Leikhópurinn Leikfjelagið sem Arnfinnur Daníelsson og Halldóra Harðardóttir standa að, hefur hleypt af stokkunum hlaðvarpinu Lífsins leik. Í fyrsta þætti ræddu þau við formann og framkvæmdastjóra BÍL, þau Guðfinnu Gunnarsdóttur og Hörð Sigurðarson um þessi rúmlega 70 ára samtök áhugaleikfélaga á landinu. Þennan fyrsta þátt má hlýða á hér.

Ætlun tvíeykisins er að halda áfram umfjöllun  leikfélögin í landinu og ástæða til að hvetja leiklistaráhugafólk að fylgjast með. Upplýsingar um Leikfjelagið og hlaðvarpið má finna hér.