Leikfélag Mosfellssveitar fagnar um þessar mundir 35 ára starfsafmæli. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð í Bæjarleikhúsinu dagana 1.-4. nóvember. Í kvöld, þriðjudaginn 1. nóvember kl. 20, verður sýnd sýningin Mórar og meyjar – draugasögur í tali og tónum eftir Maríu Guðmundsdóttur og BirgiSigurðsson. Í sýningunni eru sviðsettar magnaðar draugasögur úr Mosfellssveitinni og af Akranesi. Feðgarnir á Tindum, Atli, Bjarni og Guðlaugur (Tindatríóið) ásamt Sveini Arnari sjá um viðeigandi tónlistarflutning.
Miðvikudaginn 2. nóvember kl. 20 verður boðið upp á sýnikennslu í sirkuslistum. Þá mun Egill Wild ásamt aðstoðarmönnum sýna og kenna grunnatriði í sirkuslistum. Föstudaginn 4. nóvember kl. 20 eru gestir boðnir velkomnir í leikhúsið og fylgjast með opinni æfingu. Aðgangur er ókeypis á alla atburðina.
{mos_fb_discuss:2}