Leikfélagið Silfurtunglið heldur áfram starfsemi en fyrr á þessu ári sýndi leikfélagið söngleikinn Hárið í menningarhúsinu Hofi á Akureyri og í Hörpu í Reykjavík fyrir um 19.000 áhorfendur.

Á föstudag, 18. nóvember, frumsýnir Silfurtunglið nýtt frumsamið verk eftir Jón Gunnar Þórðarson „Saknað“; Tíu ár eru liðin frá hvarfi Önnu Taylor. Fjölskyldan lifir enn í þeirri von að einn daginn muni hún koma heim.

Líf þeirra stendur í stað, en skyndilega kemur vísbending; Anna Taylor gæti verið á lífi, en hver tók hana og hvar hún er niðurkomin veit enginn, nema sá seki og Anna.

Verkið fjallar um fjölskylduna, leitina og tilraunir fjölskyldunnar til að viðhalda heiðri og mannorði þeirra hreinu.  Þetta er dramatískt verk sem gerist allt á heimili fjölskyldunnar og krefst mikils af leikurunum.

Jón Gunnar Þórðarson setti upp leikritið LILJA á vegum Silfurtunglsins í Englandi og síðar í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Sú sýning fjallaði um mansal og dökku hliðar mannkynsins.  Þar lék Jana María Lilju og Ólafur Ingi vin hennar Volodja, nú stíga þau aftur á svið en viðfangsefnið er annað en þó nátengt; Týnd börn.

Leikararnir Þrúður Vilhjálmsdóttir og Kári Viðarsson ganga nú til liðs við Silfurtunglið en aðrir meðlimir Silfurtunglsins, þau Ívar Helgason og Jana María Guðmundsdóttir fara einnig með hlutverk í Saknað. Það má einnig benda á að yngsti meðlimur Silfurtunglsins er á lokaári í grunnskóla, Ólafur Ingi Sigurðsson, en hann hefur talsverða leikreynslu á bakinu þrátt fyrir ungan aldur. „Saknað“ er í samvinnu við Leikfélag Akureyrar og verður frumsýnt 18. nóveber í Rýminu, Akureyri.

Leikmyndahönnuður er Mekkín Ragnarsdóttir en hún hefur hannað leikmyndir við allar uppsetningar Silfurtunglsins.
Aðeins verða 6 sýningar á verkinu, og reglan fyrstir koma fyrstir fá gildir hér.  Miðasalan er hafin á leikfelag.is og midi.is og í miðasölusímanum 4 600 200.