í brelluförðun

Leikfélagið Hugleikur stendur fyrir námskeiði í brelluförðun (special effects) 16. og 17. október. Leiðbeinandi er Ninna Karla Katrínardóttir. Þátttakendur læra að nota latex og vax við sáragerð og aðrar leikhúsbrellur. Þeir læra um bestu aðferðir og val á réttum litum fyrir marbletti, sár, hrukkur og fleira. Vilji þátttakendur fræðast um fleiri atriði í leikhúsförðun gefst færi […]
Bændablaðið kynnir áhugaleiklistina

Skemmtileg og fróðleg kynning á starfsemi áhugaleikfélaganna er þessar vikurnar og mánuðina á síðum Bændablaðsins. Óumdeilt er hve áhugaleikfélögin eru mikilvægur hluti af menningarlífi landsmanna ekki síst í hinum dreifðu byggðum. Enda þykir þeim á Bændablaðinu fullt tilefni til að kynna hið frjóa og öfluga starf sem þar fer fram. Bændablaðið hefur löngum verið þekkt […]
Obbosí, eldgos! í Halanum

Halaleikhópurinn hefur ráðið Sigrúnu Valbergsdóttir til að endurskrifa leikrit sitt, Ábrystir með kanil og setja upp með félaginu í vetur. Verkið sem endurskrifað hefur fengið nafnið Obbosí, eldgos!, er bráðskemmtilegur farsi sem gerist á heimili ferðaþjónustubónda. Margar kostulegar persónur koma þar við sögu og eins og í öllum góðum försum hleðst upp misskilningur á misskilning […]
Brellur og fjör í Kópavogi

Höfundar: Skúli Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson Leikstjórn: Gunnar Björn Guðmundsson Leikmynd: Þorleifur Eggertsson, Frosti Friðriksson og Örn Alexandersson Ljós: Skúli Rúnar Hilmarsson Hljóð: Hörður Sigurðarson Búningar: María Björt Ármannsdóttir og Marín Mist Magnúsdóttir Leikfélag Kópavogs hefur verið duglegt við að sinna börnum og unglingum í gegnum tíðina bæði með hefðbundnum barnasýningum og með því […]
Rúi og Stúi snúa aftur

Leikfélag Kópavogs frumsýndi barnaleikritið Rúa og Stúa síðastliðinn vetur í Leikhúsinu í Kópavogi. Vegna Covid þurfti að hætta sýningum í miðju kafi en nú tekur leikfélagið upp þráðinn að nýju og fyrsta sýning verður 2. okt. næstkomandi. Rúi og Stúi hafa smíðað vél sem getur allt. Hún getur búið til hluti, gert við hluti, gert […]
Fyrsti kossinn í Frumleikhúsinu

Leikfélag Keflavíkur fagnar 60 ára afmæli með 100. leiksýningu félagsins. Í ár fagnar leikfélagið 60 ára afmæli og af því tilefni verður söngleikurinn „Fyrsti kossinn“ frumsýndur í Frumleikhúsinu þann 22. október nk. Sýningin er jafnframt sú 100. í sögu félagsins ef rétt er talið og því ber að fagna eins og segir í fre´ttatilkynningu frá félaginu. […]
Samlestur á Selfossi

Leikfélag Selfoss boðar til samlestrar á gamanleik sem ætlunin er að setja upp í vetur. Samlesturinn er opin öllum áhugasömum 18 ára og eldri, hvort sem áhuginn liggur á sviði leiklistar eða bak við tjöldin. Að vanda er tekið sérstaklega vel á móti nýju fólki sem hefur áhuga á að bætast í hina sístækkandi leikhúsfjölskyldu […]
Bakkabræður í Gaflaraleikhúsinu

Hinn bráðfjörugi brúðuleikur Kómedíuleikhússins um Bakkabræður er sló í gegn fyrir vestan í sumar heldur nú suður á svið. Bakkabræður hafa komið sér vel fyrir i Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði og er fyrsta sýning laugardaginn 19. september kl.13.00. Önnur sýning verður daginn eftir kosningar, sunnudaginn 26. september kl.13.00. Miðasla fer fram á tix.is og í Gaflaraleikhúsinu. […]
Sigurður Illugason Listamaður Norðurþings 2021

Sigurður Illugason hefur verið valinn Listamaður Norðurþings 2021. Sigurður hefur verið öflugur félagsmaður og virkur leikari í röðum áhugahreyfingarinnar um árabil. Hann hefur tekið þátt í nær hverri einustu uppsetningu Leikfélags Húsavíkur, eins elsta og virtasta áhugaleikfélags landsins, undanfarin 30 ár. Valið á Sigurði sem Listamanni Norðurþings er viðurkenning á mikilvægi áhugahreyfingarinnar í listalífi landsins. […]
Í myrkri eru allir kettir gráir

Leikhópurinn Umskptingar frumsýnir tvíleikinn Í myrkri eru allir kettir gráir 18. september næstkomandi. Sýningin er svokallaður tvíleikur, eða tveir einleikir sýndir sama kvöldið. Verkin eru að mörgu leyti ólík en fjalla þó bæði í grunninn um mennskuna og hvernig fólk glímir á ólíkan hátt við áföll. Facebooksiðu Umskiptinga er að finna hér og á Instagram: @umskiptingar.leikhopur. […]
Tækninámskeið í Þjóðleikhúsinu

