Þann 29. október frumsýnir leikhópurinn SuðSuðVestur leikritið Eftir lokin eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, í þýðingu Stefáns Halls Stefánssonar og Lilju Nætur Þórarinssonar. Stefán er jafnframt leikstjóri og Lilja Nótt leikur annað hlutverki á móti Sveini Ólafi Gunnarssyni. Sýnt er í Tjarnarbíói og hefjast sýningar kl. 20.00.

Eftir Lokin segir frá tveimur einstaklingum, Markúsi og Lísu, vinnufélögum sem eru innilokuð í sprengjubyrgi eftir kjarnorkuárás. Samskipti þeirra einkennast af togstreitu og spennu, ástandið er eldfimt og spurningin er: Þau lifðu hörmungarnar af en lifa þau af hvort annað?

Leikararnir Lilja Nótt Þórarinsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson hafa getið sér gott orð í leikhúsinu undanfarin ár, auk þess sem þau hafa verið mjög áberandi á kvikmyndatjöldum og sjónvarpsskjáum landsins.

Tónlist gerir Gísli Galdur Þorgeirsson, leikmynd og búninga hannar Brynja Björnsdóttir og Stefán Benedikt Vilhelmsson sér um lýsingu.

Miðasala er í síma 527-2100, á tjarnarbio.is og midi.is

Fimmtudagur 3. nóvember
Laugardagur 5. nóvember
Laugardagur 12. nóvember
Fimmtudagur 17. nóvember
Föstudagur 18. nóvember
Föstudagur 25. nóvember
Laugardagur 26. nóvember
Föstudagur 2. desember
Laugardagur 3. desember

{mos_fb_discuss:2}