Fræðsludeild Þjóðleikhússins mun standa fyrir tækninámskeiðum dagana 1. – 3. okt. þar sem farið verður yfir helstu atriði er varða ljósatækni og hljóðtækni.Námskeiðíð er ætlað ljósa og hljóðmönnum áhugaleikhúsa, félagsmiðstöðva og þeirra sem vinna með ljós og hljóð á öðrum vettvangi. Þáttakendur þurfa að hafa náð 16-17 ára aldri og hafa eitthvað fengist við ljósa […]
Tækifærisleikhús – Pop-up-leikhús

Leikfélag Hafnarfjarðar býður gesti og gangandi velkomna í tækifærisleikhús (pop-up-leikhús) næstkomandi laugardag, 11. september. Frá morgni og fram undir kvöld verður hægt að koma í leikhúsið í Kapellu St. Jó, Suðurgötu 41, og fylgjast með leikritum verða til – frá sköpun til sýningar. Öllum sem vilja er jafnframt boðið að taka þátt í verkefninu, hvort sem […]
Námskeið í gamanleik á Selfossi

Leikfélag Selfoss stendur fyrir leiklistarnámskeiði fyrir fullorðna (16 ára og eldri). Leiðbeinandi á námskeiðinu er Gunnar Björn Guðmundsson sem hefur einnig verið ráðinn leikstjóri fyrir verk vetrarins. Námskeiðið er þriggja daga leiklistarnámskeið með áherslu á gamanleik. Þetta er skapandi leiklistarnámskeið þar sem unnið er með leikgleði, samvinnu, sjálfstraust, spuna og virka hlustun. Leitast er við […]
Aðalfundur Freyvangsleikhússins mán. 13. sept.

Aðalfundur Freyvangsleikhússins verður haldinn mánudaginn 13. september kl. 20:00. Dagskrá: Almenn aðalfundarstörf. Stjórnarkosningar. Önnur mál. Nýjir sem og gamlir félagar velkomnir. Hvetjum alla sem hafa áhuga á starfinu að láta sjá sig. Heitt á könnunni! Sjáumst í Freyvangi Stjórn Freyvangsleikhússins
Þjónustumiðstöð opnar 12. ágúst

Þjónustumiðstöð BÍL opnar fimmtudaginn 12. ágúst eftir sumarfrí. Vefverslun Leikhúsbúðarinnar er auðvitað opin allan sólarhringinn. Erindum í tölvupósti er svarað fljótt og vel.
Act alone frestað

Leiklistar- og listahátíðinni Act alone hefur verið frestað í ár. Í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum segir: „Hve lífið getur verið einstakt og einleikið. Annað árið í röð verðum við að fresta okkar árlegu Act alone leiklistar- og listahátíð á Suðureyri. Hátíðin átti að vera haldin hátíðleg í næstu viku, 5. – 8. ágúst og var það […]
Svipmyndir úr skólanum 2021
Athugið að myndir eru EKKI í fullri upplausn! [outofthebox dir=“/bil/skrifstofa/bíl bréf/leiklistarskóli bíl/leiklistarskóli 2021/myndir frá nemendum/skoli2021myndir“ account=“dbid:AAB3TrA0dW_a0fpAbWOJQmvW19kBlA8nAAI“ mode=“gallery“ viewrole=“administrator|author|contributor|editor|subscriber|guest“ downloadrole=“all“]
Opnunartímar í sumar

[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ _builder_version=“3.22″][et_pb_row admin_label=“row“ _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text admin_label=“Text“ _builder_version=“4.9.4″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″] Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga verður lokuð 12. júlí – 7. ágúst.Athugið að vefverslun Leikhúsbúðarinnar er áfram opin allan sólarhringinn en afgreiðsla pantana gæti tekið ögn lengri tíma í sumar en venjulega. Fyrirspurnir má senda á […]
Læst: Sýnir – félagaskráning
Það er enginn útdráttur því að færslan er læst.
Leikfélagið Sýnir – skráning í félagið
Fyrsta listahátíðin eftir afléttingar

Reykjavík Fringe hátíðin hefst um næstu helgi og stendur yfir frá 3.-11. júlí. Þetta er fyrsta listahátíðin sem fer fram eftir allar afléttingar, og verða 70 atriði sýnd yfir 150 sinnum á 8 daga tímabili á 15 staðsetningum víða um borgina. Sérstök RVK Fringe miðstöð verður í Aðalstræti 2, gamla Geysishúsinu, þar sem gestir og […]
Aðalfundur Leikflokks Húnaþings vestra

Leikflokkur Húnaþings vestra hélt aðalfund sinn í Félagsheimilinu á Hvammstanga 21. maí sl. Breyting varð á stjórn félagsins þegar Hörður Gylfason sagði sig frá formennsku og stjórnarsetu. Eru honum færðar kærar þakkir fyrir sitt starf í þágu leikflokksins. Arnar Hrólfsson var kjörinn formaður og Elísabet Sif Gísladóttir var kosin í stjórn. Stjórn leikflokksins skipa: Arnar […]
Læst: Leiklistarskóli BÍL 2021 – Könnun
Það er enginn útdráttur því að færslan er læst.
